Morgunblaðið - 09.01.1974, Side 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 9, JANUAR 1974
Torfi Einarsson
—Minningarorð
Hann ver fæddur 24. ágúst 1907,
að Tannanesi í Önundarfirði og
ólst þar upp. Hann varð bráð-
kvaddur á nýársdagskvöld og er
til moldar borinn í dag, miðviku-
dag, frá Þjóðkirkjunni í Hafnar-
fírði.
Með því að styttra er milli fjöru
og fjalls á Vestfjörðum en víðast
annars staðar á landinu, hefur
lífsbaráttan þar verið háð af hinni
mestu hörku og hagsýni, bæði á
sjó og landi, og verið hin kröfu-
þyngsta um alhliða atgervi
sveína, sem þar ólust upp, og þess
vegna bæði harður og hollur skóli
til karlmennsku og manndóms í
hvívetna. atgervi Torfa Einars-
sonar var slíkt á öllum sviðum að
hann var einsogskapaðurtil bar-
áttu í erfiðu umhverfi. Hann var
snemma í allra fremstu röð um
hreysti, afl og harðfengi. Þar fór
sarnan ótrúlega mikil snerpa og
óbilandi þol á æskuárum. Sízt var
því að undrast, að sótzt var mjög
eftir Torfa, hvar sem hann hafði
unnið, bæði á sjó og landi. Hann
var vaj't af barnsaldri, þegar hann
fór fyrst í skiprúm á vetrarvertíð.
Um tvítugt hóf hann jarða-
bætur fyrir búnaðarfélagið
í Mosvallahreppi og Flat-
eyrarhreppi, og var það fyrsta
jarðvinnsla þar um slóðir
með vélknúnu jarðræktartæki.
Að þessari túnasléttun vann
hann kappsamlega um tíu ára
skeið, vorið allt, sumarið að mestu
og fram á haust. Sömu jarðrækt-
arstörf vann hann einnig víðar
um Véstfirði. Strax á æxkuárum
og jafnan síðan var það trú-
mennskan, mikið kapp og mikil
afköst, sem einkenndu allt starf
Torfa, svo og hans framúrskar-
andi greiðvikni við hvern og einn.
Nokkurs þarf við til að halda trakt
or í vinnufæru ástandi við mikla
notkun, og kom sér þá vel, sem
oftar, að Torfi var hagur á allt,
sem hann tók höndum til, og mjög
sýnt um að fást við vélar, bæði á
sjó og landi. Og allra manna var
hann tregastur til að gefast upp
við verkefnin.
Síðan lá leiðin suður. Torfi sett-
ist að á Hlébergi við Hafnarfjörð
ásamt konu sinni, Auðbjörgu
Tryggvadóttur frá Kothvammi í
Húnavatnssýslu. Stundaði hann
nú smiðar í trésmiðju Reykdals.
Gróðurhús reistu þau á Hlébergi,
enda hafði húsmóðirin menntað
sig til garðyrkjustarfa og lagt um
skeið stund á garðyrkju.
Vorið 1952 fluttust þau hjón
ásamt ungum syni sínum að
Tungukoti á Vatnsnesi. Þarþurfti
ntjög að taka til hendi um ræktun
og byggingar. Erfiðir voru að-
drættir upp f afdal, og vegurinn
ekki lagður þangað fyrr en íbúð-
arhúsið hafði verið reist.
Islendingar telja sig lánsmenn
að hafa nóg af fersku lífslofti í
kring um sig, kryddað gróðurilmi
á sumrin. Við, sem njótum þess-
ara ómetanlegu gæða í fullum
mæli, skiljum lítt þjáningar
þeirra, sem andarteppa — asmi
— herjar á, og nær því útiiokar
öndun í köstum. Slfkan sjúkdóm
tók Torfi Einarsson fyrir tæpum
tveimur áratugum. Urðu and-
þrengslin enn aðgangsharðari um
gróðurtímann, svo að hann
neyddist til að taka endan-
lega þá ákvörðun að hlíta
læknisráðum og hverfa frá
gróðurlendinu og til sjávar,
flutti sig og fjölskyldu sína til
Hvammstanga og vann þar við
kaupfélagið um tíma, rétt eins og
hann hefði aldrei stundað annað
en verzlunarstörf. Skúli kaupfé-
lagsstjóri spurði mig hvað eftir
annað: Hvernig á ég að fara
að því að halda í hann Torfa?
