Morgunblaðið - 14.02.1974, Qupperneq 34
34
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 14. FEBRUAR 1974
| ÍÞRðTTAFBfTTIB MOBWBHBiillllS
Unglingaskíðamót á Húsavík
SKÍÐAMÓT fyrir unglinga frá
Húsavík ög Ákureyri var haldið á
Húsavfk laugardag 2. og 3. febrú-
ar s.l. Slík mót hafa í allmörg
undanfarin ár verið tvisvar á
vetri hverjum til skiptis á Húsa-
vík og Akureyri. Keppt er I svigi
og stúrsvigi. Að þessu sinni sá
Iþróttafélagið Völsungur um
mótið.
Þátttakendur voru milli 50 og
60.
Sigurvegarar urðu eftirtalin:
Svig:
Stúlkur 12 ára og yngri: Jóhanna
Sigurbjörnsdóttir, Húsavík
Stúlkur 13—15 ára: Halla
Guðmundsdóttir, Akureyri
Drengir 12 ára og yngri: Ölafur
Grétarsson, Akureyri
Drengir 13—14 ára: Kristján
Olgeirssorí, Húsavík
Dreugir: 15—16 ára: Benedikt
Jónasson, Húsavík
Stórsvig:
Stúlkur 12 ára og yngri: Jóhanna
Sigurbjörnsdóttir, Húsavík
Stúlkur 13—15 ára: Katrín Frí-
mannsdóttir, Akureyri
Drengir 11—12 ára: Júlíus Jónas-
son, Akureyri
Drengir 13—14 ára: Björn Vík-
ingsson, Akureyri
Drengir 15—16 ára: Benedikt
Jónasson, Húsavik.
Að móti loknu var keppendum
og gestum haldið samsæti í Hótel
Húsavík og þar afhenti Stefán
Benediktsson, formaður skiða-
ráðs íþróttafélagsins Völsunga,
sigurvegurunum verðlaun.
Veitt voru þrenn verðlaun i
hverri grein og skiptust þau þann-
ig, að Húsavík hlaut 5 gullverð-
laun, 4 silfurverðlaun og 5 brons-
-verðlaun, en Akureyri hlaut 5
gullverðlaun, 6 silfurverðlaun og
5 bronsverðlaun.
Næsta unglingamót verður á
Akureyri síðar i febrúar.
Steingrfmur Davíðsson, Guðjón Guðmundsson og Elías Gunnarsson
háðu skemmtilega keppni í 100 metra bringusundi.
Reykjavíkurmeistaramót í frjálsum íþróttum:
Þau yngstu hrepptu
REYKJAVlKURMÓT í frjálsum
íþróttum fór fram í Laugardals-
höllinni síðastliðinn laugardag.
Það var helzt yngsta fólkið, sem
vakti athygli, og í þeiní 11 grein-
um, sem keppt var í, voru sigur-
vegararnir í 8 þeirra 15 ára eða
yngri.
Eitt drengjamet var sett á mót-
inu, Kristinn Bjarnason, KR,
stökk 3.50 m 1 stangarstökki.
Kristinn vakti athygli fyrir góðan
stökkstíl. t 800 metra hlaupi
stúlkna kom fram á sjónarsviðið
ung stúlka, Ingibjörg Guðbrands-
dóttir, hún varð Reykjavíkur-
meistari á tímanum 2:45.7 —
Sigurður Sigurðsson,
Ármanni varð tvöfaldur
meistari á Reykjavfkurmót-
góður árangur hjá 12 ára stúlku.
Bezta afrek mótsins vann Hafn-
firðingurinn Árni Þorsteinsson,
er hann stökk 1.90 i hástökki og
það voru fleiri utanbæjarmenn,
sem komu sterkir frá þessu móti.
Hreinn Halldórsson kastaði kúlu
17.14 ogGuðni Halldórsson 14.35.
Sigurður P. Sigmundsson, FH,
hljóp 1500 metra á 4:35.7, Lára
Halldórsdóttir, FH, stökk 1.50,
Þröstur Einarsson, Ulfljóti, stökk
1.80 i hástökki og Anna Haralds-
dóttir, FH, hljóp 800 m á 2:44.7
Reykjavíkurmeistarar urðu eftir-
talin:
15 m hlaup pilta:
Öskar Thorarensen, ÍR, 5:12.1
800 m hlaup stúlkna:
Ingibjörg Guðbrandsdóttir, Á,
gullin
2:45.7
Hástökk stúlkna:
Hrafnhildur Valbjörnsdóttir,
1.50
50 m hlaup stúlkna:
Erna Guðmundsdóttir, Á, 6.9
50 m hlaup pilta:
Sigurður Sigurðsson, A, 6.3
Langstökk stúlkna:
Ása Halldórsdóttir, Á, 4.96
Kúluvarp piita:
Guðni Sigfússon, A, 14.06
Stangarstökk:
Stefán Hallgrímsson, KR, 3.90
50 m grindahlaup stúlkna:
Asa Halldórsdóttir, Á, 8.4
Langstökk pilta:
Sigurður Sigurðsson, Á, 6.14
Hástökk pilta:
Jón S. Þórðarson, ÍR, 1.80
SundmótKRfór fram í Sundhöll
Reykjavíkur í fyrrakvöld með
þátttöku keppenda úr Ármanni,
KR, Ægi, Sundfélagi Hafnar-
fjarðar, tþróttabandalagi Akra-
ness og Breiðabliki. Bezta afrek
mótsins vann sá kunni kappi Guð-
mundur Gíslason, hann synti 200
metra fjórsund á 2:27.2 og sá timi
veitti honum flest stig samkvæmt
stigatöflu. Hlaut Guðmundur
Afreksbikar SSt að iaunum.
