Morgunblaðið - 27.06.1974, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JUNl 1974
21
Rætt við Ingólf Jónsson fyrrum
alþingismann og efsta mann
á lista Sjálfstæðisflokksins
Gera þarf stórátak
í varanlegri vegagerð
INGÓLFUR Jónsson er efsti mað-
ur á lista Sjálfstæðisflokksins f
Suðurlandskjördæmi. Blaðamað-
ur Mbl. hitti Ingðlf að heimilí
hans á Hellu nú nýlega og ræddi
við hann um málefni kjördæmis-
ins og landsmál almennt. 1 við-
talinu sagði Ingðlfur m.a., að eitt
þeirra verkefna sjálfstæðis-
manna eftir næstu kosningar —
verði þeim veitt brautargengi um
áhrif á stjðrn landsins — verði
áframhaidandi lagning varanlegs
slitlags á Suðurlandsvcg, eða þar
sem frá var horfið við stjðrnar-
skiptin 1971. Einnig lagði Ingðlf-
ur áherzlu á bætta hafnaraðstöðu,
uppbyggingu atvinnulffs og bygg-
ingu bændaskðla f Odda. Viðtalið
við Ingðlf Jðnsson fer hér á eftir.
Fyrst ræddum við um Hellu á
Rángárvöllum, heimabyggð
Ingðlfs. Hella er vaxandi kauptún
og voru fbúar þess hinn 1. desem-
ber sfðastliðínn rúmlega 400. A
Hellu voru um 20 hús f byggingu
á sfðastliðnu ári og úthlutað hef-
ur verið lððum undir mörg hús,
en um Hellu sagði Ingðlfur:
— Það nægir ekki að byggja
fbúðarhús — það verður að
tryggja fólkinu atvinnu og koma á
fót iðnaði til viðbótar við þann,
sem fyrir er. Nú er í athugun að
setja á fót hér þilplötuverk-
smiðju, þar sem framleiddar
verða þilplötur úr grasi og vikri.
Farið hefur fram allítarleg athug-
un á þessu og tæknilega eru engin
vandkvæði talin vera á rekstri
slíks fyrirtækis, en allt fram á
þetta ár hefur þó verið vafasamt.
að rekstur slfkrar verksmiðju borg
aði sig miðað við verð á innflutt-
um plötum. Eftir að verð á timbri
og þilplötum hefur nú hækkað er
talið, að rekstur slíkrar verk-
smiðju gæti orðið vænlegur. Þess
vegna er nú hægt að snúa sér að
þessu máli í fullri alvöru. Verk-
smiðjan verður nokkuð dýr, þótt
hún verði byggð f áföngum og
fjármagn fæst auðvitað ekki,
nema unnt sé að sanna, að um
arðbæran rekstur sé að ræða.
Verksmiðjan er og vel sett í ná-
greinni við . kauptúnið, vegna
þess, að auðvelt er að rækta upp
sandinn og stutt er í vikurnámur.
I upphafi reksturs mundi slík
verksmiðja veita nokkrum tugum
manna atvinnu, en sfðar fleiri, ef
reksturinn gengi eins og ætlazt er
til.
— Ymis konar iðnað er hentugt
að setja upp f kauptúnum eftir
því sem vinnuafl leyfir. í því sam-
bandi vil ég geta nýlega stofnaðs
hlutafélags á Eyrarbakka, sem
nær yfir Suðurland allt. Hluta-
félag þetta ætlar að vinna ýmis
gosefni, vikur og önnur steinefni.
Gæti sá iðnaður orðið mjög
þýðingarmikill bæði til gjald-
eyrisöflunar og atvinnuauka í
kauptúnum héraðsins. Sveitar-
stjórnir geta einnig átt þátt í að
örva slíka starfsemi og gera það
eftirsóknarvert, að stofnuð séu
smærri fyrirtæki. Þetta geta
sveitarstjórnirnar gert með því að
veita þessum fyrirtækjum skatta-
fvilnanir í útsvörum á meðan fyr-
irtækin eru að festa rætur og vaxa
fiskur um hrygg. Þegar vegur
með bundnu slitlagi er kominn
austur í sveitir — f kauptúnin
Hellu og HvoIsvöII — mun vega-
lengdin frá Reykjavfk ekki
hindra það, að iðnaðarfyrirtæki
hafi góða aðstöðu hér eystra. Og
þótt ég hafi aðeins nefnt hér þrjá
þéttbýliskjarna í kjördæminu er
nánast óþarft að taka það fram, að
auðvitað gegnir sama máli um
kauptún annars staðar á Suður-
landi. Það er nauðsynlegt að
tryggja öllum, sem setjast að í
kauptúnum nægilega atvinnu og
sé það gert, vill fólk frekar vera f
kauptúnum úti á landi, heldur en
í þéttbýlinu við Faxaflóa. Kaup-
túnin byggðust fyrst upp með þvf
að þau veittu landbúnaðinum
þjónustu bæði í verzlun og við-
gerðum á vélum. Það er hagur
landbúnaðarins og sveitanna að
kauptúnin dafni.
