Morgunblaðið - 23.07.1974, Page 37

Morgunblaðið - 23.07.1974, Page 37
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULI 1974 BRUÐURIN SEIvi HVARF Eftir Mariu Lang Þýðandi: Jóhanna Kristjónsdóttir 8 Svona blíð og elskuleg stúlka. Eg kem til með að sakna hennar á skrifstofunni. Heldurðu að hún sé strokin? — Hún á að hafa farið inn I blómabúð . . . byrjaði Christer. En Sebastian greip æstur fram í fyrir honum: — O, þvættingur. Ekki datt mér í hug, að sérfræðingar legðu eyru við slíku. Símhringing kvað við inni í hús- inu og með ákveðnum feginleika hraðaði hann sér á brott. Christer hinkraði við, en þar sem forstjór- inn sýndi engin merki þess, að hann ætlaði að koma og taka upp þráðinn, þar sem frá hafði verið horfið, hélt hann áfram. Sjávarbakkar var stórt og veg- legt hús, sem stóð skammt frá flæðarmálinu. Húsið var allt hið myndarlegasta og hafði verið byggt fyrir mörgum áratugum. Þvf hafði alla tíð verið haldið mjög vel við. Eldgömul, há lindi- tré voru kringum húsið og drógu úr útsýninu niður að vatninu. Þegar faðir Anneli var á lffi, höfðu allir íbúar þorpsins litið á Sjávarbakka sem sitt annað heim- ili, og það var manna á milli aldrei kallað annað en „læknis- húsið.“ Ekkja hans hafði búið þar eftir lát hans og einnig eftir að hún giftist Egon Ström. Hann var viðfelldin og þægilegur maður, var í trjávörubransanum og dálít- ið yngri en kona hans. Hann var aðfluttur f Skógum, en hafði furðufljótt verið tekinn í samfé- lagið og sat nú í bæjarstjórninni. Christer var honum vel kunnugur og mat hann mikils — hann var í senn duglegur kaupsýslumaður og þægilegur í framkomu. Hann opnaði sjálfur fyrir hon- um, hár, kraftalegur maður, jakkalaus. Grásprengt hárið var dálítið úfið. Þegar hann sá, hver kominn var, ljómaði hann af feg- inleika og sagði: — Ert það þú. Hamingjan góða, hvað ég er glað- ur að sjá þig. Þú ert einmitt sá, sem við þurftum að hitta. Þú hef- ur sjálfsagt heyrt um alla þessa vitleysu? Christer kvað já við og gekk á eftir honum inn í stóra og smekk- lega stofu, þar sem eikarhúsgögn með grænu áklæði settu vorlegan svip á umhverfið. Gretel Ström brast í ofsafeng- inn grát, þegar hún kom auga á hann: — Ó, Christer, elsku bezti! Er þetta ekki alveg voðalegt. Elsku litla telpan mfn. Og klukkan fimm á vígslan að fara fram og hvað í ósköpunum eigum við að gera við alla gestina? Hvar heldurðu, að hún geti eiginlega verið niður- komin? Gretel var hálfsextug, lávaxin og feitlagin. Hún var ljóshærð og fíngerð í andliti og hélt enn nokkru af þeim þokka, sem hafði heillað margan ungan manninn, þegar hún var yngri. En hún þótti aftur á móti ekki vaða í viti. Christer reyndi með litlum ár- angri að fá upplýsingar hjá henni. — Hún er bara horfin! Eins og jörðin hafi gleypt hana! Og við, sem ætluðum að setja niður í tösk- urnar hennar f gærkvöldi og strauja nærföt, og svo þurftum við að fara yfir gestalistann, það er að segja þau Jóakim ætluðu að gera það. Þú veizt hvernig þetta er, það verða alltaf einhverjar breytingar á sfðustu stundu — einhver, sem ekki getur komið og annar, sem kemur á síðustu stundu, og nú vona ég sannarlega að ekkert breytist meira í dag ... Hvorugur mannanna minnti hana á, að ef brúðurin sjálf mætti ekki til leiks, þyrfti varla að hafa áhyggjur af gestalistanum að öðru lejdi. Christer afþakkaði boð Egons um drykk og sagði: — Hve- nær sáuð þið hana síðast? Egon flýtti sér að svara. — Við morgunberðarborðið í gær. Hún átti að koma til sauma- konunnar um hádegið og fór héð- an nokkru áður. — Og var hún eins og hún átti að sér að vera? — Já, það held ég. Var það ekki? Egon var áfjáður í að kona hans samsinnti honum. — Ég var að spauga við hana, og sagði, að mér fyndist hún dálftið föl, en það er hún reyndar alltaf. Hún sagðist vera taugaóstyrk og eiginlega hefði hún frekar vilja íburðar- minna brúðkaup ... — Egon var á sömu skoðun. Gretel Ström setti dúkkulegan stút á munninn. — Og þó hefur ekkert á mætt