Morgunblaðið - 09.08.1974, Side 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 9. ÁGtJST 1974
27
Pálmi í Mána
HLJÓMSVEITINNI Mánum á
Selfossi hefur bætzt göður liðs-
styrkur. Er það Pálmi
Gunnarsson, sem áður var
hljómsveitarstjðri Islandiu,
sem nú er hætt að leika. Pálmi
hefur leikið f fleiri þekktum
hljómsveitum. Þá lék hann
hlutverk Júdasar f sýningu LR
á Jesus Krist Superstar. Pálmi
tekur við stöðu Smára
Kristjánssonar f Mánum.
— Gerald Ford
Framhald af bls. 2.
felldri mynd af stefnumðlum Fords
I framtlSinni.
Allir varaforsetar, sem skyndi-
lega verða forsetar, eru óþekktar
stærSir. En Gerald Ford er jafnvel
enn „óþekktari" en Johnson og
Truman. þvl aS hann hefur haft fá
tækifæri og lítinn vilja til aS láta I
Ijós sjálfstæSar skoSanir. Margir
flokksmanna hans halda þvl fram,
aS þaS sé styrkur fremur en veik-
leiki; aS hann muni geta, eins og
Eisenhower, fengiS I liS meS sér
góSa menn, látiS þá um aS vinna
þau störf, sem vinna þarf, og veitt
þeim þaS nauSsynlega andrúms-
loft heiSarleika og örugga brjóst-
vits, sem til þarf, ef taka á réttar
ákvarSanir.
Lltill vafi leikur ð þvl, aS Ford
muni koma meS nýtt og ferskt loft
inn I morkiS andrúmsloft Hvíta
hússins og þrátt fyrir aS hann hafi
alla tlS veriS flokkspólitlskur, á
hann auSvelt meS aS koma sér vel
viS demókrata. Hann kynni t.d. aS
móta utanrlkisstefnu, sem væri
meira I samræmi við stefnu beggja
flokka en veriS hefur. Og ekki má
vanmeta þaS, aS Gerald Ford
hefur tekizt aS halda heiSarleika
slnum óskertum þetta siSasta,
eitraSa tímabil bandarískra stjórn-
mála.
Ford forseti kann aS vinna sér
sess I sögunni sem forseti á tímum
sátta og nýs öryggis, auk þess aS
hafa reist viS Repúbllkanaflokk-
inn. En fáir vænta þess, aS hann
muni hefja nýtt skeiS djarfra og
uppbyggilegra stefnumiSa fyrir
Bandaríkin eSa fyrir heiminn
allan.
Báðir yfir á grænu?
MÁNUDAGINN 29. júlí s.l. um
kl. 21,30 varð mjög harður bif-
reiðaárekstur á mótum
Kringlumýrarbrautar og
Laugavegar milli jeppabif-
reiðar og leigubifreiðar með
þeim afleiðingum, að jeppabif-
reiðin valt eina eða fleiri
veltur. Báðir ökumenn telja sig
hafa ekið yfir á grænu ljósi, en
ef einhverjir hafa orðið vitni að
atburðinum, eru þeir vinsam-
legast beðnir um að hafa sam-
band við rannsóknarlögregl-
una.
— Eruð þið að
spila of hart
Framhald á bls. 15
það ekki. Kannske ef það verða
miklar breytingar, maður veit
aldrei, hvað fyrir kann að koma
í lífinu. Annar sonur minn, sem
er heima, er útlærður 1 að sjóða
járn og svoleiðis og hann gæti
byrjað á því, þegar honum
sýndist bara og honum hentaði
að breyta um. Sú vinna er vel
borguð og mikil eftirspurn eftir
svoleiðis mönnum.
Nú er gott verð á allri
grávöru, m.a. vatnsrottuskinn-
um enn þá.
Ég held, að það sé erfiðara að
lifa á íslandi en í Manitoba, og
ég er hissa á því, að bændur
skuli fá nóg fóður fyrir kýrnar,
mér sýnast blettirnir svo litlir,
sem þeir taka fóðrið af. En þeir
sýnast kannske minni en þeir
eru, þegar maður ekur svona
fljótlega fram hjá. Svo hefur
kannske sami bóndi fleiri
bletti. En ég er hrifinn af að sjá
hagana, þeir virðast óþrjótandi.
Okkur skortir oft haga fyrir
skepnurnar. Hér eru óendan-
legir hagar og grasið sýnist mér
dökkgrænna en hjá okkur, fal-
legra, grænna. Ég hef líka tekið
eftir því, að það fæst mikið hey
af þessum litlu blettum, grasið
er svo þétt.
Við höfum samt hey, sem
þið hafið ekki hérna, við köll-
um það Alfa-Alfa (smára-
tegund). Það vex býsna fljótt,
er þétt og gefur mikið af sér.
