Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 29

Morgunblaðið - 23.07.1974, Side 29
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLI 1974 29 — Loftur Bjamason Framhald af bls. 12 að á hann hlóðust fjölmörg trúnaðarstörf á ýmsum sviðum, því að hann lagði víða gjörva hönd á plóginn. Svipmestu störf hans voru á sviði útgerðarmála, þar sem hann stóð að umfangs- miklum atvinnurekstri og tókst honum flestum betur að stýra málum fyrirtækja sinna áfalla- lítið f gegnum þrengingar, sem gengu oft nærri ýmsum öðrum. Naut hann þar frábærrar út- sjónarsemi sinnar svo og þess, að til hans valdist traust, dugmikið og samhent starfsfólk. Loftur var traustur stuðnings- maður Sjálfstæðisflokksins alla tíð. Hann átti sæti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar frá 1934 — 1950. Hann var um árabil i hafnar- nefnd, enda var hann mikill baráttumaður fyrir byggingu hafnarinnar. Hann gegndi ýmsum trúnaðarstörfum innan Sjálf- stæðisflokksins og varávalltstyrk- ur og góður félagi, sem leysti sín störf af réttsýni og alúð. Kirkju sina, Fríkirkjuna, studdi Loftur með ráðum og dáð og sæti átti hann í bygginganefnd Hallgrímskirkju í Sauðbæ á Hval- fjarðarströnd og vann þar af sín- um alkunna dugnaði. Sýndi hann þannig í verki hug sinn til kirkju og kristindóms. Loftur var fæddur 30. apríl 1898 á Bfldudal, sonur hjónanna Gíslínu Þórðardóttur og Bjarna Loftssonar kaupmanns. Hann fluttist til Hafnarfjarðar árið 1926 og bjó þar 'síðan. Hann kvongaðist 11. maí 1939 Sólveigu Sveinbjarnardóttur kaupmanns á ísafirði, sem er traust, heilsteypt og góð kona. Þannig er og með börnin þeirra tvö, þau hafa reynzt ábyggileg og heiðarleg í starfi sinu og lífi. Við kveðjum með þökk mikil- hæfan mann. Mann, sem búinn var þeim kostum, er haldbeztir reynast í lífi og starfi hvers manns og gera okkur minninguna um góðan dreng svo sanna og bjarta. Samúðarkveðjur flytjum við aðstandendum öllum. Páll V. Danfelsson. Loftur Bjarnason er dáinn. Þar er genginn góður drengur, maður sannur og þjóðhollur. Hann var athafnamaður i þess orðs beztu merkingu og viðfangsefnin voru við sjávarsfðuna og á útflutnings- mörkuðum okkar. Það var jafnan svo, að fyrirhyggja einkenndi störf hans og þeim fylgdi gifta. Ég man Loft Bjarnason frá barnsaldri, en kynntist honum fyrst planmaður í hvalveiðistöð- inni í Hvalfirði. Hann var sá, sem allir litu þar til. I honum bjó sál stöðvarinnar, — þeim manni, sem tók við henni á úrslitastundu og gerði að svo góðu fyrirtæki, að til er jafnað síðan um heilbrigðan rekstur. Loftur Bjarnason átti traust starfsmanna sinna og vináttu. Hann gerði kröfur, en ekki um of; reyndist Ifka haukur í horni, ef á reyndi. Þegar við átti, lék hann á als oddi. Persónulegur og húmor- ískur frásagnarstill hans, hlýjan og framkoma öll lyftu slíkum stundum upp úr gráum hvers- dagsleikanum. Ég á Lofti Bjarnasyni margt að þakka, sem rifjast upp, þegar ég skrifa þessar lfnur. Það er ungl- ingi hollt að kynnast slfkum manni og fá hjá honum margvfs- legt veganesti. Og svo var það jafnan, er við hittumst, að ég var þiggjandinn, en hann veitandinn. Þannig stendur hann mér fyrir hugskotssjónum. Honum mun ég aldrei gleyma. Ég bið fjölskyldu Lofts Bjarna- sonar guðs blessunar. Hugur gam- alla hvalmanna mun dveljast hjá henni f dag. Halldór Blöndal. Um þær mundir, ér Loftur Bjarnason var kjörinn formaður Félags ísl. botnvörpuskipa- eigenda síðla árs 1959 hóf ég störf hjá félaginu, hálfpartinn til bráðabirgða f fyrstu, en festist þó fljótt þar í sessi. Loftur var þá 61 árs að aldri, en ég 34 ára. Aldurs- og þroskamunur var því æði mikill, en útlitsmunur þó