Morgunblaðið - 02.02.1974, Blaðsíða 12
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRUAR 1974
12
STÁMLCT
KUBRICKS
MKORH
ÍR!kNC£j
Væntanlegar mynd-
ir í Austurbæjarbíói
Austurbæjarbió fær meiri-
hlutann af þeim myndum, sem
þar eru sýndar, frá bandarfska
stórfyrirtækinu Warner Bros,
sem er eitt stærsta dreififyrir-
tæki heims. Velgengni þess hef-
ur verið mikil upp á siðkastið
og þar hafa verið gerðar fjöl-
margar myndir, sem hlotið hafa
mikla aðsókn og lofsamlega
dóma. Þetta kemur vel fram á
upptalningunni hér á eftir.
0 I næsta mánuði hefjast sýn-
ingar á einni umtöluðustu
mynd síðari ára, þ.e. A CLOCK-
WORK ORANGE, sem gerð er
af meistara Stanley Kubrick.
Hún er af flestum talin eitt
hans bezta verk, og hefur nú
farið sigurför um heiminn,
bæði hvað snertir aðsókn og
lofsyrði.
Einn sá alharðasti . . .
Ron O’Neal I SUPER
FLY.
Efni myndarinnar verður
ekki lýst í fáeinum línum, en
hún gerist í náinni framtíð,
þegar daglegar venjur manna
verða orðnar næsta ólíkar því,
sem gerist i dag veröldin ramb
ar á barmi glötunar. „A.C.O.“
er hlaðin ofbeldi, en það listi-
lega er farið með efnið, að
áhorfandinn fær viðbjóð á því
— öfugt við venjuna. Þar hefur
Kubrick náð takmarki sínu,
með góðri aðstoð aðalleikarans,
Malcolm McDowells. Hann er
frábær, enda lét Kubrick svo
ummælt, að „A.C.O.", hefði
aldrei orðið til, ef Malcolms
hefði ekki notið við! Ég vil að-
eins hvetja sem flesta til að sjá
þetta sérstæða meistaraverk og
dæma hver fyrir sig.
• STEELYARD BLUES
nefnist hressileg gamanmynd
með skötuhjúunum úr „Klute“,
Jane Fonda og Donald
Sutherland. En sá, sem stelur
myndinni, er enginn annar en
Peter Boyle, (,,Joe“), sem þyk-
ir fara á kostum. Leikstjóri er
Alan Myerson.
0 Costa-Gavras hlaut heims-
frægð fyrir ádeilumynd sína á
grísku ,,juntuna,“ ,,Z“. I mynd-
inni JÁTNINUNNT, ræðst
hann að öðrum svörtum kapít-
ula í mannkynssögunni, hreins-
ununum í Tékkóslóvakíu 1952,
á miðri ógnaröld Stalinismans.
Eins og í „Z“, fara þau hjónin
Yves Montand og Simone
Signoret með aðalhlutverkin.
Þess má til gamans geta, að þau
eru bæði félagar i franska
kommúnistaflokknum, likt og
Gavras. Hlutu þau að launum
illt auga austan tjalds, að sögn.
En þau sáu svo til, að þau urðu
ekki lengi í ónáð „Sovétséff-
anna,“ því að í nýjustu mynd
sinni ræðst Gavras heiftarlega
á utanrikisstefnu Bandarikja-
manna í S-Aineriku. í mynd-
inni, sem nefnist „State of
Siege“, fer Montand með aðal-
hlutverk.
• SUPER FLY er ein alhress-
asta „svartamarkaðsmynd",
sem gerð hefur verið. Fjallar
um kokainsala í Harlem, sem
beitir öllum tiltækum brögðum
til að komast af i lifsbaráttunni.
Leikstjóri er Gordon Parks jr.,
sá sem helypti þessari gerð
mynda af stað, með „Shaft“.
