Morgunblaðið - 23.03.1974, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 23.03.1974, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. MARZ 1974 Ellert B. Schram: Iþróttafólk njóti slysabóta □ A FUNDI neðri deildar sl. mánudag mælti Ellert B. Schram (S) fyrir frumvarpi, sem hann flytur ásamt nokkrum öðrum þingmönnum um breytingu á lögum um almannatryggingar í þá átt, að íþróttamenn, sem slasast við fþróttaiðkun, njóti ákvæða laga um almannatrygg- ingar, sem kveða á um slysa- bætur. Ellert Schram sagði m.a.: „Iþróttahreyfingunni hefur lengi verið ljóst, að ekki væri hægt að búa við annað en ein- hvers konar tryggingakerfi til handa því íþróttafólki, sem verður fyrir áföllum, hvort sem það er slys eða dauði. En hreyfingin hefur ekki haft bol- magn til þess að koma til móts við það, nema að mjög takmörkuðu leyti. Nú eru fyrir hendi slysa- tryggingasjóðir bæði á vegum íþróttasambands íslands og íþróttabandalags Reykjavíkur.en báðir þessir sjóðir eru fjármagn- aðir af íþróttahreyfingunni sjálfri og eru vanmegnugir til þess að taka á sig nokkrar umtalsverðar bætur. Og þeir gera ekki ráð fyrir því, að örorka eða dauði séu bætt. Tif sönnunar eða til staðfest- ingar á því, hversu vanmegnugir þessir sjóðir eru, þá má geta þess, að slysatryggingasjóður Iþrótta- sambands islands greiðir núna dagpeninga að upphæð kr. 90,00 verði fþróttamaður fyrir slysi, sem veldur því, að hann getur ekki stundað sína vinnu í ein- hvern tíma.“ Síðar i ræðu sinni sagði þing- maðurinn: „1 þessu frv. er ekki gert ráð fyrir þvi, að ríkissjóður taki iðgjöldin að sér að öllu leyti, heldur reynt að koma til móts við ríkissjóð hvað það varðar og gert ráð fyrir þvi, að iðgjöldin séu borin uppi sameiginlega af rikis- sjóði og Íþróttasambandi Íslands og þá er hugsunin sú, að þeir höfuðstólar, sem nú eru fyrir hendi hjá slysatryggingasjóði Iþróttasambandsins og Íþrótta- bandalagi Reykjavíkur gangi til móts við iðgjaldagreiðslur næstu ára og verði framlag iþróttahreyf- ingarinnar til þess að standa undir þeim kostnaði næstu árin og brúa það bil eða þá erfiðleika, sem þetta getur valdið ríkissjóði til að byrja með. Það mætti halda þvf fram, að þegar fólk stundar iþróttir, ætti hver að geta borið ábyrgð á sjálfum sér og taka af * 1 því áhættuna, en þau sömu sjónarmið eru og fyrir hendi, þegar annars vegar er fólk, sem stundar almenna vinnu, en engu að siður hefur þjóðfélagið komið til móts við þá atburði, þegar um vinnuslys er að ræða og greiðir bætur vegna vinnuslysa og aðrar sambærilegar athafnir. Þess vegna ætti það sama sjónarmið eða sama forsendan að liggja að baki þessu máli og ekki vera því til trafala, að málið néi fram að ganga hér á þingi. Þjóðfélagið hefur haft skilning á iþróttaiðkan og vill koma til móts við þessa hreyfingu og getur gert það einmitt með því að taka að sér iðgjaldagreiðslur og fella íþróttaslys eða slys vegna íþrótta- iðkana inn i hið almenna trygg- ingakerfi. Yfirleitt er það svo, að það er ungt fólk, sem stundar íþróttir, fólk, sem ekki er komið í mikil efni, er að koma sér upp heimilum og er með kannski nokkra ómegð og því ætti þörfin að vera ennþá meiri, þegar þetta unga fólk er annars vegar. Ég held, að það væri til sóma fyrir Alþingi, og fyrir stjórnvöld, ef þau hefðu skilning á þessu máli, og samþykktu það í aðalatriðum, eins og það er lagt hér fram.