miklu minni, þvf að Loftur Bjarnason var ætfð með ólfkindum unglegur á velli og f fasi. Þessi aldursmun- ur olli þó ekki erfiðleikum í sam- starfi og virtist verða æ minni eftir því sem árin liðu og kynnin jukust, enda var Lofti einkar lagið að umgangast sér yngri menn eins og raunar hvern sæmi- legan mann, á hvaða aldri sem var. Það er vandasamt, svo að engu skeiki, og raunar alltof langt mál að ætla að lýsa hinum miklu eðlis- kostum Lofts Bjarnasonar sem samstarfsmanns, húsbónda og forustumanns. Hann var afar samvizkusamur við rækslu trúnaðarstarfa, fylgdist með hverju viðviki án þess þó að vera smásmugulegur. Honum var mjög sýnt um að sýna samstarfsmönn- um sínum traust, fela þeim að rækja störf, mikilvæg sem létt- væg, en sjálfsagt þótti að láta hann yfirfara verk áður en þeim yrði fulllokið og frá sér skilað. Þá kom frá afburðaskýrleiki hans, nákvæmni og vandvirkni svo að engu mátti skeika og heimildir urðu að vera öruggar og traustar. I þessum efnum var hann mér einhver mesti kennari og leið- beinandi, sem ég hefi nokkurn tíma kynnzt, og fæ honum það aldrei fullþakkað. Og ég efast ekki um, að þessara eðliskosta hafi notið ekki aðeins í öllum félagsmálastörfum hans heldur og I rekstri fyrirtækja hans. Ég hefi umgengizt æðimarga menn, sem áttu viðskipti og önnur samskipti við Loft Bjarnason. Það er áreiðanlega mjög fágæt reynsla, að ég hitti aldrei nokkurn mann, sem efaðist um hreinskilni hans, drenglyndi og heiðarleik í viðskiptum eða öðr- um samskiptum. Sérhver maður gat óhikað lagt málefni sín honum í hendur án neins konar skriflegr- ar vottunar eða viðurkenningar. Loftur Bjarnason var maður góðgjarn og glaðvær; hann kom á skrifstofu F. I. B. hvern dag, að ég held, er hann gat því við komið. Með honum kom ætíð mikill glað- værðargustur, en þó bjó ævinlega mikil alvara að baki, alvara dags- annarinnar og þeirra verka, sem sinna þurfti. Hann var undir niðri kröfuharður, en breiddi þó yfir blæju hlýleika og vinarþels svo að þessi kröfuharka gat ekki orkað þrúgandi á mann. Kom þetta líka glöggt fram í því, að jafnan sýndi hann umburðarlyndi og þolgæði, er eins hefði mátt vænta atyrða og áminninga. Mér hlotnaðist það stundum að vinna Lofti Bjarnasyni smávegis utan venjulegra starfa minna. Þetta vildi hann ævinlega launa og varð ekki undan komizt. Gerði hann það á stórmannlegan hátt svo að alltaf þótti mér langtum of. En ávallt rétti hann slíkt fram sem þakklæti fyrir að hafa létt af sér starfi og amstri, ekki sem kaup. Þess vegna var við tekið með þakklæti, en ekki feimni og undanslætti. Rausn hans get ég aldrei fullþakkað og á þess vart kost héðan af. Mér er ekki grun- laust, að mjög margir eigi sams konar minningar, þótt hljótt fari. Loftur Bjarnason var í öllu sínu lífi og starfi hinn mesti höfðingi í þess orðs beztu merkingu. Hann er einn tveggja eða þriggja manna óvandabundinna, sem ég mun ævinlega mest sakna. Mér er mjög ljúft að verða við þeirri beiðni að flytja Lofti Bjarnasyni nú að leiðarlokum alúðarþakkir og kveðjur stjórnar og félagsmanna Félags íslenzkra botnvörpuskipaeigenda. Ég hygg, að allir, sem með honum störfuðu í félaginu, hafi fundið til vináttu- kenndar í hans garð og sumir orðið aldarvinir hans, auk þess sem allir mátu milils alla þá fórn- fýsi, hollustu og trúnað, er hann lagði í starfi sitt f þágu félagsins og togaraútgerðarinnar. Á því sviði sem öðrum var hann sómi síns félags og samverkamanna, faðir þeirra og bróðir 1 senn. öll- um er okkur áreiðanlega um megn að líta yfir þessi liðnu erfið- leikaár I togaraútgerðinni — því að við erfiðleika var að stríða flestöll formennskuár Lofts — án