Morgunblaðið - 03.07.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JULÍ 1974
5
Landnámshátíð
áAkranesi
Blaðinu hcfur borizt eftirfarandi
frá þjóðhátfðarnefnd Akraness:
Landnámshátíðin á Akranesi
hefst fimmtudaginn 4. júlí og
stendur til 11. júlí. Hátíðin hefst
með vígslu nýja byggðasafns-
hússins að Görðum. Byggðasafn
Akraness og nærsveita hefur
verið til húsa I gamla prestseturs-
húsinu að Görðum, en nú verður
vígður fyrsti áfangi nýrrar
byggingar, sem safnið fær til
afnota. Hefur séra Jón M.
Guðjónsson verið aðalhvatamaður
að stofnun og viðgangi byggða-
safnsins. Hefst vígsluhátíðin kl.
20.30 við nýja byggðasafnshúsið.
Forseti Islands og þjóðminja-
vörður munu væntanlega verða
viðstaddir vígsluna.
Föstudaginn 5. júlí verður
opnuð listsýning í Barna-
skólanum kl. 20.00. Þar verða
sýnd listaverk, sem bæjarbúar
hafa lánað til sýningar. Er þar
margt ágætra mynda eftir marga
beztu listamenn þjóðarinnar.
Rótarýklúbburinn og Lions-
klúbburinn hafa í sameiningu séð
um söfnun verkanna og upp-
setningu sýningarinnar.
Sama dag kl. 20.30 verður
opnuð iðnsýning í Gagnfræða-
skólanum. Þar verður yfirlits-
sýning yfir helztu vörutegundir,
sem framleiddar eru á Akranesi í
dag, svo og starfsemi ýmissa iðn-
fyrirtækja. Hefur sérstök nefnd
séð um þessa sýningu, en hana
skipa Rúnar Pétursson, Páll
Engilbertsson og Þórbergur
Þórðarson, en umsjónarmaður er
Gylfi Svavarsson.
Báðar þessar sýningar verða
opnar alla daga, sem hátíðin
stendur kl. 17.00 — 22.00 nema
sunnudaginn 7. júlí kl. 14.00 —
22.00.
Þetta sama kvöld kl. 21.00
verður svo sýning á Járnhausnum
eftir Jón Múla og Jónas Árnasyni,
sem Skagaleikflokkurinn flytur.
Laugardaginn 6. júlí verður
hátíð í Reykholti á vegum þjóð-
hátíðanefnda Borgarfjarðar og
Mýrasýslu og Akraness sameigin-
lega. Hefst hún kl. 14.00 og
stendur til kl. 18.00. Þar verður
margt til skemmtunar, og er mjög
til dagskrárinnar þar vandað.
Sunnudaginn 7. júlí verður
íþróttahátfð, sem hefst kl. 10.00
og stendur til kl. 18.00. Þar
verður keppt í frjálsum íþróttum,
knattspyrnu, handbolta, körfu-
bolta, badminton, borðtennis,
lyftingum, blaki, golfi og sundi.
Mun Iþróttabandalag Akraness
sjá um þennan lið hátíðahald-
anna.
Um kvöldið mun kútter „Sigur-
fari“ leggjast að bryggju kl. 20.30.
Kútter þennan keypti Kivanis-
klúbburinn Þyrill í Færeyjum og
mun afhenda hann Byggðasafni
Akraness og nærsveita til eignar.
Þegar Sigurfari kemur, verða á
hafnargarðinum ræðuhöld, lúðra-
spil Lúðrasveitar skólanna undir
stjórn Þóris Þórissonar og Karla-
kórinn Svanir mun syngja.
A mánudagskvöld kl. 20.00
verða skátarnir með „barna-
sirkus" í nýja íþróttahúsinu.
Húsið er nú nýlega orðið fokhelt,
og má segja, að þetta sé fyrsta
samkoman undir þaki þess.
Á þriðjudagskvöld kl. 21.00
verður samsöngur í Bfóhöllinni.
Þar munu Kirkjukór Akraness og
Karlakórinn Svanir syngja undir
stjórn Hauks Guðlaugssonar.
Karlakórinn hefur ekki starfað í
nokkur ár, en hóf æfingar aftur f
vetur, og verður þetta fyrsti sam-
söngur hans síðan hann hóf starf
á ný.
Á miðvikudaginn kl. 20.30 ætlar
Hestamannafélagið Dreyri að
kynna „þarfasta þjóninn“á
fþróttavellinum (malarvelli).
Ætla þeir m.a. að sýna söðulreið,
kerruakstur, heyband og fleira. 1
lok dagskrárinnar mun svo arf-
taki hestsins, bifreiðin, gamall
Ford bíll, aka inn á völlinn. Ford
bíl þennan fékk séra Jón fyrir
nokkrum árum mjög illa farinn,
en sonur hans, Pétur Jónsson bif-
vélavirki til heimilis í Kópavogi
hefur varið gífurlegum tfma og
fjármunum í það að gera bflinn
upp, svo að nú er hann sem nýr.
Á fimmtudagskvöld kl. 21.00
verður svo lokasamkoma f Bíó-
höllinni. Þar verða ýmis skemmti-
atriði, svo sem kórsöngur, upp-
lestur, gamanvfsur o.fl. fyrir hlé,
en eftir hlé verður leikið stutt
leikrit, Ljós í holti, sem Þórleifur
Bjarnason fyrrv. námstjóri hefur
samið um landnámsmenn á
Akranesi. Með því lýkur Land-
námshátíðinni hér.
