Morgunblaðið - 02.02.1974, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. FEBRÚAR 1974
I ÍÞRdTTAFRETTIR MORGDNBIAOSIMS
Grótta opnaði
2. deildina
Vann Þrótt með 15:14
MIKLAR sviptingar eru 12. deild-
inni ( handknattleik. Um miðja
viku léku Breiðabliksmenn sér að
þvf að sigra KR og gera vonir
KR-inga um sigur ( deildinni
mjög litlar. Brúnin Ivftist þó
aftur á KR-ingum I fyrrakvöld, er
Grótta vann verðskuldaðan sigur
yfir Þrótturum. Leiknum lauk
15:14, og var úrslitamarkið
skorað á sfðustu sekúndu (eiks-
ins. Það var Halldór Krist jánsson,
sem fékk það vandasama hlut-
verk að framkvæma vítakastið,
hann brást ekki félögum sfnum
og skoraði örugglega framhjá
Þorsteini Björnssyni.
Grótta og Þróttur standa núna
bezt að vígi í 2. deild, hafa tapað
fjórum stigum, en KR og KA hafa
tapað 6 stigum í deildinni. Enn
eiga því fjögur lið möguleika á
sigri í deildinni og um leið og
spennan dvínar í 1. deild eykst
hún í deild númer 2.
Leikur Gróttu og Þróttar var
ekki vel leikinn, leikmenn lið-
anna voru -of taugaóstyrkir til að
þeir næðu að sýna sínar beztu
hliðar, sérstaklega Þróttarar.
Þróttur skoraði tvö fyrstu mörk-
in, en síðan tók Gróttan við sér og
komst fljótlega yfir, staðan varð
8:5 fyrir Seltirninga, en fyrir leik-
hlé hafði Þrótti tekizt að minnka
muninn niður í 8:7.
Grótta leiddi fram yfir miðjan
seinni hálfleikinn, en þegar 7
mínútur voru eftir tókst Trausta
að jafna fyrir Þrótt, 13:13. Hófst
nú mikill darraðardans og skipt-
ust liðin á um að gera mistök.
Aftur varð jafnt, 14:14, og þrjár
mínútur eftir af leiktímanum.
Grótta virtist hafa leikinn í hendi
sér, liðið var í sókn og nógur tími
eftir til að skora. Þá braut
Magnús Sigurðsson klaufalega af
sér með því að ryðjast inn f vörn
Þróttar. Knötturinn var dæmdur
af Gróttu og nú virtust trompin
öll vera í höndum Þróttara. I stað
þess að nýta þá hálfu mínútu, sem
eftir var, til að leika rólega og
reyna að halda örugglega öðru*
stiginu, þoldu Þróttarar ekki
álagið og glopruðu knettinum í
hendur Atla Héðinssyni, sem
brunaði upp völlinn og stökk upp
á vítateigi. Markið blasti við fyrir
framan hann og sigurinn innan
seilingar, Atli skoraði þó ekki, því
að brotið var á honum og vítakast
dæmt. Þá voru fjórar sekúndur
eftir af leiktímanum. Halldór
Kristjánsson skoraði svo úr vfta-
kastinu eins og áður sagði. Æsi-
spennandi leik var lokið með
naumum, en verðskulduðum sigri
Gróttumanna, sem alltaf voru
heldur skárri en Þróttarar.
Beztu menn Gróttu í þessum
leik voru fyrrverandi KR-ingarnir
Atli Þór Héðinsson, Ivar Gissurar-
son, Björn Pétursson og Árni Ind-
riðason. Halldór Kristjánsson
komst einnig mjög vel frá viður-
eigninni.
Af Þrótturum komust þeir
Trausti Þorgrimsson og Friðrik
Friðriksson bezt frá þessum
mikilvæga leik.
A að gizka 200 manns fylgdust
með leiknum, skemmtu þeir sér
konunglega og hvöttu bæði lið
óspart til dáða. Stemmningin var
eins og þegar Höllin er troðfull af
fólki.
Mörk Þróttar: Halldór 7,"
Trausti 3, Jóhann 3, Björn 1.
Mörk Gróttu: Björn, Halldór og
Arni 4 hver, Magnús 2, Ómar 1.
Trausti Þorgr(msson skorar fyrir Þrótt eftir að
hafa stungið sér inn á Ifnuna framhjá Benóný.
