Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULÍ 1974
AlbÝðubandalagið:
Forsetakjörið ekki þátt
ur í stjórnarmyndun
GNÁ sóttí
slasað fólk
SKÖMMU eftir hádegi á laugardag varð mjög harður bifreiða-
árekstur hjá bænum Slétteyri f Kollafirði á Barðaströnd. Fimm
manns, sem f bflunum voru slösuðust alvarlega og var strax leitað
til Slysavarnarfélagsins og Landhelgisgæzlunnar með hjálpar-
beiðni.
Þyrlan GNA var send af stað og með henni fór læknir frá
Borgarspftalanum til þess að sinna hinum slösuðu. Gekk ferðin
mjög vel og var þyrlan komin til Reykjavfkur aftur um kl. 18 með
þá þrjá, sem mestrar aðhlynningar þurftu. Voru þeir fluttir á
Slysavarðstof una.
Myndina tók ÖI. K. M., þegar GNA kom til Reykjavfkur með
hina slösuðu.
Sementsverksmiðia ríkisins:
AFGREIÐSLUTAFIR
FYRIRSJÁANLEGAR
Alþýðubandalagið hefur sent
frá sér yfirlýsingu, þar sem segir,
að þingmenn Alþýðubandalags-
ins hefðu verið til viðtals um að
kjósa þingmann úr Alþýðu-
flokknum sem forseta sameinaðs
Alþingis, ef kosning forseta hefði
getað orðið liður f samkomulagi
fjögurra flokka um myndun
Norðursiávarskipin:
Seldu fyrir
14,8 millj.
kr. í gær
Þrettán íslenzk síldveiðiskip
seldu í Hirtshals og Skagen í gær
fyrir alls 14.8 millj. kr. Mun þetta
vera bezti söludagur sumarsins
hjá fslenzku síldveiðiskipunum.
Almennt halda skipin sig nú á
veiðum við Hjaltland, en síldin,
sem þar fæst, er sæmileg að gæð-
um. Síldarmagnið á þessum slóð-
um er ekki talið tiltölulega mikið
og köstin, sem skipin fá, eru frek-
ar smá. Meðalverðið, sem skipin
fengu f gær fyrir síldina, er í
kringum 20 kr.
Skipin, sem seldu, voru þessi:
Loftur Baldvinsson EA 2189
kassa fyrir 3.1 millj. kr., Eldborg
GK 1051 kassa fyrir 736 þús. kr.,
Albert GK 1083 kassa fyrir 650
þús. kr., Hrafn Sveinbjarnarson
GK 293 kassa fyrir 187 þús. kr.,
Grímseyingur GK 1371 kassa fyrir
1.4 millj. kr., Grindvíkingur GK
501 kassa fyrir 618 þús. kr., Vörð-
ur ÞH 424 kassa fyrir 486 þús. kr.,
Harpa RE 1687 kassa fyrir 1.9
millj. kr. og Gísli Árni RE 1095
kassa fyrir 1.4 millj. kr. Þessi skip
seldu í Hirtshals.
í Skagen seldu svo Faxaborg
Framhald á bls. 39
nýrrar rfkisstjórnar. En þar sem
þetta hefði ekki legið fyrir, hefði
þingflokkur Alþýðubandalagsins
ákveðið að kjósa Ásgeir Bjarna-
son.
Hér fer á eftir fréttatilkynning
Alþýðubandalagsins:
„í tilefni af kjöri forseta
Sameinaðs Alþingis er rétt að það
komi fram, að s.l. fimmtudag, 18.
júlí, ritaði þingflokkur Alþýóu-
bandalagsins þingflokki Fram-
sóknarflokksins bréf, þar sem
því var lýst yfir, að flokkurinn
teldi eðlilegast, að þeir flokkar,
sem staðið hafa saman að ríkis-
stjórn og njóta stuðnings 30 þing-
manna, stæðu saman að kosningu
aðalforseta þingsins eins og verið
hefur. Jafnframt lýsti þingflokk-
urinn sig reiðubúinn að kjósa
mann úr þingliði Framsóknar-
flokksins sem forseta Sameinaðs
þings, en jafnframt ættu
núverandi stjórnarflokkar að
koma sér saman um kjör annarra
forseta þingsins með hugsanlegri
samvinnu við stjórnarandstöð-
una, eins og var á liðnu kjörtíma-
bili.
Jafnframt kvaðst þingflokk-
urinn til viðtals um að kjósa þing-
mann úr Alþýðuflokknum sem
forseta Sameinaðs alþingis, ef
kosning forseta þingsins gæti
orðið liður í samkomulagi
fjögurra flokka um myndun
nýrrar ríkisstjórnar. Þar sem
þetta lá ekki fyrir 1 dag, þegar
kosning fór fram, ákvað þing-
flokkur Alþýðubandalagsins að
kjósa Ásgeir Bjarnason sem for-
seta Sameinaðs þings. En þar sem
hann hlaut ekki stuðning
annarra flokka var við þriðju
og seinustu atkvæðagreið'sl-
una kosið um þingmenn-
ina Gunnar Thoroddsen og
Gylfa Þ. Gíslason og ákvað þá
þingflokkur Alþýðubandalagsins
að tryggja kjör Gylfa Þ.
