Morgunblaðið - 22.02.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 22. FEBRÚAR 1974
15
Magnús L. Sveinsson formaður samninganefndar V.R.;
Samningaviðræður gengið mun
hraðar eftir að verkfall hófst
Magnús L. Sveinsson varafor-
maður Verslunarmannafélags
Reykjavíkur er formaður
samninganefndar VR í þeim
kjarasamningaviðræðum, sem
nú standa yfir. Morgunblaðið
átti stutt viðtal við Magnús I
gær og spurði hann um gang
samningaviðræðnanna undan-
farna daga. Hann sagði:
„Eftir að leiðir skildu með 30
manna nefndinni, hafa verið
stöðugir fundir með okkur frá
morgni fram á nótt og málin
hafa gengið með mun meiri
hraða nú þessa daga eftir að
verkfallið kom til fram-
kvæmda, heldur en áður.
Þegar hefur þokazt verulega
áfram i þýðingarmiklum sér-
atriðum, þó að nokkur mál séu
ennþá óleyst, en að þeim er
unnið af fullum krafti. í
þessum samningaviðræðum
taka þátt af hálfu verzlunar-
manna samninganefndir VR og
Landssamband isl. verzlunar-
manna fyrir hönd annarra
verzlunarmannafélaga."
— Nú hafa ýmsir haldið því
fram, að sú ákvörðun ykkar
verzlunarmanna að fresta ekki
verkfalli, þegar öll önnur
aðildarfélög ASÍ ákváðu að
fresta verkfalli, hafi verið af
pólitiskum toga spunnin. Hvað
viltu segja um þetta?
„Þessi ákvörðun okkar að
fresta ekki verkfalli var sam-
þykkt einróma i trúnaðar-
mannaráð VR tveimur timum
áður en verkfallið kom til fram-
kvæmda, í trúnaðarmannaráð-
inu eiga sæti menn úr öllum
stjórnmálaflokkum og greiddu
allir atkvæði með þessari
ákvörðun.
Auk þess vil ég geta þess, að
umræður höfði staðið yfir á
fimmta mánuð og málin mjög
litið þokazt álengdar og nánast
ekkert rætt um sjálf launin,
Magnús L. Sveinsson.
sem eru þó að sjálfsögðu
þýðingarmesta atriðið í kjara-
málunum. Ef menn halda það,
að frestun verkfalls, eftir að
viðræður hafa staðið á fimmta
mánuð við vinnuveitendur, sé
leið til þess að þrýsta á vinnu-
veitendur, þá er það fyrir mér
alveg nýtt sjónarmið af hendi
verkalýðshreyfingarinnar. I því
sambandi vil ég benda á, að
1970 var boðað allsherjarverk-
fall um allt land nokkrum dög-
um eftir að samningar runnu
út, en svo virðist sem ákveðnir
forystumenn ASÍ telji sig eina
útvalda til þess að kveða upp úr
um það, hvort ákvarðanir
annarra en þeirra sjálfra séu
pólitískar — og að sjálfsögðu
telja þeir sínar eigin ákvarðan-
ir aldrei pólitiskar."
Að lokum sagði Magnús L.
Sveinsson:
„Eg vona, að við getum náð
samkotnulagi við vinnuveitend-
ur, sem aðilar geta verið ánægð-
ir með, sem allra fyrst, þannig
að við getum aflýst verk-
fallinu."
Vongóður um, að
samningar takist
„Ég er frekar vongóður um, að
endar náist saman og samningar
við verzlunarfólk takist í þessari
viku,“ sagði Gunnar Snorrason
formaður Kaupmannasamtak-
anna, þegar Morgunblaðið hafði
samband við hann í gærkvöldi og
spurði um stöðu og útlit í verk-
fallsmálunum.
Nú þegar er sýnt, að verzlunar-
fólk fær töluverðar kjarabætur
við samningana, sagði Gunnar.