(Ljósm. Kr.Ben.)
Oft kallaður„faðir handknattleiksins”
Nokkur orð til Hallsteins Hinrikssonar á sjötugsafmæli hans
Gleðistund f lffi Hallsteins Hinrikssonar. tslendingar hafa sigrað
Svisslendinga f landsleik f handknattleik og þannig tryggt sér rétt til
áframhaldandi þátttöku f heimsmeistarakeppninni 1961. Það er
Birgir Björnsson, einn af nemendum Hallsteins, sem faðmar hann og
Asbjörn Sigurjónsson þáverandi formann HSl að sér.
EF FARIÐ er um Hafnarfjörð má
telja Ifklegt, að maður sjái þar
ungmenni að leik með knött.
Gagnstætt því, sem gerist víðast
hvar annars staðar, er honum
ekki sparkað manna á milli, held-
ur kastað. Handknattleikurinn
hefur í áraraðir verið uppáhalds-
íþróttagrein Hafnfirðinga, og má
það teljast með ólíkindum, að
jafnlítill bær skuli geta teflt fram
tveimur jafnsterkum handknatt-
leiksliðum og raun ber vitni.
Handknattleiksmenn Hafnar-
fjarðar hafa borið hróður bæjar
síns víða og eiga örugglega eftir
að gera það á ókomnum árum, ef
svo heldur fram sem horfir.
Maðurinn á bak við þennan
mikla handknattleiksáhuga Hafn-
firðinga og árangur þeirra á um-
liðnum árum er Hallsteinn
Hinriksson íþróttakennari, sem á
í dag sjötugsafmæli. Það eru ekki
einungis Hafnfirðingar, sem notið
hafa góðs af störfum Hallsteins
heldur má segja, að það hafi öll
íslenzk íþróttaæska gert, beint
eða óbeint.
Hallsteinn Hinriksson hefur oft
verið kallaður „faðir handknatt-
leiksíþróttarinnar á lslandi“.
Hann mun þó ekki hafa kynnt
íþróttina fyrstur manna hér-
lendis, en um það verður ekki
deilt, að Hallsteinn tók miklu ást-
fóstri við íþróttina, og það er
hann, sem á stærstan hlut að
þeirri þróun, sem orðið hefur;
þeirri, að íslenzkir handknatt-
leiksmenn standa nú svo til jafn-
fætis þeim beztu og vekja hvar-
vetna athygli fyrir getu sína.
Allt frá því að Hallsteinn
kynntist handknattleiknum hefur
hann fylgzt mjög náið með því,
sem er að gerast í íþróttinni
erlendis, og hann var jafnan fljót-
ur að taka upp nýjungarnar og
koma þeim inn í íþróttina hér-
lendis. Lengi vel var Hallsteinn
þjálfari félagsins, sem hann
stofnaði á sínum yngri árum, Fim-
leikaféiags Hafnarfjarðar, og
undir hans leiðsögn komust FH-
ingar fljótlega í fylkingarbrjóst
og hafa verið þar síðan. Hall-
steinn var einnig um tíma þjálfari
íslenzka handknattleikslandsliðs-
ins og undir hans stjórn náði það
sínum bezta árangri á alþjóðleg-
um vettvangi, er það hreppti
sjötta sætið í heimsmeistara-
keppninni 1961.
Ég undirritaður kynntist Hall-
steini Hinrikssyni ekki fyrr en ég
hóf störf sem íþróttafréttamaður
hjá Morgunblaðinu. Því eru marg-
ir mér færari um að greina frá
kennslu Hallsteins og störfum
hans að íþróttamálefnum. Þá sögu
þekkja svo margir, og raunar hafa
flestir Hafnfirðingar, sem eru
innan fertugs, notið góðs af hand-
leiðslu hans. Égvildi þó ekki láta
hjá líða að senda Hallsteini og
fjölskyldu hans árnaðaróskir á
þessum tímamótum í lífi hans og
bera jafnframt fram þakkir til
hans. Það hefur verið mér mikið
ánægjuefni að kynnast Hallsteini
og þiggja ráð hans og hlutdeild I
þekkingu hans á íþróttamálefn-
um. Fáum mönnum hef ég enn
kynnzt, sem starfað hafa að íþrótt-
um af jafnmikilli einlægni og
áhuga og Hallsteinn, og oft hefur
mig furðað á þeim næma
skilningi, sem hann hefur á eðli
íþróttanna og framgangi þeirra.