Gfslasonar.“
Uppsetning nýrr-
ar sementskvam-
ar hefur dregizt
og verkamenn í
yfirvinnubanni
SEMENTSVERKSMIÐJAN á
Akranesi á nú f nokkrum erfið-
leikum, sem getur valdið trufl-
unum á afgreiðslu á fullunnu
sementi til viðskiptavina. Erfið-
leikar þessir stafa annars vegar
af yfirvinnubanni, sem nú er f
gildi meðal verkamanna, er vinna
að afgreiðslu á sementi frá verk-
smiðjunni á Akranesi, og hins
vegar vegna þess, að verulegur
dráttur hefur orðið á afgreiðslu
og uppsetningu á nýrri sements-
kvörn við verksmiðjuna, sem stór-
auka átti afköst hennar. Forráða-
menn Sementsverksmiðjunnar
skýrðu frá þvf á fundi með blaða-
mönnum f gær, að truflanir af
þessum völdum gætu orðið til
þess að viðskiptavinir hennar
yrðu á næstunni að bfða einn til
tvo daga eftir sementi, eða þar til
úr rætist.
Á fundinum kom enn fremur
fram, að í dag kemur m.s. ísborg
til Akureyrar með danskt sekkjað
sement, sem selt verður þar og á
næstu höfnum norðanlands.
Sementsverksmiðjan flytur inn
og selur þetta sement, vegna þess
að afkastageta hennar er ekki
nægileg til að anna eftirspurn
eftir sementi. Svo var einnig á sl.
ári og voru þá flutt inn 1600 tonn
af sænsku sementi.
Afkastageta ofns verksmiðj-
unnar er aðeins 95 þúsund tonn
af sementsgjalli eða ómöluðu
sementi á ári. Á sl. ári voru þess
vegna flutt inn 32 þúsund tonn af
eriendu gjalli. Hins vegar er af-
kastageta einu sementskvarnar
verksmiðjunnar aðeins 130 þús-
und tonn af sementi á ári, en til
samanburðar má geta þess, að á
sl. ári voru seld 135 þúsund tonn
af sementi hér á landi. Salan
fyrstu sex mánuði þessa árs er
þegar orðin um 9 þúsund tonnum
meiri en á sama tíma í fyrra, sem
er um 16% aukning, og gera for-
ráðamenn verksmiðjunnar ráð
fyrir að heildarsalan í ár verði
150—160 þúsund tonn.
Söluaukning á þessu ári var
fyrirsjáanleg og þess vegna var
þegar í ársbyrjun 1973 ákveðið að
festa kaup á annarri sements-
kvörn. Að sögn þeirra Svavars
Pálssonar og Guðmundar Guð-
mundssonar, framkvæmdastjóra
Sementsverksmiðjunnar, er lang-
ur afgreiðslufrestur á slfkum
tækjum eða 14 til 18 mánuðir. Þó
var stefnt að því, að kvörnin yrði
komin upp og tilbúin til mölunar
í júlíbyrjun eða um líkt leyti og
framkvæmdir hæfust við Sigöldu-
virkjun. Var það ekki sízt vegna
þeirrar framkvæmdar, að ráðizt
var f kaup á kvörninni, enda gert
ráð fyrir, að um 40 þúsund tonn
af sementi þurfi í virkjunina, en
það dreifist að vísu á rúmlega tvö
ár.
I vor kom hins vegar í ljós, að
verulegar tafir yróu á afgreiðslu
og uppsetningu kvarnarinnar af
hálfu hins danska framleiðanda
VERKALÝÐSFÉLÖGIN f Rang-
árvaliasýslu, Rafiðnaðarsamband
tslands og Múrarasamband ts-
lands hafa nú náð samkomulagi
um kaup og kjör við
júgóslavneska verktakafyrirtæk-
ið Energo-projekt vegna aðiidar-
félaga sinna, sem starfa við
Sigöidu.
Sigurður Oskarsson, starfsmað-
ur verkalýðsféiaganna f Rangár-
vallasýslu, sagði f samtali við
Morgunblaðið f gær, að samning-
ar hefðu verið undirritaðir á
föstudagskvöldið, og væru menn
yfirleitt ánægðir með samning-
ana, enda væru þeir byggðir á
þeirri sérstöðu, sem Sigöldusvæð-
ið hefur.
Hann sagði, að veigamestu atr-
iðin í samningun'Um væru, að nú
yrði greitt 130% álag á stórhelgi-
daga. Samið var sérstaklega um
aðbúnað, öryggi og tómstunda-
hennar og af þeim ástæðum yrði
ekki unnt að anna eftirspurn eftir
sementi á þessu sumri. Var þess
vegna ákveðið að flytja inn
sekkjað sement frá Danmörku.
