Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULÍ 1974
23
Ekki stöðvuðu
Eyjamenn sigur-
göngu ÍA-liðsins
Teitur Þórðarson lék nð með !A að nýju eftir meiðsli sem hann
varð fyrir f sumar. Þarna er hann kominn framhjá Þðrði og
Kristjáni, en Friðfinnur hefur ekki gefið upp alla von um að
stöðva þennan hættulega leikmann.
ÍA—ÍBV 2:1
AKURNESINGAR voru sterkari
aðilinn f leiknum gegn lBV á
Akranesi á laugardaginn. Þeir
verðskulduðu að sigra, sem þeir
og gerðu 2:1. Halda þeir þvf enn
tveggja stiga forystu sinni f 1.
deildinni, eru komnir með 16 stig
og hafa ekki tapað leik til þessa.
Keflvfkingar eru f öðru sæti með
14 stig og mætast þessi lið f Kefla-
vfk um næstu helgi.
Þó svo að hér að ofan segi, að
Akurnesingar hafi verið sterkari
aðilinn í leiknum á laugardaginn
geta þeir eigi að síður þakkað
dómara leiksins fyrir, að ekki var
dæmd á þá vítaspyrna eða spyrn-
ur í fyrri hálfleiknum. Fyrst
slæmdi Benedikt hendi til
knattarins við hliðarlínu vfta-
teigsins og síðan brá Björn Lárus-
son Erni Óskarssyni við markteig-
inn, en f hvorugt skiptið sá Ragn-
ar Magnússon, annars ágætur
dómari leiksins, ástæðu til að
blása í lúðurinn.
örn meiddist illa, er Björn
braut á honum og varð hann að
yfirgefa völlinn. Lamaði það
nokkuð framlínu Vestmanney-
inga og er ekki gott að segja,
hvernig farið hefði ef Arnar
hefði notið við allan leikinn.
Vestmanneyingar léku á undan
sterkum hliðarvindi í fyrri hálf-
leik, samt sem áður voru Skaga-
menn sterkari aðilinn fyrstu
mínúturnar. Eyjamenn náðu þó
smátt og smátt tökum á leiknum
og höfðu undirtökin fram að leik-
hléi. t síðari hálfleiknum snerist
dæmið svo alveg við og nú réðu
Skagamenn leiknum og skoruðu
þá þau tvö mörk, sem tryggðu
þeim sigur. Leikurinn var mjög
góður, hraði og samleikur höfðu
vinninginn fram yfir langspyrn-
urnar.
Litlu munaði að Eyjamenn
skoruðu fyrsta mark leiksins á 29.
mínútu. Kristján Sigurgeirsson
átti þá gott skot frá vftateig, bolt-
inn smaug á milli varnarmanna
IA. Skotið var þó nokkrum milli-
metrum of hátt og lenti í þver-
slánni, hrökk þaðan út í vítateig-
inn og hættunni var bægt frá. —
Ég var búinn að bóka skotið inni,
sagði Kristján eftir leikinn, ljóta
óheppnin.
Fimm mínútum síðar kom svo
Texti og myndir:
Agúst I. Jónsson.
að því, að IBV tæki forystuna í
leiknum. Friðfinnur gaf langa
sendingu fram völlinn. Tómas
þóttist ætla að taka knöttinn, en
lét hann síðan halda áfram til
Arnar Öskarssonar. Jón
Gunnlaugsson áttaði sig ekki fyrr
en of seint á þessu bragði Tómas-
ar og örn hafði nægan tíma til að
Ieika inn í vítateig ÍA og framhjá
Davíð, sem kom hlaupandi út úr
markinu. Sfðan var ekki erfitt
fyrir örn að senda knöttinn í
mannlaust markið.
Litlu síðar varð örn að yfirgefa
völlinn vegna meiðslanna, sem áð-
ur er getið, og við það minnkaði
krafturinn í framlínu Eyja-
manna.
Á 13. mínútu síðari hálfleiksins
skoruðu Skagamenn fyrra mark
sitt og var Teitur Þórðarson þar
að verki. Hann lék nú að nýju
með Skagaliðinu og virðist alveg
vera búinn að ná sér eftir meiðsl-
in, þarf ekki að spyrja að því hver
styrkur hann er fyrir liðið. Karl
Þórðarson átti mestan heiðurinn
af markinu. Hann lék sig laglega í
gegn á hægri kantinum og sendi
síðan fyrir markið. Þar var
Matthías vel staðsettur og skallaði
á ný fyrir mark Eyjamanna, Teit-
ur kom að á fullri ferð og nikkaði
knettinum í netið af stuttu færi.
Ársæll var ekki vel á verði, hann
hefði án erfiðleika átt að geta náð
fyrirgjöfunum.
Skagamenn sóttu áfram næstu
mfnúturnar, en náðu ekki að
skapa sér veruleg marktækifæri.
Á 32. mínútu leiksins skoraði Jón
Alfreðsson annað mark þeirra og
annað mark sitt í Islandsmótinu.
Karl framkvæmdi hornspyrnu,
Jón Gunnlaugsson lagði knöttinn
fyrir fætur Matthíasar, sem skaut
föstu skoti að markinu. Ársæll
varði, en hélt ekki knettinum,
sem hrökk út í teiginn fyrir fætur
Jóns Alfreðssonar, sem skoraði
auðveldlega með skoti af tveggja
metra færi.
Ekki var mikið um tækifæri,
það sem eftir var leiksins og hvor-
ugu liðinu tókst að skora fleiri
mörk.
