Morgunblaðið - 14.08.1974, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGÚST 1974
Sigurjón Olafsson:
Ummælin ekki svaraverð
Hann sagði, að hann vildi bæta
því við, að hann væri sammála
Aktjumbisk
á ísafirði
Eins og fram kom f Mbl. í gær, lagðist rússneskt skip
að bryggju á tsafirði á sunnudaginn. Skipið, sem
heitir Aktjumbimsk, var með 500 lestir af smokkfiski,
sem Vestfjarðarbátar munu nota f beitu. Þetta rúss-
neska skip er það stærsta, sem lagzt hefur að bryggju
á ísafirði, 5217 brúttórúmlestir og 131 metri að lengd.
Á skipinu er 67 manna áhöfn.
FLOTVARPAN FARIN
AÐ GEFA GÓÐA RAUN
Nauðsynlegt að hafa
myndina af Tómasi
á háum stalli
I þættinum „Vikan sem var“
laugardaginn 3. ágúst s.l. bar
höggmyndir og fegrun Austur-
strætis nokkuð á góma. Meðal
annars ræddi stjórnandinn við
nokkra vegfarendur á förnum
vegi og spurði þá um hið nýja
útlit Austurstrætis. Einn þeirra
var Ásgeir Bjarnþórsson, sem
veittist að Sigurjóni Ölafssyni,
myndhöggvara. Var á Asgeir að
skilja, að Sigurjón væri enginn
listamaður og kynni t.d. ekkert
fyrir sér í anatómíu. Slik ummæli
að viðkomanda fjarstöddum eru
orðin æ tíðari i útvarpinu, eins og
kunnugt er.
Morgunblaðið bar þessi um-
mæli Asgeirs undir Sigurjón og
spurði, hvað hann vildi segja um
þau. Sigurjón sagði, að sér fyndist
þessi ummæli Ásgeirs vart svara-
verð, en sagði þó:
„Ásgeir er einn af þeim mönn-
um, sem sér ekki listamann f
neinum nema sjálfum sér. Kjar-
val heitinn hefði örugglega sagt,
að Ásgeir væri stórkostlegur, og
ég kann ekkert illa við að hafa
menn með furðuiegar skoðanir
eins og Ásgeir nálægt mér.“
„En það er oft þannig um
menn, sem dæma hvað harðast, að
þeir kunna minna fyrir sér en
aðrir,“ sagði Sigurjón.
r
Islenzkar
kartöflur
í búðir
KOMNAR cru f verzlanir nýjar
fslenzkar kartöflur. Kostar kflóið
26,40 krónur, og 2'A kflóa poki
kostar því 66 krónur.
Að sögn Jóhanns Jónassonar
forstjóra Grænmetisverzlunar-
innar er enn hægt að fá í verzl-
unum ftalskar kartöflur, en kflóið
af þeim kostar 16 krónur. Talið
er, að birgðir af ftölskum kartöfl-
um dugi aðeins út þessa viku, og
verða upp frá þvf einungis nýjar
fslenzkar kartöflur á markaðnum.
Ef ekki gcrir næturfrost á næstu
vikum, má búast við mjög góðri
kartöfluuppskeru f ár.
flestum um það, að styttan af
Tómasi Guðmundssyni stæði of
hátt í Austurstræti, en það væri
gert af ásettú ráði. Það hefði
viljað brenna við, að menn brytu
flöskur á höggmyndum og ynnu
önnur skemmdarverk á þeim, ef
þeir hefðu færi á því. Þessvegna
hefði höggmyndin af Tómasi
verið sett á háan stall. Væri hann
ekki eini listamaðurinn, sem væri
hræddur um skemmdarvek, t.d.
hefði Einar Jónsson látið sín verk
standa á háum stöllum, þar sem
þeim hefði verið komið fyrir í
bænum.
6 ára dreng
bjargað úr Sand*
gerðishöfn
UM KLUKKAN 16 á mánudag
gerðist sá atburður í Sandgerði,
að 6 ára drengur hjólaði fram af
bryggjusporða. Allmargir bátar
voru í höfn og margir að landa.
Ljósfari ÞH 40 lá næst slysstaðn-
um, og stóðu þrír skipverjar á
bátadekki. Einn þeirra, Agúst
Skarphéðinsson stýrimaður,
Faxabraut 34C Keflavík, stökk
þegar i sjóinn og náði í drenginn.
Varð hvorugum meint af.
Þegar Ágúst kom með drenginn
að bryggjunni, voru margar hend-
ur á lofti að að hjálpa þeim upp.
Drengurinn hafi sopið mikinn sjó,
þótt ekki hefði hann verið lengi í
sjónum. Þótti mönnum Ágúst með
eindæmum snarráður. Hann var
aðeins i afleysingum á Ljósfara.
