Morgunblaðið - 22.02.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR 1974
Lang mesta undir-
skriftasöfnun, sem
hér hefur farið fram
— Þetta er án efa mesta
undirskriftasöfnun, sem fram
hefur farið hérlendis, sagði
Hreggviður Jónsson á skrif-
stofu samtakanna Varins lands,
þegar við litum þar inn í gær.
— Söfnuninni lauk á miðviku-
dagskvöld og síðan hafa list-
arnir verið að streyma inn. 1
gærkvöldi vorum við búnir að
telja 51.222 nöfn. Það hefur
verið þungfært úti á landi und-
anfarið, sums staðar algerlega
ófært og auk þess hefur verk-
fallið sett strik í reikninginn,
þannig að við getum ekki lokað
bókunum alveg strax.
— Við eigum von á þó
nokkrum listum utan af Iandi
og þótt eiginlega sé ekki hægt
að spá neinu eins og er, þá gæti
ég gizkað á, að undirskriftirnar
yrðu í kringum 54 þúsund, þeg-
ar allt er talið.
— Það eru um 49 þúsund
fleiri undirskriftir en Þor-
steinn Sæmundsson reiknaði
með I upphafi?
— Já, við gátum ekki búizt
við þessum ðsköpum. Þegar
farið var af stað með þetta var
miðað við svipaðar kannanir er-
lendis og samkvæmt þeim kom-
umst við að þeirri niðurstöðu,
að um fimm prósent væri góð
útkoma. Fljótlega kom þó í
ljós, að áhugi á þessu máli var
miklu meiri en okkur hafði ór-
að fyrir, og starfið hér á skrif-
stofunni hefur verið hreinasti
þrældómur, við höfum varla
haft undan að afgreiða fólk,
sem hefur komið hingað með
lista eða til að sækja þá.
— Nú halda sjálfsagt ein-
hverjir fram, að einhverjar
falsanir hafi átt sér stað?
— Kannski, en það hefur
ekki við nein rök að styðjast.
Við ákváðum strax í upphafi að
hafa eftirlit með þessu til að
ekkert slíkt gæti átt sér stað.
Við byrjuðum því strax, er
fyrstu listarnir komu inn að
yfirfara þá og höfum haldað því
áfram jafnóðum eftir því sem
við höfum annað. Við yfirför-
um nöfnin og heimilisföngin og
berum saman við þær skrár,
sem til eru, til þess að gæta
þess, að engir skrifi nafn sitt
tvisvar, falsi nöfn eða séu of
ungir. Við höfum ekki rekizt á
eitt einasta slíkt tilfelli og ég á
ekki von á, að það eigi eftir að
verða. Listarnir verða allir yfir-
farnir á þennan hátt áður en
þeim verður skilað til að ganga
úr skugga um, að al It sé rétt.
Hreggviður Jónsson yfirfer nokkra lista, sem eru nýkomnir
inn á skrifstofuna.
— Hvers konar fólk hefur
komið tilykkar á skrifstofuna?
— Ekki er hægt að draga það
í neinn einn dilk. Það hefur
verið á öllum aldri og úr öllum
stéttum þjóðfélagsins. Við
höfum átt skemmtilegar sam-
ræður við margt af þessu fólki,
sem kemur hingað, og það hef-
ur sýnt málinu mikinn áhuga.
— Ég hef nú ekki nákvæma
tölu yfir það, hve margir hafa
unnið ötullega að þvf að fá lista
til undirskriftar, en líklega er
það eitthvað á þriðja þúsund
manns. AUir, sem taka lista,
gefa auðvitað upp nafn og
heimilisfang og svo sfma-
númer, til að við getum haft
samband við þá ef þörf kref ur.
— 1 því sambandi má kannski
geta þess, að í ljós hefur komið,
að oft eru skiptar skoðanir á
heimilum um þetta mál.
Heimilin taka ekkert endilega
„heildarafstöðu". Kona nokk-
ur, sem kom til okkar að fá
lista, bað okkur að hringja ekki
heim til sfn. Maðurinn sinn
væri á allt annarri skoðun og
þótt skoðanaskipti um þetta
mál færu tiltöiulega friðsam-
lega fram á heimilinu, vildi
hún ekki ergja hann með því að
láta hann vita, að hún ynni að
undirskriftasöfnun.
— Hvað gefur þessi mikli
fjöldi til kynna?
— Tja, ég held bara að við
verðum að láta tölurnar tala.
Þær undirskriftir, sem þegar
eru komnar, eru um 50 prósent
af atkvæðum við sfðustu kosn-
ingar og enn er ekki allt búið.
Við vitum líka, að hópur fólks
fylgir okkur að málum, þótt
undirskriftir liggi ekki fyrir.
