Morgunblaðið - 23.07.1974, Síða 38

Morgunblaðið - 23.07.1974, Síða 38
38 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JULI 1974 Þórður Friðbjarnarson tekur fyrstu skóflustunguna að viðbyggingu minjasafnsins. messuna. Kirkjukórar Akureyrar- og Lögmannshllðarkirkna leiddu söng við organleik Jakobs Tryggvasonar. Aðalhátlðarsamkoma þjóðhátlð- arinnar hófst svo í Kjarnaskógi sunnan og vestan Akureyrar kl. 13.30 I glampandi sólskini með leik Lúðrasveitar Akureyrar undir stjórn Roars Kvam. Ófeigur Eirlksson sýslumaður og bæjar- fógeti setti samkomuna, en Bjarni Einarsson bæjarstjóri lýsti hið nýja og stórfagra útivistarsvæði Akureyringa og Eyfirðinga opnað almeriningi. Skógræktarfélag Akureyrar hefir unnið að gróður- setningu svæðisins I rösk 20 ár og hefir Ármann Dalmannsson lagt þar drýgstan hlut af mörkum, enda þakkaði bæjarstjóri honum sérstaklega I ræðu sinni, þótt margir eigi hér hlut að máli. Akureyrarbær hefir hraðað vega- lagningu, skipulagi og öðrum framkvæmdum á svæðinu einmitt I því skyni, að þessi þjóðhátíð mætti fara þar fram og tókst að ljúka mikilvægustu verkunum I tæka tíð. Segja má, að Akureyr- ingar „uppgötvuðu" þennan griðastað sinn um helgina, og luku allir upp einum munni um fegurð hans og friðsæld. Sr. Pétur Sigurgeirsson vígslu- biskup annaðist helgistund, en söngfélagið Glgjan (kvennakór) söng undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. Þá flutti Steindór Steindórsson fyrrum skólameist- ari aðalræðu dagsins, drap á nokkra meginatburði genginnar sögu þjóðarinnar og bað landi og þjóð heilla og blessunar I framtíð. Að loknu máli hans sungu karla- kórar héraðsins undir stjórn Ás- kels Jónssonar og með undirleik Lúðrasveitar Akureyrar. Að þvf búnu las Gunnar Stefánsson ljóð eftir eyfirzk skáld, Jónas Hall- grimsson, Hannes Hafstein og Davlð Stefánsson. Fulltrúi Vestur-Islendinga, Skúli Jóhannsson forseti Þjóð- ræknisfélags Islendinga I Vestur- heimi flutti þvl næst ávarp, en á hátíðinni voru staddir á annað hundrað Vestur-Islendingar. Einnig flutti ávarp formaður Ey- firðingafélagsins I Reykjavík, Valdemar Óskarsson, sem hét stuðningi félagsins við ný- byggingu minjasafnsins I tilefni hátlðarinnar. Þá las Gunnar Stefánsson upp kvæðið Eyfirð- ingahvöt eftir Pál Helgason frá Þórustöðum, en kirkjukórar hér- aðsins sungu saman undir stjórn Jakobs Tryggvasonar. Hátíðinni barst heillaskeyti frá Snorra Sigfússyni og var það þakkað með dynjandi lófataki. Þar með lauk hinni eiginlegu hátíðardagskrá, en þá tók við skemmtidagskrá, sem I senn var til ánægju og fróðleiks. Piltar sýndu leikfimi undir stjórn Kára Arnasonar og Dóra Jónsdóttir kynnti þjóðbúninga frá ýmsum tímum, bæði búninga karla, kvenna og barna og voru þeir jafnframt sýndir. Félagar úr UMF Víkverja sýndu gllmu, hljómsveit Ingimars Ey- dal lék og söng, og Ómar Ragnarsson flutti skemmtiþátt. Enn má nefna, að hesta- menn úr Hestamannafélaginu Létti riðu fylktu liði undir fánum og I skrautbúningum ofan úr fjaHi, þar sem þá fyrst bar við loft, niður fjallshllðina og gegn- um þátíðarsvæðið. Guðmundur Snorrason rakti sögu íslenzka hestsins og börnum var leyft að koma á bak hestum, sem teymdir voru undir þeim. Laust eftir kl. 19 sleit Hilmar Danlelsson