— Hér á Rangárvöllum, í Odda,
hefur verið ákveðið að reisa
bændaskóla og verður það gert á
næsta kjörtímabili, ef sjálfstæðis-
menn mega ráða. Oddi er vel f
sveit settur, þar var fyrsti skóli á
íslandi og þvf vel við eigandi, að
þeim stað verði sómi sýndur. Þar
er landrými mikið og jörðin vel
fallin fyrir bændaskólasetur. Það
er og hentugt, að í byrjun a.m.k.
gætu kennarar við skólann haft
aðsetur á Hellu og Hvolsvelli og
stundað jafnframt kennslu í
kauptúnunum. Þyrfti þá ekki að
byrja á því að reisa kennaraíbúðir
fyrir alla kennara bændaskólans.
Þess má og geta, að núverandi
landbúnaðarráðherra hefur gert
allt, sem f hans valdi hefur staðið,
til þess að tef ja þetta mál.
Þá hefur og verið ákveðið að
komið verði upp fjölbrautaskóla á
Selfossi. Nemendum 'myndi ekið
úr og f skólann frá sveitum og
kauptúnum Árnessýslu og
Rángárvallasýslu og þegar vegur-
inn er orðinn með bundnu slitlagi
yrði þetta auðvelt mál.
— Mikil ræktun hefur farið
fram á söndunum og hefur þar
Landgræðsla ríkisins unnið ómet-
anlegt starf f ræktun á Rangár-
völlum og í Landssveit. Ekki mun
þess nú langt að biða, að allir
sandarnir verði grasi grónir. í
Gunnarsholti og á Hvolsvelli eru
graskögglaverksmiðjur, sem hafa
gefizt vel og eru graskögglarnir
eftirsótt fóður og spara innflutn-
ing á kjarnfóðri erlendis frá.
Þessi framleiðsla þarf að aukast
og er heppilegast að stækka þess-
ar tvær verksmiðjur og auka fram
leiðslu þeirra. Nóg er af grasi og
ræktun f nágrenni þeirra. Það er
vitað mál, að stórvirki hefur verið
unnið í gróðurvernd og upp-
græðslu undanfarin ár. I tilefni
1100 ára byggðar f landinu mun
Alþingi taka ákvörðun um aukið
átak f beim málum með þvf að
tryggja meira fjármagn en verið
hefur lagt til þeirra. Með aukinni
ræktun getur búvöruframleiðsla
aukizt og er mikil þörf á þvf, þar
sem fólkinu fjölgar og er útlit
fyrir, að kjötframleiösla bæði af
sauðfé og stórgripum geti f náinni
framtíð orðið arðvænleg atvinnu-
grein til útflutnings.
— Vegurinn verður verkefni
eftir næstu kosningar. Það þarf
að koma honum hingað austur og
eins að gera átak á öðrum stöðum
í kjördæminu. Ég var t.d. búinn
að lofa Eyrbekkingum vegi með
bundnu slitlagi árið 1974 til 1975,
en hafði að sjálfsögðu þann fyrir-
vara, að sjálfstæðismenn hefðu
nægileg áhrif til þess. Víða í kjör-
dæminu t.d. í Arnessýslu eru fjöl-
famir vegir f hraðbrautatölu og
er beðið eftir því, að bundið slit-
lag verði sett á þá. Það er mikið
verkefni framundan á næsta kjör-
tímabili f vegamálum og munu
sjálfstæðismenn láta til sfn taka f
því efni, ef kjósendur veita Sjálf-
stæðisflokknum nægilegt braut-
argengi. í þvf sambandi má minna
á, að hringvegurinn var ákvörðun
viðreisnarstjórnarinnar.
— Sfmamálin eru í ólestri.
Nauðsyn ber til að lagfæra sfma-
þjónustu vfðs vegar á Suðurlandi,
sérstaklega með þvf að auka lfnu-
fjölda þar sem álag hefur aukizt
mjög í seinni tíð. I ársbyrjun 1971
var ákveðið að auka lfnufjöldann
frá Reykjavfk austur um Selfoss
og áfram austur, auk þess sem
símakerfi í sveitum skyldi gert
fullkomnara. Ekkert af þessu hef-
ur núverandi rfkisstjórn látið
gera, enda hefur framkvæmdafé
Landssímans farið að nokkru
leyti til að greiða rfkissjóði sölu-
skatt af allri þjónustu stofnunar-
innar.
— Hafnleysi hefur löngum ver-
ið mikið vandamál á suðurströnd-
inni. Þorlákshöfn er langt frá því
að vera góð höfn eins og hún er f
dag, en ákveðið hefur verið að
stækka hana og lagfæra með fé,
sem fengið er til þess að nokkru
leyti frá Alþjóðabankanum.