Héraðsmót
HÉRAÐSMOTI Sjálfstæðis-
flokksins í Vfk f Mýrdal, sem
halda átti næstkomandi sunnu-
dag, er frestað til föstudagsins 30.
ágúst. Verður það nánar auglýst
sfðar.
Það skal áréttað, sem áður hef-
ur verið tilkynnt, að um næstu
helgi verða héraðsmót flokksins
haldin í Arnesi, Arnessýslu, á
föstudagskvöld og á Hellu á laug-
ardagskvöld.
FLOTVARPA er nú farin að gefa
góða raun hjá þeim skuttogurum
fslenzkum, sem hana geta notað.
Hafa togararnir fengið allt að 30
lestir f einu hali, sem er frábær
afli. Það var ekki fyrr en f lok
sfðasta árs, sem fslenzkir togarar
fóru að nota flotvörpu á ný, en
fyrr á árum notuðu fslenzkir
togarar flotvörpu með sæmileg-
um árangri. Þvf var sfðan hætt, og
segja má, að Vestur-Þjóðverjar
hafi tekið upp þráðinn, þar sem
Islendingar hurfu frá, og hafa
þeir ásamt Norðmönnum náð
mjög góðum árangri með notkun
flotvörpu á sfðustu árum.
Flotavarpan er geysistór um sig
og opið á stærstu flotvörpunum er
um og yfir 100 metrar, eða eins og
knattspyrnuvöllur á lengd. Það
þarf því aflmiklar vélar til að
draga þetta veiðarfæri á eftir
skipunum.
Þeir togarar, sem aflað hafa
bezt á Halamiðum siðustu daga,
hafa verið með flotvörpu, og hafa
þeir fengið mjög góðan afla eins
og fyrr segir, í ljósaskiptunum á
morgnanna og kvöldin, en þá lyft-
ir fiskurinn sér frá botni.
Ómar Erlendsson skipstjóri á
Júlfusi Geirmundssyni sagði í
samtali við Morgunblaðið á mánu-
daginn, að það væri einkum
þorskur, sem fengist í flotvörp-
LAUST eftir hádegi á mánu-
daginn var hringt til skrifstofu
Loftleiða á Luxemborgarflugvelli
og tilkynnt, að sprengja myndi
springa um borð í Loftleiðaflug-
vél klukkan 13,30 þann dag. Mikil
leit var gerð f tveimur Loftleiða-
flugvélum og einni vél frá Air
Bahamas, án árangurs. Varð
mikil röskun á flugáætlunum
Loftleiða af þessum sökum. Sá,
sem tilkynnti sprengjuna, talaði
ensku. Lögreglan í Luxemburg
hefur reynt að rekja sfmtalið, en
án árangurs.
Loftleiðaflugvél fór frá
Luxemburg klukkan 12 til Banda-
rikjanna, með millilendingu f
Keflavík. önnur Loftleiðavél átti
að fara í loftið klukkan 13,15 og
Air Bahamas vélin átti að fara í
loftið klukkan 14. Tveimur sfðar-
nefndu vélunum var haldið eftir f
Luxemborg og leitað í þeim þar,
en Loftleiðavélinni, sem lögð var
af stað, var snúið til næsta flug-
vallar, sem var Prestwick í Skot-
landi. Þegar vélin lenti þar
klukkan 12,55 var henni ekið á
afvikinn stað á vellinum og leitað
hátt og lágt án árangurs. Tafðist
vélin af þessum sökum f nær 6
klukkustundir. Hún lenti á Kefla-
víkurflugvelli klukkan 20.03, en
átti samkvæmt áætlun að lenda
þar klukkan 14,30. Að sögn Helgu
Ingólfsdóttur, blaðafulltrúa Loft-
leiða, olli þetta gabb mikilli
röskun hjá félaginu. Er slíkt at-
hæfi að vonum litið mjög alvar-
legum augum.
Mbl. snéri sér í gær til Baldurs
Möller, ráðuneytisstjóra í dóms-
málaráðuneytinu, og innti hann
eftir því, hvaða viðurlög væru við
una. Þá um morgunin hafði Hval-
bakur frá Akureyri fengið 26
lestir f einu hali og fleiri togarar
höfðu þá fengið góðan afla.
Veiðin liggur að mestu niðri
yfir nóttina og þá fá skipin helzt
ufsa. Sagði Ómar, að nokkrir,
2—3, v-þýzkir togarar væru á
Halamiðum, þegar þeir hefðu
möguleika á.
slíku gabbi á Islandi. Sagði
Baldur, að samkvæmt 176. grein
almennra hegningarlaga lægju
við fjársektir og allt að 3 ára
fangelsi, ef menn yllu alvarlegri
röskun á samgöngutækjum.
