Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 22

Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULÍ 1974 KR-ingar þokast af hætt usvæðinu eftir 3:1 sigur yfir Víkingum Baldvin Elfasson innsiglar KR-sigurinn, eftir misheppnaða send- ingu Páls Björgvinssonar til önundar markvarðar. — Ég hef mætt á eina æfingu og auk þess leikið með 1. flokki, sagði Ólafur Lárusson — leik- maðurinn, sem kom, sá og sigraði f leik Vfkings og KR á Laugar- dalsvellinum á föstudagskvöldið. Sjálfsagt hefur það verið neyðar- ráðstöfun hjá Tony Knapp þjálfara KR-inga að tefla Ólafi fram f þessum leik, en KR-ingar hafa ekki alltof miklum mann- skap yfir að ráða og margir þeirra, sem skipað hafa aðallið liðsins f sumar, eru á sjúkralista, m.a. Jóhann Torfason, hinn fljóti og skæði sóknarleikmaður liðs- ins. Ólafur Lárusson tók stöðu hans á vellinum og var einkum ætlað að berjast og reyna að skapa félaga sfnum Atla Þór Héðinssyni færi. Það eru fráleitt meðmæli með íslenzkri knattspyrnu, að æfinga- laus maður geti gengið inn I lið og auk þess sýnt jafnmikið og Ólafur gerði í þessum leik. En þetta segir bara ekki alla söguna. Ólafur sýndi í þessum leik, hversu mikið baráttuþrek og kjarkur hafa að segja. — Ég fór þetta bara á skap- inu, sagði hann — og voru það að verulegu leyti orð að sönnu. Og víst er, að Ólafur hafði alls ekki úthald í allan leikinn, enda hafði hann sjálfur vit á því að óska eftir því að verða skipt útaf í seinni- hálfleik, þegar hann fann að þátt- ur hans í þessum leik var búinn. Var Ólafi klappað lof í lófa, er hann yfirgaf völlinn. KR-sigurinn, 3:1, setur Víking í alvarlega fallhættu. Liðið hefur nú aðeins 7 stig og er eitt yfirgef- ið á botni 1. deildar — nokkuð, sem fæstir áttu von á eftir fyrstu umferðir Islandsmótsins. Enn eru margir leikir eftir í mótinu og ástandið ætti því ekki að vera svo mjög alvarlegt fyrir Víking ef ekki væri greinilega komið upp sama ástand innan liðsins og sfð- ast, er það lék í fyrstu deild. Leik- mennirnir hafa ekki trú á sjálfum sér og brotna greinilega við mót- læti. — Víkingar þurfa ekki síður á sálfræðingi en þjálfara að halda, sagði einhver eftir leikinn á föstudagskvöldið og er örugg- lega nokkuð til í þvf. Víst er, að Víkingarnir verða að brjóta af sér Texti: Steinar J. Lúðvfksson. Myndir: Ragnar Axelsson. það andlega helsi, sem liðið virð- ist nú vera að komast í að nýju. Leikmennirnir sjálfir verða að hafa trú á sjálfum sér og því, að þeir geti unnið leiki, annars er voðinn vís. Leikurinn á föstudagskvöldið bauð upp á nokkra skemmtilega leikkafla. Bæði liðin reyndu að byggja skipulega upp sóknir sfn- ar, en oft var nákvæmninni ekki fyrir að fara og sendingarnar fóru annað en ætlað var. Mörk beggja liðanna komust nokkrum sinnum í verulega hættu, en tækifærin nýttust illa. Þá virtist leikmönn- um ganga illa að fóta sig á hálum vellinum, einkum þó Víkingum, sem fengu marga magalending- una f leiknum. Nokkurs taugaóstyrks gætti hjá leikmönnum beggja liða í upphafi leiksins, sem var einna daufasti kaflinn. Var það ekki fyrr en á 22. mínútu sem vert var að punkta hjá sér atvik, er gerðust, en þá kom líka mark. Víkingarnir sóttu upp miðjuna og föst sending kom inn í markteig KR-inga, þar sem Ólafur Ólafsson var fyrir. Af hreinum klaufaskap slæmdi hann hendi í knöttinn og ekki var um annað að gera fyrir dómara leiks- ins en benda á vítapunktinn. Hafliði Pétursson tók vftaspyrn- una og skoraði með föstu skoti. Magnús Guðmundsson KR-mark vörður var þó ekki langt frá því að verja þetta skot, en hann var snöggur niður og kom hendi á knöttinn. Eftir mark þetta lifnaði veru- lega yfir leiknum, og þá fyrst og fremst Víkingum, sem eygðu nú möguleika. Voru þeir öllu betri aðilinn í fyrri hálfleik, en KR- vörnin með þá Ottó Guðmundsson og Árna Indriðason í fararbroddi stóð sig hins