Morgunblaðið - 28.12.1973, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.12.1973, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 28. DESEMBER 1973 15 Vilja græn- lenzkan þjóðfána Julianehaab, frá fréttaritara Morgunblaðsins, Henrik Lund. 1 JÓLABLAÐI „Grænlands- p6stsins“,sem er nýkominn út, er borin fram tillaga um að Græn- land fái sinn eigin þjóðfána. Tillagan er undirrituð af fimm mönnum, sem hafa dvalizt i Færeyjum í sumar. Þeir styðja m.a. tillögu sfna með þvf, að Grænland sé nú í þann veginn að fá heimastjórn, sem muni leiða til vaxandi sjálfstæðis og sjálf- ræðis. Fimmmenningarnir leggja til að fáninn verði grænn krossfáni. Krossinn skuli vera hvitur með bláum kanti sem tákn um hið hvíta land, sem sé umgirt hinu bláa hafi. Græni grunnliturinn á að virka sem andstæða við bláu, brúnu og steingráu litina, sem Framhald á bls. 18 Bretar óttast árás úr lofti á Belfast Belfast, 27. desember, NTB. AP. BREZKI herinn hefur komið upp loftvarnabyssum umhverfis Bel- fast til þess að verjast árásum flugvéla, að sögn yfirherstjórnar- innar á Norður-trlandi í dag. Að sögn blaðsins Daily Mail hefur tekizt að afla upplýsinga um, að loftárás sé í raun og veru fyrirhuguð á Belfast. Loftvarnabyssunum var komið fyrir, þegar einum af foringjum Irska lýðveldishersins (IRA), Seamus Twomey, var bjargað í þyrlu úr Mountjoy-fangelsi i Dyflinni i október. „Ef skærulið- ar geta rænt þyrlu i írska lýð- veldinu geta þeir líka rænt flug- vél á Norður-trlandi,“ sagði tals- maður herstjórnarinnar. Lengi hefur verið talið, að IRA ráði yfir nokkrum léttum flugvél- um og eftir fangelsisflóttann sagði Twomey, að IRA mundi taka upp nýjar aðferðir, til dæmis víkingaárásir úr lofti. Flóttinn leiddi til þess, að allar öryggisráðstafanir voru endur- skoðaðar; að sögn herstjórnarinn- ar. Loftvarnarstöðvarnar eru búnar þungum vélbyssum. 25. sprengja skæruliða sprakk í London seint í gærkvöldi og lög- reglan telur, að sprengjuherferð IRA í borginni sé ekki lokið. Rúm- lega 70 mánns hafa særzt í Frakkar leita hóps vopnaðra skæruliða Paris, 27. desember. NTB. AP. LÖGREGLAN I Frakklandi hefur skipulagt umfangsmikla leit að hópi hryðjuverkamanna, sem flýðu úr villu í bænum Villiers- sur-Marne skammt frá París skömmu eftir skyndiárás leyni- lögreglumanna. Vörður hefur verið efldur i öll- um landamærastöðvum og öllu til- tæku liði er beitt I leitinni að mönnum, sem hurfu í bíl hlöðn- um vopnum og sprengiefni. Árás var gerð á villuna þegar lokið var yfirheyrslum Palestínu- manna, sem voru staðnir að þvi að reyna að smygla vopnum til Italíu. Leyniþjónustustarfsmenn hand- tóku alls 12 menn í villunni og lögðu hald á mikið magn af vopn- um og sprengiefni, sem hefði nægt til að sprengja að minnsta kosti 20 flugvélar i loft upp. Sérfræðingar rannsaka nú mikinn f jölda bréfa, korta og ann- arra gagna, sem voru einnig gerð upptæk til þess að fá úr þvi skorið hvað vakti fyrir samtökunum. 20 kíló af plastsprengiefni fundust og sprengjubréf og sprengjugildr- ur. Hermdarverkamennirnir munu ekki vera félagar í neinum kunn- um hryðjuverkasamtökum. Tíu hinna handteknu eru Tyrkir þar af tvær konur, tveir eru Pale- stínu-Arabar og einn Alsírmaður. Skjölin, sem fundust, sýna, að hryðjuverkamennirnir áformuðu árás á ísraelska sendiráðið og að þeir ætluðu að ræna syni diplómats að sögn franska sjón- varpsins. Fréttin hefur ekki verið staðfest. Góðar heimildir herma, að hryðjuverkamennirnir hafi ætlað að ráðast á Ciampiso-flugvöll við Róm. Itölskum yfirvöldum var sagt frá þessu og hundruð lög- reglumanna í brynvörðum vögn- um fóru til flugvallarins á jóla- dag. Blaðafréttir herma, að Tyrk- irnir séu félagar í Frelsisfylkingu Tyrklands, sem i fjögur ár hefur barizt gegn stjórninni i Ankara. Palestínumennirnir eru sagðir félagar í Frelsisfylkingu Palest- ’inu, en þau samtök segjast ekkert vera við málið riðin. Samkvæmt góðum heimildum kom israelska leyniþjónustan upp um hryðjuverkamennina. Góð samvinna er milli hennar og frönsku leyniþjónustunnar þrátt fyrir stirða sambúð ríkisstjórna landanna. sprengjuárásunum. A Norður-Irlandi biðu fjórir bana og um 40 særðust i spreng- ingum og skotbardögum um jólin í ýmsum bæjum. Aðfangadags- kvöld var kallað hið blóðugasta i manna minnum. Ford mundi sigra New York, 27. desember AP. GERALD R. Ford varaforseti hefur meira fylgi en Edward M. Kennedy, Henry H. Jackson öldungadeildarmaður, þeir tveir menn sem koma helzt til greina sem forsetaefni demókrata f forsetakosningun- um 1976 samkvæmt skoðana- könnun Harrisstofnunarinn- ar. 48% þeirra, sem voru spurð- ir, kváðust heldur mundu kjósa Ford en Kennedy, 44% kváðust mundu kjósa Kennedy en 8% voru ekki vissir. 