“ Ásberg Sigurðsson: Hagnýta ber vindorku til raforkuframleiðslu □ Asberg Sigurðsson (S) mælti á fundi sameinaðs þings sl. þriðju- dag fyrir tillögu til þingsálykt- unar, sem hann flytur um hagnýt- ingu vindorku með vindrafstöðv- um. Hljóðar tillögugreinin svo: „Alþingi ályktar að fela ríkis- stjórninni að gera nú þegar ráð- stafanir til að fylgst verði með þeim tækniframförum, sem átt hafa sér stað í hagnýtingu vind- orku til raforkuframleiðslu, ef vera má, að nýtísku vindraf- stöðvar sé hugsanlegur raforku- gjafi á afskekktum sveitarbýlum, sem erfitt er að tengja samveit- um“. i framsöguræðu sinni sagði þingmaðurinn m.a.: „Á síðari árum hafa orðið veru- legar tækniframfarir i gerð vind- rafstöðva og menn hafa gert sér grein fyrir, að i vindorkunni er fólgið ódýrt afl, sem alls staðar er fyrir hendi. Það eru einkum Frakkar, sem hafa unnið að endurbótum á vindrafstöðvum og eru þær nú all algengar í Frakk- landi og viðar. T.d. í Noregi, Sviss, Grænlandi og Alaska. Vindrafstöðvar eru aðallega settar upp á afskekktum stöðum, þar sem ekki er hægt að fá raf- orku frá samveitum eða þar sem erfitt er að koma við öðrum orku- gjöfum m.a. vegna erfiðleika á flutningi á eldsneyti og eftirliti með vélaorku. Þannig eru t.d. vitar á afskekktum stöðum og eyj- um lýstir með vindrafstöðvum og sömuleiðis ljósbaujur á skerjum og innsiglingarljós í þröngum fjörðum. Sama er að segja um endurvarpsstöðvar síma og sjón- varps á afskekktum stöðum á fjöllum uppi svo dæmi séu nefnd. Ekki er vafi á, að til mála kemur að nota vindrafstöðvar í svipuðu skyni hér á landi. Auk þess verður að telja athugandi, að koma upp vindrafstöðvum í eyj- um hér við land, sem enn eru byggðar, enda verða þær vart tengdar samveitu. Hér á landi eru mörg sveitabýli, sem erfitt er að tengja samveitum vegna mikilla fjarlægða. Þá má nefna raflýs- ingu og hitun sumarhúsa, sklða- og fjallaskála. Nýtísku vindraf- stöðvar eru mun afkastameiri en áður var. A markaðnum I dag eru aðallega stöðvar frá 1 kílóvatti upp í rúm 4 kilóvött, en ekkert mun til fyrirstöðu að framleiða vindrafstöðvar sem framleitt geta 12 til 15 kílóvött. Stöðvar þessar eru mjög létt- byggðar og þurfa því mjög lftinn vind til að skila fullum afköstum eða vindhraða frá 2m á sekúndu til 7m á sekúndu, en það mun þýða golu til stinningsgolu eða 2 til 4 vindstig. Hér á Iandi er mjög vindasamt. Logn heilan sólar- hring eða lengur er sjaldgæft fyrirbæri. Nú þola vindrafstöðvar mikinn vindhraða án þess að brotna niður og eyðileggjast enda eru þær oftast staðsettar á fjalla- toppum t.d. i Ölpunum þar sem stórviðri eru tið. Allar vindraf- stöðvar eru nú þolreyndar og eiga að standast vindhraða, sem nemur 56 metrum á sek., eða um 200 km á kls., og jafnvel allt upp í 300 km á kls., eða fárviðri. Ef algjört logn er framleiða vindraf- stöðvar ekki rafmagn, en nú eru þær tengdar rafgeymum, sem hlaðastþegar blæs og miðla orku í logni. Rafgeymarnir eru eins og hjálparvélar seglskipanna voru, þegar ekki gaf byr. Vindraf- stöðvar endast lengi og þurfa lítið viðhald og eftirlit. Rafleiðslur frá þeim eru stuttar og því litil hætta á linubilunum í hörðum vetrar- veðrum, það er vandamál sem er hætt við að verði síst minna, eftir því sem afskekktari staðir eru tengdir saman. Vindrafstöðvar eru loks auðveldar í uppsetningu og þær má taka niður fyrirhafnar- lítið, og flytja á annan stað ef þörf krefur.