Morgunblaðið - 19.01.1974, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ. LAUGARDAGUR 19. JANUAR 1974
29
ROSE-
ANNA
FRAMHALDSSAGA EFTIR
MAJ SJÖWALL OG
PER WAHLOÖ
JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR
ÞÝDDI
9
— Ég hef ekki lyst á neinu.
— Það tekur ekki augnablik.
Seztu nú niður á meðan.
— Ég VIL ekkert borða. Ég
ætla að leggja mig. Vektu mig
eftir klukkutíma
Klukkan var kortér gengin í
ellefu.
Hann fór inn í svefnherbergið
og lokaði á eftir sér.
Þegar hún vakti hann, fannst
honum hann hafa sofið aðeins
örfáar mínútur. Klukkuna vant-
aði þá stundarfjórðung I eitt.
— Ég sagði klukkutíma.
— Þú varst svo þreytulegur.
Hammer lögregluforingi er i
símanum.
— Skollans líka.
Klukkutíma síðar sat hann á
skrifstofu yfirmanns síns.
— Urðuð þið alls engu nær?-
— Nei. Við vitum ekkert.. .við
vitum ekki hver hún er, hvar hún
var myrt Qg sízt hver gerði það.
Við vitum svona nokkurn veginn
hvernig og hvenær, en það er allt
og sumt.
Haramar lögregluforingi
spennti greipar og leit á Martin.
— Reyndu að halda sam-
bandinu við Motala. Kannski
liggur þannig I því, að stúlkan er í
fríi og fólkið hennar telur ekkert
óeðlilegt þótt ekki heyrist frá
henni. Það geta liðið fjórtán
dagar þangað til einhver saknar
hennar. En ég vil biðja þig um
skýrslu eins fljótt og þér er unnt.
— Þú færð hana seinni partinn
í dag.
Martin Beck gekk inn til sin,
tók ofan af ritvélinni, blaðaði í
búnkanum, sem Ahlberg hafði
látið hann fá og byrjaði svo að
vélrita.
Klukkan hálf sex hringdi
síminn.
— Kemurðu heim í kvöldmat ?
— Ég sé ekki líkur til þess.
— Ert þú eini lögreglu-
maðurinn, sem þeir hafa? sagði
konan hans.
— Er ætlunin að þú gerir allt?
Hvenær hafa þeir hugsað sér að
þú sért með í fjölskyldu þinni?
Börnin eru að spyrja um þig.
— Ég skal reyna að vera
kominn um hálf sjö leytið.
Einni og hálfri klukkustund
síðar var skýrslan tilbúin.
— Drífðu þig heim og reyndu
að hvíla þig, sagði Hammar. — Þú
ert þreytulegur.
Martin var þreyttur. Hann tók
sér leigubíl heim, borðaði og fór
að sofa og nú sofnaði hann strax.
Hann hringdi til Ahlbergs
daginn eftir og siðan fjörum til
fimm sinnum í viku næstu fjórar
vikurnar. Én hann hafði ekkert
að segja. Það var áfram sami
leyndardómurinn hvaðan stúlkan
var. Blöðin voru hætt að skrifa
um málið og Hammar var líka
hættur að spyrja hvernig gekk.
Það var fylgzt með öllum, sem lýst
var eftir, en lýsingin á engum ,
þeirra, sem týndust, passaði á
stúlkuna.
Nött eina síðla i ágúst lá hann í l
rúminu sínu og starði út í
myrkrið.
Ahlberg hafði hringt til hans og
Martin hafði ekki heyrt betur en
hann væri undir áhrifum áfengis.
Þeir höfðu talað um morðið og
þegar Ahlberg var í þann veginn
að kveðja hafði hann sagt:
— Hver svo sem hann er og
hvar sem hann er, þá skal hann
ekki sleppa.
Martin stóð upp og gekk ber-
fættur inn í setustofuna. Hann
settist niður og tók möppuna nið-
ur af hillunni með myndunum og
skýrslum Kolbergs.
Þegar hann lagði möppuna aft-
ur á sinn stað og slökkti Ijösið
hugsaði hann:
Hver svo sem hún var og hvað-
an sem hún er ættuð — ég skal
ekki unna mér svefns og hvíidar
fyrr en ég kemst að því
7. kafli
— Interpol — nei hættu nú,
sagði Kolberg.