þess að sjá skýrt svip hans og mynd í forustuhlutverkinu. Ég rifja aðeins upp að lokum um- mæli Valdimars Indriðasonar nú- verandi formanns F. I. B., er hann tók við formennsku af Lofti sl. haust og þakkaði honum frábær störf í þágu félagsins, þess efnis, að hann óskaði og vonaði , að þótt Loftur léti nú af formennsku í félaginu mætti hann og aðrir félagsmenn eftir sem áður njóta hollráða hans enn um langt skeið, þegar mikið lægi við. Slíkt var mælt sem af munni allra félags- manna, en stóð of skammt. Við vottum Sólveigu konu Lofts, börnum hans, tengdasyni og dótturbörnum svo og öðrum vandamönnum djúpa samúð. Guð fylgi þeim og blessi minningu hans. Ingimar Einarsson. Við fráfall Lofts Bjarnasonar hafa útvegsmenn misst einn sinnn mikilhæfasta og virtasta starfsfélaga. Loftur átti að baki óvenjulega farsælt starf sem út- gerðarmaður, fiskverkandi og for- stöðumaður Hvals h.f. Þrátt fyrir mjög erilsamt ævi- starf var hann mikilvirkur þátt- takandi í félagsstarfi samtaka út- vegsmanna. Hann átti sæti í stjórn Landssambands ísl. útvegs- manna frá árinu 1944-1973, en hann dró sig í hlé fyrir aldurs- sakir, er hann var orðinn 75 ára að aldri. Hann var varaformaður L.I.U frá árinu 1947-1973. Ég stend persónulega í mikilli þakkarskuld við Loft Bjarnason, en hann féllst á að vera áfram varaformaður L.I.U., er ég tók við starfi formanns I þeim samtökum árið 1970. Fyrir ungan mann, sem ekki hafði hálfan aldur Lofts, var það ómetanlegt að geta leitað til og þegið holl ráð frá manni eins og honum. Fyrir það færi ég honum mínar beztu þakkir. Auk félagsstarfa f L.I.U. var Loftur I stjórn Félags ísl. botn- vörpuskipaeigenda frá árinu 1948-1973 og formaður þess frá 1959. Ljóst er að þau störf hafa verið tímafrek og erfið vegna þeirra erfiðleika, sem togaraút- gerðin hefur lengst af búið við. Ég ætla ekki að rekja starfsferil Lofts að öðru leyti, því að það mun verða gert af öðrum. Mig langar hins vegar til að geta lítil- lega mannsins sjálfs. Að mati allra, er höfðu aðstöðu til að kynnast Lofti Bjarnasyni, var hann litríkur persónuleiki. Hvort heldur hann var staddur á fundi, þar sem verið var að ræða erfið viðfangsefni eða 1 samkvæmi, gat hann ávallt séð björtu hliðarnar á öllum málum og hrifið menn með sér upp úr hversdagsleikanum. Hann hafði einstaklega góða lund og átti létt með að gera að gamni sínu. Loftur var um mörg undan- farin ár heimagangur á skrifstofu L.I.U. vegna starfa sinna fyrir samtökin og kynntist starfsfólkið honum þvf vel. Hans verður mikið saknað af því og þá ekki sízt fyrir þann ferska anda, sem ávallt fylgdi Lofti, er hann kom I heim- sókn. Ég færi frú Sólveigu og börnum hennar, Kristjáni og Birnu, hug- heilar samúðarkveðjur útvegs- manna. Kristján Ragnarsson. Hafnarfjörður mun ævinlega skipa veglegan sess I útgerðar- sögu tslands. Brautryðjendur sjávarútvegsins hafa hver á eftir öðrum komið til Hafnarfjarðar og valið sér starfsvettvang þar. Loftur Bjarnason útgerðarmað- ur, sem nú er látinn 76 ára að aldri var einn þeirra miklu at- hafnamanna sjávarútvegsins, sem til Hafnarfjarðar komu. Hér átti hann mikið og gæfuríkt starf og var með dugmestu athafnamönn- um Hafnfirðinga I hart nær hálfa öld. Þrátt fyrir umfangsmikil störf við fyrir tæki sín átti Loftur Bjarnason ævinlega stund til að sinna málefnum samborgara sinna svo og samstarfsmanna sinna I útgerðarmálum. Honum voru þvf falin þýðingarmikil trúnaðarstörf sem forystumanni útvegsmanna á tslandi og bæjar- fulltrúi I Hafnarfirði var hann kjörinn af hálfu sjálfstæðis- manna og gegndi fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir Hafn- firðinga. Víða