Morgunblaðið - 19.01.1974, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 19.01.1974, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1974 31 | ÍÞBðnAFRfniB mORliDNBLMISIHiS 12 laga plata æskilegri — sögðu landsliðsmenn að upptökunni lokinni ÞAÐ var létt yfir landsliðsmönn- unum í handknattlcik, er þeir komu saman á fimmtudagskvöld- ið til að syngja inn á hljómplötu. Þó þeir séu betur þekktir fyrir ýmislegt annað en körsöng, áttu j þeir ekki í vandræðum með að syngja lagið „Áfram ísland" af mikilli innlifun, þó þeir hafi ekki æft það lengi eða mikið. Ef til vill ekki undarlegt, þar sem málið er þeim skylt. Upptakan tók nákvæmlega einn og hálfan tfma, en samt var upptakan um leið fyrsta æfingin. Platan á að koma á markað um miðjan næsta mánuð eða rétt áður en landsliðið heldur til Austur- Þýzkalands, til hinna miklu átaka í úrslitum Heimsmeistarakeppn- innar. Það er Fjáröflunarnefnd HSl, sem stendur fyrir útgáfu plötunnar i samvinnu við ýmsa aðila, sem reynst hafa handknatt- leiksmönnum innan handar í þessu sambandi. Skal þar fyrst nefna Ómar Ragnarsson, sem samið hefur lag og texta við „Áfram Island" og syngúr aúk þess texta sinn um „Lalla vara- mann" á bakhlið plötunnar. Það lag er eftir Gunnar Þórðarson, sem annast undirleikinn ásamt fé- lögum sínum f Hljómum. Þeir eru eflaust margir hand- knattleiksunnendurnir, sem þeg- ar eru farnir að biða eftir útkomu plötunnar og verði þeir eins ánægðir með söng landsliðsins og leikmennirnir sjálfir eftir upp- tökuna í gær, verður enginn svik- inn. Strákarnir voru allir á einu máli um, að tveggja laga plata væri allt of lítil, það væri lágmark að gefa út 12 laga plötu með slik- Hörkuleikir í blakinu um úrvalssöngvurum. Ómar Ragnarsson stjórnaði upptökunni í fyrradag og sagði að henni lok- inni, að þetta skot landsliðsmann- anna hefði svo sannarlega hitt beint í mark. Textinn Áfram Island er um liðið í leik og það er mikill þungi i söng landsliðsmannanna, er þeii syngja fyrsta erindið. „Núna göngum við einbeittir, ákveðnir hér inn og við ætlum að gera okkar bezta i þetta sinn, ekkert hik, ekkert kák, aðeins táp, f jör og trú sem tryggir okkur sigur nú." Sungið af hárri raust og mikilli innlifun. Hæfileikar þessara kappa eru ekki eingöngu bundnir við handknattleikinn, en þeir eru Guðjón Magnússon, Gunnar Einarsson, Einar Magnússon, Gunnsteinn Skúlasonog Axel Axelsson. Hvað gera Ármenningar? Leika gegn KR í dag og ÍS gegn Val FJÖRIR leikir fara fram í ís- landsmótinu i blaki um helgina og að minnsta kosti tveir þeirra verða miklir hörkuleikir. I dag klukkan 14 leika í Íþróttahúsi Há- skólans Ungmennafélag Biskups- tungna og Iþróttafélag stúdenta. Bæði þessi lið eru mjög sterk um þessar mundir. Piltar úr Iþrótta- kennaraskólanum skipa lið Biskupstungnamanna og ætla þeir sér stóran hlut í mótinu og stúdentar eru að sögn komnir í mjög góða æfíngu. Að þessum leik loknum fer fram annar topp- leikur þar sem Víkingur mætir liði Laugdæla, það lið er skipað kennurum skólanna á Laugavatni með Anton Bjarnason i farar- broddi og sér til trausts og halds hafa þeir nokkra nemendur sína með sér. Á morgun fara svo tveir leikir fram í Iþróttahúsi Háskólans IS mætir HK og Vikingur leikur gegn Breiðabliki. Hefst fyrri leik- urinn klukkan 17.00 Skíðaganga GÖNGUMÖT á skiðum verður haldið við Skiðaskálann í Hvera- dölum í dag og hefst það klukkan 14. Keppt verður í flokkum 20 ára og eldri, 17-19 ára og 16 ára og yngri. Göngustjóri verður Jónas Ásgeirsson og brautarstjóri Har- aldur Pálsson. A lægri nótunum — Björgvin Björgvinsson, Viðar Sfmonarson og Gfsli Blöndal hlusta andaktugir á útskýringar Ómars Ragnarssonar, sem stjórnaði landsliðinu í þetta sinn. City og Norwich í undanúrslitin Manchester City og Norwieh tryggðu sér rétt til þátttöku í undanúrslitum ensku deildar- bikarkeppninnar með því aðsigra andstæðinga sína í leikjum, sem fram fóru á iniðvikudagskvöldið. í