á þeim í sambandi við undirbúning miðað við allt, sem ég hef orðið að gera. Anneli vildi ekki hætta á skrifstofunni hjá Petren fyrr en í síðustu lög og flest kvöld var hún úti með Jóa- kim, og auðvitað er ekkert við því að segja. Maður er svo sem ekki búin að gleyma, hvernig þetta var, þegar við vorum ung, en .. . Það var einkennandi fyrir Egon Ström að hann greip tækifærið jafnskjótt og kona hans þagnaði til að tala sjálfur. Kannski stafaði það í og með af því, að hann var hræddur um, að hún yrði sér til skammar eða athlægis með yfir- lýsingum sínum, sem ekki voru alltaf sérlega við hæfi. Hann var aldrei kuldalegur við hana, þvert á móti fannst mörgum hann ótrú- lega umbruðarlyndur við hina málgefnu eiginkonu sína. — Við erum bæði ráðþrota. Það er mikið, sem þarf að gera, en við höfum einhvern veginn á tilfinn- ingunni, að það þjóni engum til- gangi að halda áfram og leggja síðustu hönd á ... Christer horfði íhugull á þau. — Var hún með einhverja pen- inga á sér? Og aldrei þessu vant svaraði nú Gretel Ström skýrt og skilmerki- lega. Hún þurrkaði sér um nefið og sagði: — Ekki nema fáeinar krónur. Það veit ég upp á hár, því að hún spurði mig, þegar hún var að leggja af stað, hvort það væri ör- uggt, að hún þyrfti ekki að borga frú Anderson. Frú Anderson er hárgreiðslukonan og ég hrópaði á eftir henni, að það yrði gert upp við hana, þegar allt væri um garð gengið og svo sagði ég hún skyldi ekki heldur hafa áhyggjur af saumakonunni, því að ég myndi sjá um þetta allt. Og svo hvatti ég hana til að flýta sér af stað, til að hún kæmi stundvíslega til að máta. — Hún á náttúrlega bankabók? Hvernig er með það? Var hún með hana á sér? — Nei, sagði Egon alvarlegur í bragði — Hún er geymd f pen- ingaskápnum ásamt ýmsum öðr- um verðmætum. Og ég veit, að þar hefur hún verið síðan hún lagði síðast inn í bankann fyrir nokkrum dögum. Hún er alltaf mjög varkár, þegar peningar eru annars vegar. Hann gat ekki varizt brosi, en svo leit hann aftur á Christer og varð alvarlegur á ný. — Þú heldur, að hún hafi strokið af eigin hvötum, er það ekki? Að henni hafi orðið ljóst, að hún vildi ekki giftast Jóakim og hafi verið gripin einhverri skelf- ingu og bara stungið af. Það eina, sem ég hef um þá kenningu að segja, er, að það er mjög ólikt Anneli... Hver skrambinn: Þau eru líka með bilað sjónvarps- tæki! VELVAKANDI Velvakandi svarar i sima 1.0-100 kl 1 0.30 — 11 30, frá mánudegi til föstudags. 0 Óskemmtilegur stimpill. Hér fer á eftir bréf frá Stein- grími Th. Þorleifssyni, þar sem hann segir blöðunum heldur bet- ur til syndanna: „Við, sem búum hér í Breið- holtshverfinu, höfum í vaxandi mæli orðið þess vör, að fyrir at- beina blaðanna fyrst og fremst er kominn stimpill á allt það fólk, sem býr í þessari fjölmennustu byggð borgarinnar. Þessi stimpill er þvf miður ekki til þess fallinn að auka virðingu fyrir fólki hér heldur hið gagnstæða. Blöðin nota út í æsar hvert tækifæri, sem gefst, til að stimpla hverfið með stóryrða-fyrirsögnum sínum: Maður barinn og rændur í Breið- holtshverfi, Ofbeldisseggir í Breiðholtshverfi og svo fram- vegis. 0 Ósamræmi. Verum minnugir þess, að mis- jafn sauður er í mörgu fé. Ein- staklingar, sem æsifregnamenn blaðanna eru sífellt að nefna, eru lfka til í öðrum hverfum borgar- innar. En þegar þeir eru þar á ferð, er þess ekki getið hvaða hverfi á í hlut. Ég tek nærtækt dæmi. Sagt var f Mbl. frá kyn- ferðislega afbrigðilegum manni og samskiptum hans við lftinn dreng. Þess var getið í fréttinni, að drengsins hefði verið leitað f „hverfinu". Því var ekki nefnt f hvaða hverfi það var? # Jafntgangi yfir alla. Eg leyfi mér að fullyrða, miðað við fyrri reynslu, að ef þetta hefði átt sér stað f Breiðholtshverfinu hefði það verið kyrfilega undir- strikað, eins og aðrar lögreglu- fréttir úr þessu hverfi. — Það verða allir að vera jafnir fyrir þeim reglum eða óreglum, sem blöðin viðhafa um birtingu lög- reglufrétta. Hvað finnst þér um þetta, Vel- vakandi, sem ert blaðamaður sjálfur? Steingrfmur Th. Þorleifsson Gilsárstakk 4.