Þetta er 1 annað skipti, sem
ég kem til Islands. Fyrst kom
ég 1971. Þessar ferðir hafa
verið mér mjög ánægjulegar.
Ég er búinn að fara mikið um
landið, kannske meira en marg-
ur innfæddur Islendingur.
Þegar ég kom hingað fyrir
þrem árum, fannst mér dýrtíð-
in ekki mikil og samanburður-
inn við okkur var ykkur ekki
mjög óhagstæður. En núna, nú
finnst mér allt voðalega dýrt á
móti hjá okkur. Er þetta ekki
orðið hærra á íslandi en
nokkurs staðar annars staðar í
heiminum? Steig það ekki um
28% eða 32% á sfðasta ári, en
hjá okkur í Canada tæp 9% og
finnst okkur þó nóg. Hvernig
stendur á þessu? Eruð þið að
spila of hart eða hvað?
Þ. M.
— Surtsey
Framhald af bls. 28
sýni. Kemur þar fram, að mikil
gosvirkni er á þessum hrygg. Gos
eru neðansjávar, og eru á miklu
dýpi og langt úti og sjást því raun-
verulega aldrei.
Þá er verið að vinna að gerð
jarðfræðikortanna af tslandi, sem
Menningarsjóður gefur út og er 7.
blaðið af 9 í undirbúningi, en það
sýnir Norðurland.
• 10 þús. fuglar merktir árlega
í dýrafræðideildinni er unnið
að athugunum á stofnsveiflum ísl.
rjúpunnar, en stofninn er nú á
uppleið aftur. Fara þær rann-
sóknir aðallega fram í Hrísey, í
Laxárdal, 1 Kvfskerjum og bíðar í
samvinnu við þá, sem þar búa.
öll sumur fara fram fuglamerk-
ingar og eru merktir um 10
þúsund fuglar á ári, mest lundi og
vaðfuglar. Þessi vinna byggist
aðallega á starfi áhugamanna víða
um landrSíðan er fylgzt með því
hvaða endurheimtur verða á
merkjunum og berast alltaf merki
og upplýsingar héðan og erlendis
frá.
Einnig hefur Náttúrugripa-
safnið áhuga á að fá sýnishorn af
fuglum til að stoppa upp. Og
þykir náttúrufræðingum yfirleitt
fengur að því að fá steina, fugla
og plöntur, sem forvitnileg geta
talizt.
• Nýjar mosategundir
á hverju ári
í grasafræðideild er verið að
vinna að rannsóknum á plöntulífi
á jökulskerjum. Til dæmis er
fylgzt með hvaða plöntur koma á
ný sker upp úr jöklum, og í hvaða
röð, eins og t.d. á Káraskeri og
Bræðraskeri f Breiðamerkurjökli.
Er fylgzt með landnáminu á þess-
um stöðum.
Þá er fylgzt með rannsóknum á
hæðarmörkum plantna í há-
fjöllum og útbreiðslu mosa. Er
fylgzt með slíku árlega og finnast
t.d. nýjar mosategundir árlega
nú. Enda ekki miklar rannsóknir
á mosum hér áður.
Athuganir eru gerðar fyrir
ýmsar stofnanir. T.d. hefur Eyþór
Einarsson, grasafræðingur,
athugað fyrir Náttúruverndarráð
gróður á Þingvöllum fyrir og eftir
þjóðhátíð.
— Björgun
Framhald af bls. 28
hjálpa mér að koma honum á
land, en hann var þá alveg
rænulaus. Mennirnir á bryggj-
unni heltu úr honum sjðnum,
sem hafði farið ofan f hann, og
svo fékk hann lfka áköf upp-
köst. Það hefur sennilega
hjálpað honum mikið. Hann
komst fljðtt til sjálfs sfn og
hresstist furðu fljðtt. Faðir
hans var staddur þarna á
bryggjunni og fylgdist með at-
burðum, sem raunar gerðust f
mjög skjðtri svipan, og þakkaði
mér ðskaplega vel fyrir að hafa
bjargað drengnum. Þeir feðgar
fðru svo strax heim til sfn f bfl,
og ég veit ekki betur en piltur
sé hinn hressasti 1 dag“.
Kristján kvaðst aðspurður
ekki hafa fundið til kulda f
sjðnum, þvf allur hugur hans
hefði beinzt að þvf einu að
bjarga drengnum. Kristján var
klæddur f þykka treyju og f
fyrstu var mikið flotmagn f
henni, en treyjan ætlaði gjör-
samlega að sliga hann vegna
þyngsla, þegar hún var orðin
gegnblaut og hann fór að klifra
upp á bryggjuna. Kristján fðr
svo f sumarbústaðinn og fann
þar þurr föt til að bregða sér f.
