Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 16

Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 16
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULI 1974 Utgefandi hf. Arvakur, Reykjavík Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson. Fréttastjóri Bjórn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, simi 10 1 00. Auglýsingar Aðalstræti 6, simi 22 4 80. Áskriftargjald 600,00 kr. á mánuði innanlands. í lausasolu 35,00 kr. eintakið. Fráfarandi vinstri stjórn er ugglaust sú ríkisstjórn, sem staðið hefur fyrir einhverjum mestu skattaálögum, er um getur. Útgjöld ríkisins hafa verið margfölduð á valdaferli vinstri stjórn- arinnar. Sú verðbólgu- stefna, sem rekin hefur verið í þeim efnum, hefur óhjákvæmilega kallað á gífurlega skattpíningu. Nú hefur gjaldendum verið birt skattálagning þessa árs. Ljóst er, að hækkun beinna skatta er minni en áður hefur verið. Af þeim sökum hafa talsmenn ríkis- stjórnarinnar reynt að halda því fram, að fráfar- andi ríkisstjórn hafi beitt sér fyrir því, að dregið yrði úr opinberum álögum. Flestum er hins vegar ljóst, að skattaálögur ríkis- ins hafa í engu minnkað, þó að beinar álögur hafi ekki hækkað að þessu sinni í sama mæli og áður á valda- tíma þessarar stjórnar. Óbeinir skattar voru á síð- asta Alþingi hækkaðir til mikilla muna með sölu- skattshækkuninni. Heildarskattálögur hafa af þeim sökum ekki minnkað frá fyrra ári. Reyndar gerði ríkisstjórnin ítrekaða tilraun til þess á síðasta þingi að hækka söluskatt- inn svo, að tekjur ríkis- sjóðs ykjust um tæpar 5000 milljónir króna. Stjórnar- andstöðunni tókst að koma í veg fyrir þessa stórauknu skattpíningu. Á hinn bóg- inn tókst ekki að knýja fram á Alþingi, að dregið yrði úr heildarskattálög- um. Sjálfstæðisflokkurinn beitti sér fyrir því. Alþýðu- flokkurinn studdi ríkis- stjórnina hins vegar, þannig að söluskatts- hækkunin kom til jafns við tekjumissi ríkissjóðs vegna lækkunar á beinum skött- um. Skattpíningarstefna vinstri stjórnarinnar leiddi til þess, að á síðasta ári settu launþegasamtökin fram mjög ákveðnar kröfur um lækkun skatta. Þá hafði skattpíningar- stefna ríkisstjórnar hinna vinnandi stétta lagzt svo þungt á allan almenning, að launþegasamtökin voru knúin til þess að rísa upp til andstöðu. Verzlunar- mannafélag Reykjavíkur var fyrst til þess að setja fram mótaðar kröfur í þessum efnum. í ályktun þess frá því í ágúst á fyrra ári er sett fram sú krafa, að árstekjur hjóna allt að 600 þúsund krónum verði skattfrjálsar. Þar var enn fremur lögð áherzla á, að heildarálagning opinberra gjalda færi ekki yfir 33%. í kjaramálaályktun Al- þýðusambands íslands, sem samþykkt var í kjölfar ályktunar Verzlunar- mannafélags Reykjavíkur, var þess krafizt, að gagn- ger bylting yrði gerð í skattamálum, þannig að veruleg skattalækkun yrði tryggð hjá láglaunafólki. Jafnframt lagði Alþýðu- sambandið áherzlu á, að stuðlað yrði að því með þessu móti, að eignamenn og sjálfstæðir atvinnurek- endur greiddu til samfé- lagsþarfa í samræmi við tekjur sínar og eignir. Hver voru svo viðbrögð ríkisstjórnar hinna vinn- andi stétta við þessum ein- dregnu kröfum launþega- samtakanna um lækkun á heildarskattaálögum? Ríkisstjórnin beitti sér fyrir því á Alþingi, að skattalögum yrði breytt á þann veg, að beinir skattar lækkuðu nokkuð, en sölu- skattur yrði hækkaður til mikilla muna, þannig að heildarskattaálögur ykjust um nærfellt 5000 milljónir króna. Þannig var kröf- um launþegasamtakanna svarað. Stjórnarflokkarnir höfðu hins vegar ekki meirihluta til þess að knýja