undanúrslitunum mun Man- chester City leika við Plymouth og Norwich við Wolverhampton. A miðvikudagskvöldið lék Man- chester City við Coventry og sigraði 4-2, eftir skemmtilega viðureign. Maður leiksins var hin gamalkunna kempa Dennis Law, sem átti þarna stórleik óg skoraði fallegt mark. Þá lék Francis Lee einnig stórt hlutverk í leiknum og skoraði tvö mörk. Fjórða City- markið gerði Mike Summerbee. Brian Alderson skoraði bæði mörk Coventry. Ekki var minni barátta i leik Norwich við Millvall. Fyrsta mark leiksins skoraði Golin Suggett fyr- ir Norwich, en á 72.minútu tókst Derek Smethurst að jafna fyrir 2. deildar liðið. Leit úr fyrir, að liðin yrðu að leika þriðja leikinn um sætið í undanúrslitunum. En skömmu fyrir leikslok, er Nor- wich var i sókn, varð einum várnarleikamanna Millwall, það á að bregða Peter Silvester illa og var dæmd vitaspyrna, sem John Sissons skoraði örugglega úr. Var það jafnframt fyrsta markið, sem hann skoraði fyrir Norwich, en hann kom til liðsins frá Sheffield United fyribtveimur mánuðum. í DAG fara fram tveir leikir í 1. deild, og verða örugglega báðir mjög spennandi. Kl. 16 leika KR- ingar við Armann, og er öruggt að bóka stórleik. Það bregst aldrei, að þegar þessi lið mætast, er eins stigs sigri Fram eftir hörku- baráttu. ávallt um hörkubaráttuleik að ra-ða og svo verður örugglega nú. Körfuknattleikur Hvorugt liðið hefur tapað leik í ÍR 3 3 0 296:211 6 mótinu til þessa. Ármenningar KR 3 3 0 271:216 6 hafa æft mjög vel að undanförnu. Valur 4 3 1 363:319 6 og þótt liðið hafi átt slakan leik i Armann 2 2 0 159:146 4 Njarðvík um s.l. helgi, þá er HSK 3 1 2 231:229 2 sennilegt að það hafi aðeins verið Is 3 1 2 223:238 2 lognið á undan storminuin. KR- UMFN 4 1 3 299:332 2 liðið er mjög gott um þessar UMFS 6 0 6 389:540 0 mundir, liðið stefnir að sigri í mótinu eins og fleiri lið, og leik- menn liðsins gefa því örugglega ekki þumlung eftir í dag. Sfðan leika IS og Valur, og ætti einnig aðgeta orðið um hörkuvið- ureign þar að ræða. Með sigri yrðu Valsmenn með í baráttunni á toppnum áfram en ÍS-liðið er til alls liklegt og ætlar sér örugglega að krækja i stig eftir fremur slaka byrjun í mótinu. Leikirnir fara fram á Seltjarnarnesi. A morgun leika á sama stað kl. 16 UBK og UMFG i 2. deild, og að þeim ieik loknum Frarn og ÍK i 3. deild. Fyrri leik þeirra lauk með Landsliðs- miðherji settur í leikbann LANDSLIÐSMIÐHERJINN 1' KR, Birgir Guðbjörnsson, leikur ekki með KR-ingum gegn Armanni í dag. Ástæðan er sú að Birgir var settur í leikbann vegna agabrots. Óneitanlega veikir þetta KR-lið ið talsvert og eykur þvi möguleika Ármanns á sigri. Birgir héfur átt góða leiki með KR i vetur og oft verið stigahæstur i liði sínu. Það er ekki oft sem leikbann hefur'verið notað vegna agabrots í körfuknattleik, en þetta dæmi sýnir, að engin vettlingatök eru notuð hjá KR-ingum. Staðan Stigaha>stir: Bragi Jónsson UMFS 118 Gfsli Jöhanness. UMFS 97 Þórir Magnúss. Val 83 Gunnar Þorvarðars. UMFS 82 Kolbeinn Pálsson KR 81 Kolbeinn Kristinss. IR 75 Bjarni Gunnar ÍS 71 Jóhannes Magnúss. Val 70 Vítaskotanýting: (10 skot eða fleiri) Kristinn JÖrundsson IR 12:8 = 66,6%. Birkir Þorkelsson IISK 10: = 60,0%. Þröstur Guömundsson HSK 10:6 = 60,0%. Kári Marfsson Val 10:6 = 60,0%. Vitaskotanýting á lið: Armann 40:23 = 57,5%. ÍR 56:32 = 57,4%. HSK 61:33 = 54,1%. UMFN 61:31 = 50,8%. Valur 64:32 = 50,0%. KR 48:23 = 47,9%. ÍS 54:23 = 42,6%. UMFS 130:55 = 42,4%. Brottvfsun af leikvelli: Þórir Magnússon Val Gfsli Jóhannesson UMFS 3 Torfi Magnússon Val 2 Bergsveinn Símonars. UMFS 2 Bragi Jónsson UMFS 2 12 leikmönnum hefur einu sinni verið vfsað af leikvelli með5 villur. IR 0. Armann 0. KR 1. IS 1. UMFN 2. Valur 6. HSK 6. UMFS 8. Flestar villur: Gísli Jóhanness. UMFS 21 Torfi Magnússon Val 18 Trausti Jóhanness. UMFS 18 Þórir Magnússon Val 17 — gk

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.