“ ÞlngsDJall □ í vikunni var frumvarp rfkisstjórnarinnar um skatt- kerfisbreytingu afgreitt sem lög frá Alþingi. Ekki er þörf á að rekja gang málsins hér, svo mikið, sem um það hefur verið ritað. En þetta mál hefur fært líf í umræðurnar um, hvort nú- verandi rfkisstjórn eigi að segja af sér, rjúfa þing og efna til kosninga. Þetta álitamál hefur verið raunhæft allt frá því, að núverandi ríkisstjórn missti meiri hluta sinn í neðri deiid þingsins. Þingræðisreglan ríkir hér á íslandi fyrir venju. I reglunni er fyrst og fremst talið felast, að rfkisstjórn beri að fara frá, ef þingið samþykkir á hana vantraust. Ekki er um það að ræða varðandi núverandi rfkis- stjórn, að hún sitji í blóra við meirihluta þingsins. Stjórnar- andstaðan hefur ekki nægi- legan styrk á þinginu til að fá samþykkt á hana vantraust. Sé því þingræðisreglan túlkuð svo þröngt, að hún eigi einungis við þetta, er Ijóst, að ríkisstjórnin hefur þingræðislegan rétt til að sitja. En í stjórnskipunarlögum okkar er hlutverk þingsins ekki eingöngu bundið við að segja til um, hvaða ríkisstjórn skuli með völdin fara. Gerður er um það áskilnaður, að þingið verði að samþykkja margs konar mál til að þau nái fram að ganga. Vald þingsins er svo mikið, að ekki er unnt að stjórna land- inu, nema að hafa styrk til að koma þar málum fram. Það er sem sagt ekki nóg að hafa þing- styrk til að koma f veg fyrir vantraust, en til þess duga jöfn atkvæði, heldur verður rfkis- stjórn að hafa nægilegan styrk til að koma málum fram. Til þess þarf ríkisstjórnin að hafa mcirihluta í báðum þingdeild- um, þ.e.a.s. lágmarksþingstyrk- ur er 32 atkvæði gegn 28. Margvísleg rök hafa verið færð fram fyrir þvf, að rfkis- stjórninni beri ekki skylda til að segja af sér. T.d. hefur því verið haldið fram, að rfkis- stjórn með stuðning 31 þing- manns gegn 29 hafi hreinan meiri hluta og því sé fráleitt út frá réttlætissjónarmiði að hún eigi að segja af sér. Við þessu er það að segja, að það hlýtur að verða að fara eftir gildandi reglum, um hvaða meirihluta þurfi í þinginu. Ekki er nóg fyrir menn að telja fram, hvernig þeir vilja haga regl- unum og miða síðan við það. Þá hefur því verið haldið fram, að ríkisstjórnin hlyti að velja sér fráfararatriði. Þau mál, sem stöðvuð hafi verið fyrir ríkisstjórninni í vetur í neðri deild séu svo þýðingarlft- il, að ekki hafi verið ástæða fyrir hana að segja af sér þeirra vegna. Í fyrsta lagi greinir menn á um, hversu mikilvæg málin hafa verið. Tollskrármálið fjallaði um lækkun á tollum fyrir innlend- an iðnað, svo að hann yrði sam- keppnisfær við erlendan á inn- lendum markaði. Menn geta sjálfir metið, hvort þetta er mikilvægt mál eða ekki. Svo mikið er vfst, að ríkisstjórnir sumra nágrannalandanna myndu ekki sitja undir því að ná ekki