Lið Akurnesinga var mjög jafnt
að þessu sinni, en þó létu að vfsu
þeir sömu og f undanförnum
leikjum mest að sér kveða.
Jónarnir Gunnlaugsson og
Alfreðsson bregðast aldrei.
Matthias drjúgur, Karl nákvæm-
ur í hverju, sem hann gerir.
Þröstur traustur og Teitur hættu-
legur hverri vörn.
Það var skarð fyrir skildi hjá
Vestmannaeyingum eftir að örn
fór út af, fæstir geta fyllt skarð
þessa fljóta leikmanns. Óskar
barðist vel, Kristján átti góð-
ar sendingar, Snorri duglegur og
Ólafur lék að nýju með eftir
meiðsli, sem hafa haldið honum
frá sfðustu leikjum. Friðfinnur og
Þórður komust báðir þokkalega
frá leiknum, en yngstu mennirnir
í liðinu hafa oft gert betur.
1 stuttu máli:
Islandsmótið 1. deild, Akranes-
völlur 20. júlí.
IA — ÍBV 2:1 (0:1)
Mörk IA: Teitur Þórðarson á 58.
mfnútu og Jón Alfreðsson á 77.
mfnútu.
Mark ÍBV: örn Öskarsson á 34.
mínútu.
Aminning: Einari Friðþjófssyni
var sýnt gula spjaldið fyrir að
mótmæla dómara leiksins.
Dómari: Áður er minnzt á
frammistöðu Ragnars Magnús-
sonar.
FOTBOLTA-
SKÓR
10 GERÐIR
VERÐ FRA
KR. 1.980,-
Póstsendum.
Skagamenn hafa oft fengið tækifæri til að fagna mörkum f sumar, svo sem þeir gera eftir að Jón
Alfreðsson (nr. 8) skoraði gegn Vestmannaeyingum. Þeir sem fagna Jóni eru Teitur, Matthfas,
Hörður, Haraldur, Benedikt, Jón Gunnlaugsson og Karl Þórðarsson.
Norðfjarðar-Þróttur
vann Leikni örugglega
Norðfjarðar-Þróttur sigraði
örugglega í leiknum gegn Leikni f
þriðju deild á laugardaginn og
þar með öðlaðist liðið rétt til að
taka þátt í úrslitakeppni þriðju
deildar á haust. Leikurinn, sem
var hreinn úrslitaleikur í h-riðli,
var hinn lfflegasti og alls skoruð í
honum 7 mörk. Þróttur gerði 5
þeirra, en Leiknir 2. Fyrri leik
þessara liða lauk með jafntefli og
var sú viðureign hin sögulegasta.
Einum leikmanna Leiknis var
vfsað af leikvelli eftir að hafa lent
saman við dómara leiksins. Var
hann dæmdur í eins leiks bann,
en viðkomandi dómara, sem
er frá Norðfirði, fannst dómur-
inn vægur og standa yfir blaða-
skrif og ýmsar væringar milli
þessara aðila.
Austri frá Eskifirði lék sinn
síðasta leik f g-riðli þriðju deildar
á laugardaginn. Mætti liðið þá
Einherja frá Vopnafirði og
sigruðu Eskfirðingar með 5
mörkum gegn 3. Náði Austri þvf
fullu húsi stiga i g-riðlinum og
tekur þátt í úrslitakeppninni.
PUNIA
FH-ingar sneru dæminu við
Það var með blöndnum hug
að leikmenn FH gengu til leiks-
ins gegn Völsungum á Húsavfk
á Iaugardaginn. Flestir leik-
manna Hafnarfjarðarliðsins
voru minnugir þess, að fyrir ári
töpuðu þeir iililega fyrir Hús-
vfkingum á þessum velli. Ur-
slitin þá urðu 1:5 og að tapa
gegn Völsungi þýddi, að
draumurinn um sigur f 2. deild
minnkaði verulega.
FH-ingar létu þó söguna ekki
endurtaka sig heldur sneru
þeir dæminu við og unnu 3:1. I
leikhléi var staðan 1:1. Janus
Guðlaugsson fyrirliði unglinga-
landsliðsins átti stórleik með
FH-Iiðinu að þessu sinni. Skor-
aði tvö mörk og var potturinn
og pannan f uppbyggingunni á
miðjunni.
Ekki var langt liðið á leikinn
þegar fyrsta markið var orðið
að veruleika. Helgi Ragnarsson
skoraði fyrir FH eftir gott upp-
hlaup. Völsungarnir áttu þó
einnig sfn tækifæri og ekki
minna f leiknum. Um miðjan
fyrri hálfleikinn skoraði svo
Hermann Jónsson fyrir heima-
menn og eftir það náðu Vöis-
ungar öllum tökum á leiknum.
FH-liðið virtist alveg brotna og
var heppið að fá ekki á sig
fleiri mörk fyrir leikhlé.
Þjálfari FH-Iiðsins hefur
örugglega skammað sfna menn
duglega f leikhléi, þvf er þeir
mættu til leiks á ný var sem allt
annað lið kæmi inn á völlinn.
FH-ingar náðu tökum á leikn-
um og Janus gerði tvö ágæt
mörk, sem tryggðu liði hans
sigur og þar með áframhald-
andi sigurgöngu f 2. deild.
A föstudaginn mæta FH-
ingar höfuðandstæðingum
sfnum, Haukum. Sfðast þegar
liðin mættust unnu Haukarnir
og þeir eru til alls Ifklegir um
þessar mundir. Fari svo, að FH
vinni þann leík blasir sigurinn
f 2. deild við þeim, þó að þeir
eigi eftir að mæta Þrótti á
Þróttarvelli f lok ágúst.