Það er fólk, sem af ýmsum
ástæðum hefur ekki haft tæki-
færi til að rita nöfn sín á iista.
Mörg byggðalög eru t.d. ein-
angruð vegna ófærðar og fleira
mætti telja. Niðurstaðan hlýtur
einfaldlega að vera sú, að allur
þessi fjöldi vilji láta þetta mál
til sín taka og sé sammála af-
stöðu okkaé. — A.M.
Hindra með ofbeldi að
starfsfólk vinni störf sín
Loftleiðir segjast munu koma fram ábyrgð
á hendur félagasamtökum verzlunarmanna
KRISTJAN Guðlaugsson,
stjórnarformaður Loftleiða, gerði
í gær athugasemd við fréttaflutn-
ing undanfarna daga í útvarpi og
blöðum um svokölluð verkfalls-
brot af hálfu Loftleiða. Sagði
Kristján að hér væri um staðleys-
ur að ræða og yrði ábyrgð á hend-
ur félagssamtökum verziunar-
fólksins komið fram á sínum
tíma. Kristján sagði:
„Vegna endurtekins fréttaburð-
ar i útvarpi og blöðum um verk-
fallsbrot af hálfu Loftleiða h.f.
skal fram tekið, að þar er farið
með hreinar staðleysur. Hins veg-
ar hafa verkfallsverðir og saman-
safnað lið af Suðurnesjum hindr-
að með ofbeldi að starfsmenn
Loftleiða h.f. á Keflavikurflug-
velli, sem hvorki eru í verkfalli
né vinna störf umfram það sem að
venju lætur, gætu sinnt störfum
sínum. Jafnframt hefur það haft í
frammi hótanir um að hindra
fl'ugliða i störfum, þótt til þess
hafi ekki ennþá komið i fram-
kvæmd.
Astæðulaust er að munnhöggv-
ast um ólögrriætar aðgerðir þessa
fólks enda verður ábyrgð komið
fram á hendur félagssamtökum
þess á sinum tima."
Pan Am hættir á
íslandi eftir 27 ár
BANDARÍSKA flugfélagið Pan
American hefur ákveðið að
leggja niður skrifstofu sfna á Ís-
landi eftir 27 ár starf hér á landi.
Var þessi ákvörðun tekin í síð-
ustu viku. Pan Am hef ur flogið ti 1
Íslands árið um kring nema síð-
ustu tvo vetur, en sumarferðirnar
hafa haldizt. Fellur allt flug Pan
Am til Íslands því niður með
þessari ákvörðun, en sfðustu sum-
ur hefur félagið flutt allt að 100
farþega á viku til islands.
Að sögn Steindórs Ölafssonar
starfsmanns Pan Am kemur þessi
ákvörðun til vegna samdráttar al-
mennt i flugi í heiminum og oliu-
hækkunarinnar og að undanförnu
hefur Pan Amgert ýmsar ráðstaf-
anir til þess að spara við sig. Til
dæmis hefur félagið fyrir
skömmu lokað skrifstofum sínum
í Osló, Stokkhólmi, Glasgow og á
Shannon á írlandi.
Enn all þungfært
Í gærmorgun var búið að opna
veginn um Iloltavörðuheiði til
Akureyrar, en síðdegis var orðið
mjög þungfært þar vegna snjó-
komu og talið ófært fyrir litla
bíla. Víðast er mjög þungfært á
Norðurlandi.
A Vestfjörðum er einnig mjög
þungfært, allar heiðir öfærar og
víða illfært í byggðum. Mikið
Út af á
Miðnesheiði
UMFERÐARSLYS varð á Miðnes-
heiði í fyrradag á veginum milli
Keflavikur og Sandgerðis. Nýleg
Fiat 125 Bifreið lenti út af veg-
inum, en auk ökumanns var kona
hans og barn í bifreiðinni. Öku-
maðurinn og barnið sluppu
ómeidd, en konan var lögð inn á
sjúkrahúsið í Keflavík. Hafði hún
brákazt á hryggjarlið, að því er
talið er, og skaddazt á höfði.
Bifreiðin er talin ónýt, en hún
lenti á stórum steinum utan
vegar.
snjómagn er einnig á Austfjörð-
um og aðeins fært um byggðir
þar.
Sunnan jökla hefur verið opið
siðan Lónsheiði var opnuð, en
segja má, að færð sé heldur að
færast i lag eftir rigningarnar að
undanförnu. Lítið hefur þó
grynnkað á snjónum á Norður-
landi, en þar telja menn, að sé nú
mesti snjór i mörg ár.