Árangur keppenda á mótinu var
frekar slakur, enda er sundfóikið
yfirleitt ekki í sem beztri æfingu
á þessum árstíma. Athygli vekur
þó 100 metra bringusund karia,
en þar er Breiðabliksmaðurinn
Steingrímur Davfðsson aðeins 6
sekúndubrotum á eftir Guðjóni
Guðmundssyni.
Ursiit í einstökum greinum
urðu sem hér segir:
400 metra skriðsund karla
Islandsmet: Friðrik Guðmunds-
son, KR, 4:20.4. í þessu sundi er
keppt um bikar þann, sem SSÍ gaf
sunddeild KR i tilefni 50 ára
afmælis deildarinnar 1973.
1. Axel Alfreðsson, Æ, 4:40.0
2. Daði Kristjánsson, UBK, 4:51.5
3. Halldór Ragnarsson, KR, 4:55.8
100 m skriðsund kvenna
íslandsmet: Hrafnhildur Guð-
mundsdóttir, Á 1:03.9. í þessu
sundi er keppt um Flugfreyjubik-
arinn, en hann gaf Rögnvaldur
Gunnlaugsson til minningar um
systur sína, Sigrfði Báru, fyrstu
flugfreyju íslendinga, en hún
fórst í flugslysinu í Héðinsfirði
árið 1947.
1. Vilborg Sverrisdóttir, SH,
1:07.8
2. Þórunn Alfreðsdóttir, Æ, 1:08.2
3. Hallbera Jóhannesdóttir, lA,
1:11.5
100 m bringusund karla
íslandsmet: Guðjón Guðmunds
son, ÍA, 1:10.9
1. Guðjón Guðmundsson, ÍA,
1:14.0
2. Steingrimur Davíðsson, UBK,
1:14.6
3. Elías Gunnarsson, KR, 1:15.4
100 m bringusund kvenna
islandsmet: Ellen Ingvadóttir,
A, 1:21.8.
1. Þörunn Alfreðsdóttir, Æ, 1:27.9
2. Jóhanna Jóhannesdóttir, ÍA,
1:28.0 .
3. Hallbera Jóhannesdóttir, lA,
1:30.5.
200 m fjórsund karla
íslarfösmet: Guðmundur Gísla-
son, Á, 2:19.0
1. Guðmundur Gíslason, A, 2:27.2
2. Hafþór B. Guðmundsson, KR,
2:30.1
3. Axel Alfreðsson, Æ, 2:30.2
100 m baksund kvenna
íslandsmet: Salóme Þdrisdóttir,
Æ, 1:13.7
1. Guðrún Halldórsdóttir, ÍA,
1:16.6
2. Þórunn Alfreðsdóttir, Æ, 1:22.6
3. Vilborg Sverrisdóttir, SH,
1:23.3
4x100 m skriðsund karla
islandsmet: sveit Ægis, 3:55.5
1. Sveit Ægis, 4:03.1
2. Sveit KR 4:14.0
3. Svei t Ármanns, 4:15.2
4x100 m skriðsund kvenna
íslandsmet: sveit Ægis 4:40.3
1. SveitÆgis 4:48.8
2. SveitSH 5:15.3
3. SveitUBK 5:22.9.
Vilborg Sverrisdóttir með Flugfreyjubikarinn, Þórunn Aifreðsdótt-
ir, sem varð önnur er til vinstri og Hallbera Jóhannsdóttir til hægri.
64 keppendur í Reykja-
víkurmóti í borðtennis
Fjögur pör bræðra í tvíliðaleik karla
REYKJAVIKURMÓTIÐ i borð-
tennis fer fram í Laugardals-
höllinni um næstu helgi og er
mjög mikil þátttaka í mótinu.
AIIs hafa 64 keppendur skráð
sig til leiks, 29 unglingar, 28
karlar og 7 konur. Búast má við
skemmtilegri keppni í öllum
flokkum, en athyglin beinistþó
mest að einliðaleik í meistara-
flokki karla. Reykjavíkur-
meistari þar er Hjálmar Aðal-
steinsson, en hann er engan
veginn öruggur með sigur að
þessu sinni, til að mynda varð
Ólafur H. Óiafssón sigurvegari
í einliðaleik Arnarmótsins á
dögunum. 1 tvíliðalcik karla-
flokksins vill svo skemmtilega
til, að fjögur bræðrapör verða
meðal keppenda, það eru þeir
Jón og Ragnar Kristinssynir,
Erninum, Gunnar og Sigurður
Hall, KR, Aðalsteinn og Magn-
ús Einarssynir, Erninum, og
Jóhann og Þór Sigurjónssynir,
Erninum.
Keppnin hefst á laugardag-
inn klukkan 15.30 og verður
fram haldið á sunnudag klukk-
an 14.30. Tímaseði 11 mótsins er
sem hér segir:
Laugardagur:
15.30 Einliðaleikur unglinga
16.30 Tvíliðaleikur karla
17.00 Einliðaleikur kvenna
18.00 Tvenndarkeppni
Sunnudagur:
13.30 Einliðaleikur karla
14.30 Tvíliðaleikur unglinga
15.00 Tvíliðaleikur kvenna
17.00 URSLIT Í ÖLLUM
FLOKKUM.
Guðmundur vann besta afrek-
ið á sundmóti KR