Þjóðhátfðarárið hófst með því,
að kveiktir voru 15 eldar í
kringum landnám Bresasona á
Akranesi, sem átti að tákna eld-
helgun lands f f ornöld.
Þjóðhátíðarneínd skipaði
snemma í vetur þrjá menn í rit-
nefnd hátíðarrits, þá Ara Gísla-
son, Braga Þórðarson og Sverri
Sverrisson, og kemur ritið út
næstu daga. Verða þar greinar
um sögu Akraness og fleira, og
verður það prýtt fjölda mynda. Er
blaðið hið glæsilegasta að öllum
frágangi.
Þjóðhátfðarnefnd hefur látið
gera ýmsa minjagripi vegna
hátíðarinnar. Diskurinn „Land-
nám Bresasona" verður aðeins
gerður í 600 eintökum. Fyrstu 200
eintökin seldust fljótlega upp, en
von er á því, sem eftir er fljótlega,
en framleiðslu þeirra hefur
seinkað nokkuð af óviðviðráðan-
legum orsökum. Þá hefur nefndin
látið gera barmmerki úr málmi,
öskubakka með myndum af
kútter Sigurfara og Gamla Ford,
límmiða á bílrúður með merki
hátíðarinnar og oddveifur með
sama merki. Upplag þessara
muna er mjög takmarkað, og
verða þeir því mjög eigulegir
minjagripir.
Ágóðanum af sölu minja-
gripanna verður varið til að gera
kvikmynd um Akranes árið 1974,
og er gerð hennar þegar vel á veg
komin, en hana annast Þrándur
Thoroddsen og Jón Hermannsson
í samráði við Magnús Oddsson
rafveitustjóra.
I upphafi var gert ráð fyrir, að
minningarsteinn sá, er írska
þjóðin gefur Islendingum í tilefni
landnáms Ira og reisa á hér á
Akranesi yrði afhjúpaður á Land-
námshátíðinni, en af því gat ekki
orðið, en það verður væntanlega
gert 27. júlí n.k.
Þjóðhátíðarnefnd var kosin af
bæjarstjórn fyrir tæpu ári. Hefur
hún haft mikið og gott samstarf
við flest starfandi félög í bænum,
og hefur fjöldi manna unnið að
undirbúningi þessara hátlða-
halda, sem munu vera þau viða-
mestu, sem hér hafa farið fram. I
þjóðhátíðarnefnd eru Þorvaldur
Þorvaldsson formaður, Bjarn-
fríður Leósdóttir, Haraldur
Sturlaugsson, Magnús Oddsson og
Þorgils Stefánsson.
Rætt um viðskiptasamn-
ing við A-Þjóðverja
DAGANA 18.—20. júní sl. fóru
fram I Berlín viðræður um við-
skipti íslands og Þýzka alþýðulýð-
veldisins. Rætt var um fram-
kvæmd viðskiptasamnings ríkj-
anna, sem gerður var í febrúar
1973.
Þýzka alþýðulýðveldið kaupir
einkum af íslendingum loðnu-
mjöl, niðursuðuvörur og söltuð
ufsaflök, en selur til Islands
áburð, venfaðarvörur, vélar, bif-
reiðar o.fl.
Af hálfu tslands tóku þátt í
Skólauppsögn
í Armúlaskóla
Ármúlaskóla I Reykjavfk var
sagt upp 31. maí síðastliðinn. Alls
voru 807 nemendur í skólanum á
liðnum vetri. Gagnfræðapróf
þreyttu 241 nemandi og undir
landspróf gengu 158 nemendur.
Hæstu einkunn við gagnfræða-
próf hlaut Kristbjörg Guðmunds-
dóttir, 8,92. Hæstu einkunn f
landsprófsdeild fékk Anna S.
Hauksdóttir, 9,3.
Tuttugu ára gagnfræðingar
mættu við skólauppsögnina og
fulltrúi þeirra flutti ávarp.
Afmælisárgangurinn færði skóla-
stjóra og skólanum verulegar
gjafir. Skólastjóri Ármúlaskóla er
Magnús Jónsson.
|Wor0íun'bIaÍiib
|\mnRCFRLDRR
7r mnRKRfl VÐRR
viðræðunum í Berlín Björgvin
Guðmundsson skrifstofustjóri í
viðskiptaráðuneytinu, sem var
formaður íslenzku nefndarinnar,
dr. örn Erlendsson framkvæmda-
stjóri Sölustofnunar lagmetis,
Ingólfur Þorsteinsson skrifstofu-
stjóri, gjaldeyrisdeild bankanna,
Haukur Björnsson framkvæmda-
stjri og Arni Finnbjörnsson sölu-
stjóri SH.
NÝTT
íli" ‘í*%}merióka Hr
Suðurlandsbraut 10.
'SÍmi 8508Ó
22XtO(
12X150 mm (7/
22X225 mm (7/8 >
75X225 Wm (3 "x9
............................................................................................. ■
mm
heldur I
mm i
Viðarþ
hiiotu og teak
;t‘
Afgreiðslan á Klapparstíg 1 er einnig í fullum gangi
VÖLUNDUR H.F
Skeifan19
sími. 85244
TIMBURVERZLUNIN
Klappastig 1
slmi: 18430
LvJ ite.lf iVtí -: iÍÍfSÍll o' l Hí,1 i iiií. t
Æ HPW* flj hWHW H ■ J %C 1 B
lllfpl'ií&ti 1111
'4jl