Morgunblaðið - 09.01.1974, Síða 19

Morgunblaðið - 09.01.1974, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9. JANUAR 1974 19 I iÞRðnáFRíniR Moranssiiis V Hjalti marki FH-ingar stigu enn eitt skrefið til íslandsmeistaratitilsins í hand knattleik í fyrrakvöld, er þeir sigruðu Hauka í leik liðanna f íþróttahúsinu í Hafnarfirði með 21 marki gegn 13. Komu úrslit þessa leiks nokkuð á óvart, þar sem barátta þessara liða hefur verið hnífjöfn f vetur — oftast ekki skilið nema eitt mark. Það sem fyrst og fremst gerði gæfu- muninn í leiknum í fyrrakvöld var frábær markvarzla Hjalta Ein arssonar í FH-markinu, en hann varði nú eins og hann hefur bezt gert áður og mátti segja, að hann lokaði markinu langtímum saman. Jafnframt þessu áttu Haukar svo heldur siakan dag, og virtust missa móðinn við mótlæt- ið í byrjun síðari hálfleiks. í byrjun var leikurinn í sæmi- legu jafnvægi. Eftir að FH-ingar höfðu skorað tvö fyrstu mörk leiksins á þremur fyrstu mínútun- um vörðu markverðir liðanna þrjú vítaköst í röð: Hjalti eitt og Gunnar Einarsson tvö. Bæði liðin léku góða vörn í fyrri hálfleikn- um, enda höfðu aðeins 5 mörk verið skoruð um hann miðjan. Haukarnir tóku þjálfara sinn úr FH Viðar Símonarson úr umferð og virtist það gefa góða raun. Reyndar losnaði þá nokkuð um Gunnar Einarsson, en allur sókn- arleikur FH liðsins var til muna óákveðnari og tilviljunarkennd- ari, þegar Viðar var ekki virkur í honum. Undir lok hálfleiksins hættu Haukarnir þessari gæzlu á Viðari, og þurfti þá ekki að sökum að spyrja. Hann skoraði þrjú fal- leg mörk. Þótt FH-ingar hefðu þrjú mörk yfir i hálfleik, átti engan veginn að vera öll nótt úti fyrir Haukana. Oft hafa leikir milli þessara liða verið þannig að FH-ingar hafa haft forystuna framan af, en Haukar siðan sigið á. En strax á upphafsminútum hálfieiksins kom í ljós, að hverju stefndi. Það var sama hvað Haukarnir reyndu, Hjalti tók öll skot þeirra, og það sem meira var: Hann var jafnan fljótur að átta sig og senda knött- inn fram til Viðars eða Gunnars og fékk FH þannig mörg mörk eftir hraðaupphlaup. Var það ekki fyrr en á 15. mínútu hálf- leiksins, sem Herði tókst loks að finna leið framhjá Hjalta og skora. Yfirburðir FH-inga í leiknum voru algjörir. Þeir komust mest 11 mörk yfir, þegar 4 minútur voru til leiksloka, en á lokamínút- unum tókst Haukunum aðeins að rétta hlut sinn, enda þá komið los á FH-liðið. Það leikur ekki á tveimur tung- um, að FH-liðið verður erfitt viðureignar f vetur. Því virðist fara fram með hverjum leik. Kraftur og dugnaður eru einkenni þess, ekki sízt í vörninni, sem er á stöðugri hreyfingu og gefur and- stæðingum sinum nánast ekkert svigrúm til þess að komast í skot- færi. Þegar það svo bætizt við, að markvarzlan er framúrskarandi, getur niðurstaðan ekki orðið nema á einn veg. Auk Hjalta áttu landsliðsmenn- irnir: Viðar, Gunnar og Auðunn allir mjög góðan leik í fyrrakvöld. Auðunn er jafnan sterkur varnar- leikmaður, og auk þess hreyfir hann sig mikið á línunni og opnar þannig fyrir samherja sína. Gunnar Einarsson er mjög snögg- ur og fljótur leikmaður, greini- legur arftaki Geirs