Morgunblaðið - 22.02.1974, Qupperneq 14
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRUAR 1974
Lárus Jónsson og Halldór Blöndal:
V arar aforkustöðvar
rísi á Norðurlandi
LÁRUS Jónsson og HaJldór
Blóndal, þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins í Norðurlandskjördæmi
eystra, hafa flutt tillögu til þings-
ályktunar um vararaforkustöðvar
á Ölafsvík, Dalvfk, Grenivík og
Kópaskeri. Er tillaga þeirra svo-
hljóðandi:
Alþingi ályktar að skora á rfkis-
stjórnina að fela Rafmagnsveit-
um ríkisins að reisa vararaforku-
stöðvar á Ölafsvík, Dalvík, Greni-
vík og Köpaskeri og endurbæta
vélhúnað í stöðinni á Raufarhöfn.
í greinargerð með tillögunni
segir í upphafi:
Nýlega kom áþreifanlega f ljós,
þegar mikið óveður geisaði á
Norðurlandi, að nokkrir þéttbýlis-
staðir á Norðurlandi eystra eru
illa settir með vararaforku. Hér
er fyrst og fremst um að ræða
Ólafsfjörð, Dalvík og Grenivík, en
einnig væri þörf á að reisa vara-
stöð á Kópaskeri fyrir sveitirnar í
kring og hyggja að endurbótum á
vélum vararafstöðvarinnar á
Raufarhöfn.
ÁÓlafsfirði, Dalvík ogGrenivík
voru milljónatuga verðmæti í
hættu vegna rafmagnsskorts, svo
að sólarhringum skipti, eftir að
línur frá Laxárvirkjun og Skeiðs-
fossvirkjun biluðu í umræddu
óveðri. Hér var bæði um að ræða
heimili fólks, sem beint og óbeint
þarfnast raforku á þessum stöð-
um til upphitunar, og hvers konar
atvinnurekstur og hraðfrystihús,
en þar eru milljónaverðmæti í
hættu, ef raforku nýtur ekki við,
auk þess tjóns, sem verður á starf-
rækslu húsanna. Ekki er óraun-
sætt að áætla, að frosinn fiskur í
geymslum hraðfrystihúsa á þess-
um stöðum hafi nurnið að verð-
mæti 30—40 mi llj.kr., þegar orku-
skortur koin i veg fyrir, að hægt
væri að halda við frosti á
geymsluklefum hraðfrystihús-
anna. I þetta sinn fór allt vel. En
sú áhætta, sem tekín er með nú-
verandi fyrirkomulagi, er gífur-
leg.
Síðar í greinargerðinni segir:
Það styður mjög tillögugerð
þessa, að á Norðurlandi vestra og
eystra, sem nú eru að verða eitt
raforkusvæði, er útlit fyrir að
verði að gripa til þess ráðs til þess
að afla nægilegrar raforku að
stórauka dísilvélakost. Iðnaðar-
ráðherra hefur staðfest á Alþingi,
að Norðlendingar fái ekki örugga
orku frá Landsvirkjun fyrr en
sumarið 1976, jafnvel þótt há-
spennulína um byggðir eða öræfi
rísi fyrr. Ýmsir kunnáttumenn
bera brigður á, að þessi áætlun
standist, en jafnvel þótt hún
standist, er þörf á stórfelldri raf-
orku frá dísilstöðvum á Norður-
landi næstu ár, ef ekki á að verða
þar algjört öngþveiti og stöðnun
vegna orkuskorts. Undirbúningi
vatns- eða gufuvirkjana, sem til
greina koma til þess að leysa tíma-
bundinn vanda heimamarkaðs
raforku á Norðurlandi, hefur ver-
ið frestað, þannig að ekki er von
á, að þar komist virkjun í gagnið
fyrr en með Kröfluvirkjun árið
1977 eða 1978, og má vel halda á
spöðunum, ef svo á til að takast.
Yfirlýsingar aðila að samningi um
lausn Laxárdeilunnar benda ekki
til þess, að samkomulag verði um
að auka orkuvinnslu í Laxá frá
því, sem nú er. Því hnígur allt til
þess, að eingöngu sé um þann
kost að ræða að auka raforku-
framleiðslu með dlsilvélum á
Norðurlandi tilþess að brúa bilið,
þar til háspennulínan að sunnan
verður risin og Kröfluvirkjun
hefur hafið orkuvinnslu.