43% kváðust hejdur mundu kjósa Ford en Jaékson, 41% kváðust mundu kjósa Jackson en 6% voru ekki vissir. Bilun um borð í „Soyuzi 13”? Moskvu, 27. desember, AP. SOYUZ 13 lenti heilu og höldnu á sléttum Sfberíu á annan jóladag og eru geimfararnir báðir við beztu heilsu. Yfirvöld hafa lýst því yfir, að ferðin hafi gengið að óskum en ýmislegt bendir til, að hætt hafi verið við aðalverkefni geimfaranna vegna bilunar í þessu nýja geimfari. Vestræna vísindamenn fór að gruna, að eitthvað hefði farið úr- skeiðis þegar farið var að bera menntun geimfaranna saman við verkefni þeirra. Pyotr Klimuk er tilraunaflugmaður og Valentin Lebedev er geimskipahönnuður en um miðja geimferðina var farið að leggja aðaláherzlu á stjörnurannsóknir. Þegar Soyuz 13 var skotið á loft 18. desember síðastliðinn sagði I fréttatilkynningu um atburðinn, að geimfararnir ættu að þaul- Yfir 17 metra háa kirkju Carrero Blanco, forsætisráð- inni er gfgurinn eftir spreng- herra Spánar, var myrtur f fyrri viku og er óhætt að segja, að hann hafi hreinlega verið sprengdur í loft upp. Bifreið hans tókst á Ioft við sprenging- una, þeyttist yfir 17 metra háa kirkju og lenti á svölurn henn- ar bakatil. Örin á tveggja dálka myndinni sýnir leið bifreiðar- innar en á þriggja dálka mynd- ínguna. Yfirvöld segja, að sprengj- unni hafi verið komið fyrir neðanjarðar. Blanco var vanur að leggja bifreið sinni alltaf á sama stað þegar hann fór til kirkju. Tilræðismennirnir leigðu kjallaraherbergi í hús- inu, sem hún stóð fyrir framan og grófu sér þaðan göng undir bílastæðið, þar sem þeir komu sprengjunni fyrir. Bifreiðarstjóri Blancos og lff- vörður létust samstundis við sprenginguna en þótt furðulegt kunni að virðast var hann sjálf- ur með lffsmarki þegar hann var dreginn út úr flakinu á svölum kirkjunnar og lézt ekki fyrr en hann var kominn f sjúkrahús. reyna geimfarið, sem hefur verið verulega endurbætt og endur- smíðað. Mikil áherzla yrði lögð á að reyna hvernig stjórntækin virkuðu, bæði þegar geimskipinu væri stjórnað af mönnum og eins þegar það væri undir sjálfvirkri stj órn. Soyuz geimförunum var veru- lega breytt eftir að þrír geimfarar fórust, þegar bilun varð á geim- fari þeirra, Soyus 11 i lendingu árið 1971. Soyuz 12 var svo skotið á loft í september síðastliðnum og var þá sagt, að verið væri að reynslufljúga því eftir endurbæt- ur. Vísindamenn telja, að enn frek- ari prófanir hafi verið fyrirhug- aðar með Soyuz 13 og að meðal annars hafi verið ætlunin að tengja það við ómannað Salyut- far, sem skotið var á Ioft nokkrum dögum á undan mannaða Tarinu. Þeir telja ekki ólíklegt, að reyna hafi átt tengingarútbúnað, sem hefur verið hannaður fyrir fyrir- hugað stefnumót bandarískra og rússneskra geimfara á braut um jörðu árið 1975. Enn bregður Sakh- arov brandi sínum Moskvu,27. des., AP-NTB. SOVÉZKI vfsindamaðurinn Andrei Sakharov gagnrýndi í dag sovézk yfirvöld fyrir að vfsa Olle Stenholm, fréttaritara sænska út- varpsins, úr landi. 1 yfirlýsingu, sem hann afhenti vestrænum fréttamönnum, sagði Sakharov, að Stenholm hefði verið vfsað úr landi vegna viðtals, sem hann hefði átt við sig. Vísindamaðurinn sagði, að enn einu sinni hefðu sovézk yfirvöld auðmýkt sig og um leið brotið alþjóðlegar siðareglur. Hann sagði, að Stenholm hefði ekki far- ið út fyrir ramma heiðarlegrar fréttamennsku í viðtalinu og hvatt blaðamenn um allan heim til að fordæma brottvisunina. Sovézk stjórnvöld saka Stenholm um starfsemi, sem sé fjandsamleg Sovétrikjunum. Þá hefur Sakharov og rithöf- undurinn Vladimir Maximov, beðið sovézk stjórnvöld að sleppa Vladimir Bukovsky úr vinnubúð- unum og leyfa honum að ljúka háskólanámi sínu. Bukovsky var handtekinn 1971 eftir að hann hafði smyglað úr landi skýrslum um hvernig stjórnvöld handtækju þá, sem mótmæltu stefnu stjórn valda og neyddi þá til vistar á geðveikrahælum. Hann var sekur fundinn um fjandsamlega starfsemi og dæmdur til sjö ára dvalar í vinnubúðum og fimm ára útlegð í Síberíu. Hann hefur áður setið í tvö ár í geðveikradeild fangelsisspítala og verið þrjú ár í vinnubúðum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.