Kostnaðarverð hins innflutta
sements verður um 8.600 krónur á
tonn, sem er um 2 þúsund krón-
um hærra en verð á íslenzku port-
landssementi. Að sögn þeirra
Svavars og Guómundar var ekki
hægt að taka ákvörðun um
þennan innflutning fyrr en sam-
þykkt hafði verið að taka mætti
tillit til þessa mismunar á verði
við ákvörðun hins nýja útsölu-
verðs á sementi og ákveðið var
hinn 9. júlf sl. Sögðu þeir, að
augljóst væri, að Sementsverk-
smiðjan gæti ekki selt samskonar
sement á mismunandi verði og
þess vegna væri slík verðjöfnun
eðlileg. Aftur á móti tók verk-
smiðjan sjálf á sig þennan verð-
mismun í fyrra, er flutt voru inn
1600 tonn, en þeir sögðu að slíkt
Framhald á bls. 39
gaman starfsmanna. Þá voru laun
verkafólks við óþrifaleg störf
hækkuð, enn fremur varð sam-
komulag um, að verktakinn tvö-
faldaði slysatryggingu þeirra
manna, sem vinna við hættuleg-
ustu störfin, eins og utan f kletta-
veggjum, í djúpum skurðum eða í
jarðgöngum. Einnig var samið um
kauphækkun fyrir þá, sem vinna
við slík störf.
Sigurður sagði, að bifreiðastjór-
ar fengju nú verulegar kjarabæt-
ur. Og leiðrétt hefði verið tíma-
skipting f vaktavinnu, sem að
þeirra dómi hefði verið óraunhæf
um langan tíma. Þá fá starfsmenn
nú í fyrsta skipti greidda ferða-
peninga eftir raunhæfu mati.
Að lokum sagði Sigurður, að
eftir öllum sólarmerkjum að
dæma ætti að vera auðvelt að
framfylgja þessum samningum og
viðræðurnar við Júgóslavana
hefðu farið vinsamlega fram.
ERU ÞEIR
Laxveiði hefur heldur glæðzt
sfðustu daga, en þó er hún
vfðast hvar minni en á sama
tfma f fyrra. Þar vaida einkum
miklir þurrkar, sem verið hafa
sfðustu vikurnar; eru árnar
vfða mjög litlar, en öllum ber
saman um, að mikill lax sé f
ánum.
508 laxar á
land úr Grfmsá
Þórunn Eyjólfsdóttir ráðs-
kona í veiðihúsinu við Grímsá í
Borgarfirði sagði okkur, að
veiðin hefði verið sæmileg þar
að undanförnu, og nú væru
komnir 508 laxar á land. I gær-
morgun fengust 26 laxar, sem
teljast verður mjög gott, en 10
stengur eru leyfðar í ánni.
1 síðustu viku veiddust 165
laxar í Grímsá, en í sömu viku í
fyrra voru þeir 256. Stærsti lax-
inn, sem veiðzt hefur fram til
þessa er 25 pund og var hann 72
sm. langur. Meðalstærð laxanna
í sumar hefur verið 6—7 pund,
en mjög margir 12 punda laxar
hafa veiðzt. Allur lax í Grímsá
er veiddur á flugu.
700 úr Laxá f Kjós
Jón Erlendsson f veiðihúsinu
við Laxá f Kjós sagði í samtali
við blaðið, að þar væri nú sæmi-
leg veiði, en ekki væru þó
komnir eins margir laxar á land
og á sama tíma í fyrra. Nú hafa
verið veiddir 700 laxar, en voru
850—900 á sama tfma í fyrra.
Um helgina skánaði veiðin
aðeins, en nú eru eintómir út-
lendingar í ánni og því ekki
hægt að búast við eins mikilli
veiði og ef íslendingar væru
við.
Stærsti laxinn, sem fengizt
hefur í Laxá í Kjós á sumrinu
reyndist vera 20 punda þungur,
en veitt er jafnt á maðk og
flugu. Mjög mikill lax er nú
ofarlega í ánni að sögn veiði-
manna, en 10 stengur eru leyfð-
ar í ánni.
Mikill lax
f Elliðaám
Prýðileg veiði hefur verið í
Elliðaánum í sumar og 19. þ.m.
höfðu veiðzt 665 laxar í ánum,
og þann dag veiddust 40 laxar.
Þá voru komnir nokkuð á
fimmta þúsund laxar yfir
teljarana, og þykir mjög gott.
130 komnir úr Flóku
Ingvar Ingvarsson á Múla-
stöðum sagði okkur, að veiðin í
Flóku hefði ekki verið neitt sér-
stök f sumar, en bezti tíminn í
ánni væri venjulega frá því síð-
ast í júlí og út ágústmánuð. Um
helgina voru komnir 130 laxar
úr Flóku, og er það 20 löxum
minna en á sama tíma í fyrra.
Þá veiddust alls f ánni 523 lax-
ar.
Hann sagði, að laxinn sem
veiðzt hefði í sumar væri mun
stærri en sá, sem fengizt hefði f
fyrra. Mjög mikið væri um 13,
14 og 15 punda laxa.
Sigalda:
Samningar tókust
við Júgóslavana