Morgunblaðið - 19.01.1974, Page 5

Morgunblaðið - 19.01.1974, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1974 5 Karpov Karpov sigraði á stór- mótinu i Madrid Skömmu fyrir áramót lauk í Madrid miklu stórmeistaramóti og varð sovézki stórmeistarinn A. Karpov sigurvegari, hlaut 11 v. af 15 mögulegum. Arang- ur Karpovs á þessu ári er mjög athyglisverður, hann hefur orð- ið efstur eða í 2. sæti á hverju stórmeistaramótinu á fætur öðru. 1 lok þessa móts var Karpov kjörinn skákmaður árs- ins, hlaut hin svokölluðu Óskarsverðlaun skákarinnar. Spassky varð i öðru sæti i kjör- inu og heimsmeistarinn Fischer þriðji. Urslit mótsins urðu annars sem hér segir: 2. Tukmakov (Sovétr.) lO'/í v., 3. Furman (Sovétr.) 10 v., 4. — 5. Hort (Tékkósl.) og Uhlmann (A- Þýzkalandi) O'/í, 6. — 7. Andersson (Sviþjóð) og Portisch (Ungverjal.) 9v. o-sv.frv.' Tukmakov varð, eins og fyrr segir, i öðru sæti og vildu ýmsir álíta, að þar sem Karpov fengi verðlaun sem bezti skákmaður ársins, ætti Tukmakov lika að fá verðlun — sem misjafnasti skákmaður ársins. Seymon Furman er nú orðinn 54 ára gamall og hefur ekki teflt ýkja mikið á alþjóðavettvangi að undanförnu, hins vegar mun hann hafa stundað skákrann- sóknir allmikið og eins og kunnugt er, hefur hann verið þjálfari Karpovs nú siðustu árin. Furman var lengi vel í efsta sæti og allt leit út fyrir, að hann yrði jafn Karpov, en i næst síðustu umferðinni tapaði Furman óvænt fyrir spænska alþjóðameistaranum R. Calvo, og þar með var draumurinn búinn. En þó ekki alveg, Furman fékk fegurðarverð- launin fyrir eftirfarandi skák. Hvítt: S. Furman Svart: O. Panno (Argentfnu) Drottningaringarindver.sk vörn 1. Rf3 — Rf6, 2. c4 — b6, 3. d4 — Bb7, 4. Rc3 — e6, 5. a3 (Þessi leikur gæti helzt minnt á byrjanda, sem ekki yissi, hverju hann ætti að leika, en leikurinn'er þó runninn undan rifjum ekki minni manns en Petrosjans). 5. — d5, 6. cxd5 — Rxd5, 7. e3 — Be7, 8. Bb5+! (Þessi leikur miðar að þvi að þrengja áhrifasvið svörtu mannanna og auðvelda þannig framrás hvitu miðborðspeð- anna). 8. — c6, (Auðvitað ekki 8. — Rd7 vegna 9. — Re5). 9. Bd3 — 0-0, 10. e4 — Rxc3, 11. bxc3 — c5, 12. 0-0 — cxd4, 13. cxd4 — Rc6,14. Be3 — Bf6. (Hinn „strategiski“ farvegur skákarinnar er nú ljós. Hvítur leitast við að nýta peðameiri- hlutann á miðborðinu til sókn- ar á kóngsvæng, en svartur reynir hins vegar að einfalda stöðuna, ná mótspili á c-linunni og halda peðameirihlut — á drottningarvæng, sem gæti komiðsér vel í endatafli). 15. Bbl — Hc8, 16. Dd3 — g6, 17. Ba2! (Undirbýr framrás d- peðsins og eykur þrýstinginn á svörtu kóngsstöðuna). 17. —Dd7,18. Hadl — Ra5(?) (Hér var sennilega betra að leika Hfd8. Þessi leikur veikir varnir svarts á kóngsvæng og miðborði, sem Furman er fljót- ur að notfæra sér).. 19. Bh6 — Hfe8, 20. Rg5 — De7, 21. f4 — Dc7, 22. f 5! (Nú er sóknin í fullum gangi. Hvitur teflir mjög markvisst og skemmtilega, en lítið verður um varnir hjá svörtum). 22. — Bxg5, (Riddarinn var of hættulegur til þess að lifa, en nú verður svarti kóngurinn næsta ber- stripaður). 23. Bxg5 — Dc3, 24. dxe6 — fxe6, 25. De2! (Drottningarkaup hefðu létt undir með svörtúm). 