Stjórnvöld hafa farið sér hægt í
framkvæmdir f Þorlákshöfn og
dregið að nota það fé, sem fyrir
hendi er. A næsta ári verður að
setja kraft í framkvæmdir í Þor-
lákshöfn og ljúka þvf, sem þar
bíður ógert. (Jtgerðin hefur vaxið
mjög í Þorlákshöfn á sfðasta ára-
tug og hefur haldið áfram að
aukast. A Eyrarbakka og Stokks-
eyri er einnig útgerð, en hafnar-
aðstaða er þar ekki góð. Hefur þó
talsvert verið gert undanfarið til
þess að bæta úr þvf og verður gert
áfram. í þessu sambandi má geta
þess, að mikið hefur verið rætt
um brúargerð yfir ölfusá í
Óseyrarnesi. Áætlun hefur verið
gerð um brúargerðina og vega-
framkvæmdir í sambandi við
hana. Framkvæmdir munu kosta
mikið fé. Eigi að stður standa
vonir til að þessi brú verði gerð
áður en langt um líður.
— Á sfðasta þingi var samþykkt
þingsályktunartillaga um skipun
nefndar til þess að velja stað fyrir
nýja höfn á suðurströndinni.
Hafa ýmsir staðir verið nefndir í
því sambandi, svo sem við Dyr-
hólaey, þar sem athugun hefur
farið fram á hafnarstæði, í
Rangárós, Þjórsárós og Eyrar-
bakka eða Stokkseyri. Nefndin er
skipuð 5 mönnum, einum frá
hverri af sýslunefndunum þrem-
ur Árnessýslu, Rangárvallasýslu
og Vestur-Skaftafellssýslu, einum
frá Vestmannaeyjakaupstað, en
formaðurinn er skipaður án til-
nenfingar af samgönguráðherra.
Vitað er, að staðarval fyrir nýja
höfn á suðurströndinni getur ekki
orðið pólitfsk ákvörðun, heldur
verður að ákvarðast að undan-
genginni tæknilegri athugun, þar
sem höfnin er talin vel sett með
mikíð notagildi. Nauðsynlegt er
að tryggja grundvöll þeirrar út-
gerðar, sem fyrir er í héraðinu,
og vinna strax að ýmsum hafnar-
framkvæmdum, þótt ákvörðun
um nýju höfnina liggi ekki fyrir.
— Höfnin í Vestmannaeyjum
bjargaðist undursamlega í
náttúruhamförunum, sem þar
urðu, en þar þarf eigi að síður
mikið að gera til þess að gera
hana góða til frambúðar.
Uppbyggingarstarfið í Vest-
mannaeyjum er hafið, en þar þarf
að gera mikið átak. Guðlaugur
Gfslason o.fl. fluttu frumvarp á
Alþingi þar sem lagt var til, að
söluskattur og innflutningstollar
af viðlagasjóðshúsum yrðu notað-
ir til uppbyggingar í Vestmanna-
eyjum. Þessir tollar og söluskatt-
ur eru um 800 til 900 þúsund
krónur af hverju húsi eða samtals
um 450 milljónir króna. Rfkis-
stjórnin ákvað hins vegar að nota
þetta fé sem mótframlag til hafn-
argerðar í Grindavík, Þorláks-
höfn og Höfn í Hornafirði. Við
þingmenn Sunnlendinga töldum
engin vandkvæði á að útvega fjár-
magn til hafnargerðanna með öðr-
um hætti og Grindvíkingar töldu
með öllu óviðeigandi, að fé frá
Vestmannaeyingum yrði notað í
hafnargerð í Grindavfk. Aður-
nefnt frumvarp náði ekki fram að
ganga.
— Það er ánægjulegt til þess að
vita, að Vestmannaeyingar eru
margir komnir í fullt starf f
heimabyggðinni og margir eru á
leið þangað, en húsnæði vantar f
Eyjum og tefur það fyrir því, að
menn geti flutt heim eins fljótt og
þeir vilja. — Ljóst er, að mörg
verkefni bíða þingmanna Sunn-
Iendinga bæði í atvinnumálum,
skólamálum og heilbrigðismálum.
Margt er þegar komið af stað og
verði unnt að koma fjármálum
þjóðarinnar og atvinnuveganna á
traustastan grundvöll, þarf ekki
að kvfða því, að framfarir og upp-
bygging verði ekki í Suðurlands-
kjördæmi á næstu árum f sam-
ræmi við óskir fólksins. Tryggja
þarf atvinnuöryggi fólksins.
— I því sambandi er rétt að
geta þess, að margir úr kauptún-
um bæði Rangárvallasýslu og Ár-
nessýslu vinna nú við Sigöldu-
virkjun. I beinu framhaldi af
henni mun Hrauneyjarfoss sfðan
verða virkjaður, ef sjálfstæðis-
menn fá einhverju ráðið um
virkjun fallvatna. Með þvf að nýta
vatnsorkuna fást skilyrði fyrir
margs konar iðnað og alls konar
framleiðslu. Nýjar virkjanir kalla
á nýja orkunotendur. Það mun
vera mjög auðvelt að koma upp
orkufrekum iðnaði í samvinnu við
erlenda aðila og tryggja þjóðinni
þannig örugga gjaldeyrisöflun og
góða og velborgaða atvinnu. Suð-
urland, héraðið allt, mun njóta
Framhald á bls. 27.