Martin sagði ekkert. Kolberg
horfði yfiröxl hans.
— Skrifa þessi fífl á frönsku?
— Já, þetta er frá lögreglunni í
Toulouse. Um konu, sem er lýst
eftir.
— Þessi franska lögregla, sagði
Kolberg. — Eg sendi þeim beiðni
gegnum Interpol fyrir mörgum
árum. í þrjá mánuði heyrðist
hvorki frá þeim hósti né stuna og
svo loksins kom einhver óskiljan-
leg langloka frá þeim. Eg skil
ekki orð og læt það f þýðingu og
daginn eftir les ég í blöðunum, að
sænskur ferðamaður hafi fundið
stúlkuna. Fundið — og svei. Á
vændishúsi. ..
Annars mætti segja mér, að þín
stúlka væri sænsk. Eins og allir
héldu til að byrja með. Skritið.
— Hvað er skrítið?
— Að enginn saknar hennar,
hver svo sem hún var. Mér verður
hugsaðti! hennar öðru hverju.
Þegar hann var að leggja af stað
heimleiðis þennan dag kom Stein-
ström og hann æddi inn eins og
venjulega án þess að hafa fyrir að
berja að dyrum.
— Hér er tilkynning til deildar-
innar um týndar stúlkur. Þú verð-
ur að senda þakkarbréf til banda-
ríska sendiráðsins. Það er hið
eina, sem hefur sinnt beiðni
þinni.
Steinström rétti honum blaðið
ogsagði:
— Hér er símanúmer hjá ein-
hverjum starfsmanni i séndiráð-
inu. Mér skilst það sé meiningin
aðþú hringirtil hans.
Það var of seint, en hann ætlaði
að gera það daginn eftir. Þá var
hann komin með hálsbólgu og leið
afleitlega. Hann lá í möki í rúm-
inu, þegar dóttir hans kom í
gættina.
— Það er einhver maður i
símanum.
* — Gott kvöld, sagði Ahlberg. —
Eg held ég hafi dottið ofan á
dálítið. ..
— Jæja?
— Mannstu að við töluðum um
áællunarbátana. Sem fara hérna
um á sumrin klukkan hálf eitt og
klukkan fjögur eftir hádegið.
— Já.
— Nú telur einn lögreglumann-
anna að hann hafi séð einn
þessara báta koma hér um þetta
leyti, en hann er ekki viss um
hvaða dag það var. Það er btiið að
athuga þetta nánar og allt bendir
til, að þetta hafi verið báturinn
Diana. Hann gaf mér heimilisfang
skipstjórans. Stutt þögn. Hann
heyrði að Ahlberg kveikti á eld-
spýtu.
— Ég náði í skipstjórann. Hann
sagði mér, að í einni ferðinni
hefði orðið vélarbilun og þeir
hefðu orðið að liggja í þrjá tima
meðan viðgerð fór fram við
Hövringe.
— Og síðan í átta tíma i
Söderköping, til að fá gert við
eitthvað annað í vélinni. Þetta
þýddi tólf tíma seinkun og þeir
fóru framhjá Borenshult öðru
hvoru megin við miðnætti. Þeir
lögðust hvorki að bryggju i
Motala né Vadstena og fóru rak-
leitt til Gautaborrar.
— Hvenær var þetta?
— Aðfararnótt fimmta júlí.
Ef þú heldur, að þú hafir efni á því að geyma einhvern
dýran hring, þá er ég með kassann fyrir hann hér.
1 VELVAKA □ 2
Velvakandi svarar í síma 10-100 kl. 1 0 30 — 11.30, frá mánudegi til föstudags. ýmsar, sjálfsagt sumar af fullri Það er líklegt eða hitt þó feðurnir eru margir. svo sem meiningu. en einnig væri athug- heldur, að forstöðukona slíkrar vonbrigði í lífinu en ekki sizt andi sú staðreynd. að ntargar stofunar reyni að neyða fólk til slæmur félagsskapur. eldri konur ættu erfitt með að fá undirskrifta gegn vilja þess með
# Nauðsynlegasta
fóstureyðingin
Alice Gcstsdóttir, Lauga-
vegi 171. skrifar:
..Fóstur eru ýmist líkamsfóstur
eða hugarföstur. Það er nú á döf-
inni frumvarp um eyðingu
líkamsföstra. Éru uni það skiptar
skoðanir, en líkast til geta allir
orðið sannnála uni það, að öllu
meiri þörf væri á eyðingu hugar-
fóstra, þar sem þau eitra oft á
tíðum ekki aðeins líf þess. sem
með fóstrið gengur, heldur og
fjölda annarra manna. Hugar-
fóstur veldur því oft miklu meira
tjóni en óvelkomið líkamsfóstur.
