Morgunblaðið - 14.08.1974, Page 1

Morgunblaðið - 14.08.1974, Page 1
28 SIÐUR 147. tbl. 61. árg. MIÐVIKUDAGUR 14. AGÚST 1974 Pre n t sm i ð j a Mo rg u nb I a ðsi n s. Bretland nú á barmi efna- hagsöngþveitis Góðviðrisdagarnir f sumar eru nú orðnir svo margir, að sumir óttast, að allt sé ekki með felldu. Af einum manni fréttum við, sem kfkir fyrir horn á hverjum morgni, áður en hann hættir sér á kreik. Svo segja sumir vfsindamenn, að ný fsöld sé f uppsiglingu, aðrir að hitabeltisbreytingar séu f vændum. Ætli væri samt ekki ráðlegast fyrir okkur tslendinga að njóta sælunnar, meðan hún gefst, eins og fólkið á myndinni, sem ÓI.K.M. tók. London 13. ágúst AP. BRETLAND riðar nú á barmi efnahagsöngþveitis, eftir að skýrt var frá þvf f dag, að vöruskipta- jöfnuður landsins hefði verið óhagsstæður um 1 milljarð 147 milljónir dollara f júlfmánuði. Er það sjöundi mánuðurinn f röð, sem vöruskiptajöfnuðurinn er óhagstæður um meira en einn milljarð dollara og er júlfmánuð- ur annar versti mánuðurinn f sögu landsins. Vöruskiptajöfnuð- ur Breta hefur nú verið óhag- stæður f 24 mánuði í röð. 1 júlí fluttu Bretar út vörur fyr ir um 2,2 milljarði dollara en innflutningur nam rúmum 3,3 miiljörðum. Bretar flytja inn um helming matvæla sinna og hrá- efnis, og því verða þeir að sýna hagstæðan vöruskiptajöfnuð til að komast af. Þróunin sl. 24 mánuði hefur leitt til þess, að staða pundsins hefur veikzt mjög og er þaó nú skráð áverði.sem er 17% yfir raungildi þess. Verðbólgan í Bretlandi er nú um 18% á ársgrundvelii. Astæðan fyrir hinum mikla haila er verð á olíu, að sögn talsmanna stjórnar- innar, en Bretar flytja inn 80% af olíu sem þeir nota, og verð á olíu hefur fjörfaldast frá því í október sl. En oiiuverðhækkunin er aðeins eitt atriði og hefur aðeins gætt sl. 10 mánuði, en halli hefur verið á vöruskiptajöfnuðinum í 24 mánuði. Ástæðurnar eru m.a. tíð verkföll, úreltar stjórnunar- aðferðir, lítil fjárfesting i iðnaði og ýmis innanlandsvandamál. Ástæðan fyrir þvi, að gengi pundsins hefur haldizt sæmiiega stöðugt, er, að Arabaþjóðirnar hafa fjárfest í Bretlandi til að notfæra sér háa vexti, en þjóðirn- ar gætu tekið þetta fjármagn með stuttum fyrirvara. Verðbréf i Lundúnum lækkuðu mjög í verði, er tölur þessar voru kunngerðar. Stvrjaldarhættan eykst Genfarviðræðurnar að fara út um þúfur? Nikósíu, Aþenu, Genf og Ankara 13. ágúsí AP. SNLJRÐA virðist nú hafa hlaupið á þráðinn f Kýpurviðræðunum f Genf, og í kvöld ríkti mikil spenna á Kýpur, í Grikklandi og Tyrklandi. 1 dag lá við, að alger- lega slitnaði upp úr viðræðunum, en James Callaghan, utanrfkis- ráðherra Breta, tókst að koma f veg fyrir, að utanrfkisráðherrar Grikklands og Tyrklands færu heim. Lagði Callaghan fyrst til, að fundum yrði frestað f háifan annan sólarhring, en Tyrk- ir neituðu að fallast á slfkan frest. Tókst Callaghan þá að fá ráð- herrann til að koma saman til enn eins fundar og hófst hann kl. 21. að fsl. tfma. Ástandið í Genf og á Kýpur leiddi til þess, að viðbúnaður var aukinn hjá griska hernum og orð- rómur var á kreiki um, að Aþenu- flugvelli hefði verið lokað, en hann var borinn til baka. Gæzlusveitarmenn Sameinuðu þjóðanna á Kýpur, sem eru um 4000 talsins, fengu í kvöld fyrir- mæli um aukinn viðbúnað vegna ástandins í Genf. Gríska stjórnin fór þess á leit í kvöld við ríkin 5, sem eiga fasta- fulltrúa í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna, að þau gerðu ráðstafan- ir til að koma í veg fyrir styrjöld milli Grikklands og Tyrklands. Meirihluti herstyrks Grikkja er nú á landmærum Grikklands og Tyrklands við Thrace og sveitir úr flughernum eru á Krít, en þangað er örstutt flug til