Búið er að ræða megnið af sér-
kröfunum og aðeins eftir að ræða
nokkur mál þar að lútandi. Hins-
vegar á eftir að ræða um launa-
prósentuna, en það verður gert í
samráði við aðra atvinnurek-
endur.
Þá sagði Gunnar, að atvinnu-
rekendur og launþegar hefðu lík-
lega ekki jafn náin samskipti í
nokkurri grein og smásölu-
verzluninni. Kaupmenn stæðu við
hlið launþega sinna frá morgni til
kvölds og vildu að sjálfsögðu, að
þetta fólk hefði góð kjör og yrði
ekki eftirbátar annarra í launa-
málum. Það, sem á skorti, væri, að
kaupmenn þyrftu að sækja undir
yfirvöld, þegar um væri að ræða
verðlagsákvæði, og því væri
ógerningur að koma að fullu til
móts við launþegana nema tekið
væri tillit til þess í verðlags-
ákvæðunum. Launa- og reksturs-
kostnaður hefur hækkað um
40—50% frá því að kjara-
samningarnir voru gerð-
ir fyrir tveimur árum án
þess að kaupmenn hafi fengið
lagfæringu á verðlagsákvæð-
unum. Einnig eru miklir
erfiðleikar í sambandi við lok-
unartíma verzlana. Staraf það
af styttingu vinnuvikunnar, en
ákvæðin um styttingu vinnuvik-
unnar hljóða öðruvísi en lokunar-
timi verzlana. Þar koma til 4
umframtímar á viku hverri og að
auki 30 mínútur á hverjum degi,
sem fara í frágangstíma, og á
laugardögum er þessi tími enn
lengri. Kostnaður sá, sem þessu
fylgir, er orðinn tilfinnanlegur og
með sama áframhaldi kemur að
þvi, að smásöluverzlunum verður
lokað á laugardögum, i það
minnsta hluta ársins, og einnig er
það meginkrafa V.R.
Það, sem hefur komið mér mest
á óvart í þessu verkfalli verzl-
Gullið aftur
á metverði
Gunnar Snorrason
unarfólks, sagði Gunnar, er, hvað
almenningi kemur á óvart, hvað
margar greinar atvinnuhjólsins
hafa stöðvazt. Það er því rétt, sem
margir segja nú, að verzlunin er
ekki aðeins einn af höfuðatvinnu-
vegum þjóðarinnar, heldureinnig
einn sá mikilvægasti. Því miður
hefur þessari atvinnugrein ekki
verið gefinn nægur gaumur til
þessa, en ef vel á að fara þarf að
hlúa betur að atvinnurekendum
og launþegum þeim, sem við
þessa grein starfa, sagði Gunnar
að lokum.
Ritstjóri horfinn
...... 1. . m ^ l'... t L’ T) T 1 ,.. 4.. /I .. r X*
Atlanta, Georgíu,
21. febrúar — AP.
REG Murphy ritstjóra
áhrifamikla dagblaðs
hins
„The
Atlanta Constitution" var rænt í
gærkvöldi, að því er samstarfs-
menn hans á blaðinu staðfesti í
dag, en yfirvöld hafa hins vegar
ekki fengizt til að skýra frá
málinu. Sjónvarpsstöð ein í
Atlanta segist hafa fengið sím-
hringingu, þar sem því var lýst
yfir, að samtök, sem nefna sig
„Bandaríska byltingarherinn",
hafi Murphy í haldi.
Eiginkona Murphys staðfesti i
samtali við Associated Press, að
maður sinn væri horfinn og að
einhver hefði hringt f sig og
aðeins minnt á, að hún ætti ekki
að hafa samband við alríkislög-
regluna FBI, eða lögregluna í
Atlanta. „Eg veit ekki, hvað skal
gera", sagði frú Murphy. „Ég veit
ekkert meir, og bíð aðeins eftir,
að aftur verði haft samband við
mig".
