Morgunblaðið - 05.03.1974, Page 5
' MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 5. MARZ 1974
5
######
(jj^? (jj^? (jj^? (j^? (jj^? ij^?
Norræn ungbændaráð-
stefna á vegum UMFÍ
NORRÆN ungbændaráðstefna
hófst að Leirárskóla I Borgarfirði
á föstudag og stendur fram á mið-
vikudag. Ungmennafélag tslands
stendur fyrir henni, en UMFl er
aðili að samtökum ungbænda og
ungmennafélaga á Norðurlönd-
um. Þau samtök hafa m.a. á
stefnuskrá sinni að halda sltkar
fræðslu- og kynningarráðstefnur
f löndum aðildarfélaganna.
Ráðstefnugestir verða um
fimmtíu, þar af 32 frá hinum
Norðurlöndunum: 14 frá Svíþjóð,
6 frá Noregi, 11 frá Danmörku og
1 frá Finnlandi. Átta íslenzkir
bændur sækja ráðstefnuna auk
nemenda og kennara frá bænda-
skólanum á Hvanneyri.
t fréttatilkynningu frá UMFt
segir, að á ráðstefnunni verði
fjallað um íslenzkan Iandbúnað
og stöðu hans í íslenzku atvinnu-
lifi, um þau landgæði, sem
höfuðþýðingu hafa fyrir landbún-
aðinn í hverju landi, um mögu-
leika ungs fólks í löndunum til að
gera landbúnað að ævistarfi sínu
og hvað geri landbúnaðarstörf
eftirsóknarverð í augum ungs
fólks. Auk ráðstefnuhaldsins
verður farið í kynningarferð um
Borgarfjörð.
Nokkrir þátttakendanna á
norrænu ungbændaráð-
stefnunni — Ljósm. Ó. K.
Mag.
(jjjjj? i^? íjj|?
Skáli við
Eyfirð-
ingahóla?
Mælifelli 1. marz.
Aðalfundur Ferðafélags Skaga-
fjarðar var haldinn áSauðárkróki
í gær. Formaðurinn Ingólfur
Nikódemusson flutti skýrslu
stjórnarinnar og veitti ýmsar
uppl. um félagsstarfið en Bragi
Skúlason gerði grein fyrir reikn-
ingum og er skuldlaus eign félags-
ins 173 þús. Á sl. sumri voru farn-
ar 6 ferðir á vegum félagsins og
var þátttaka 12—14 manns i flest-
um ferðunum. Ekki reyndist þó
unnt að fara í Tryppaskál á Hörg-
árdalsheiði og enn einu sinni féll
niður fyrirhuguð gönguferð á
Tindastól á Jónsmessunótt vegna
dimmviðris. I undirbuningi er
skálabygging félagsins við svo-
nefnt Lambahraun á Hofsafrétti
hið næsta Hofsjökli. Rætt var um
staðarval og kom fram sú hug-
mynd frá Bimi Egilssyni á
Sveinsstöðum, sem er gagnkunn-
ur á öræfunum, að skálinn yrði
reistur við Eyfirðingahola vestan
Jökulsár, enda nokkurt haglendi
þar og nægt vatn. Verður þetta
mál kannað til hlítar I sumar og
lokaákvörðun tekin á næsta aðal-
fundi. Friðrik Jónsson sýndi lit-
skuggamyndir úr öræfaferðum og
voru myndir hans af fjöllum mjög
athyglisverðar. í Ferðafélagi
Skagafjarðar eru 196félagar.
Séra Ágúst.
Stórum
kúabúum
fjölgar
UM þessar mundir er verið að
setja upp fjölda pfpu-mjaltakerfa
á búum hérlendis, meðal annars
eru þar tvö kerfi fyrir 100
mjólkurkýr hvort. Þessi kerfi eru
sett upp I fjósum f Sveinbjarnar-
gerði á Svalbarðsströnd og að
Ármótum f Rangárvallasýslu.
Að sögn Gunnars Gunnars-
sonar, deildarstjóra Búvéla-
deildar SÍS, er ótvfræð hreyfing í
þá átt um þessar mundir að
stækka búin á sama tíma og þeim
fækkar. Leggja bændur mikið
upp úr því, að sjálfvirkni verði
sem mest á búunum, þannig að
einn maður geti annað flestum
þáttum bústarfans. SÍS hefur
umboð fyrir ofangreind mjalta-
kerfi og sagði Gunnar, að eftir-
spum eftir þeim væri mikil. Með
þessum mjaltakerfum á einn mað-
ur að geta mjólkað 45 kýr á
klukkustund og samkvæmt þvi
taka mjaltir á stórbúunum tveim-
ur, sem getið er hér að ofan —
Sveinbjarnargerði og Ármótum,
ekki nema röskar tvær klukku-
stundir.
m
m
m
'Us?
m
m
#
KARNABÆR
^ AUSTURSTRÆTI 22
ÞAÐ ER SVO SANNARLEGA
- Komlnn tíml tll að gera góð kaup á -
ÚTSÖLUMARKAÐNUM
AD AUSTURSTRÆTI 22
40%-70% AFSLSLÁTTUH - ÓTRÚLEG KJÖR
TAKIÐ VEL EFTIRI
□ STAKIR HERRAJAKKAR
100% SKOZKT TWEED — GÓÐ SNIÐ
□ FÖT MEÐ VESTI ÚR TERYLENE & ULL
— MJÖG GÓÐ SNIÐ
□ HERRAKULDAJAKKAR 100%
□ HERRAKULDAJAKKAR,
STUTTIR, KÖFLÓTTIR, EINLITIR
□ LOÐFÓÐRAÐIR STUTTJAKKAR — FLAUEL
□ LOÐFÓÐRAÐIR RÚSKINNSSTUTTJAKKAR□ STUTTIR LEÐURJAKKAR
□ 100% ULLARKÁPUR, BÆÐI KÖFLÓTTAR OG EINLITAR — GÓÐ SNIÐ
□ LOÐFÓÐRAÐIR KVENKULDAJAKKAR □ KVENKULDAJAKKAR 100%
ULL □ KVENLEÐURJAKKAR □ DRENGJA- OG TELPNA BUXUR ÚR Tery-
lene & ull, denim og flaueli □ BLÚSSUR □ DÖMUPEYSUR □ SAMKVÆM-
ISBLÚSSUR OG BOLIR Q SAMKVÆMISBUXUR □ SÍÐ PILSQ SÍÐIR
KJÓLAR □ SMEKKBUXUR □ HERRASKYRTUR □ BOLIR □ DENIM
SKYRTUJAKKAR — MJÖG HENTUGIR FYRIR SKÍTVINNU
m
#
m
m
m
m __________________________
’lF slL -Skl. ^
<S| KARNABÆR
(^?(j^?(^?(i^?(^?(i^?(^?(^?(i^?(i^?<j^?(j^?^(^?
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m
m