Til glöggvunar um orkuþörfina
á Norðurlandi næstu árin hafa
flm. aflað upplýsinga um orku-
spár Rafmagnsveitna ríkisins og
Laxárvirkjunar á Norðurlandi
næstu ár. I forsendum spánna um
aukna orkuþörf er ekki gert ráð
fyrir frekari aukningu raf-
orkusölu til húsahitunar, þótt
búast megi við mikilli' hækkun
olíuverðs og þai- af leiðandi auk-
inni ásókn í rafhitun húsa. Þrátt
fyrir þessar varfærnislegu for-
sendur spánna um aukna orku-
þörf á Norðurlandi er gert ráð
fyrir, að afla þurfi orku sem hér
segir frá dísilvélum á Norður-
landi á næstu árum, og er þá sú
forsenda fyrir spánum, að Norð-
lendingar fái ekki aukna raforku
frá innlendum orkugjöfum á
U'mabilinu:
Nl. vestra afl. millj. kwst
1974 8.4 7.0
1975 10.8 10.0
1976 13.0 18.0
1977 15.4 32.0
Nl. eystra af 1. 67.0 mi llj. kwst
1974 3.5 13.0
1975 4.0 15.6
1976 4.5 18.0
1977 5.0 20.5
67.1
Af þessari töflu er ljóst, að setja
verður upp dísilstöðvar, sem hafa
samtals 17.5 megawatta afl, og
framleiða þarf 82 milljónir kwst.
af raforku með dísilstöðvum á
Norðurlandi, þótt örugg raforka
fáist með línu að sunnan á sumr-
inu 1976. Ur þessu mætti ef til vill
nokkuð draga, ef linan kæmi
fyrr að sunnan, og kæmi hún þá í
gagnið, þegar tíðarfar er bliðast.
En augljóst er, að þörfin á að
koma upp framangreindum vara-
aflsstöðvum er samt sem áður
fyrir hendi vegna þessa ástands,
þar sem orkuflutningur að sunn-
an yrði mjög svo óöruggur og eng-
in trygging fyrir, að rafmagn yrði
til á þá línu, þegar verst gegndi
fyrir Norðlendingum.
Loðnu kastað í sjóinn
.4 fundi sameinaðs þings sl.
þriðjudag kvaddi Jón Ármann
Héðinsson (A) sér hljóðs utan
dagskrár og bar fram spurningar
til sjávarútvegsráðherra varðandi
loðnumál:
1. Hvers vegna ekki væri
bannað að veiða loðnu og henda
henni síðan i sjóinn aftur?
2. Hvort gerð hafði verið skipu-
leg athugun á því, hvort reglur
loðnunefndar hefðu verið brotnar
af einhverjum aðilum?
3. Hvað búið væri að selja mikið
af loðnumjöli erlendis og hvert
væri meðalverð loðnumjölsins
miðað við 1000 kg fob°
4. Hve mikið fengju loðnumjöls-
framleiðendur lánað hjá bönkum
á hvert tónn af mjöii?
Lúðvík Jósepsson svaraði:
1. Fiskifélag íslands hefði nú
með höndum könnun á þvi, um
hve mikið magn af loðnu væri að
ræða, sem kastað hefði verið i
sjóinn. Ekki lægju fyrir niður-
stöður þeirrar könnunar.
2. Skýrsla hefði verið gefin um
þetta efni i útvarpi nýlega. Ekki
væri ástæða til að rekja efni
þeirrar skýrslu, en loðnunefnd
hefði þegar gripið til gagnráð-
stafana.
3. Búið væri að selja 18000 tonn
og verðið væri 50.000,00 kr.
tonnið fob.
4. Seðlabankinn lánaði
19.000,00 kr. á hvert framleitt
tonn. Síðan lánuðu viðskipta-
bankarnir tii viðbótar 28,2% af
láni Seðlabankans.
Tollskrárfrumvarp á dagskrá á ný
Stofnun sjóminja-
safns verði
undirbúin
SAMÞYKKT var samhljóða á
fundi sameinaðs þings í gær til-
laga til þingsályktunar um stofn-
un sjóminjasafns. Ályktun Al-
þingis var svohljóðandi: „Alþingi
ályktar að fela ríkisstjórninni að
hefja nú þegar, í samráði við þjóð-
minjavörð, undirbúning að stofn-
un sjómi njasafns. Skal leifaðeftir
samvinnu við Hafnarfjarðarbæ
um hentugt landsvæði fyrir slíkt
safn, svo og um byggingu þess og
rekstur.“
Flutningsmenn þessarar tillögu
voru Gils Guðmundsson (Ab) og
GeirGunnarsson (Ab).
FRUMVARP til laga um tollskrá
kom til 2. umræðu í neðri deild í
gær. Hefur formaður fjárhags- og
viðskiptanefndar deildarinnar
flutt nokkrar breytingartillögur
við frumvarpið, sem hann sagði
nefndarmenn alla styðja.