1 Þjöðviljanum 15. janúar
birtist svonefnd klausa:
„Undirskriftum safnað á
Hrafnistu! Undirskriftasöfnun
gegn grumvarpi um frjálslegri
föstureyðingalöggjöf er í gangi á
ótrúlegustu stöðum, að því er
virðist. Er t.d. rétt, sem Þjóð-
viljinn hefur fregnað, að verið sé
að safna undirskriftuin meðal
starfsfólks og jafnvel (leturbr.
Mbl.) vistmanna á elliheinúlinu
Hrafnistu, og þar sé að verki
mannesk.ia í yfirmannsstöOu?
Kona. sem vegna vinnu sinnar vill
ekki láta nafns síns getið i
blaðinu. sagði. að komið hefði
verið nteð undirskriftalistann til
ákveðins hóps starfskvenna
þarna. og þær skriíað undir
stöðuna ef þær gerðu ekki eins ög
vfirboðararnir vildu. — vh."
# Alygarog
aðdróttanir
blaðamanns
Þetta merki — vh — er sagt
vera upphafsstafirnir i nafni
Vilborgar Ilarðardöttur, en bún
er blaðamaður við Þjöðviljann.
heldur illræmd. og er því líklegt
að þetta sé rétt. Klausan er allt í
senn — dæmi um fádæma rætni.
purkunarlausar álygar. heinisku
og síðast. en ekki sizt. er hún
dæmi um það hugarföstur. sem
allir kommúnistar. karlar jafnt
sem konur. eru þungaðir af.
Við skulum láta það ligg.ja á
milli hluta. að forstöðukonan á
Hrafnistu er allra manna ólikleg
ust til að fara að beita skoðanakúg
un, og skírskota aðeins beint til
þess hversu fáránlegt það er að
láta sér koma í hug. að hægt væri
að beita skoðanakúgun með hótun
um atvinnumissi eins og atvinnu-
ástand er nú i landinu. Það vantar
alls staðar fólk lil starl'a og þá
ekki sizt á slofnanir eins og
Hrafnistu. þött seg.ja megi. að
Hrafnistumenn hafi verið fólk-
sælir. miðað við það. sem gerist á
vmsum hliðstæðum stofnunum.
hótun urn brottrekstur.
# Hugarfóstur
hugans
Það vita allir. sem til
þekkja, að forstöðukona Hrafn-
istu er langtum of vel innræút og
skynsöm kona til að vinna sjálfri
sér og stofnun sinni tjón með
þcssum hætti og gera'sig að auki
hlægilega.
Eg stend dálitið vel að vigi til að
fjalla um þetta þar sem ég er ein
þeirra. sem skrifuðu ekki undir
mótmælin. og hef ég ekki goldið
þess með nokkrum hætti. hvorki i
orðum né gerðum eða viðmöti af
hálfu forstöðukonunnar. Allar
starfsstúlkur heimilisins vita. að
þessi áburður er rakin lygi h.já
Vilborg u.
Það getur vel verið rétt. að Vil-
borg Harðardóttir sé flumbra.
sem ekki sé mark á takandi. auk
þess sem henni sé ekki sjálfrátl i
þessu el'ni þar sem Intn gangi með
það kommúníska hugarföstur. að
allir andstæðingar komnuin-
ismans séu illmenni og svil'ist
einskis.
Hatursföstur liugans koma
undir með ýmsum hætti og barns-
feðurnir eru margir. sve sem
alla ævina við haturhug kommún-
ista til náunga sinna. andstæðra
þeim í stjórnmálum. gongur með
fóstur. sem ekki verður tekið með
töngum eða keisaraskurði. og það
eyðist heldur ekki með lyfjum.
Steindautt liggur það fóstur árum
saman og oft ævilangt i sáln þess.
sem með það gengur. Það sýrir
allt lif mannsins, stjörnar tali
hans og háttum. og þá einnig
skrifunt. Þessu fólki þarf sannar-
lega að hjálpa með fóstureyðingu.