Hallsteins- sonar í FH-liðinu. Meira að segja hreyfingar hans og Geirs eru mjög svipaðar, skot þeirra og tækni. Það, sem Gunnar vantar helzt, eru meiri líkamsburðir til þess að standa í átökum. LIÐ HAUKA: Ómar Karlsson 1, Sturla Haraldsson 1, Sigurður Jóakimsson 2, Elfas Jónasson 2, Ólafur Ólafsson 2, Stefán Jónsson 3, Guðmundur Haraldsson 1, Þórir Gfslason 1, Hörður Sigmarsson 2, Gunnar Einarsson 2, Arnór Guðmundsson 2, Þorgeir Haralds- son 1. LIÐ FH: Hjalti Einarsson 4, Birgir Björnsson 2, Viðar Sfmonar- son 3, Gils Stefánsson 1, Arni Guðjónsson 2, Auðunn Óskarsson 3, Jón Gestur Viggósson 1, Ólafur Einarsson 2, Örn Sigurðsson 2, Gunnar Einarsson 3, Þórarinn Ragnarsson 1. Rafha-hlaupið FYRSTA Rafha-hlaup barnaskól- anna í Hafnarfirði á þessum vetri. fer fram laugardaginn 12. janúar n.k. Hefst það stundvíslega kl. 13.00 við Lækjarskólann. Fyrir- komulag hlaupsins verður eins og í fvrra. Víðistaðaskólinn sigraði bæði i pilta- og stúlknaflokki i hlaupinu. sem frani fór s.l. vor. en þátttakendafjöldi i hlaupi þessu hefur jafnan verið nnkill og keppni tvfsýn og verður það örugglega einnig að þessu sinni. Það er Frjálsíþróttadeild FH. sent umsjón hefur með hlaupinu. Luther kvaddi með sigri LUTHER Gollege lék sinn síðasta leik hér á landi í fyrrakviild. And- slæðingarnir voru úrvalslið K.K.L og Luther sigraði með !II sligi gegn 73. fsl. liðið átti aldrei miiguleika til sigurs I þessum leik. Luther lék fyrri hálfleikinn mjiig vel, og áberandi var hin frába'ra hittni þeirra úr langskot- um. Eg heltl, að ekki hafi komið hingað til lands lið með aðrar eins skyttur. Luther hafði yfir í hálfleik 53:27. Yfir hiifuð álti ísl. liðið slakan leik, sérstaklega í fyrri hálfleik, en undir lokin lifnaði heldur yfir liðinu og náði það þá að sýna marga injiig skemmtiiega kal'la og minnkaði forskot Luther þá uin ein 14 stig. Það eina, sein undirntuðum finnsl ekki nógu gott við þessa heimsókn. er það. að ekki skuli nema tieplega helmingur leik- manna úr 1. deildar liðunum mæta til að sjá þetta lið. Lið. sem margt var hægt að læra af. K.t.v. telja isl. kiirfuktiattleiksmenn sig kunna nóg. og ekki þurfa að fylgj- ast meðþótt við fáum hingað upp gott háskólalið frá Handarikjun- um. Eg þori þó að fullyrða. að tnargir þeirra. sem ekki sáu þetta lið leika llér á landi. hefðu geta Uert mikið af að sjá lil þeirra. gk. lokaði FH Sem fyrr greinir fengu Haukarnir lítil tækifæri i þessum leik. Veikleiki liðsins virðist fyrst og fremst vera skortur á lang- skyttum, en Hörður er eini leiks maður liðsins, sem getur skotið af færi, en FH-ingar komu jafnan timanlega út á móti honum. Ólafur reyndi einnig nokkrum sinnum lágskot sín, en Hjalti kunni greinilega á þau, og var kominn i stöðu um leið og Ólafur skaut. Stefán Jónsson var beztur Haukanna í þessum leik. Hann reyndi að brjótast i gegnum vörn FH-inganna, en varð ekki mikið ágengt enda má enginn sín við margnum. Þá stóð Gunnar Einars- son sig allvel i markinu, einkum til að byrja með, en engin von var til þess að hann réði við mörk FH-inganna úr hraðaupphlaup- unum. 1 STUTTU IVlALI íslandsmótið 1. deild. Iþróttahúsið Hafnarfirði 7. jan. Urslit: Haukar — FH 13—21 (6—9). GanKur leiksins: >Iín. liaukar Fll 2. 