Enn er inni í frumvarpinu hið
umdeilda bráðabirgðaákvæði um
1% hækkun söiuskatts, sem olli
því, að ríkisstjórnin frestaði af-
greiðslu málsins fyrir jólaleyfi
þingmanna. Var þá orðið fyrir-
sjáanlegt, að ríkisstjórnin hefði
ekki meiri hluta í neðri deild
f.vrir því ákvæði.
Vilhjálmur Hjálmarsson (F)
formaður fjárhags- og viðskipta-
nefndar mælti fyrir áliti meiri
hluta nefndarinnar, sem gerir til-
lögu um, að frumvarpið verði
samþykkt óbreytt. Sagði hann, að
meiri hlutinn styddi ekki aðrar
fram komnar breytingartillögur
við frumvarpið en þær, sem hann
flytti sjálfur á sérstöku þing-
skjali. Gerði hann grein fyrir
þeim tillögum og kvaðst telja, að
þær væru studdar af allri nefnd-
inni.
.Matthías A Mathiesen (S)
sagði, að við fyrstu umræðu hefði
stjórnarandstaðan gert grein fyr-
ir afstöðu sinni til frumvarpsins.
Hefði hún viljað samþykkja frum-
varpið að öðru leyti en því, að hún
hefði ekki fallizt á umrætt bráða-
birgðaákvæði. Andstaðan við það
hefði í fyrsta lagi byggzt á jþví,
að óeðlilegt væri að hnýta
breytingu á söluskattslögum
inn í frumvarp um alls
óskylt mál. Gat hann um,
að á þeim 2 mánuðum, sem nu
væru líðnir frá áramótum hefði
rikisstjórninní átt að vera i lófa
lagið að flytja frumvarp um
breytingu á söluskattslögum, en
það hefði hún ekki gert.
I annan stað væri með ákvæð-
inu um 1% hækkun söluskattsins
gert ráð fyrir miklu meiri tekju-
öflun en tékjutapi vegna lækkun-
ar á tollum næmi.
Ólafur G. Einarsson (S) sagði,
að ríkisstjórnin hefði heykzt á því
að reyna að koma þessu máli í
gegnum þingið fyrir jól, því að
hún hefði ekki meiri hluta til
þess. Nú ætti bersýnilega að
reyna aftur.
Með því að tengja saman óskyld
mál væri ríkisstjórnin að virða að
vettugi leikreglur þingræðisins.
Minnti hann á 4 dæmi um slík
vinnubrögð þessarar rikisstjórn-
ar, sem Ragnhildur Helgadóttir
rakti i þinginu fyrir skömmu.
Þá mælti hann fyrir breytingar-
tillögu við tollskrárfrumvarpið.
sem hann flytur ásamt Pétri
Péturssyni um, að tollar af
bensini verði 264,00 kr. af
hverjum 100 kg i stað þess að vera
50% á tollstofn, eins og gert væri
ráð fyrir í frumvarpinu. Væri til-
gangurinn að reyna að draga úr
verðhækkunum erlendis á
bensíni. Væri við það miðað, að
tollurinn yrði sá sami og hann var
sl. haust. Ríkisstjórnin tæki með
tillögum sínum að sér svipað hlut-
verk og olíuhringar erlendis að
reyna að græða á oliukreppunni.
Skattar á umferðina væru nú
komnir fram úr öllu velsæmi, og
enn hygðist ríkisstjórnin bæta
við. A sama tima ræri innan við
50% af tekjum af umferðinni var-
ið til vegamála. Sagði Ólafur mál
vera komið að þessu linnti.
Að þessum umræðum loknum
var umræðunni frestað.
— Næsta
stórvirkjun
Framhald af bls. 12
um landið sé nauðsynleg frá
öryggíssjónarmiði. Búrfellsvirkj-
un og Sigölduvirkjun eru báðar á
mesta eldgosasvæði landsins. All-
ir vona, að til óskapa komi ekki á
þessu svæði, en engin mannvirki
standast öflug eldsumbrot, ef þau
dynja yfir. Víst er, að það er
áhættusamt að byggja þar allar
stórvirkjanir landsmanna. Eld-
gosa- og jarðskjálftabeltið liggur
þvert yfir landið eftir miðju mó-
bergssvæðinu frá norðaustri til
suðvesturs. Það eru mikil með-
mæli með stórvirkjun á Blöndu-
eða JiikulsársvK'ðinu, að það ligg-
ur utan þessa beltis.