Ég veit ekki hvað forstiiðu-
konan \ 111 gera í þessu niáli. en ég
taldi mér skylt að láta þetta koma
fram vegna þess. sem áður segir.
og ég vissi. að um lygi var að
ræða. og er ekki ólíklegt að hún
eða forráðamenn Hrafnistu
leituðu réttar sins.
Samhljóða grein hefur verið
send Þjéiðviljanuni i dag.
Aliee Gestsdóttir."
Pétur Sigurðsson reit svargrein
við ..hugvekju" Vilborgar Ilarðar-
dóttur, og birtist greinin í
Morgunblaðinu i fyrradag.
Greinin hér að ofan barst Mbl.
s.l. fimmtudag. og þar sem luin
var send Þjóðviljanum sam-
dægurs verður fröðlegt að
lylgjast með þvi hvernig þetta
blað. smii gjarnt er að halda á loft
sannleiksást sinni. heldur á
inálinu i framhaldi. al' því. sein
áður er l'ram komið.
Messur á
morgun
Framhald af bls. 11
Langhol tsprest akal I
Barnasamkoma ki. 10.30. Guðs-
þjónusta kl. 2.00.
Séra Árelius Níelsson.
Óskastundin kl. 4.00. Séra Sigurð-
ur Haukur Guðjónsson.
El liheimilið Grund
Messa sunnudag kl. 14.00. Séra
Erlendur Sígmnndsson biskubs-
ritari messar.
Félag fyrrv. sóknarpresta.
Bústaðakirkja
Bai-naguðsþjónusta kl. 10.30.
Guðsþjónusta kl. 2.00.
Séra Ólafur Skúlason.
Fundur hjá bræðrafélaginu á
mánudagskvöld kl. 8.30 í safn-
aðarsalnum.
Asprestakal 1
Messa i Laugarásbíói kl. 1.30.
Barnasamkoma á sama stað kl.
11.00. Séra Grímur Grímsson.
Breiðholtsprestakall
Guðsþjónusta i Breiðholtsskóla
kl. 2.00. Sunnudagaskóiarnir í
Breiðholtsskóla kl. 10.30 og i
Fellasköla kl. 10.30.
Séra Lárus Halldörsson.
Digranesprestakall
Bai'nasamkoma í Vighólaskóla kl.
11.00. Guðsþjónusta i Kópavogs-
kirkju kl. 11.00.
Séra Þorbergur Kristjánsson.
Kársnesprestakali
■Barnasamkoma i Kársnesskóla kl.
11.00. Guðsþjónusta i Kópavogs-
kirkju kl. 2.00. Séra Gunnar
Arnason.
Ilafnarf jarðarkirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 11.00. Séra
Bragi Benediktsson.
Messa kl. 2.00. Séra Gaiðar Þor-
steinsson.
Fríkirkjan Hafnarfirði
Barnasamkoma kl. 10.30. Guð-
mundur Óskar Úlafsson.
Innri-Njarðvfkurkirkja
Messa kl. 2.00. Séra Björn
Jónsson.
Kef lavfkurkirkja
Bai’naguðsþjónusta kl. 11.00.
Séra Björn Jónsson.
Garðakirkja
Barnasamkoma í skólasalnum kl.
11.00. Messa kl. 2.00.
Bragi Friðriksson.
Útskálakirkja
Messa kl. 2.00. Séra Guðmundur
Guðmundsson.
Hólskirkja Bolungart ík
Almenn guðsþjónusta kl. 14.00.
Ræðuefni: Guðspjallið i mór-
berjatré.
Séra Gunnar Björnsson.
Lágafellskirkja
Barnaguðsþjónusta kl. 2.00.
Bjarni Sigurðsson.
Eyrarbakkakirkja
Bai-naguðsþjönusta kl. 10.30.
Sóknarprestur.
Stokksevrarkirkja
Guðsþjónusta kl. 2.00.
Sóknarprestur.
Sunnudagaskóli kristniboðsfélag-
anna
er í Alftamýrarskóla kl. 10.30. Óll
börn velkomin.
Bænastaðurinn Fálkagötu 10.
Sunnudagaskóli kl. 11.00.
Samkoma sunnudag kl. 4.00. Allir
velkomnir.
ti- JHírflanblabib
? ^mPRCFRLDPR
F mPRKPÐVÐPR