Ég svaraði, að sonur hans væri í
þann veginn að hefja mennta-
skólanám.og væri því flutningur
suður ákveðinn. Enda fór það svo.
Torfi hafði á æskuárum verið
tvo vetur f Laugaskóla í Þingeyj-
arsýslu við mjög góðan orðstír, og
fýsti mjög að halda áfram, en mat
meira að styðja foreldra sína í
lifsbaráttunni. Uppbót fyrirþessa
öfullnægðu námsþrá fann hann i'
gleðinni yfir því að auðnast að
styðja son sinn til náms og sjá
hann og tengdadóttur sína komir.
áleiðis á _háskólabrautinni. Sjálf-
ur reyndi hann jafnan að nota
stopular frístundir sínar til lestr-
ar; hann hafði yndi af ljóðum,
orti laglega á yngri árum, þótt
dult færi.
Síðustu árin og til æviloka vann
Torfi við olíusölu f Nesti f Foss-
vogi, þótt heilsu væri nokkuð tek-
ið að hraka þrátt fyrir læknismeð-
ul og meðferð. Ötulleiki hans og
öryggi var alltaf hið sama. Höfðu
þau hjón fyrir nokkrum árum fest
kaup á nýrri íbúð í Hafnarfirði..
Ég votta nánustu ástvinum
Torfa innilega samúð í söknuði
þeirra. Allir, sem þekktu hann,
munu geyma minningu um
traustan og góðan dreng.
Helgi Tryggvason.
Hannes Stefánsson
skipstjóri—Minning
f.2.7. 1892
d. 2.1. 1974.
Þegar ég nú hugsa um allar
samverustundirnar, sem voru
ljúfar og góðar, þá hlaðast upp
svo margar, sem vert væri að
minnast, en ég tek þær síðustu,
sem eru mér einkar ljúfar og kær
ar. Við fórum saman síðastliðið
sumar á minn fæðingarstað að
Fossi i Suðurfjörðum — ferð, sem
við höfðum svo oft talað um að
fara. Þar þekkti hann allt og gat
frætt mig um svo margt, sem ég
hafði svo gaman af að heyra, því
ég var barn þegar við fluttumst
þaðan. Hann var sá í fjölskyld-
unni, sem bjó yfir ótæmandi fróð-
leik um foreldra, fjölsskyldu og
bernskuár okkar yngri systkin-
anna, þess vegna er nú stórt skarð
við fráfaíl hans. Hann var hinn
góði bróðir, sem alltaf leysti úr
spurningum manns og tilbúin að
gefa holll ráð. En ég er þakklát
fyrir hvað hann fékk að vera
lengi með okkur.
Hannes var gæfumaður í sínu
lífi, hann eignaðist þrjár konur:
sem allar reyndust honum vel og
voru fyrirmyndar húsmæður.
Með sinni fyrstu konu, Katrínu
Árnadóttur, eignaðist hann einn
son Guðmund, sem var hans auga-
steinn og þeir mjög samrýndir
og góðir félagar. Katrín lézt eftir
aðeins nokkurra ára hjónaband.
Næsta kona Hannesar var Rann-
veig, þekkt kaupkona i Stykkis-
hóimi, þeim varð ekki barna auð-
ið, en ólu upp systurson okkar
Ragnar Franzson, sem Hannes
reyndist sem bezti faðir. Rann-
veig lézt árið 1940. Þriðja kona
han var Sigríður Einarsdóttur og
eftir lát hennar árið 1967 fluttist
hann á Hrafnistu. Hannes bar þar
hlýjan hug til þeirra vina er hann
kynntist á Hrafnistu og reyndust
honum vel siðustu árin, sem hann
dvaldist þar. Og veit ég, að það
hefur verið gagnkvæmt, því öll-
um, sem kynntust honum, þótti
vænt um hann, því þar sem góðir
mdnn fara þar eru Guðsvegir.
Blessuð sé minning míns ást-
kæra bróður.
Jóhanna Stefánsdóttir.
Engin samþykkt
varðandi olíusjóðinn
í FRETT blaðsins i gær um að
sjávarútvegsráðherra hefði farið
þess á leit við LÍU, að ákveðinn
hundraðshluti af útflutningsverð-
mæti loðnu rynni í svonefndan
olíusjóð, var sagt, að sjómanna-
samtökin hefðu samþvkkt þessa
ráðstöfun fyrir sitt leyti.