framkvæmdastjóri þjóðhátíðar Eyfirðinga samkom- unni með nokkrum kveðju- og þakkarorðum. Erfitt er að áætla tölu hátíðar- gesta, vegna þess að aðgangur var ekki seldur og fólkið drelfðist víða um hið stóra útivistarsvæði, en fróðir menn gizka á, að þeir hafi verið sem næst 9—10 þús- und. Ekki er vitað til, að nein óhöpp hafi orðið I sambandi við hátíðina, hvorki á hátfðasvæðinu sjálfu né I umferðinni að því og frá. Merki hátíðarinnar, sem táknar siglingu Helga magra inn Eyja- fjörð með töluna 1100 I segli skipsins, gerði Kristinn G. Jóhannsson skólastjóri, en leik- sviðið teiknaði og skreytti Hall- mundur Kristinsson. Formaður þjóðhátlðarnefndar Eyjafjarðar- sýslu er Sveinn Jónsson bygginga- meistari og bóndi, Kálfskinni, en formaður þjóðhátíðarnefndar Akureyrar er Hörður Ólafsson skólastjóri. Kjörorð hátíðarinnar var: „Byggjum land — bætum land“. Sv.P. Séð yfir hátfðarsvæðið og hluta hátfðargesta. — Þjóðhátíð Framhald af bls. 11 brugðu upp stemmningum frá harmonikuböllum fyrri ára og dansflokkur Vestur-Islendinga I Winnipeg, sem kallar sig „Dans I gamni“, sýndi þjóðdansa við geysilega hrifningu. Auk alls þessa var mikill almennur söngur með aðstoð forsöngvara. Á sunnudagsmorguninn kl. 9 var svo tekin fyrsta skóflustunga að viðbyggingu Minjasafnsins á Akureyri norðan við safnhúsið Kirkjuhvol, en eigendur safnsins, Akureyrarbær, Eyjafjarðarsýsla og Kaupfélag Eyfirðinga höfðu veitt sérstaklega fé til þessarar framkvæmdar I tilefni þjóð- hátíðarársins. Varaformaður safnstjórnar, Ármann Dalmanns- son, ávarpaði viðstadda I veik- indaforföllum formanns, Jónasar Kristjánssonar, en Þórður Frið- bjarnarson safnvörður tók fyrstu skóflustunguna. Því næst flutti Valur Arnþórsson forseti bæjar- stjórnar ræðu fyrir hönd eigenda safnsins, ræddi menningarhlut- verk þess og árnaði því heilla I framtíðinni. Hátíðamessa hófst I Akureyrar- kirkju kl. 11. Þar prédikaði sr. Stefán Snævarr prófastur, en 6 prestar úr héraðinu þjónuðu við INNLENT LÁN RÍKISSJÓÐS ÍSLANDS 1974. 1.FL VERÐTRYGGÐ SPARISKÍRTEINI Samkvæmt heimild í LXIII. lið 6. gr. fjárlaga fyrir árið 1974, sbr. lög nr. 7 frá 13. mars 1974, hefur fjármálaráðherra, fyrir hönd ríkissjóðs, ákveðið að bjóða út verðtryggð spari- skírteini, samtals að fjárhæð 200 milljónir króna til viðbótar þeim 200 milljónum króna, sem gefnar voru út og seldar í síðasta mánuði. Lánskjör skírteina eru ó- breytt frá síðustu útgáfu, þau eru lengst til 14 ára frá15.sept- ember1974, en eigandaísjálfs- vald sett, hvenær hann fær skírteini innleyst eftir 15. sept- ember 1979. Vextir eru 3% áári fyrstu fimm árin, en meðaltals- vextir allan lánstímann eru 5% á ári, auk þess eru þau verð- tryggð miðað við breytingar á vísitölu byggingarkostnaðar. Skírteinin eru skattfrjáls og framtalsfrjáls á sama hátt og verið hefur, en þau skulu skráð á nafn. Skírteinin eru gefin út í þrem stærðum, 5.000, 10.000 og 50.000 krónum. Sala skírteina hefst þriðju- daginn 23. júlí, og verða þau til sölu hjá bönkum, bankaútibúum og innláns- stofnunum um allt land, svo og nokkrum verðbréfasölum í Reykjavík. Liggja útboðs- skilmálar frammi hjá þess- um aðilum. Júlí 1974 } SEÐLABANKI ISLANDS

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.