Þá er og mikilvægt að virða
fyrir sér Blöndu- og Jökulsár-
virkjun með tilliti til flutnings-
lína og öryggis fyrir mestu orku
neyslusvæði landsins. Sama er
hvor virkjunarstaðurinn yrði val-
inn, þá liggur fyrirhuguð byggða-
lína i fárra km fjarlægð. Það þýð-
ir, að bæðí Laxárvirkjunarsvæðið
og Landsvirkjunarsvæðið, þar
með talið fjölbýlið við Faxaflóa
með sínum stóru iðjuverum, ættu
þess kost að fá mikla raforku úr
tveimur áttum. Reynslan sýnir, að
orkulínur geta bilað. Búrfellslína
hefur bilað hvað eftir annað, þótt
ekki sé gömul. Önnur dæmi, göm-
ul og ný, mætti riefna víðs vegar
af landinu. Það er því mikið ör-
yggi í því fólgið að geta sótt orku
til tveggja átta, því að sjaldgæft
mun, að línubilanir verði nema á
takmörkuðu svæði i senn.
Vandamál af völdum ístruflana
og aurframburðar eru talin hverf-
andi lítil við þessar virkjanir
vegna uppistöðulóna og vatna,
sem ánum verður veitt um á leið
til stöðvarhúss. Einnig má geta
þess, að Blöndudalur og innstu
sveitir Skagafjarðar eru einhver
viðursælustu svæði Norðurlands.
HUGA VERÐUR AÐ NÁTTÚRU-
SPJÖLLUM
Nauðsynlegt er að gæta þess,
svo sem kostur er, að virkjunar-
framkvæmdir valdi ekki náttúru-
spjöllum. Að þvi er séð verður
verða þau hverfandi lítil við
virkjun Jökulsánna. Hins vegar
er talið, að talsvert afréttarland
tapist undir vatn við virkjun
Blöndu. Það er þó eitt af þeim
atriðum, sem ekki eru fullkönn-
uð. Verið er að kortleggja landið
og teikna inn á það hæðarlinur.
Þegar því er lokið, er nánar hægt
að gera sér grein fyrir þessu. Um
öll þau atriðí, er snerta hugsanleg
landsspjöll, leiðir til að draga úr
þeim og bætur, m.a. með gróður-
aukningu annars staðar i stað
þess, sem tapast, er nauðsynlegt
að hafa náið samráð við hlutaðeig-
andi sveitarstjórnir og gróður-
verndarnefndir. Að sjálfsögðu má
ráða sérfræðinga til aðstoðar að
vild.
Nálega engin veiði er í Jökuls-
ánum, a.m.k. ekki svo framarlega
sem v'irkjanirnar kæmu til með að
hafa áhrif á. Blanda er hins vegar
mjög góð laxveiðiá. Borið hefur
við, að lax hefur veiðst fram í
Haugakvísl eða jafnvel Seyðisá.
Við virkjun mundi taka fyrir lax-
gengd þangað. A hinn bóginn
mundi áin í heild sennilega batna
verulega sem laxveiðiá vegna
jafnara rennslis, minni aurburðar
og hlýrra vatns.
BYGGÐ ASJÓNARMIÐ
Virkjanir hafa mikla þýðingu
frá byggðasjónarmiði. Stórvirkj-
un á Norðurlandi vestra mundi
verða ómetanleg lyftistöng at-
vinnulifs og almennra lífshátta
fólksins í landshlutanum. Þótt
fullnæging venjulegrar orkuþarf-
ar sé meginatriðí, sköpuðust jafn-
framt möguleikar til orkufrekrar
stóriðju, sem ekki er minni
ástæða til að byggja upp og reka
þar en annars staðar. Þött hér séu
ekki gerðar beinar tillögur um
stóriðjufyrirtæki, ber að sjálf-
sögðu að hafa slíkt i huga við
framgang málsins.
Meginatriði er að taka sem fyrst
ákvörðun um stórvikjun í sam-
ræmi við það, sem tillagan grein-
ir. Verði unnt að hefjast handa
um virkjunarframkvæmdir i
Blöndu eða Jökulsánum árið
1977, má vænta þess, að virkjunin
komist ígagnið 1980—81.
Hér er ekki gert upp á milli
þessara tveggja virkjunarkosta
vegna þess, hve þeir virðast
áþekkir. Næsta sumar ætti að
vera unnt að skera úr. Hvor kost-
urinn sem valinn verður er ekki
einungis um það að ræða að ráða
bót á orkuvandamálum Norðlend-
inga með óvenjulegri hagkvæmni,
heldur veitir stórvirkjun á þessu
svæði einnig ómetanlegt öryggi
fyrir allt Vesturland og þéttbýlis-
svæðin við Faxaflóa."