Morgunblaðið - 23.03.1974, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974
27
Messur á morgun
Arbæjarprestakall
Barnasamkoma í Arbæjarskóla
kl. 10.30. Föstumessa Árbæjar-
kirkju kl. 2.00. Litanian flutt.
Séra Guðmundur Þorsteinsson.
Breiðholtsprestakall
Fella- og Hólasókn: Guðsþjón-
usta í Fellaskóla kl. 2.00. Sunnu-
dagaskóli kl. 10.30. Séra Lárus
Halldórsson.
Kirkja Óháða safnaðarins
Messa kl. 11.00. Útvarpsmessa
(ath. breyttan messutíma). Séra
Emil Björnsson.
Bænastaðurinn Fálkagötu 10
Sunnudagaskóli kl. 11.00. Sam-
koma kl. 4.00.
Keflavfkurkirkja
Messa kl. 2.00. Barnaguðsþjón-
usta kl. 11.00. Björn Jónsson.
Stokkseyrarkirkja
Guðsþjónusta kl. 14.00. Barna-
guðþjónusta kl. 10.30. Sóknar-
prestur.
— Veturliði
Framhald af bls. 19
alveg hvort hún hafði talað af sér.
„Eða er þetta kannski grin," bætti
hún við.
„betta er allt saman grín, Ing-
unn mín,“ sagði Veturliði og i þvi
opnuðust dyrnar inn i salinn. Ólöf
Pálsdóttir myndhöggvari kom inn
og listamennirnir heilsuðust. Hún
kvaðst hafa mátt til að sjá sýning-
una þótt ekki væri á opnunar-
tíma. Því hún væri að fara til
útlanda.
„Það er aldeilis rómantík i þér
Veturliði,'1 sagði hún og síðan
röbbuðu þau um stakar myndir og
stemmninguna í þeim. „Mér
finnst þetta bezta sýningin þín,
Veturliði,“ sagði Ólöf um leið og
hún kvaddi á hraðferð sinni út i
heim i þágu íslands.
Ég spurði Veturliða hvert
myndaefnið á sýningunni væri
sótt.
„Margar myndirnar eru sóttar
til Vestfjarða og austur á Strandir
í hitteðfyrra. Ég á í heila sýningu
þaðan. Merkilegt að Strandirnar
hafa alveg orðið útundan hjá ljós-
myndurum, en þar eru hrikaleg
mótíf fyrir málara. Þá eru einnig
Bolungarvíkurmyndir eftir göml-
um skissum. Eg geri skissurnar
oft mjög natúralistiskar, en mér
finnst kúnstin að gera þetta lát-
laust og einfalt, láta litunum
koma vel saman eins og þeir séu
nýtrúlofaðir."
— Minning
Alexander
Framhald af bls. 24
yfir farinn veg. Jafnaldrar minir
hverfa af sjónarsviðinu einn á
eftir öðrum. Alexander er í þeirra
hópi, en bjartar minningar eru
dýrmætt veganesti.
Fráfall hans kom ekki að óvör-
um, því hann átti við alvarlegan
sjúkdóm að stríða. Með hækkandi
sól og lengri degi kvaddi hann
þetta jarðneska líf og flutti til
æðri heima í fullri vissu þess að
þar ætti hann góða heimkomu.
Ég kvefj þennan skólabróður og
vin. Eftirlifandi eiginkonu hans
bið ég algóðan guð að styrkja í
þungri raun. Hafi hann þökk
fyrir allt og allt.
Jakob Þorsteinsson.
BIIMGÓ
í Glæsibæ, sunnud. 24. marz kl. 3.
Glæsilegir vinningar, meðal annars:
Glasgow, gullúrog málverk.
Spilaðar 14 umferðir.
Aðgangseyrir aðeins rúllugjald.
Komið og freistið gæfunnar. Nefndin.
Mótel
Akranes
■ ©
OpiÖ í kvöld
: 1 •? ■■ v r>
AlþýÓuhúsió
Hafnarfirói
Festi
Grindavlk
Styrktardansleikur vegna
kirkjubyggingarinnar
nucLvsmcRR
«±,^22480
Það er hljómsveitin DÖGG, sem sér um
fjörið í kvöld.
Hliómsveltln Pónlk
ásamt söngvurunum Þorvaldi Halldórssyni og Erlendi
Svavarssyni skemmta.
Sætaferðir frá B.S.Í. kl. 9.30.
Kvenfélagið.
LINDARBÆR
GÖMLU DANSARNIR
í KVÖLD KL. 9—2.
HLJÓMSVEIT
ÁSGEIRS
SVERRISSONAR
SÖNGVARAR:
SIGGA MAGGÝOG
GUNNARPÁLL
Miðasala kl. 5.15 — 6.
Simi 21971.
GÖMLUDANSAKLÚBBURINN.
OPIÐ I KVOLD! Dansað til kl. 2.00
Matur framreiddur frá kl. 19.00
Borðapantanir frá kl. 16.00 í síma: 52502
Borðum eigi haldið lengur en til kl. 21.00
Veltingahúsiö
SKIPHOLL Strandgötu 1 • Hafnarfirði • ® 52502
HÖT4L ÍA<iA
SÚLNASALUR
Frönsk veizla
Sunnukvöld
í tilefni af því að í sumar gefst íslendingum í fyrsta sinn
kostur á beinu þotuflugi til sóarstranda Frönsku Rivier-
unnar og Monte Carlo verður Frönsk veizla og Riviera
hátíð í Súlnasalnum á Hótel Sögu sunnudagskvöld 24.
apríl.
1. Franskur veizlumatur kl. 19.00.
Matseðill: Filet de porc en chemise. Ljúffengur franskur
hátiðaréttur nýstárlegur fyrir íslendinga, framreiddur af
franska matreiðslumeistaranum Framcois Fons.
Veizlumatarverð aðeins kr. 825.-
2. Einsöngur: Garðar Cortes, óperusöngvari.
3. Sagt frá hinum fjölbreyttu ferðamöguleikum á vegum
Sunnu m.a. upplýsingar um leiguferðir Sunnu beint til
Nizza og Monte Carlo.
4 Bingó: Vinningar hvorki meira né minna en þrjár
utanlandsferðir Mallorca, Costa del Sol og auðvitað
ferð til Nizza og Monte Carlo.
5. Hljómsveit Ragnars Bjarnasonar leikur fyrir dansi til
klukkan eitt af sínu alkunna fjöri.
Athugið. Missið ekki af þessu einstæðu og ódýru
skemmtun, sem ekki verður endurtekin.
Borðpantanir hjá yfirþjóni i Súlnasal daqleqa eftir kl.
1 5.00. Sími 20221.
Ferðaskrifstofan Sunna.