• í myndinni THE
CANDIDATE, með Robert Red-
ford í aðalhlutverki, er skyggnzt
á bak við tjöldin í kosningaher-
ferð fyrir nýjum frambjóðanda
Demókrataflokksins banda-
ríska. Reynt er að sýna brot af
því baktjaldamakki, hrossa-
kaupum og skrumshætti, sem
fram fer án vitundar hins al-
menna kjósanda. Þeir Peter
Boyle og Melvyn Douglas fara
einnig með stór hlutverk í
myndinni. Leikstjóri er
Michael Ritchie.
• WUTHERING HEIGHTS,
er byggð á hinni frægu sögu
Brontés, sem út hefur komið í
íslenzkri þýðingu og jafnframt
verið sýnd í sjónvarpinu fyrir
nokkrum árum sem framhalds-
myndaflokkur. Efnið er því
mörgum kunnugt. Cathy og
Heathcliff eru leikin af lítt
þekktum leikurum, Önnu
Calder-Marshall og Timothy
Dalton. Leikstj. er Robert
Fuest.
0 BILLY JACK fjallar um
ungan Indíána, sem er nýkom-
inn af blóðvellinum í Vietnam.
Fær stríðshetjan heldur óblíðar
viðtökur meðal landa sinna
vegna litarháttarins. Wárner
frumsýnd ,,B.J“ á árinu 1972 og
gekk hún þá mun verr en vonir
stóðu tiL En í desember sem
leið hófu þeir endursýningar á
myndinni með gjörbreyttri
auglýsingaherferð. Og það
hreif heldur betur, því að
myndin varð ein sú vinsælastá
vestan hafs í fyrra.
0 Þá er væntanleg hin fræga
mynd Viscontis, DEATH IN
VENICE, með Dirk Bogarde í
aðalhlutverki. Fjallar hún um
Malcolm McDowell sem Alex í meistaraverkl
Kubricks, A CLOCK WORK ORANGE.
tímabil i ævi tónskáldsins
Gustav Mahlers, og þá sérstak-
lega ást hans til 14 ára drengs,
sem hann kynnist í stuttu
sumarleyfi i Feneyjum. Harm-
þrungin og áhrifarik mynd,
eins og við mátti búast frá
hendi þessa furðulega leik-
stjóra.
0 Warner Bros gerir yfirleitt
eina mynd á ári með hinum
ókrýnda konungi hestbakanna,
John Wayne. Okkar skammtur
í ár er THE COWBOYS, gerð af
Mark Rydell, (The Fox“) og
þykir mjög óvenjulegur „John
Wayne vestri".
• PRESTSFRÚIN, nefnist
gamanmynd með æðstu guðum
ítalskrar kvikmyndagerðar,
Sophiu Loren og Marcello
Mastroianni. Ponti gamli fram-
leiðir.
0 Og þá er komið að mynd,
sem fjölmargir fslenzkir kvik-
myndaáhugamenn bíða eftir,
DELIVERANCE John Boor-
mans. Þessi mynd hefur hvar-
vetna hotið óspart lof gagnrýn-
enda og mikla aðsókn. Hún seg-
ir frá helgarferð nokkurra
borgarbúa, sem í staðinn fyrir
golfvöllinn halda til fjalla.
Ætla þeir i veiðiferð niður hina
straumhörðu Cahulawassee-á í
Appalachian-fjöllunum, en þar
býr „fjallafólkið" fræga, hálf-
villt og ómenntað. Veiðiferðin
verður öll hin óhugnanlegasta
og verður ekki rakin hér nánar.
Með aðalhlutverkin fara garp-
arnir Jon Voight og Burt
Reynolds.
• THE RED CIRCLE, nefnist
frönsk glæpamynd með þeim
görpunum Alain Delon, Yves
Montand og Bourvil. Myndin
hefur gengið mjög vel á megin-
landinu.
0 Ekki þarf að kynna hann
Tinna fyrir yngstu kynslóðinni,
en nú er væntanleg myndin
TIN TIN, með þeim fræga
kappa. Það er ánægjulegt, að
eitthvað skulivera hugsað fyrir
smáfólkinu.
Af öðrum myndum, sem bíóið
á von á, en verður fjallað nánar
um síðar, eru margar frægar
myndir:
□ THE THIEF WHO CAME
TO DINNER, með Jaquline
Bisset og Ryan O’Neal.