Kýpur. Mjög aukin hætta er nú talin á stríði milli deiluaðila og hafa ráðamenn í Washington miklar áhyggjur af þróun mála. Tyrkir krefjast sem kunnugt er aukins sjálfsforræðis tyrkneska minni- hlutans á Kýpur, en Grikkir eru algerlega andvígir þeirri kröfu, sem þeir segja jafngilda skipt- ingu eyjarinnar f tvö ríki. Menn óttast nú, að verði Grikkir neydd- ir til að samþykkja þessa kröfu muni það verða til þess, að stjórn Karamanlis falli og herinn komist aftur til valda í Grikk- landi. Karamanlis hefur sakað Tyrki um brot á vopnahléssam- komulagi öryggisráðsins og kraf- izt þess, að Tyrkir dragi herlið að þeim línum, sem ákveðnar voru í ályktun öryggisráðsins 20. júli. Þessu neita Tyrkir algerlega. Bandaríska utanríkisráðuneyt- ið lýsti í dag yfir stuðningi við aukið sjálfsforræði Tyrkja á Kýp- Framhald á bls. 16 Berlínar- múrinn 13 ára Berlín 13. ágúst. A-ÞYZK yfirvöld minntust þess í dag, að 13 ár eru lióin frá þvf, að Berlínarmúrinn var reistur. Jafnframt tilkynntu þau, að tveir V-Þjóðverjar hefðu verið handteknir fyrir að hafa aðstoð.ið a-þýzka flótta- menn yfir til V Þýzkalands. Kommúnistablaðið Neues Deutschland sagði í dag i leið ara, að Berlínarmúrinn hefði átt mikilvægan þátt i því að viðhalda friði í Evrópu og einnig að draga úr spennu. Að sögn yfirvalda í VÞýzka landi hafa alls um 133 þúsund A-Þjóðverjar flúið yfir múrinn til V-Þýzkalands á sl. 13 árum en um 3000 manns hafa verið handteknir við múrinn við flóttatilraunir og fjöldi verið skotinn til bana af a-þýzkum landamæravörðum. „Einmitt það sem þjóð- in þarfnaðist RÆÐUFORDS MJÖG VEL TEKIÐ (Sjá grein á bls. 13) Washington 13. ágúst AP. -□ -□ RÆÐU Geralds Fords Banda- rfkjaforseta f þinginu f nótt hefur verið mjög vel tekið heima fyrir og erlendis. Meðan forsetinn flutti ræðu sfna, varð hann hvað eftir annað að gera hlé á máli sfnu vegna lófataks þingmanna og fréttaskýrendur segja, að hin- ar hlýju móttökur, sem forsetinn fékk, svo og viðbrögð þingmanna eftir ræðuna, bendi til þess, að mjög góður samstarfsgrundvöllur sé fyrir hendi milli þingsins og Hvfta hússins. Þetta má m.a. ráða af því, að þingmenn hófu þegar í morgun undirbúning að því að verða við ósk forsetans um að nýtt verðlags- ráð verði skipað, sem hafi eftirlit með verð- og launahækkunum án beinnar íhlutunnar. Þetta er ein af ráðstöfunum, sem forsetinn lagði til, að gerðar yrðu í barátt- unni gegn verðbólgu, en það var höfuðinntak ræðu hans, eins og fram kemur í yfirliti um ræðuna á bls. 13 í Mbl. i dag. Viðbrögð þingleiðtoga voru öll mjög jákvæð. Thomas O’Neill leiðtogi demókrata i fulltrúa- deildinni sagði: „Forsetinn talaði um samningsvilja, sáttfýsi og auk- ið samband og dyr okkar eru opnar fyrir slíku“. Clarence Long þingmaður demókrata frá Louisíana, einn harðasti gagn- rýnandi Nixons, sagði: „Hann markaði réttu stefnuna, efnahags- lega og siðferðislega. Hann sagði, að það yrðu engar símahleranir í sinni stjórnartið og menn þurfa því ekkert að hræðast lengur. Ég held, að þetta hafi þinginu fallið bezt í ræðu hans.“ Edward Kennedy öldungardeildarþing- maður sagði: „Watergatemálið er búið sem pólitísk mál og algerlega nýr grundvöllur skapast fyrir stjórnmálaumræður.” Hugh Scott leiðtogi repúblíkana i ölduna- deildinni sagði: „Þessi ræða var einmitt það, sem þjöðin þarfnaðist.” Erlendis frá voru viðbrögðin einnig jákvæð, einkum vegna lof- orða hans um, að berjast gegn verðbólgunni. Staða dollars styrkist nokkuð á gjaldeyrismörk- uðum í Evrópu og er gengi hans nú hið hæsta á sl. 5 mánuðum. Ráðamenn í Moskvu voru að sögn ánægðir með yfirlýsingu Fords Framhald á bls. 16

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.