Frú Murphy sagði, að eigin-
maður hennar hefði farið frá
heimili þeirra í Atlanta eftir
kvöldmat i gærkvöldi ásamt
manni, sem sagði, að hann vildi
ræða við ritstjórann um ákveðna
frétt. Síðan hefur ekkert til hans
spurzt.
Reg Murphy, sem er fertugur
að aldri, hefur verið ritstjóri
„The Atlanta Constitution" síðan
i október 1968.
Síðdegis í dag var búið að koma
á mikilli öryggisgæzlu við rit-
stjórnarskrifstofur blaðsins, og
voru allir starfsmenn þess beðnir
um að sýna skilríki áður en þeir
fengu inngöngu. Rannsóknarlög-
reglumenn frá FBI leituðu í skrif-
stofu Murphys að hugsanlegum
gögnum eða vísbendingu í
málinu.
London, 21. febrúar, AP.
VERÐ A gulli sló öll met í dag og
komst um tíma upp í 156 dollara
únsan. Veik staða dollarans f
Evrópu er talin hafa valdið hækk-
uninni.
Gullverðið var 150 dollarar úns-
an við lokun í gær. Eftir hádegið
komst það upp f 154.50 dollara.
hækkaði uin tíma í 156 dollara og
lækkaði sfðan aftur I 153 dollara
únsan.
Kaupsýslumenn neita að spá
nokkru um, hvort hækkunin geti
orðið meiri og segja, að ástandið
sé óstöðugt.
Fyrr í vikunni var þvf spáð, að
gullverðið mundi snarhækka, en
þá hafði gullið farið upp fyrir 150
dollara, sem var talið sálræn
hindrun, eins og það var orðað, og
selzt á metverðinu 152 dollarar
únsan.
Hækkun gul lverðsins að undan-
förnu hefur sumpart stafað af
sögusögnum um, að Efnahags-
bandalagslöndin ætli að hækka
gullverðið, en í dag var ástæðan
sögð veik staða dollarans.
Gengi Bandaríkjadollara lækk-
aði úr 2.6810 þýzkum mörkum í
gær í 2.6723 mörk í dag. Dollarinn
lækkaði úr 3.13225 í 3.1050 sviss-
neska franka á sama tíma. í
London hækkaði pundið um eitt
sent.í 2.2955 dollara.
Veik staða dollarans er talin
stafa af lækkandi vöxtum I
Bandaríkjunum og vangaveltum
um, að orkukreppan muni ekki
hafa eins teljandi lítil áhrif i
Bandaríkjunum og upphaflega
var talið.
Fischer
boðið í
keppni
Manila, 21. febrúar. AP.
BOBBY Fischer heimsmeistara
og nfu öðrum stórmeisturum hef-
ur verið boðið að taka þátt í al-
þjóðlegu skákinóti á Filippseyj-
um.
Boris Spassky, Anatoly Karpov,
Tigran Petrosjan og Mikhail Tal
frá Sovétríkjunum verður einnig
boðin þátttaka i mótinu.
Meðal annarra stórmeistara
sem verður boðin þátttaka eru
séra YVilliam Lombardy frá
Bandaríkjunum og Svetozar
Gligoric og Ljubojimiy Ljubo-
jevic frá Júgóslavíu.
Reynt að hindra
rannsókn FBI?
Los Angeles, 21. febrúar — AP.
BANDARlSKA alríkislögreglan,
FBI, rannsakar nú hugsanlega
fölsun skjala, sem Hvita húsið
hefur afhent Leon Jaworski, sér-
legum saksóknara í Watergate-
málinu, að því er blaðið Los
Angeles Times hefur eftir ótil-
greindum, en „áreiðanlegum"
heimildum í dag.