□ 5 FINGERS OF DEATH,
karate frá Hong Kong.
□ SCARECROW, með Gene
Hackman og A1 Pacino, myndin
hlaut Grand Prix á Cannes í
fyrra.
□ OH.. LUCKY MAN,
meistaraverk Lindsey Anders-
son, með Malcolm McDowell í
aðalhlutverki.
□ ENTER THE DRAGON,
með Bruce sál. Lee í aðalhlut-
verki.
□ Og síðast en ekki sízt,
MEAN STREET, sem ég fjall-
aði um á síðustu síðu!
Þess má svo geta að lokum, að
hin bráð skemmtilega jólamynd
Austurbæjarbfós ætlar ekki að
gera það endasleppt, hvað að-
sókn snertir, en u.þ.b. 32 þús
manns hafa skemmt sér við að
horfa á hrakfarir Streisand,
O’Neal &CO.
Sæbjörn Valdimarsson.
Ur hinni heimsfrægu mynd Boormans,
DELIV ERANCE.
|M
I”
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
I
K
I HNI HNNi HHI MM ***** ***** ***** *
ó tjaklmu
Háskóiablo
★ ★★ H\ ísl og hróp Bergmans
er miklu nær að kalla myud-
nent Ijóð en krikmynd. Öll nú-
tfð myndarinnar t*r íulisluð í
rauðu. svörtu og hvitu á þann
veg, að helst mínnir á maleiísk
vinnnbrögð með penna og
pensli. Eg víl mótmæla þeiin
skilningi sem ég hef orðið var
vtð hjá mörgum. að m.vndin sé
lesbísk í eðlí sinu. M.vndin fjalJ*
ar um tjánmgarþörf fjögurra
kvenna og umkomuleysí þeírra
í voröld, sem er miirkuð ein-
manaleika. Þessar konur leitast
við að finna sannan lilgang með
tílvcru sinni, en ekki svar við
líkamlegum hvötuin. V.J.
★ ★★★ Engum en Bergman er
ietur treystandt til að koina
liíntim öteljandi hlæhrigðum
gilannnar sem eðhlegustum og
;\hrifamestum fyrir aitgli áhorl-
andans. Svo iiK'istaralega með-
löndlar hann Inmgdiainaiisk-
an efmviðmn, fráhæra leikara
og stórmenni i kvikmyiidatiiku,
Sven Nykvíst, uð áhorfawl-
anum fínnst hann ekki sitja i
kvikmyndahúsi, heldur m; hann
i smiðju liiframannsms S.V.
Tónabfð
„Enn heiti ég Trinity
★ ★ |H 'ír bneður liregðast ekkt
áhorfenduin. frekar en fytri
dagittn. Myndin er fuli af
skemmttieghetttim og fyndnum
frávikuin frá hinuin hefð-
buudtta vestra. S.V.
★ Skopstæiing á „spaglu'ttr’ —
vestrum, byggð á munnlegutn
útúrsiu'mingt o.g endurtekning-
um. Handrjiíð er suinstaðar ail
gott en kvikmyndaleg útfærsla
og uppbygging er svo barnaleg.
að margtr brandararuir eru
kæfðir i fæðingu. Ef myndstils
og leikstjórnar Sergío Leone
n.vti við. hefði myndin öðlast
það lif, sem nú skortir í þetta
andvana afkvæmi. SSI’
Ef yrði ttú stríð
og enginn mætti.
0 Km aí þossutn sprengitlægi-
legu gainamnyttdiim. sem við
nánari athugun stenst vart þá
kröfu að kallasl frambæríleg
sem uppfyliingarefni í kvik-
myndahúsí milli sýttingarhæfra
tnynda llefðbtindin bandarísk
langloka með stökuin Ijósmn
punklum. V.J.
kvik
fflUfl
/Idflfl
SIGURÐUR SVÉRRIR PALSSON
VALDIMAR JÖRGÉNSEN
SÆBJÖRN VALDIMARSSON