“ 0 Velvakandi mótmælir. Velvakandi mótmælir þvf, að einhver miður skemmtilegur stimpill sé kominn á það fólk, sem f Breiðholtshverfi býr. Þær gífur- legu framkvæmdir og stórkost- lega uppbygging, sem þar hefur átt sér stað á undanförnum árum, bera því fólki, sem þar býr og að þessu hefur unnið, gleggst vitni. Þarna er risin byggð á borð við stærstu kaupstaði landsins. Breið- holtsbúar eru sannarlega öfunda- verðir af framtaki sfnu og dugnaði. A það fólk verður ekki settur neinn óskemmtilegur stimpill, þótt misjafn sauður sé í mörgu fé. 0 Hvar hlut- irnir gerast. t Breiðholtinu eru i raun og veru mörg hverfi, ef miðað er við hverfaskiptinguna í „gamla" bænum. Velvakandi sér ekkert at- hugavert við þótt þess sé getið, hvar atburðirnir gerast. Til dæmis getum við lagt Breiðholtið að jöfnu við Kópavog og Hafnar- f jörð, þar sem fbúatala er svipuð. Að sjálfsögðu á einnig að geta þess, hvar aðrir atburðir gerast. Er það líka gert í langflestum tilvikum og þá oftast getið götunnar, ef um „gamla“ bæinn er að ræða, þar sem hverfa- skiptingin er æði óljós f hugum flestra. Og nú skal undirstrikað. Þótt eitthvað óskemmtilegt gerist við ákveðna götu eða í ákveðnu húsi, er fráleitt að stimpla alla fbúana samkvæmt því. Að lokum þetta: í sannleika sagt er Breiðholtshverfi stolt borgarinnar. F rir örfáum árum voru þarna benr melar — en nú glæsileg byggð með iðandi mann- lifi. 0 Verzlunarhættir. Guðrún Hallgrímsdóttir, Ból- staðarhlíð 50, hringdi til Vel- vakanda og óskaði eftir því, að einhver lögfróður maður gæfi henni upplýsingar um, hver væri réttur viðskiptavina verzlana. Hún sagðist hafa borgað inn á ákveðinn hlut í verzlun einni, en afþakkaði hann siðan daginn eftir. Þegar hún ætlaði svo að fá peningana endurgreidda (500 krónur) var henni tjáð, að þá gæti hún ekki fengið, hún yrði að taka út á þá. Lenti þarna í allmiklu þjarki, sem lauk með því, að Guðrún yrði að bíða eftir því að fá peningana greidda þar til viðkomandi hlutur yrði seldur. $ Var ekki svo illa staddur. Guðrún sagði, að þessir verzlunarhættir hefðu komið sér mjög á óvart. Hún hefði í fyrra keypt hlut í annarri verzlun, farið með hann heim, en hann ekki passað. Hún sagði, að sér hefði verið ljóst að hún ætti enga heimtingu á að fá að skila honum attur, en kaupmaðurinn hefði strax tekið hann með þeim um- mælum, að hann væri ekki svo illa staddur, að hann gerði það ekki. Nú vill Guðrún, eins og í upp- hafi segir, mjög gjarnan fá að vita, hver sé réttur viðskipt tvina í tilfelli sem þessu. Um leið lét hún í ljós undrun sína yfir slíkum verzlunarháttum, þar sem þeir væru viðkomandi verzlun örugg- lega til tjóns. Þeir, sem í slíku lentu, kæmu þangað aldrei aftur. 37 MEÐ ÁVÖLUM „BANA“ BETRI STÝRISEIGINLEIKAI BETRISTÖÐUGLEIKI í BEYGJUf BETRI HEMLUN BETRI ENDING Veitið yður meiri þægindi og öryggi í akstri — notið GOODYEAR G8, sem býður yður fleiri kosti fyrir sama verð. V" Sölustaðir: Reykjavík: Hekla h.f„ Laugaveg 1 70—1 72 Hjólbarðaverkstæði Sigurjóns Glslasonar, Laugaveg 171. Keflavík: Gúmmíviðgerðin, Hafnargötu 89. Hveragerði: Bifreiðaþjónusta Hveragerðis v/Þelamörk. Akranes: Hjólbarðaviðgerðin h.f., Suður- götu 41. Akureyri: Hjólbarðaverkstæði Arthurs Benediktssonar, Hafnarstræti 7. Baugur h.f: bifreiðaverkstæði Norðurgötu 62. Stykkishólmur: Bilaver h.f. v/Ásklif. Neskaupstaður: Bifreiðaþjónustan, Strandgötu 54. Hjólbarðavinnustofan, Strandvegi 95, Vestmannaeyjum. Bilaverkstæði Dalvíkur, Dalvik Kirkjubæjarklaustur Steinþór Jóhannesson. Hornafjörður Jón Ágústsson, Söluskála B.P. Reyðarfjörður Bilaverkstæðið Lykill. Egilsstaðir Þráinn Jónsson, Vegaveitingar við Lagarfljótsbrú. Ólafsfjörður Bilaverkstæðið Múlatindur. Húnavatnssýsla Vélaverkstæðið Viðir, Viðidal. HEKLAhf 170—172 — Sim. 21240 fMR ER EITTHURÐ FVRIR RLLR 4i 2Hörgunl)Ið&il>

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.