Morgunblaðið - 03.07.1974, Síða 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 3. JULl 1974
Óskar nálgast
metið í spiótkasti
Vel heppnuð keppnisferð IR-inga til Bretlands
Hópur frjálsfþróttafólks úr IR dvaldi f lok júnfmánaðar nokkra daga
f Englandi og tók þar þátt f frjálsfþróttamótum. Hefur áður verið skýrt
frá árangri tR-inganna á skozka meistaramótinu, þar sem þeir hlutu
þrjá meistaratitla, en hér á eftir fer frásögn af öðrum mótum, sem þeir
tóku þátt f.
Keppni f Keswick 26. júnf
Þessi keppni fór fram á gras-
velli í borginni Keswick sem er f
hinu fræga vatnahéraði Bret-
lands. Keppnin var stigakeppni
milli ÍR-hópsins og liðs frjáls-
íþróttasambanda viðkomandi
svæða, þ.e. Cumberlands og West-
morelands.
Tveir frá hvorum aðila töldust
til stiga og í stigakeppninni urðu
úrslit þau, að í karlaflokki sigraði
ÍR-hópurinn með 88 stigum gegn
65, en í kvennakeppninni sigraði
enska liðið með 40 stigum gegn
35. Heildarsigurvegari í keppn-
inni varð því ÍR með 123 stig gegn
105.
Maður dagsins var án nokkurs
efa Öskar Jakobsson. Hann vann
ekki aðeins sigur í þremur grein-
um: spjótkasti, kringlukasti og
kúluvarpi, heldur bætti hann sinn
bezta árangur í tveimur þeirra.
Spjótinu kastaði hann 64,30
metra, en bezt átti hann áður
62,80 metra og bætti hann sig því
um 1,50 metra. Kúlunni varpaði
hann 15,20 metra og bætti því
árangur sinn, sem hann náði á
skozka meistaramótinu nokkrum
dögum áður, en þar lenti hann í
öðru sæti á eftir Guðna Halldórs-
syni og varpaði 15,08 metra.
1 Keswick varð Guðni í öðru
sæti með 15,00 metra. Óskar
sigraði svo í kringlukasti með því
að kasta 45,60 metra, en þar varð
Guðni annar með 41,50 metra.
Virtist Guðni ekki finna sig sem
bezt í þessari keppni.
Sú grein, sem mest hafði verið
auglýst, var 800 metra hlaupið.
Veðmál öll stóðu á hetju
staðarins. Aðstæður voru mjög
sérstæðar, ósléttur grasvöllur, og
þvf vart að búast við góðum
tímum.
Ágúst Ásgeirsson tók forystuna
eftir 300 metra og hélt henni í
mark þrátt fyrir að staðarmað-
urinn veitti honum harða keppni
á síðustu metrunum ákaft hvattur
af heimamönnum. Fékk hann
sama tíma og Ágúst 1:57,5 mfn.
Jón Diðriksson varð þriðji í
hlaupinu á 1:58,9 mfn.
Með góðum endaspretti tókst
Sigfúsi Jónssyni að sigra í 3000
metra hlaupinu á sínum bezta
tíma 8:44,0 mín.
Auk ofangreindra úrslita náðu
aðrir eftirfarandi árangri.
100 metra hlaup: sek.
1. Friðrik Þór Óskarsson 11,8
Gunnar P. Jóakimsson 12,5
100 metra hlaup drengja: sek.
3. Óskar Thorarensen 13,4
4. Hafsteinn Óskarsson 13,6
100 metra hlaup kvenna:
2. Ingunn Einarsdóttir 13,0
4. Ásta B. Gunnlaugsdóttir 13,5
Kúluvarp drengja: m
Ásgeir Þ. Eiríksson 14,52
Þráinn Hafsteinsson 14,02
3. Helgi Helgason 13,38
4. Óskar Thorarensen 10,88
Hástökk kvenna: m
1. Björk Eiríksdóttir 1,45
Hástökk karla: m
1. Jón S. Þórðarsson 1,80
2. Friðrik Þ. Óskarsson 1,70
Þrfstökk: m
1. Friðrik Þ. Óskarsson 13,70
2. Jón S. Þórðarson 11,38 m.
800 metra hlaup drengja:
1. Hafsteinn Óskarss. 2:17,Omín.
Kringlukast drengja:
1. Helgi Helgason 39,82 m.
2. Ásgeir Þ. Eiríksson 35,10 m.