vegar mjög vel og stöðvaði hverja sóknina af ann- arri. Ef knötturinn náði svo að KR-markinu varði Magnús Guð- mundsson af öryggi. Og fyrir hlé höfðu KR-ingar jafnað. Dæmd var aukaspyrna á Vfkinga. Gunnar Gunnarsson tók hana og átti góða sendingu inn að Víkingsmarkinu, þar sem Ólafur Lárusson tók á móti knettinum og skallaði í netið hjá Vfkingi 1:1. I seinni hálfleik kom það svo greinilega fram, að Víkingarnir höfðu verulega misst móðinn við þetta jöfnunarmark. KR-ingar náðu öllum tökum á miðju vallar ins og léku Víkingana þar oft grátt. Auk þess voru bakverðir Víkings óvenjulega slappir í þessum leik og sú ráðstöfun þjálf- arans að senda Eirík Þorsteinsson fram, greinilega misheppnuð. Fjarvera Eiríks úr vörninni myndaði þar oft stórar glompur og setti aðra varnarleikmenn liðs- ins oft í hreinustu vandræði. Annað mark KR, sem kom á 6. mfnútu seinni hálfleiks, kom þannig fyrst og fremst fyrir varnarmistök Víkinga. Barizt var um knöttinn inni í markteig Vík- inga, og voru þar jafnmargir KR- leikmenn og Víkingar. Atli Þór náði að skalla knöttinn til Ólafs Lárussonar, sem var mjög illa gætt og átti auðvelt með að senda knöttinn með föstu skoti i markið. Með meiri ákveðni hefði Ögmund- ur Víkingsmarkvörður átt að ná knettinum áður en Atli skallaði, en ögmundur var nánast áhorf- andi að því, sem fram fór. Og á 19. mfnútu hálfleiksins bættu KR-ingar svo um betur og innsigluðu sigur sinn. Það mark verður að skrifast að jöfnu á Pál Björgvinsson og ögmund Kristinsson. Páll ætlaði sér að senda á ögmund, en spyrna hans var of laus og Baldvin Elíasson náði henni og sendi knöttinn í markið. ögmundur átti alla mögu- leika á að bjarga þessu marki með því að hlaupa út á móti sendingu Páls, en þess í stað stóð hann hinn rólegasti í markinu og beið þess, sem verða vildi. Þetta atvik voru nær einu mis- tökin, sem Páll Björgvinsson gerði í þessum leik, en hann var áberandi bezti leikmaður Víkings í leiknum og barðist af míklum krafti og dugnaði. Ösjaldan náði hann að stöðva sóknir KR-inga, þótt litla aðstoð fengi hann frá félögum sfnum og jafnan reyndi Páll að byggja upp fyrir félaga sína í framlínunni. Páll hefur átt góða leiki með Víkingsliðinu í sumar og verðskuldaði vissulega að fá tækifæri með landsliðinu. Aðrir leikmenn Víkings en Páll voru tæpast umtalsverðir — helzt þó Gunnar Gunnarsson. Sú ráð- stöfun Sanders þjálfara að setja Diðrik Ólafsson aðalmarkvörð liðsins á varamannabekkinn var mjög hæpin. Víkingum veitir sannarlega ekki af öllu sínu. Sem fyrr í sumar var baráttan aðalsmerki KR-inga, en f heild náði liðið góðum leik og var, er á leið mun betri aðilinn í leiknum. Vörnin var mjög traust og ákveðin og í framlínunni áttu leikmennirnir góða spretti. Atli Þór ógnaði stöðugt með sprettum sínum sem fyrr, Hálfdán örlygs- son vakti athygli fyrir vandaðar sendingar sínar, en hið sama má reyndar segja um flesta þá pilta, sem leika nú með 1. deildar liðun- um og hafa áður verið í unglinga- landsliðinu. Er naumast tilviljun, að þessir piltar eru yfir höfuð vandvirkir og liprir. Þá var þáttur Ólafs Lárussonar í leiknum ekki svo lítill og sjaldgæft, að knatt- spyrnumenn hér eigi svo árangursrfkt „come back“. 1 STUTTU MÁLI: Laugardalsvöllur 19. júlí íslandsmótið 1. deild Urslit: VÍKINGUR — KR 1:3 (1:1) Mark Vfkings: Hafliði Péturs- son (vítaspyrna) 22. mín. Mörk KR: Ólafur Lárusson á 40 mín. og 51. mín. og Baldvin Elías- son á 64. mín. Áminning: Engin Áhorfendur: 697 Dómari: Hinrik Lárusson. Hann dæmdi leikinn prýðilega, en virtist þó örlítið slaka á undir lokin. Úlafur Lárusson skorar seinna mark sitt f Ieiknum við Vfkinga. engu er Ifkara en önundur markvörður biðjist vægðar. ■>': ■■ 'y": -■* . Magnús Þorvaldsson og Jðn Ölafsson eru of seinir til varnar og ÓLAFUR KOM, SÁ OG SIGRAÐI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.