I frétt blaðsins segir, að í a.m.k.
einu skjali frá Hvíta húsinu hafi
tvær málsgreinar verið klipptar
út. Hefur blaðið það eftir heim-
ildum sínum, að starfsfólk for-
setaembættisins hafi upphaflega
hindrað rannsókn FBI með því að
neita að láta í té vissar yfirlits-
skýrslur, en hins vegar hafi það
ekki gert neinar slíkar tálmunar-
ráðstafanir siðan.
Njósnaði 1 Hvíta húsinu
fyrir bandaríska herráðið
Washington 21. febrúar—AP
UNDIRFORINGI í bandaríska
sjöhernum, Charles E.
Radford, lýsti því yfir í gær, er
hann bar vitni fyrir hermála-
nefnd öldungadeildarinnar, að
hann hefði í eitt ár aflað sér á
laun mikilvægra stjórnmála-
legra leyniskjala frá Hvíta hús-
inu og komið þeim í hendur
yfirmanna bandaríska herráðs-
ins f varnarmálaráðuneytinu.
Radford sagði, að hann hefði
gert þetta samkvæmt fyrirmæl-
um yfirmanna sinna, sem
höfðu lagt áherzlu á, að þessi
skjalalcki frá Hvíta húsinu
yrði að vera leynilegur.
□ Radford, sem er hrað-
ritari, sagði, að yfirmaður sinn
í hermáladcild Ilvíta hússins,
Reinbrandt C. Robinson flota-
foringi, hefði sagt sér, að nú
væri tækifæri til að vinna svo-
lítið fyrir herráðið og „að hann
hvatti mig til að hafa augun
opin fyrir sérhverjum gögnum
og upplýsingum, sem komið
gætu herráðinu að notum“.
Radford sagði, að Robinson
flotaforingi og sá, sem tók við
af honum þegar hann var send-
ur til Víetnam (þar sem hann
féll i bardaga 1971), Robert O.
Welander flotaforingi, hefðu
veitt honum nákvæma lista yfir
þau mál, sem herráðið hefði
áhuga á. Þeirra á meðal voru
tillögur um fækkun i herafla
Bandaríkjanna í Vietnam,
hugsanlega samninga Hvita
húsins við Thieu forseta Suður-
Vietnams, stjórnmálasamninga
við Kambódíustjórn og sam-
bandið við Kína.
Á þremur ferðalögum með
Alexander Haig hershöfðingja
og núverandi skrifstofustjóra í
H\4ta húsinu og öðru ferðalagi
með Henry Kissinger til Kína
sagði Radford, að hann hefði
aflað skjala af ýmsu tagi og
fengið mikið hrós yfirboðara
sinna fyrir vikið. Kissinger nú-
verandi utanríkisráðherra hef-
ur vitnað, að Radford hafi
hnuplað skjölunum úr skjala-
töskum og bréfapokum með
rusli. Þetta var árið 1971.
Sagði Radford, að eftir eina
ferð til Víetnam með Haig hers-
höfðingja, hefði Robinson farið
með stolnu skjölin til Thomas
H. Moorer yfirmanns herráðs
íns, sem hefði verið afar kátur
yfir þeim feng. Hins vegar hef-
ur Moorer neitað því, að nokk-
ur njósnastarfsemi hafi farið
frarn í Hvíta húsinu á vegum
herráðsins, enda Hafi hennar
alls ekki verið þörf. En Moorer
hefur viðurkennt fyrir her-
málanefnd öldungádeildarinn-
ar, að hann hafi eitt sinn fengið
í hendur og farið yfir gögn frá
öryggismálanefndinni án þess
að vita, að þeirra hafi verið
af lað á óheiðarlegan hátt.
Radford sagði við yfir-
heyrslurnar i gær, að Welander
flotaforingi hefði eitt sinn sagt,
að Moorer yfirmaður herráðs-
ins hefði mikinn áhuga á hvers
konar upplýsingum um fyrir-
hugaða friðarsamninga í Víet-
nam. Welander átti að mæta til
yfirheyrslu í dag.