3. Óskar Thorarensen 30,42 m.
Langstökk kvenna:
1. Ingunn Einarsdóttir 4,74 m.
3. Ásta B. Gunnlaugsdóttir 4,20 m.
400 metra hlaup kvenna:
3. Dagný Pétursdóttir 70,7 sek.
Kúluvarp kvenna:
1. Guðrún Ingólfsdóttir 11,67 m.
Langstökk karla
1. Friórik Þ. Óskarsson 6,38 m
4. Jón S. Þórðarson 5,15 m.
Kringlukast kvenna:
1. Guðrún Ingólfsdóttir 29,13 m.
200 metra hlaup kvenna:
3. Ingunn Einarsdóttir 26,7 sek.
5. Ásta. B. Gunnlaugsd. 29.0 sek.
4x100 metra boðhlaup kvenna
2. Sveit ÍR 55,9 sek.
4x100 metra boðhlaup karla:
3. Sveit IR 48,8 sek.
4x400 metra boðhlaup karla:
3. A-sveit IR 3:40,3 mín.
4. B-sveit IR 4:04,0 mín.
Keppni f Ayr:
23. júní skipti hópurinn sér. Fór
annar hluti hans á Higland gath-
ering f bænum Ayr á vesturströnd
Skotlands. Þar fór fram sérstæð
íþróttakeppni, slegizt var m.a.
með koddum og kastað drumbum.
Skotarnir voru flestir í hátfða-
klæðum, þ.e. köflóttum pilsum og
brókarlausir undir. Gekk mikið á
hjá dönsurum og sekkjarpípuleik-
urum. Upplýsingar um keppnis-
greinar voru eitthvað brenglaðar,
því ekki voru greinarnar við hæfi
allra þegar á hólminn var komið.
Eftirfarandi árangur náðist f
keppnisgreinum ÍR-inga:
100 metra hlaup karla:
1. Friðrik Þór Óskarsson 11,3 sek.
5. Gunnar P. Jóakimsson 11,9 sek.
100 metra hlaup drengja:
1. Óskar Thorarensen 12,2 sek.
800 metra hlaup karla:
3. Ágúst Ásgeirsson 1:55,8 mín.
Keppni f Middlesbrough 28. júnf:
Mótið í Middlesbrough fór fram
á nýjum tartanvelli og var þarna
um að ræða félagakeppni milli
iR-hópsins og Middlesbrough H &
AC. I karlaflokki sigraði IR með
39 stigum gegn 37. Kvenfólkið
skildi hins vegar jafnt 23 stig
gegn 23, og vann þvf ÍR-hópurinn
með 62 stigum gegn 60.
Árangur var hinn ágætasti hjá
flestum og margir settu persónu-
leg met. Ánægjulegast var að sjá
einn mann bætast við þann fá-
menna hóp íslendinga, sem
hlaupið hafa undir 4 mínútum í
1500 metra hlaupi. Þeim árangri
náði hinn hávaxni Borgfirðingur,
Jón Diðriksson, sem var gestur
ÍR-inga f ferðinni. Varð Jón í
fjórða sæti í 1500 metra hlaupinu
á 3:59,8 mín. Bezt átti hann áður
4:03,5 mín. Sigurvegari í hlaup-
inu varð enskur landsliðsmaður
Denis Coates á 3:51,6 mín. Ágúst
Ásgeirsson varð annar á sínum
næstbezta tíma 3:52,8 mín. Sigfús
Jónsson fann sig hins vegar ekki í
hlaupinu og endaði f 6 sæti á
4:08,0 mín.
Óskar Jakobsson var rétt við
sitt bezta, er hann sigraði í
kringlukasti með 47,07 metra
kasti, en þar varð Guðni Halldórs-
son í þriðja sæti með 41,96 metra.
Guðni sigraði hins vegar f kúlu-
varpinu, varpaði 14,92 metra, en
Óskar varpaði 14,69 metra.
I kúluvarpi og kringlukasti
köstuðu einnig þeir Þráinn
Friðrik Þór Óskarsson — náði bezta árangri ársins f langstökki.
Óskar Jakobsson, IR — nálgast metið f spjótkasti
Hafsteinsson og Ásgeir Þór
Eiríksson. Köstuðu þeir 11,87 m
og 40,36 metra (Hafsteinn ) og
11,50 m og 28,16 m (Ásgeir).
