Morgunblaðið - 27.06.1974, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 27.06.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JÚNl 1974 „Nú á að lesa mál- efnasamninginn til samanburðar” Rabbað við Ólaf Þórðarson •• bónda á Okrum í Mýrasýslu Ölafur Þóröarson bóndi á ökr- um I Mýrasýslu hefur 18 mjólk- andi kýr, 30—40 hesta stóö og 30 kindur. Akrar eru kirkjustaður og standa frammi á sjávarkambi við feikna mikinn ós, sem heitir Akraós, en hann er á milli Akraness og Hítarness. Þar fellur sjórinn 7 km inn á flóði, en svæðið, sem þá flæðir yfir, er 13 ferkm. Frammi I ósnum eru eyjar, sem heita Kjartansey og Arnarhólmi. Þar er svartbaks- varp, sem Ölafur nýtir, og I vor hafði hann þaðan 300—400 egg. Um það bil 2 km vegalengd frá ökrum er Krákunes og er þar jarðhiti, en hitastigið í sandinum þar er um 70 stig. Á ökrum er þríbýli, Akrar 1., 2 og 3., en Akrar Ölafs eru nýbýli. Ólafur hefur barnaheimili á sumrin og I sumar- dvelja hjá þeim 34 börn, flest úr Reykjavík, á aldrinum 6—10 ára. Þarna er hin skemmtilegasta að- staða fyrir börn, enda virtust börnin una hag sfnum vel og allir voru við eitthvert sýsl og leik. Börnin dvelja þarna í 3 mánuði. Við spurðum Ólaf hvernig hon- um litist á landsmálin: „Maður vonar náttúrlega það bezta,“ svaraði hann, „og þá fyrst og fremst, að breyting verði á við þessar kosningar. Mitt mat er, að við þurfum viðreisnarstjórn og það sterka viðreisnarstjórn. Það fer ekkert á milli mála, að hvaða stjórn, sem tekur við, verður að gera ráðstafanir, sem hvorki verða vinsælar né léttar eins og efnahag þjóðarinnar er komið. Ólafur Jóhannesson klifaði á því þegar vinstri stjórnin tók við, að menn skyldu lesa vel málefna- samning rfkisstjórnarinnar kvölds og morgna og um miðjan dag. Nú vil ég hvetja menn til þess að lesa málefnasamninginn vel og vandlega og bera saman við efndirnar og taka afstöðu eftir því. " Ekki hefur Óli hvatt fólk til þess lestrar í seinni tíð, enda vildi rfkisstjórnin ugglaust helzt, að nú væri sá samningur gleymdur og grafinn. Ég hef svolítið verið að gera mér grein fyrir því hvernig mál muni þróast. Það unga fólk, sem kaus f fyrsta sinn 1971 og veitti vinstri flokkunum atkvæði sitt, tel ég að hafi orðið fyrir miklum vonbirgðum og muni nú breyta til. Þegar rætt er við ungt fólk kemur þetta berlega f ljós. Einnig er margt af eldra fólki, sem hefur breytt afstöðu sinni gagnvart öðrum flokkum vegna varnarmálanna, en Sjálfstæðis- flokkurinn er eini flokkurinn, sem vill ábyrgð f öryggismálum landsins. Mér finnst einnig, að bæjar og sveitarstjórnarkosningarnar f vor gefi mikla bendingu um það hvert straumurinn liggur í þessum kosningum.“ „STUNDA HEYVERKIINAR- OG VERKTÆKNITILRAUNIR” Rabbað við Ólaf Guðmundsson tilraunastjóra á Hvanneyri Ólafur Guðmundsson tilrauna- stjóri á Hvanneyri hefur verið við störf þar sfðan 1955. Hann vann fyrst hjá Verkfæranefnd ríkisins, en hennar verkefni var að prófa ný landbúnaðartæki, en sfðan Rannsóknarstofnun landbúnaðar- ins yfirtók það verksvið, er hún tók til starfa, hefur þetta starf fallið undir þá stofnun og annazt Bútæknideildin á Hvanneyri nú þessar athuganir. Ólafur sagði, að þeir ynnu þar dálftið að heyverkunartilraunum og verktæknitilraunum. Mest prófa þeir heyvinnutæki og einmg hafa verið gerðar tilraunir með votheysverkun bæði á Hvanneyri og hjá bændum í nágrenninu. Könnuð hefur verið verkun á heyi í tumum og hey- gryfjum, en verið er að vinna úr þessum tilraunum. „í sambandi við heyverfcun," sagði Ólafur, „höfum við lagt áherzlu á að kanna verkun heys í bögglum samanborið við laust hey. Niðurstöður í grófum drátt- um eru, að ef maður ætlar að fá sambærilega verkun á lausu heyi og bundnu, þá verður að þurrka það, sem á að binda, lengur úti, en það, sem á að vera laust, það þarf sem sagt heldur Iengri þurrkunartíma. Þá er eitt vandamál, sem við erum að glfma við, en það er að koma taði eða búfjáráburði á völl, ná honum úr geymslum og nýta hann“. Ólafur sagði, að til jafnaðar prófuðu þeir 15—20 tæki á ári og skýrslur eru sfðan gefnar út um hvert tæki og þaer sendar bænd- um með búnaðarritinu Frey. „Bœndur líta aðgerðir Hall- dórs E. alvarlegum augum” Rabbað við Davíð Pétursson á Grund Grund f Skorradal er glæsilegt býli og þar er mikið myndar- heimili, sem ber svip listhneigðar og glæsimennsku. Við hittum þar að máli Davfð Pétursson bónda. Þar er oft margt f heimili, en móðir Davfðs hefur sinnt búsýslu. Á Grund eru 20 kýr og 