Um leið og árnaðaróskir Hall-
steini til handa eru endurteknar,
er látin í ljós sú von, að islenzk
íþróttaæska megi enn um skeið
njóta starfa Hallsteins, og að
íslenzk íþróttahreyfing eignist á
komandi árum sem flesta menn á
borð við hann. Þá væri henni vel
borgið.
Steinar J. Lúðvfksson.
STAÐAN
Staðan f 1. deild karla er nú
þessi:
FH 9 9 0 0 213:147 18
Valur 9 5 1 3 180:166 11
Fram 10 4 3 3 201:190 11
Víkingur 10 4 2 4 214:212 10
Haukar 9 2 4 3 168:182 8
Armann 9 2 2 5 129:143 6
IR 10 2 3 5 193:210 7
Þór 8 1 1 6 134:182 3
Markhæstu
leikmenn
deildarinnar eru eftirtaldir:
Axel Axelsson, Fram 73
Éinar Magnússon, Víkingi 68
Viðar Símonarson, FH 62
Gunnar Einarsson, FH 61
Agúst Svavarsson, IR 55
Hörður Sigmarsson, Haukum
55
Guðjón Magnússon, Víkingi 44
Gísli Blöndal, Val 43
Vilhjálmur Sigurgeirsson, IR
43
Sigtryggur Guðlaugsson, Þór
42
1 einkunnagjöf blaðamanna
Morgunhlaðsins eru eftirtaldir
ieikmenn stigahæstir, leikja-
f jöldi í svigum:
Viðar Símonarson, FH 31 (9)
Axel Axelsson, Fram 27 (10)
Gunnar Einarsson, FH 27 (10)
Ragnar Gunnarsson, Armanni
27 (9)
Agúst Svavarsson, IR 25 (10)
Björgvin Björgvinssoríf Fram
25 (10)
Einar Magnússon, Víkingi 25
(10)
Hörður Sigmarsson, Haukum
25 (9)
Stefán Jónsson, Haukum 25
(9)
Gunnlaugur Hjálmarsson, tR
23 (10)
Gunnsteinn Skúlason, Val 23
(9)
Staðan f 2. deild karla er nú
þessi: Þróttur 10 8 0 2 220:182 16
Grótta 9 7 0 2 221:188 14
KR 9 6 0 3 192:156 12
KA 9 6 0 3 229:204 12
Breiðablik9 4 0 5 193:196 8
IBK 8 3 0 5 149:191 6
Fylkir 9 2 0 7 183:207 4
Völsungur9 0 0 9 151:214 0
Markahæstir f 2. deild:
Brynjólfur Markússon, KA 79
Haukur Ottesen, KR 69
Björn Pétursson, Gróttu 60
Hörður Harðarson, Breiðabliki
57
Einar Agústsson, Fylki 56
Halldór Bragason, Þrótti 47
Sigurður Sigurðsson, Völsungi
47
Þorvarður Guðmundsson, KR
44
Þorsteinn Ólafsson, IBK 38
Halldór Kristjánsson, Gróttu
32
Staðan f 1. deild kvenna:
Fram 6 6 0 0 81:48 12
Valur 5 4 0 1 80:53 8
FH 5 2 12 67:61 5
Armann 5 2 12 65:63 5
KR 5 2 0 3 56:62 5
Víkingur 5 10 4 47:64 2
Þór 5 0 0 5 48:83 0
Markahæstarf deildinni:
Sigrún Guðmundsdóttir, Val
38
Svanhvít Magnúsdóttir, FH 30
Agnes Bragadóttir, Víkingi 29
Erla Sverrisdóttir, Ármanni 29
Arnþrúður Karlsdóttir, Fram
24
Guðrún Sigurþórsdóttir,
Ármanni 20
Hjördís Sigurjónsdóttir, KR 20
Enn varð að fresta
ENN varð að fresta leik Þórs
og Armanns f 1. deild karla á
fimmtudagskvöldið vegna þess
að Þórsarar komust ekki suð-
ur. Ekki hefur verið ákveðið
hvenær leikurinn fer fram, en
það verður ákveðið á fundi
mótanefndar HSl á mánudag-
inn.