Friðrik Þór hljóp á milli greina
og þvf átti hann litla möguleika á
að vinna stórafrek. Hann varð
annar í 100 metra hlaupinu á 11,9
sek., annar í hástökki, stökk 1,77
metra en í þvf sigraði Jón Þórðar-
son, stökk 1,85 metra. Friðrik
sigraði svo f langstökki og náði
þar sínum bezta árangri í ár, 6,93
m. Þar bætti Óskar Thorarensen
sig um rúman hálfan metra, er
hann stökk 5,41 m.
Leiðindaóhapp varð í 400 metra
hlaupinu. Dómararnir rugluðust
á röð hlauparanna og dæmdu
Gunnar P. Jóakimsson f 4. sæti,
sennilega vegna þess, að hann var
ekki í iR-bol, en við það missti
hann af öðru sæti og fékk tímann
52,6 sek. í stað 52,0 sek. sem hann
hljóp á. Dómararnir voru mjög
ósammála og virtust sem sorg-
mæddir keppendur og aðstand-
endur færu með völdin. Ungur
nýliði, Hafsteinn Óskarsson, sem
er aðeins 15 ára, bætti sig veru-
lega er hann hljóp á 56,8 sek. í 400
metra hlaupinu.
iR-ingar náðu síðan sínum
bezta árangri í 4x400 metra boð-
hlaupi um nokkurn tíma með því
að hlaupa á 3:32,8 mín.
Hjá kvenfólkinu varð árangur
sem hér segir:
100 metra hlaup:
1. Ingunn Einarsdóttir 12,6 sek.
4. Ásta B. Gunnlaugsd. Í3,3 sek.
400 metra hlaup:
3. Ásta B. Gunnlaugsd. 67,9 sek.
4. Dagný Pétursdóttir 68,6 sek.
Hástökk:
1. Björk Eiríksdóttir 1,55 m
3. Ingunn Einarsdóttir 1,40 m
Kúluvarp:
1. Guðrún Ingólfsdóttir 11,78 m
2. Ingunn Einarsdóttir 9,28 m
4x100 metra boðhlaup:
2. Sveit IR 54,2 sek.
Skozka unglingameistaramótið:
Fyrir skozk-enskan klaufaskap
urðu iR-ingar af byrjun mótsins
og Hafsteinn Óskarsson þvf af
góðum möguleika til þess að bæta
sig í 800 metra hlaupi. Á hinn
bóginn var árangur iR-piltanna
góður og vakti athygli blaða-
manna og áhorfenda. Var piltun-
um vel fagnað við verðlauna-
afhendinguna. Keppendur IR
voru fjórir og komust þeir allir á
pall. Hæst bar auðvitað tvo
meistaratitla Þráins Hafsteins-
sonar, en hann sigraði f kúluvarpi
og kringlukasti. Varpaði hann
kúlunni 14,25 metra og kringl-
unni 44,62 metra. Asgeir Þór
Eiríksson varð annar í sömu
greinum með 14,20 metra í kúlu
og 35,80 metra í kringlu.
Óskar Thorarensen kom inn í
kúluvarpið í sfðustu umferð
undankeppninnar, en tókst þó að
komast í úrslitin á þvf eina kasti
og endaði hann í öðru sæti með
13,17 metra.
Helgi Helgason varð í 3. sæti í
kringlukasti unglinga, kastaði
35,20 metra, en í kúluvarpinu var
hann óheppinn og lenti í fimmta
sæti með 11,22 metra.
Tveir skozkir meistaratitlar,
þrenn silfurverðlaun og ein
bronzverðlaun var mjög góð upp-
skera hjá þessum litla hópi Is-
lendinga og vöktu afrek drengj-
anna mikla athygli.
Góðir gestir
á unglinga-
meistaramóti
Reykjavfkurmót drengja og
stúlkna I frjálsum fþróttum
fer fram á Laugardalsvellin-
um á morgun og föstudaginn
og hefst keppnin kl. 20 bæði
kvöldin. Auk unglingagrein-
anna verður keppt f fjórum
greinum fullorðinna, 3000 m
hindrunarhlaupi og 4x800 m
boðhlaupi kvenna á fimmtu-
dag og fimmtarþraut og 4x800
m boðhlaupi karla á föstudag.
20 unglingar frá V-Þýzkalandi
eru staddir hér á landi um
þessar mundir f boði frjáls-
fþróttadeildar KR og munu
þau verða meðal keppenda
á unglingameistaramótinu,
þannig að keppnin ætti að
verða enn skemmtilegri.