Engin alþjóðalög eru til yfir slíkt
sprengjugabb í farartækjum, en
flest lönd hafa mjög ströng viður-
lög við slíku.
----- » » »■-----
Minnismerki
drukknaðra
sjómanna
reist á
ísafirði
Isafirði 12. ágúst.
A tSAFIRÐI er nú verið að reisa
minnisvarða um drukknaða sjó-
menn frá Vestfjörðum. Valinn
hefur verið staður, þar sem talið
er, að fyrsti landnámsbærinn á
ísafirði hafi staðið.
1 dag afhentu börn og barna-
börn hjónanna Sólveigar
Jónsdóttur og Þórðar Þ. Grunn-
víkings 50. þús. kr. gjöf til
minningar um foreldra sina.
Þórður Þ. Grunnvfkingur
fæddist þann 12. ágúst 1878 og
fórst í fiskiróðri 29. september
1913. Sólveig fæddist 28. janúar
1874, en dó 1949. A þessu ári eru
því liðin 100 ár frá fæðingu
hennar, en gjöfin er afhent á
fæðingardegi Þórðar.
Fréttaritari.
Nazareth bitbein
r
Jóns og Amunda
KOMA brezku popphljómsveit-
arinnar Nazareth er nú orðið
bitbein og baráttumál þeirra
Amunda Ámundasonar og Jóns
Ólafssonar, forsvarsmanns
hljómplötufyrirtækisins Joke.
Hefur Amundi undir höndum
tvö telexskeyti máli sfnu til
stuðnings, en Jón sfmskeyti,
þar sem segir, að hljómsveitin
sé hans, auk þess sem þar er
viðurkennd móttaka fjárupp-
hæðar sem innborgun greiðslu
vegna komu hljómsveitarinnar.
I Morgunblaðinu í dag eru tvær
heilsfðuauglýsingar, sfn frá
hvorum, þannig að báðir virð-
ast vissir um rétt sinn til
hljómleikahaldsins. Jón hugð-
ist hefja forsölu aðgöngumiða I
verzluninni Faco f dag, en að
sögn Steinars Berg verzlunar-
stjóra í Faco verður beðið með
að hefja sölu á þeim, þar til
málin eru komin á hreint.
Þeir Jón Ólafsson og Amundi
Amundason litu báðir (hvor f
sfnu lagi) inn á ritstjórnar-
skrifstofu Mbl. seinni partinn f
gær og höfðu báðir gögn sín
með sér. Sagði Amundi, að
hann hafi strax f janúar á þessu
ári hafizt handa við að undir-
búa komu Nazareth, en ýmissa
hluta vegna hafi dregizt, að af
hljómleikhaldi gæti orðið. Þeg-
ar hann svo frétti, að annar
aðili væri að búa sig undir að
halda hljómleika með þessari
sömu hljómsveit, séndi hann
skeyti út og var hann með afrit
af þvf skeyti f höndunum. SI.
föstudag fékk hann svar frá Er-
ic Thomsen f Kaupmannahöfn,
en Thomsen þessi stendur fyrir
hljómleikahaldi Nazareth f
Skandinavfu um þessar mund-
ir. I telexskeyti Thomsens er
staðfesting á þvf, að Nazareth
komi hingað á vegum Amunda.
Þá hafði Ámundi undir hönd-
um telexskeyti, sem honum
barst frá London f gærmorgun,
undirritað af John Fenton, sem
einnig virðist vera staðfesting á
þessu sama. Taldi Ámundi
skeytið frá London taka af öll
tvfmæli um það, hvor hefði rétt
til hljómleikahaldsins.
Jón Ólafsson hafði einnig sfn
gögn, sfmskeyti undirritað af
Steve Barnett, sem haft er fyrir
satt, að sé helzti umboðsmaður
Nazareth f Englandi og f þessu
skeyti er viðurkenning á mót-
töku fjárhæðarinnar sem áður
segir. Sagði Jón, að hann hefði
undir höndum öll nauðsynleg
leyfi til hljómleikahaldsins, s.s.
leyfi frá félagsmálaráðuneyt-
inu vegna F.I.H., leyfi frá lög-
reglustjóra, S.T.E.F., auk gjald-
eyrisyfirfærslu.
Samkvæmt áreiðanlegum
heimildum er John Fenton, sá
sem undirritar skeytið til
Amunda, náinn aðstoðarmaður
Steve Barnetts aðalumboðs-
manns Nazareth, sem undirrit-
ar skeytið til Jóns. Þess ber þó
að gæta, að skeyti Barnetts er
sent á föstudaginn sl., en skeyti
Fentons í gær, þannig að ein-
hver misskilningur virðist hafa
komið upp á milli þeirra. Verð-
ur væntanlega skorið úr þessu
máli f dag.
Röskun hjáLoft-
leiðum vegna
sprengjugabbs