slfku máli fram. Í annan stað er skattkerfisbreyt- ingin, en þar varð ríkisstjórnin að láta undan síga til að tryggja málinu framgang. Segja stuðn- ingsmenn ríkisst jórnarinnar nú, að fjárhagur ríkissjóðs hafi verið stórlega skertur vegna þeirra breytinga, sem gera varð á frumvarpinu. Svo alvariegt var það. Þetta mál var einnig mjög tengt öllum aðgerðum f efnahagsmálum, og þýðingar- mikið að þvf leyti. Einnig ber að benda á, þegar sagt er að stjórnin hljóti að velja sér fráfararatriði, að svo virðist, sem þessi ríkisstjórn forðist að láta reyna á þing- styrk sinn. Það eru margir mánuðir sfðan það var orðið mjög knýjandi að gera róttæk- ar og óvinsælar aðgerðir f efna- hagsmálum. Ekki hefur bólað á tillögum frá rfkisstjórninni í þessum efnum. Vel má gera ráð fyrir, að þetta ráðist af þvf, að ávallt verður ágreiníngur um slíkar aðgerðir og þvf muni stjórnarandstaðan vilja fara aðrar leiðir og ekki verði meiri hluti fyrir tillögum rfkisstjórn- arinnar. Enn hafa talsmenn stjórnar- innar viljað halda þvf fram, að ástandið hér sé hliðstætt ástandinu f ýmsum nágranna- löndunum, þar sem minni- hlutastjórnir fara með völd. Meira segja hafa einstakir þeirra haldið því fram, að þró- un í þessa átt sé æskilcg. Það er auðvitað mál út af fyrir sig, hversu hættulegar sifkar vangaveltur eru. Það hlýtur að vera óæskilegt, að búa við minnihlutastjórn, þegar út frá beinum lýðræðislegum sjónar- miðum, þvf enn byggjum við á þvf, að mcirihlutinn eigi að ráða. Ekki verður þó farið nán- ar (it i þá sálma hér. Ilitt ber að benda á, að ástandið á íslandi er alls ekki hliðstætt við ástandið f nágrannalöndunum. Myndun minnihlutastjórna þar byggist á þvf, að ekki hefur tekizt að mynda meiri hluta stjórnir á grundvelli kosninga- úrslita. Þá er ekki annað fyrir hendi en að mynda minnihluta- stjórn. Hér eru aðstæður allt aðrar. Rfkisstjórn Ólafs Jó- hannessonar var í upphafi mynduð með stuðningi nægi- legs meirihluta á Alþingi. Nú hafa aðstæður breytzt þvf að stjórnin hefurmisst meirihluta sinn. Ef núverandi aðtæður hefðu verið fyrir hendi þegar að loknum kosningum má full- vfst telja, að þessi rfkisstjórn hefði ekki verið mynduð. Ef ekki hefði þá tekizt að mynda meirihlutastjórn er langlíkleg- ast, að einhverjum einum flokki hefði verið falið að mynda minnihlutastjórn, ef ekki hefði þá verið efnt til kosninga að nýju. Það er því ljóst, að forsendurnar fyrir stjórnarmynduninni eru brostnar, og þvf er langcðlilcg- ast, eins og sakir standa að rjúfa þing og efna til kosninga. Það sem enn ýtir undir þetta, er nauðsynin á þvf, að sterk ríkisstjórn með skýrt umboð kjósenda fáist við vandann, sem framundan er i efnahags- málunum. Þar dugir greinilega ekkert hálfkák, og það er alveg Ijóst, að sú rfkisstjórn, sem nú situr hefur engan styrk til þeirra aðgerða. Þá á það ekki að vera neitt áhorfsmál fyrir hana að leita eftirendurnýjuðu umboði, ef hún hefur einhverja trú á stefnu sinni. Sennilega er ein ástæðan fyrir þvf, að rfkis- stjórnin þraukar við að sitja, vantrúin á velgengni sína í kosningum. En fyrir það mun hún einnig svara, þótt eilftill frestur verði á. JSG

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.