lágu spor Lofts Bjarna- sonar. Hann var mikill trúmaður, óvenju kirkjurækinn og ótrauður stuðningsmaður kirkjunnar. Frí- kirkjan I Hafnarfirði og Saur- bæjarkirkja á Hvalfjarðarströnd sjá nú á bak miklum og einlægum velgerðarmanni. Hafnfirðingar kveðja I dag góðan dreng, heilsteyptan per- sónuleika, Loft Bjarnason. Þeir biðja honum Guðs blessunar og þakka honum samfylgdina og það mikla starf, sem hann hefur unn- ið Hafnarfirði og aldrei mun gleymast. Frú Sólveigu Sveinbjarnardótt- ur eiginkonu Lofts og fjölskyldu þeirra sendum við samúðar- kveðjur. Matthfas Á. Mathiesen. íslenzkir útgerðarmenn hafa löngum átt innan sinna raða marga mikilhæfa dugnaðar- og framkvæmdamenn. Hinir eru miklu færri, sem jafnhliða hafa staðið I fremstu röð félagsmála um áratugaskeið. Ekki aðeins I hagsmunasamtökum stéttar sinnar, heldur einnig stjórnmála- flokki og fjölmörgum öðrum félögum og samtökum. En yfir allt þetta komst Loftur Bjarnason á llfsferli sínum og reyndar miklu meira. Engu þessu verður hér lýst svo verðugt væri, enda ég ekki nógu kunnugur til þess. En mitt erindi er að flytja hinztu kveðjur frá þeim samtök- um, sem ég hefi leyfi til að tala fyrir, og frá mér persónulega. Einhver mun spyrja: Af hverju mundar stjórnarmaður I stærsta sjómannafélagi landsins penna sinn til að minnast framámanns og formanns þeirra samtaka, sem sjómenn hafa átt I harðvítugum deilum við um langt árabil? Og það á sama tíma, sem sú skoðun virðist eiga byr, að stétt megi ekki vinna með stétt, heldur beri ótímabærri baráttu að halda áfram hjá okkar fámennu þjóð, jafnvel vopnaðri, ef einræðishug- sjóninni verði náð fram með þvi. Ég veit, að ég svara þessari spurningu fyrir hönd fjölmargra stjórnarmanna I Sjómannafélagi Reykjavíkur og enn fleiri félags- manna á þann veg, að það sé gert m.a. vegna almennrar viður- kenningar á drenglyndi Lofts Bjarnasonar, sérstaks skilnings hans á vandamálum sjómanna og samtaka þeirra og þess, að orð hans voru alltaf jafnmetin skrif- legum samningum og stundum betur. Loftur kom við sögu annarra samtaka sjómanna, sem ekki fengust við kaup- og kjara- samninga, og á ég þar við „Sjómannadagssamtökin", en þessum samtökum var hann alla tíð mjög vinveittur. Hann tók við erlendum gestum á þeirra vegum og sjómannafélaganna einnig, veitti þeim höfðinglega og leysti út með gjöfum. Ekki verður þessa minnzt eða annars, sem hann lagði gott til, nema að minnast á margvfslega fyrirgreiðslu ásamt stórhöfðinglegri gjöf er hann færði til Barnaheimilis Sjómannadagsins að Hrauni i Grímsnesi, sem hann þó, eðli sínu samkvæmt, vildi helzt ekki, að minnzt yrði á, sem þó er gert nú. Persónuleg kynni okkar Lofts hófust ekki við samningaborðið, heldur á landsfundi Sjálfstæðis- flokksins, skömmu eftir að ég var kjörinn þingmaður Reykjvíkinga. Þá ræddum við um ýmis vanda- mál sjávarútvegsins, sem steðj- uðu að sem oftar, frekast þó um kjörorð okkar Sjálfstæðismanna, að stétt beri að vinna með stétt. Við áttum margar viðræður um þetta síðar, um þetta kjörorð og framkvæmd þess, — af fenginni reynslu beggja. Af þessum við- ræðum og annarri kynningu minni við Loft tel ég hann meðal þeirra atvinnurekenda, sem lengst hafa náð á skilningi þess, sem I framangreindu hugtaki fellst. Að slðustu vil ég nefna þann þáttinn f starfi hans, sem aldrei var opinber eða þakkaður, sízt af þeim, sem telja atvinnurekendur skömm okkar þjóðfélags. Þar á ég við stuðning hans og vináttu við námsmenn, sem framhalds- menntun stunda, við ráðningu á eigin skip og til fyrirtækis hans. Var þar jafnt um að ræða nem- endur I stýrimanna- og vélstjóra- skólum, en þó frekast I Háskóla tslands. Veit ég mörg dæmi þess, að fyrirgreiðsla hans átti sinn þátt I embættisprófi nokkurra þeirra ágætismanna, sem meðal okkar starfa I dag. Ösjaldan var ég milligöngumaður við Loft fyrir hönd þessara manna og nú síðast fyrir tveim til þrem vikum. Ösk minni og annarra um vinnu fyrir þennan eða hinn námsmanninn við hvalstöðina I Hvalfirði, sem yfir sumarið færði góðar og öruggar tekjur til þeirra sem þar unnu, svaraði Loftur oftast með spurningu á móti: „Er um efnis- og námsmann að ræða? Þarf hann á hjálp að halda?