0:1 Örn 3. 0:2 Gunnar 12. 12. 1:2 1:3 ölafur 14. 1:4 Gunnar 16. Arnór 2:4 18. 2:5 Ami 19. 2:6 Gunnar 21. 2:7 Viðar 22. Hörður 3:7 24. Guðmundur 4:7 25. 4:8 Viðar 27. Hörður 5:8 29. Sigurður 6:8 3«. 6:9 Viðar 32. Hálflcikur: 6:10 Birgir 34. 6:11 Auðunn 35. 6:12 Viðar 38. 6:13 Ami 40. 6:14 Viðar 41. 6:15 Gunnar 44. 6:16 Gunnar Gunnar Eínarsson stekkur upp og skorar eitt marka sinna í leikn um, án þess að Hörður Sigmarsson fái hindrað hann. Hjalti Einarsson, hetja FH-liðsins f leiknum við Hauka fær sér vatnssopa, meðan félagar hans sækja að Haukamarkinu. Mörk Hauka: Hörður Sigmars- son 4, Stefán Jónsson 4, Arnór Guðmundsson 2, Sigurður Jóa- kimsson 1, Guðmundur Hai'alds- son 1, Þórir Gfslason 1. Mörk FH: Gunnar Einarsson 7, Viðar Simonarson 6, Arni Guð- jónsson 2, Ólafur Einarsson 2. Örn Sigurðsson 2, Auðunn Ósk- arsson 1, Birgir Björnsson 1. Brottvísanir af velli: Auðunn Óskarsson, Örn Sigurðsson, Þór- arinn Ragnarsson og Gils Stefáns- son, allir úr FH i 2 min. og Sigurð- ur Jóakimsson, Haukum i 2 min. Misheppnuð vítaköst: Hjalti Einarsson, FH, varði vítakast frá Herði Sigmarssyni á 6. inín., og frá Ólafi Ólafssyni á 42. mín. Gunnar Einarsson, Haukum, varði vitakast fráGunnari Einars- syni á 9. mín. og Viðari Símonar- syni á 10. mín. Dómarar: Sigurður Hannesson og Gunnar Gunnarsson. Þeir dæmdu yfirleitt með ágætum. Það eina, sem má að finna hjá þeim. var, að ekki var nógu mikið sam- ræmi í dæmingu vítakasta. Undir lokin dæmdu þeir nokkur víta- kiist, en fyrr i leiknum hiifðu slík brot aðeins gefið aukakiist._ (i. 45. Hörður 45. 48. 5«. 51. Hörður 53. Stofán (v) 54. Stcfán (v) 54. 56. 58. Stofán(v) 59. Þörir 60. Stofán (v) 7:16 7:17 Viðar(v) 7:18 (iunnar 7:19 (iunnar 8:19 9:19 10:19 10:20 Orn 10:21 Ölafur 11:21 12:21 13:21 Staðan Staðan í 1. deild íslands- mótsins í handknattleik er nú þessi: FH 7 7 0 0 155—109 14 Valur 5 4 0 1 100—88 8 Vikingur 6 3 0 3 124—124 6 Haukar 7 2 2 3 130—144 6 Fram 6 13 2 112—113 5 Armann 7 2 1 4 100—108 5 Þór 5113 85—102 3 ÍR 7 1 1 5 126—144 3 Markhæstu leikmenn móts- ins eru eftirtaldir: Viðar Símonarson, FH 45 Gunnar Einarsson. FH 43 Hörður Sigmarsson, Hauk- um 42 Axel Axelsson. Fram 41 Agúst Svavarsson, ÍR 38 Einar Magnússon, Víkingi 36 Gfsli Blöndal, Val 31 4'ilhjálmur Sigurgeirsson, ÍR 29 Sigtryggur Guðlaugsson, Þór 28 Stefán Jónsson, Haukum 26 Hörður Kristinsson. Armanni 25 Finanger heiðraður í HÓFI Körfuknattleikssam- bandsins í fyrrakvöld var Kent Finanger þjálfari Luther Coll- ege heiðraður fyrir starf sitt til eflingar isl. körfuknattleik. Var Finanger afhent heiðurs- merki K.K.Í. og er hann fyrsti útlendingurinn, sem það merki hlýtur. Þeir, sem fyigzt hafa með starfi þessa mattns í sambandi við eflingu isl. körfuknattleiks, vita. að hann hefur ávallt verið tilbúinn að aðstoða okkur ef til hans hefur verið leitað, og sennilega er erfitt að finna þann mann. sem myndi teija, að hann verð- skuldaði ekki þennan þakk- lætisvott frá K.K.I. GK.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.