240 kindur. Við röbbuðum við Davfð um stöðuna f landsmálunum en hann skipar 5. sætið á lista sjálf- stæðismanna f Vesturlandskjör- dæmi. „Ég held“, sagði hann, „eftir þvf, sem ég hef heyrt á mönnum, að við sjálfstæðismenn munum ná töluverðri fylgisaukningu, því svo rótgróin er orðin óánægja fólks með vinstri stjórnina. Margir bændur hér í sveitinni hafa einnig haft orð á því, að við 25% frystinguna fyrir skömmu fengu bæði sjávarútvegurinn og iðnaðurinn undanþágu í því efni, en landbúnaðurinn ekki. Margir bændur lfta það mjög alvarlegum augum hjá Halldóri landbúnaðar- og fjármálaráðherra, að hann skuli ekki hafa séð til þess að koma sfnum atvinnuvegi til jafns við hina í þessu efni. Þeir, sem hafa ætlað að kaupa tæki nú í vor, hafa Ient í miklum vandræðum og hafa ekki fengið þau ennþá. Ef þessi tæki og varahlutir fást ekki fyrir háannatfmann, getur það leitt til mikilla vandræða. Núverandi landbúnaðarráðherra virðist vera alveg máttlaus, dæmin sanna það. Annars leggjast kosningarnar nokkuð vel í mig. Stefnan er til okkar og það er engin ástæða til að halda annað en að framhald veði á því, sem fram kom í bæjar- stjórnarkosningunum. Landbúnaðurinn stendur nú á margan hátt f óvissu varðandi tæki og varahluti, þvf vfða stend- ur þetta fast einhvers staðar vegna fjárhagsástandsins. Ég lagði til dæmis f haust inn pöntun á varahlutum og þeir eru ekki komnir ennþá, en alls staðar er borið við afskiptum rfkisvaldsins af innflutningnum. Þá held ég, að þetta niðurgreiðslufargan á land- búnaðarafurðunum skapi algjöra stöðvun á sölu þegar verðið verð- ur aftur hækkað í haust. Bændur eru svartsýnir á, að landbúnaðin- um verði þá kennt um og yfir dynji óánægjuflóð og kyrrstaða í sölu og allt er þetta heimatilbúinn vandi hjá ríkisstjórninni. Smjörið er eitt af síðustu dæm- unum, en ég trúi því, að flestir hljóti að sjá í gegn um þessa heimskulegu kosningabrellu. Þá má nefna skattapíninguna og í tíð vinstri stjórnarinnar hefur þetta versnað til muna og má þar nefna t.d., að hlutfallið vegna persónu- frádráttar til skatts hefur vernsnað til muna. Mörgum þykir broslegt að fylgjast með tilburðum stjórnar- sinna og nú sfðustu daga hefur Tfminn t.d. klifað á því, að ekkert væri að. Fyrir þingrofið var allt í kalda koli og sfðan hefur ábyrg- um aðgerðum verið frestað. Fólk undrast nú á þeim tillögum í efna- hagsmálum, sem ríkisstjórnin ætlaði að fá samþykktar, en aðeins nokkrum vikum sfðar nær Halldór E. varla andanum við að lýsa því yfir hvað efnahagurinn sé góður. Kotroskinn svipur Tímans er meira en broslegur eftir alla kúvendinguna og allt er þetta í stíl hjá þeim, því hver trúir þvf nú, að Halldór E. hafi eitthvert vit á f jármálum?" „Vöruskorturinn vax- Rabbað««^ 1# v - #1 # „ Arnason málara- andi meo degi hverjum meistara á Akranesi Þórður Árnason málara- meistari á Akranesi var að sprauta bn þegar við hittum hann sfðdegis s.I. laugardag. Hann rek- ur fyrirtækið Málningarþjónust- una á Akranesi ásamt tveimur félögum sfnum Helga Sigurðssyni og Jóni Sigurðssyni, en þeir eru með málningar- og teppaverzlun auk þess að vera verktakar. Það er nóg að gera hjá þeim og þeir sækja vinnu allt frá Suðurnesjum til Vestfjarða, en þeir félagar leggja gólftexið, sem hefur verið sett á gólf margra fyrstihúsa f landinu. Þeir lögðu til dæmis f allt nýja frystihúsið f Súganda- firði. Þórður sagði, að sér litist bæði vel og illa á Iandsmálastöðuna. „Það virðist vera dapurlegt yfir þessu. Það er erfitt að fá hluti. Ég er til dæmis búinn að leita að lakki í viku og þannig er þetta í mörgu og ber að sama brunni hjá öllum varðandi skort á ýmsu inn- fluttu efni og það fer versnandi með degi hverjum." „Hvernig Ifzt þér á kosningarn- ar?“ „Ég veit ekki, ég vona bara að menn finni það, að allir ís- lendingar eru fæddir sjálfstæðis- menn og þeir, sem ekki hafa gert sér grein fyrir þvf ennþá, fari nú að sjá að sér og hætta þessu vit- leysisdingli í kring um vinstri flokkana. Auðvitað tel ég ávallt hollast að stjórnarandstaða sé fyrir hendi og geti veitt aðhald, en Sjálfstæðisflokkurinn þarf að verða enn sterkari en hann er og fá tækifæri til að spjara sig einn í ríkisstjórn. Hér á Skaganum eru sjálfstæðismenn mjög ákveðnir og einhuga. Jafnvel margt fólk, sem hefur ekki gefið sig upp fyrr, lýsir því nú yfir, að það sé sjálf- stæðisfólk og vilji efla Sjálf- stæðisflokkinn.” \ VESTURLANDSKJÖRDÆMI SÓTT HEIM

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.