25. — Dxa3, 26. Df2 — Hc7, 27. IId3!! (Stórglæsilegur leikur, sem gerir í rauninni út um skákina. Ef nú 27. — Dxd3, þá 28. Bxe6+ — Kh8, 29. Bf6+ — Hg7, 30. Bxg7+ — Kxg7, 31. Df6+ — Kh6, 32. Dh4+ — Kg7, 33. Hf7+ og mát í næsta leik). 27. — I)d6, 28. Bf4 — De7, 29. Bxc7 — Ba6, 30. Bd6! og svart- ur gafst upp. Eftir t.d. 30. — Dd7 kæmi 31. Hc3 og mát verð- ur ekki varið nema ineð drottningartapi. Jón Þ. Þór. Vauxhall Viva 1300 de luxe VAUXHALL-bilana skorti lengi sportlegt útlit og kom það illa niður á sölunni, en Vaux- hall-verksmiðjurnar brezku, sem eru dótturfyrirtæki General Motors i Bandarikjun- um, bættu úr því með Viva GT fyrir nokkrum árum. Ódýrasta Vivan er hins vegar 1300 de luxe, tveggja dyra. Vélin er 1256 rúmsm. og 68 hestöfl (bhp). Þjöppunarhlut- fallið er 9,2:1. Hámarkshraðinn er um 130 km/klst., en há- markshraði í lægri girunum er i 1. gír 45 km/klst., 2. 70 km/klst. og i 3. 110 km/klst. Diska- bremsur með vökvaaðstoð eru á framhjólum og er það nýjung á þessum bil. Framsætin eru að nokkru körfulaga og vel bólstruð, en bakið heldur i lægra lagi. Sætis- bökunum má halla aftur að vild. Heldur ódýrir hnakkapúð- ar eru byggðir inn i framsætis- bökin, en gera vonandi sitt gagn þó. Aftursætið er sæmi- legt, hátt til lofts, en fótarými lítið eins og í flestum bílum í þessum stærðarflokki. Vivan reyndist merkilega vel i snjónum, þó að hún sé létt að aftan, þegar hún var reynd á sumardekkjum í snjónum og hálkunni! Bensingeymirinn, sem er aft- ast undir bilnum, tekur 36 lítra og eyðslan er frá um 9 1 á 100 km. Vivan vegur rúml. 800 kg öhlaðin. Hjólbarðarnir eru 520 x 13, þó að útstæð bretti leyfi þá mun stærri. Nokkurn tíma tekur að hita bílinn og gengur hann fremur óreglulega á meðan, en vel strax og hann hitnar og mið- stöðin, sem er tveggja hraða, er nú allgóð, en hávaðasöm. Ilita- strengireru í afturrúðu. Stýrishjólið hallar litillega til vinstri, og er það sennilega gert vegna þeirra, sem liggja sífellt utan í hliðinni við akstur. Þetta furðulega fyrirkomulag er þó ekki til óþæginda við akstur- inn, a.m.k. meðan ekki er dama í hægra framsætinu. Sjálfstæðar gormafjaðrir eru á öllum hjólum. Gírskiptingar erú sæmilega liprar, en girstöngin mætti vera þrem sentimetrum lengri. Mæl- ar eru felldir djúpt inn í mæla- borðið. Tökkum er þokkalega, en óvenjulega komið fyrir. Ljósatakkinn er t.d. bak við stýrishjólið framan við mæl- ana. Farangursrýmið er all- stórt. í Bretlandi er Vivan einnig fáanleg með 1800 eða 2300 rúmsm. vél. Hingað er hún hins vegar éingöngu flutt með 1300 vélinni. Vauxhall Viva GT hefur nokkuð verið notuð i fólksbila- kappakstri. í Bretlandi og nú hafa Vauxhall-verksmiðjurnar sent frá sér bíl, sem i ýmsum atriðum er byggður á Vivunni, en það er Firenza með 2,3 lítra vél, sem gefur um 190 km/klst. hámarkshraða. Verðið á ensku bilunum hef- ur farið stiglækkandi undanfar- ið með lækkun pundsins. Viva 1300 de luxe 2ja dyra kostar nú nálægt 420 þúsund kr. — Um- boðið hefur véladeild SÍS, Ár- múla 3. Br.H.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.