þessa stórauknu skatt- heimtu í gegnum Alþingi. Það er því ranghermi, þegar því er nú haldið fram, að skattálagningin, sem nú er birt, beri vott um, að fráfarandi vinstri stjórn hafi beitt sér fyrir skattalækkunum. Þegar á þessi málefni er litið, er ekki unnt að horfa framhjá því, að neyzlan er nú skatt- lögð í ríkara mæli en nokkru sinni fyrr. Ein meginkrafa laun- þegasamtakanna var sú, að dregið yrði úr heildar- skattabyrðinni. Alþýðu- sambandið og öll stærstu verkalýðssamtökin héldu þeirri kröfu fast fram. I ljósi þeirrar staðreyndar var það f meira lagi kyn- legt, þegar allir forystu- menn verkalýðshreyf- ingarinnar í röðum stjórn- arflokkanna létu tilraunir hennar til aukinnar skatt- heimtu óátaldar, þegar reynt var að knýja slíkar tillögur fram á Alþingi. Vinnubrögð þessara forystumanna í launþega- samtökunum voru í meira lagi sérstæð. Fyrst eru settar fram kröfur um lækkun opinberra gjalda. Síðan er horft þegjandi á tilraun til að hækka óbeina skatta meira en nemur lækkun beinna skatta. Og nú er því haldið fram af talsmönnum stjórnarflokk- anna, að samþykktar hafi verið umtalsverðar skatta- lækkanir. Það er vitaskuld blekking, þó að hitt sé skynsamlegt að auka tekj- ur ríkissjóðs í formi óbeinna skatta á kostnað beinu skattanna. Engin slík ráðstöfun hefur verið gerð. SKATTABREYTINGAR Viö lok fundar æðstu manna Bandarfkjanna og Sovétríkjanna í Moskvu í síðustu viku sendi dr. Kissinger andstæðingum sínum í Moskvu og Washington hólm- gönguáskorun. Þær tvær athuga- semdir hans á blaðamanna- fundinum í Moskvu, sem mest hefur verið vitnað til, munu verða grundvöllur næsta þáttar í hinni stjórnmálalegu baráttu, sem háð er í báðum höfuðborgunum. Hann sagði: „Ein þeirra spurninga, sem við þurfum að spyrja okkur sjálfa sem þjóð, er: Hvað í ósköpunum eru hernaðarlegir yfirburðir? Til hvers notar maður þá? Hann hafði tekið eftir ýmsu í báðum höfuðborgunum, sem kom honum til þess að trúa því, að „báðir aðilar yrðu að sannfæra her- foringja sína um það, hvílíkir kostir fylgdu því að dregið væri úr vígbúnaðarkapphlaupinu; og það er nokkuð, sem herforingjar sjá ekki f hendi sér, hvorki hinir bandarísku né hinir sovézka." James Schlesinger Iandvarna- ráðherra þótti strax sem hér væri verið að ráðast á sig og svaraði reiðilega: „í okkar landi hafa borgaralegir embættismenn strangt eftirlit með höndum og við eigum ekki við nein vandamál að strfða í sambandi við herínn.“ Ekki er vitað, hvernig Andrei Gretsko marskálkur, landvarna- ráðherra Sovétrfkjanna, svaraði, en grein, sem hann birti skömmu fyrir fund æðstu mannanna, varð til þess, að sérfræðingar banda- rísku leyniþjónustunnar drógu þá ályktun, að hann hefði einnig gert sér ómak til þess að sýna fram á völd borgaralegra embættis- manna yfir hernum. Kissinger er auðsjáanlega ekki sáttur við þessi svör um það, hverjir séu hinir raunverulegu valdhafar, hvorki f Moskvu né Washington. Með því að þrábiðja valdhafana í Kreml um að sann- færa ráðamenn í hernum um þá að velja milli? kosti, sem fylgi því, að dregið sé úr vfgbúnaðarkapphlaupinu, er hann f rauninni að biðja Brezhnev um að binda enda á valdabaráttuna við Gretsko, sem staðið hefur nú í nokkur ár. Sú barátta snýst um mótun hernaðar- stefnunnar. 1 staðinn hefur Kissinger tekið að sér að berjast svipaðri baráttu við Schlesinger, og — ef þörf krefur, við Nixon sjálfan. Þetta er ljóst af þeim orðum, sem hann lét falla skömmu fyrir fund æðstu manna risaveldanna, þess efnis, að ef ágreiningur væri á milli æðstu embættismanna for- setans, „þá væri það skylda hans að halda áfram í þá stefnu, sem hann teldi vera landi og þjóð til mestra heilla. Hann yrði að taka tillit til skoðana allra helztu ráð- gjafa sinna, en jafnframt að velja og hafna, ef nauðsyn krefði...