Sjálfum varð honum ekkert
meint af volkinu.
Sv.P.
— Flughátíð
Framhald af bls. 13
Hálfdán Einarsson að nafni, mun
þá svffa í flugdreka sínum fram
af toppi Vífilsfells, sem er í 500
metra hæð fyrir ofan Sandskeið.
Mörgum mun eflaust þykja þetta
fífldirfska, en engu að síður
hefur þessi íþrótt átt miklum vin-
sældum að fagna í Bandaríkjun-
um og Evrópu að undanförnu.
Að loknu flugdrekafluginu
munu 5 svifflugur sveima yfir
höfðum fólks, en síðan mun
stormþyrla Björns Sigurðssonar
fljúga yfir staðinn. Þrjár storm-
þyrlur eru nú til f landinu, en þær
eru samansettar hér á landi, og
eru mjög einfaldar að allri gerð.
Ennfremur verður sýnd nauð-
lending á flugvél. Verður það gert
með þeim hætti, að drepið verður
á vélinni f nokkurri hæð, en sfðan
mun vélin nauðlenda á fyrirfram
ákveðnum stað á Sandskeiði. Með
þessu er fólki sýnt, að ekki eru
allir dauðadæmdir þó svo að
hreyfill vélarinnar gangi ekki. Þá
verður sýnt listflug og ýmislegt
fleira verður til skemmtunar eins
og t.d. fluggrín.
Tækjaútbúnaður Flug-
björgunarsveitarinnar verður
sýndur í stóru tjaldi, sem komið
verður fyrir á Sandskeiði. Enn-
fremur verða sýndar þar ýmsar
gamlar og þekktar flugvélar, sem
sett hafa svip sinn á íslenzka flug-
sögu. Þar má nefna hina frægu
KZA, tvær til þrjár Piper Cup
vélar og Fleet tvfþekju Árna í
Múlakoti, en það er eina tví-
þekjan í eigu íslendinga.
Flugmálafélag islands, sem
samanstendur af Svifflugfélagi
Islands, Flugmódelfélaginu Þyt,
Fallhlífaklúbbi Reykjavfkur, Vél-
flugfélagi íslands og Flugbjörg-
unarsveitinni í Reykjavík, stefnir
að því að koma upp alhliða að-
stöðu fyrir starfsemi sina á Sand-
skeiði. Aðgangseyririnn að hátíð-
inni verður kr. 100 fyrir full-
orðna, en ókeypis verður fyrir
börn. Allt það fé, sem inn kemur,
mun renna til uppbyggingarinnar
á Sandskeiði.
— Farþegar
Framhald af bls. 28
þessari leið. A þessu tímabili er
því um að ræða liðlega 4000 færri
farþega, en frá því f maf 1973, er
Loftleiðir hófu flug til Chicago,
hefur félagið flutt 41413 farþega.
Talsverð aukning er nú einnig f
Chicago-fluginu, en í ár eru
flognar þangað fjórar ferðir í
viku miðað við þrjár s.l. sumar, er
þó aukið framboð af sætum í flug-
vélunum, því að nú eru 250 sæti í
ferð á móti 173 s.l. sumar.
IMýr 4ra tonna
bátur til sölu
22 hestafla Saab diesel vél, talstöð, 2 raf-
magnsrúllur.
Simrad dýptarmælir.
Upplýsingar í síma 96-21 136.
Húshjálp
Tvö herbergi og eldhús til leigu fyrir einhleypa
eldri konu. Leigan greiðist með smávegis hús-
hjálp. Þær sem vilja athuga þetta sendi nafn og
símanúmer til afgr. Mbl. merkt „5332".
Bátur til sölu
11 tonna Bátalónsbátur til sölu byggður '61.
Báturinn er nýskoðaður og í mjög góðu standi.
Upplýsingar í síma 6290, Ólafsvík.
„ALDREI ER RAÐ NEMA I TIMA
SÉ TEKID”
VERZLIÐ ÞVÍ TÍMANLEGA TIL HELGARINNAR.
GÓÐAR VÖRUR Á LÆGSTA MÖGULEGA VERÐI:
Sykur 2 kg.. 242.00 pk.
Sykur 25 kg............2.803.00 sekkurinn
Hveiti 5 Ibs. 135.00 pk.
HveitilOlbs. 269.00 pk.
Hveiti 25 kg.1.786.00 sekkurinn
Libby's tómatsósa. 64.00 fl.
Jacob's tekex . 49.00 pk.
Ritz kex ..... 63.00 pk.
Jarðarber niðursoðin . 98.00 ds.
OPIÐTIL KL. 10 í KVÖLD.
LOKAÐ LAUGARDAGA.
Kaupgaröur
■ Smiöjuvegi9 Kópavogi