Morgunblaðið - 27.06.1974, Side 15
J
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 27. JUNl 1974
i
Í5~
Gunnar
Thoroddsen
formaður
þingflokks
sjálfstœðismanna:
Leiðin
til að lækka
skatta
Það er stefna Sjálfstæðis-
flokksins að afnema tekjuskatt
af almennum launatekjum
manna.
Það er stefna Sjálfstæðis-
flokksins að lækka heildar-
skattbyrðina, sem nú hvílir á
einstaklingum og atvinnuveg-
um. En hvernig er þetta hægt,
spyrja menn.
Fjárlögin
verða að lækka
Til þess að hægt sé að lækka
skatta, þarf að lækka fjárlögin.
Það þarf að draga úr útþenslu
rfkisbáknsins og hinum risa-
vöxnu útgjöldum rfkisins.
En hvað ætlið þið Sjálfstæðis-
menn að lækka, segja stjórnar-
sinnar.
Það er auðvelt að benda á
fjölmarga einstaka útgjaldaliði,
sem má lækka. En fyrst þarf að
móta meginstefnuna og ákveða
vinnubrögðin til þess að ná
markinu.
Fjárlögin taka nú langtum
stærri hlut af þjóðarframleiðsl-
unni en áður hefur þekkzt. Á
tímum viðreisnar voru útgjöld
fjárlaga yfirleitt innan við 20%
af heildarframleiðslu þjóðar-
innar, en nú um 30%. Þannig
er allt of hár skammtur tekinn
til ríkissjóðs. Þessi er aðalorsök
hinnar óhóflegu skattheimtu.
Akveða hámark
fjárlaga
Fyrst þarf að ákveða há-
mark,- þak,- fyrir útgjöldin. Al-
þingi og stjórn ákveði fyrir-
fram, að fjárlögin f heild megi
ekki fara fram úr tilteknum
hundraðshluta af þjóðartekjun-
um eða tiltekinni upphæð.
Þetta er sú upphæð, sem rfkið
vill taka f skatta, þetta er sú
upphæð, sem er til ráðstöfunar
en meira ekki. Innan þess
ramma verða fjármálaráðu-
neyti og fjárveitinganefnd að
ráða útgjöldum I fjárlagafrum-
varpið, sem Alþingi afgreiðir
síðan endanlega.
Það verður erfitt verk og við-
kvæmt að framkvæma slfkan
uppskurð og lækna meinið. En
hjá þvf verður ekki komizt.
Verðbólgustefna stjórnarinnar
er þegar farin að reka sig
óþyrmilega á. Arið 1972 var
samþykkt vegaáætlun fyrir
næstu ár. Nú verður ríkis-
stjórnin sjálf að skera niður
áður ákveðnar vegafram-
kvæmdir í ár um 900 milljónir,
vegna fjárskortsogtilkostnaðar,
en kostnaður við vegagerð hef-
ur tvöfaldazt á tveimur árum.
Fella niður
fjölskyldubætur
hátekjumanna
Vfða má grípa niður í ríkis-
rekstrinum og draga úr útgjöld-
um. Fáein dæmi skulu nefnd.
Fjölskyldubætur eru nauð-
synlegar til handa barnafólki
með lágar eða miðlungstekjur.
En það er ástæðulaust að greiða
fjölskyldubætur til hátekju-
manna. Þær mætti spara rfkis-
sjóði stórar fúlgur.
Leggja niður
eða sameina
stofnanir
Sumar rfkisstofnanir má að
skaðlausu leggja niður, sam-
eina aðrar og draga úr starf-
semi þeirra. Allt slíkt á að gera
að undangenginni könnun.
Áður fyrr störfuðu Tóbaks-
einkasala rfkisins og Áfengis-
verzlunin hvor í sfnu lagi. Við-
reisnarstjórnin lét fara fram
nákvæma könnun á því, hvort
ekki væri rétt að sameina þess-
ar tvær stofnanir. Rannsóknin
leiddi í ljós, að verulegt fé
mundi sparast við það. Þegar
þessar upplýsingar lágu fyrir,
var sameining þeirra lögfest, og
hefur sú ráðstöfun sparað ríkis-
stjóði tugi milljóna.
Til samanburðar má nefna
frumvarp vinstri stjórnarinnar
um að sameina (Jtvegsbankann
og Búnaðarbankann. Engar at-
huganir höfðu farið fram á þvf,
hvaða sparnað mundi af því
leiða, og ráðherra gat engar
upplýsingar um það gefið.
Kunnugir menn töldu jafnvel,
að reksturskostnaður kynni að
aukast við sameininguna. Þann-
ig á ekki að vinna að undirbún-
ingi mála.
En mestur sparnaður yrði af
þvf að draga úr þenslunni, sem
spennir upp alla tilkostnað og
gerir allar framkvæmdir dýrari
en þyrfti að vera. Með því að
hamla gegn verðbólgunni og
koma á jafnvægi í efnahagslíf-
inu verða framkvæmdir
ódýrari og taka skemmri tíma.
Það þarf að lækka útgjöld
fjárlaganna.
Það þarf að minnka skatt-
byrðina f hcild.
Það þarf að afnema skatta af
almennum launatekjum.
Volkswagen -
Passat - K70 - og
Audi-eigendur
Eigendum Volkswagen, Passat, K70 og Audi er bent á
að bifreiðaverkstæði okkar
verður lokað
vegna sumarleyfa frá 15. júlí til 13. ágúst.
Þó mun deild sú, er framkvæmir skoðanir og eftirlit á nýafgreiddum
bifreiðum vera opin með venjulega þjónustu.
Reynt verður að sinna bráðnauðsynlegum minniháttar viðgerðum.
Ennfremur er viðskiptavinum okkar bent á að umboðsverkstæði okkar,
Vagninn, Borgarholtsbraut 69, Kópavogi, Sími 42285, rekur alhliða
Volkswagen-þjónustu.
Smurstöð okkar mun starfa á venjulegan hátt.
Laugavegi 170—172 — Simi 21240