“ Eftir svari við þessum spurningum tók hann sínar ákvarðanir. I engu frekar en hér greinir tel ég að samúð, hjálpsemi og trú Lofts Bjarna- sonar á íslenzka æsku hafi betor komið fram. Ég held, að með hjálp sinni við þessi ungmenni hafi hann haft I huga slna eigi baráttu, er hann barðist til menntunar og manna- forráða, og þegar hann yfirgaf á sfnum tíma „öruggt" starf, vegna þess að hann trúði á íslenzkan sjávarútveg og þá möguleika, sem I honum voru búnir. Vera má, að Loftur hafi einnig haft þá trú, að sérhver þeirra fjölmörgu námsmanna, sem hann studdi beint og óbeint, mundi halda hátt á loft þeim kyndli, sem hann sjálfur ásamt öðrum athafnamönnum fjTri áratuga tendraði og hefu: lýst íslenzkri þjóð braut hagsældar og fram- fara. Ég veit, að mér leyfist fyrir hönd fjölmargra námsmanna, sem hjálpar hans hafa notið, fyrir hönd félaga minm I röðum sjó- manna, hafnfirskra og reyk- vískra, að flytja eiginkonu Lofts Bjarnasonar. frú Sólvpícm bjarnardóttur, börnum Þeirra hjóna og öðrum aðstandendum, okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Um leið blessum við minningu hafnfirska höfðingjans, sem nú er kvaddur. Pétur Sigurðsson. Loftur Bjarnason er látinn. Þar er genginn einn af litríkustu per- sónuleikum íslenzks athafnalífs. Hann var af vestfirzkum og borg- firzkum ættum, og stundaði sjómennsku sem ungur maður, en eins og alkunna er, komu margir af dugmestu sjómönnum okkar frá Vestfjörðum. Aðeins 28 ára hóf hann fisk- verkun og útgerð, og er ég kynntist honum fyrir um 25 ár- um, var hann þegar orðinn lands- kunnur athafnamaður, bæði sem togaraútgerðarmaður og sem einn af stofnendum og framkvæmda- stjóri hvalveiðifélagsins. Loftur naut ekki æðri mennt- unar á við það, sem nú gerist, en hann var sjálfmenntaður á svo mörgum sviðum, að það, ásamt dugnaði, stjórnsemi og heiðar- leika varð til þess, að hann var sjálfkjörinn I stjórn flestra félags- samtaka útvegsmanna. Persónuleiki Lofts var sérstak- ur. Honum gat mislíkað við undir- menn sfna, en aðfinnslur hans voru ekki skammir, heldur föður- legar aðfinnslur, en sá, sem þekkti Loft, vissi hvað hann meinti. Það var lán fyrir mig, ungan að árum og lítt reyndan, að kynnast manni sem Lofti og eiga með hon- um samfylgd I lffi og starfi. Við hjónin þökkum vináttu Lofts og hans fjölskyldu, sem við kunnum vel að meta. Mikil er sorgin nú hjá frú Sólveigu og börnunum Birnu og Kristjáni, en huggun er þó I því að eiga ljúfar minningar um góðan og ástrlkan eiginmann og föður, athafna- mann, sem aldrei mátti vamm sitt vita. Sigurður H. Egilsson. Æviskeið okkar mælist I árum, en þeir, sem eiga þvl láni að fagna, að æskufjörið endist þeim alla ævi, deyja ætíð ungir. Einn þeirra var Loftur Bjarnason. Honum var ljóst að hverju stefndi með heilsufarið, þar sem fundizt hafði illkynja sjúkdómur fyrir rösku ári, sem hefti hann þó ekki I athöfnum og störfum, enda persónuleiki og trúarstyrkur það mikill. Huggun er það harmi gegn, að slíkur maður fær að halda andlegri reisn til hinztu stundar. Framliald á bls. 31

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.