Loftur Júlíusson, formaður
Skipstjóra- og stýrimannaféiags-
ins Öldunnar, sagði blaðinu i gær,
að þetta væri ekki rétt hvaðsnerti
skipstjórnarfélögin. Engin ,sam-
þykkt hefði verið gerð hjá þeim
varðandi þetta mál.
t Bróðir minn, t Móðirokkar
SIGMUNDUR GRÍMSSON, gullsmíðameistari, JÓNÍNA LOFTSDÓTTIR
Vancouver, Canada, andaðist í Borgarspítalanum aðfaranótt 8. janúar.
andaðist 27 desember 1973 Viktoría Daníelsdóttir Bjarni Daníelsson Bárður Daníelsson.
Leifur Grímsson.
t Bróðir okkar,
Af alhug þökkum við auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall og jarðarför PÁLL KRISTMUNDSSON,
RÓBERT ARNARS KRISTJÓNSSONAR, frá Goðdal, Grettisgötu 98,
Látraströnd 30.
Eiginkona, börn, móðir, systkini, tengdafaðir og tengdasystkini. andaðist 4. jan. í Borgarsjúkrahúsinu. Jarðarförin fer fram frá Foss- vogskirkju, föstudaginn 1 1, jan. kl 1 0.30.
Systkini og aðrir vandamenn.
t Sonur minn og bróðir okkar
Hjartans þökk fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og útför GUÐMUNDUR SIGURÐSSON
elskulegs eiginmanns míns, sonar, bróður og tengdasonar, vistmaður Arnarholti
BJARNA JÓNS ÞORVALDSSONAR, sem lést 1 janúar sl verður jarðsettur fimmtudagjnn 10. janúar kl 10,30f.h frá Fossvogskirkju.
Digranesveg! 115. Sesselja Guðmundsdóttir
Linda Ágústsdóttir, foreldrar, systkini og tengdaforeldrar. Sigurlaug Sigurðardóttir Jón Sigurðsson Kristín Sigurðardóttir.
t Þökkum auðsýnda vinsemd og samúð við fráfall og jarðarför móður t Útför eiginmanns míns, föður okkar, tengdaföður og afa
okkar, tengdamóður og ömmu, ALEXANDER BRIDDE
HALLFRÍÐAR EINARSDÓTTUR bakarameistara Bárugötu 8
Steinunn Sigurðardóttir, Sigurjón Guðmundsson, fer fram-frá Fríkirkjunni fimmtudaginn 10 janúarkl 13.30
Sigfriður Sigurðardóttir, Vilhjálmur Valdimarsson,. Blóm vinsamlegast afþökkuð, þeir sem vildu minnast hans er bent á
Guðrún Sigurðardóttir, Mágnús Þór Mekkinósson,
Sigríður Ben Sigurðardóttir, Sigurgeir Gíslason, Rauða Kross íslands ^
Lúðvík Lúðvíksson, Anna Laufey Þórhallsdóttir Þórdis Bridde
og barnabörn. börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Móðir okkar,. tengdamóðir og
amma,
LAUFEY ÓSK JÓNSDÓTTIR,
Krókatúni 5,
Akranesi,
er andaðist 2 janúar, verður
jarðsungin frá Akraneskirkju
fimmtudagmn 10 janúar, kl 2.
Þeim. er vildu minnast hinnar
látnu, er bent á sjúkrahús
Akraness.
Kristín Magnúsdóttir,
Svanberg Ólafsson,
Ingibjartur Þórjónsson
og börn.
t
GUÐJÓNJOH^NNESSON,
Tangagötu 1 5,
ísafirði,
er andaðist að sjúkradeild Hrafn-
istu 1. janúar sl. verður jarð-
sunginn finntudaginn 1 0. janúar
kl 3 e.h. frá Fossvogskirkju. F.h
barna og annarra ættingja,
Sigríður Gísladóttir,
Þröstur Guðjónsson.
Útför
JÓNS BRYNJÓLFSSONAR
verzlunarmanns
Stykkishólmi
fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 10 janúar kl
1 3 3C) Systkinin.
t
Þökkum innilega auðsýnda sam-
úð og hlýhug við andlát og útför
DAVÍÐS
FRIÐRIKSSONAR
frá Gamla-Hrauni,
B-götu 24
Þorlákshöfn,
Ingibjörg Guðmundsdóttir,
Jóhann Daviðsson,
Guðbjörg og Þóra Davíðsdóttir,
Haukur Benediktsson og
systkini hins látna