Reykjanes-
kjördæmi
MYNDLIST ARKLÚBBUR Sel
tjarnarness sýnir verk sín á
aðalfundi kjördæmisráðs Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjanekjör-
dæmi, sem haldinn verður í
félagsheimilinu á Seltjarnarnesi
á morgun, laugardag. Auk venju-
legra aðalfundarstarfa verða al-
mennar stjórnmálaumræður og
verður Geir Hallgrímsson for-
maður Sjálfstæðisflokksins máls-
hefjandi.
Spurningar, sem Lúðvík
svaraði ekki
í ÚTVARPSÞÆTTINUM
„Beinni línu“ sl. miðvikudags-
kvöld beindi Karl Arnason
nokkrum fyrirspurnum til Lúð-
víks Jósepssonar vegna orð-
sendingar Norðmanna, sem
mjög hefur verið rædd að und-
anförnu. Ráðherrann svaraði
fæstum spurningunum beint og
a-u þær spurningar, sem hann
svaraði ekki, birtar hér. Þær
eru þessar:
1. Hvenær fengu ráðherrar Al-
þýðubandalagsins afrit af orð-
sendingu Norðmanna eða
vitneskju um efni hennar?
2. Hafa aðrir ráðherrar fengið
afrit af orðsendingunni eða
vitneskju um efni hennar?
3. Skýrði utanríkisráðherra
ráðherrum Alþhl. frá efni orð-
sendingarinnar sem trúnaðar-
máli?
4. Stafar sú fullyrðing forsætis-
ráðherra, að orðsendingin hafi
ekki verið afskipti af íslenzk-
um innanríksimálum af því, að
hann skilji ekki málið, aðdómi
Lúðvíks, eða hann hafi sagt
þjóðinni ósatt?
Þessum spurningum svaraði
Líðvík Jósepsson ekki eins og
fram kemur hér á eftir, en
orðaskipti ráðherrans og Karls
Arnasonar eru birt í heild. Þess
skal getið, að fyrirspyrjand-
inn, Karl Arnason, er náinn
samverkamaður Björns Jöns-
sonar. Hann er fulltrúi SFV í
bankaráði Búnaðarbankans, en
var fyrr á árum framámaður í
Sósíalistaflokknuin. Hér fara á
eftir orðaskipti ráðherrans og
spyrjanda.
Karl Arnason: „Þú sagðir á
Alþingi á mánudaginn, að þú
hefðir lesið yfir ræðu Magnús-
ar Kjartanssonar á fundi Norð-
urlandaráðs og værir sammála
hverju orði, sem í henni stæði,
en hann sagði m.a. orðrétt í
Þjóðviljanum i gær: „í septem-
ber i fyrra fékk ríkisstjórn ís-
lands orðsendingu frá rikis-
stjórn Noregs, þar sem lagt var
fast að fslenzkum stjórnarvöld-
um að leyfa bandaríska herstöð
í Keflavik." Nú er spurning
mín í fyrsta lagi: Hefur þú
sjálfur lesið þessa orðsend-
ingu?
Lúðvík Jósepsson: Já, ég hef
lesið hana.
Karl Arnason: Hefur Magnús
Kjartansson lesið hana?
Lúðvík: Já, það ætla ég, að
hann hafi gert.
Karl: Hvenær lét Einar
Agústsson ykkur Magnús
Kjartansson fá afrit af orðsend-
ingunni eða hvenær skýrði
hann ykkursvonákvæmlegafrá
efni hennar, að þið getið fullyrt
þetta? Hafa aðrir ráðherrar í
ríkisstjórninni fengið afrit af
orðsendingunni eða jafn
nákvæma vitneskju um hana og
þið? Skýrði utanríkisráðherra
ykkur frá þessu sem trúnaðar-
máli? Ölafur Jóhannesson for-
sætisráðherra segist ekki lita á
orðsendinguna sem afskipti af
innanríkasmálum íslands,
þ.e.a.s. af herstöðvarmálinu.
Telur þú, að það stafi af því, að
hann skilji ekki málið eða hann
sé að segja þjóðinni ósatt, þegar
þið Magnús Kjartansson segið
satt?
Lúðvík: Við þessu er aðeins
það að segja, Karl, að ég hef
fengið þessa orðsendingu, afrit
eða ljósrit af henni og lesið
hana og veit, að það hefur
Magnús Kjartansson gert líka.
Það hefur hins vegar komið
fram, að Norðemnn óska ekki
eftir því, að hún sé birt, a.m.k.
ekki að svo komnu máli. Verði
hún birt, sem ég vona, þá geta
menn dregið sinar eígin álykt-
anir af þvi, hvernig þeir meta
þessa orðsendingu. Ég met
hana svo, að hér hafi verið um
óeðlileg afskipti af innlendum
málum að ræða, innanlands-
málum okkar að ræða, eins og
Magnús Kjartansson. Nú aðrir
ráðherrar hljóta auðvitað að
meta þetta fyrir sig, hvernig
þeir meta þetta.