“ Það væri skylda forsetans að skera úr ágreiningsmálum, „ sem Eftir Victor Zorza ég efast ekki um, að hann muni gera“. Hann reyndi ekki að hafa áhrif á Nixon — ekki enn, en hins vegar benti hann honum á, að sá tími gæti komið, er hann yrði að velja á milli stefnu Schlesingers í varnarmálum og stefnu Kissingers f utanríkismálum. Til þess að Nixon þyrfti ekki að hafa það á tilfinningunni, að hann yrði að svfkjast undan skyldu sinni, benti Kissinger á, að hann yrði að gera sér grein fyrir því, að „í núverandi ástandi“, er óhjá- kvæmilegt að taka grundvallar- atriði til umræðu. „Núverandi ástand“ á ekki aðeins við um umræður um varnarmál, heldur einnig um Watergate. Sérfræðingar Sovét- stjórnarinnar í bandarískum mál- efnum rannsaka ræður Kissing- ers mjög nákvæmlega á sama hátt og bandarfskir sérfræðingar í sovézkum málefnum rannsaka yfirlýsingar sovézkra ráðamanna. Athugasemd Kissingers gætu þeir skilið sem svo, að á blaðamanna fundinum í lok Moskvufundarins hafi hann einmitt verið að gefa Nixon kost á að velja samkvæmt þeim frumdrögum, sem hann hafði áður lagt fram. Ef Kissinger gerði alvöru úr fyrri hótunum sfnum um að segja af sér vegna þeirra ásakana, að hann ætti hlut að sfmahlerunum, myndi hann skaða Nixon meira en nokkurn annan. Án Kissingers gæti Nixon ekki haldið því fram með sannfæringarkrafti, að hann yrði að halda völdum til þess að ljúka „uppbyggingu friðarins". Gerald Ford varaforseti hefur hins vegar lýst því yfir, að ef hann kæmist til valda myndi hann halda Kissinger, en láta Schlesinger vfkja. Ford hefur valið, en Nixon á það enn eftir. Sovézkur sérfi-æðingur, sem reyndi að gera sér grein fyrir því, hvaða stefnu Nixon tæki, gæti vel komizt að þeirri niðurstöðu, að forsetinn hefði enga völ, afsögn eða brottvikning annaðhvort Kiss- ingers eða Schlesingers myndi verða stjórn hans að falli. Sovézkir ráðamenn draga enga dul á þá skoðun sína, að Schles- inger sé valdur að því, að Banda- rfkjamenn eru ekki ennþá lausir við ýmiskonar kalda stríðs til- hneigingar. Sovézk blöð segja, að Schlesinger krefjist þess, að Bandarfkjamenn reyni að við- halda yfirburðum, sem Kissinger hefur þegar afneitað. Sovézkir ráðamenn eru þvf þeirrar skoðunar, að ef Schlesinger sitji í embætti til loka kjörtímabils Nixons, muni það verða til þess að koma í veg fyrir frekari árangur af viðræðunum um samdrátt og afvopnun. Sovézkir ráðamenn gætu einnig dregið þá ályktun af þessum athugunum, að jafnvel þótt Nixon héldist f embætti yrði hann f of veikri stjórnmálalegri aðstöðu til þess að semja við þá um til- slakanir. En án gagnkvæmra til- slakana, án þess að herforingjar beggja aðila séu neyddir til þess að draga úr vfgbúnaði, eins og Kissinger krefst, mun ekki verða samiö um samdrátt og fækkun f herjum risaveldanna. En sé Nixon ófær um að komast að samkomulagi við Sovétstjórn- ina, þá er engin ástæða til þess að ætla að sovézkir ráðamenn muni fylgja því ráði, sem Kissinger gaf Brezhnev, að útkljá valdabar- áttuna við Gretsko. Því skyldu Sovétmenn hætta á deilur innan flokksforystunnar, ef rfkisstjórn Nixons hyggst viðhalda hernaðar- Iegum „yfirburðum" hvort sem er? Talsmenn stjórnvalda kalla þetta „jöfnuð“, en þannig lítur Gretsko ekki á málið, — eins og yfirlýsingar hans leiða menn f allan sannleika um. Þýð: J.Þ.Þ.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.