Morgunblaðið - 14.08.1974, Side 18

Morgunblaðið - 14.08.1974, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. AGUST 1974 Gunnar Jóhannsson — Minningarorð F. 17.3. 1916 D. 3.4. 1974 Þegar fornvinur minn og gamall skipsféiagi Gunnar Jó hannsson lézt á síöastliönu vori var verkfall prentara og því óhægt að koma á framfæri kveðju sem vert væri; vildi ég þó mega minnast hans fáeinum orðum. Þó er mér ljóst að margir væru til þess betur fallnir sem höfðu lengri samíelld kynni af Gunnari heitnum, einkum við störf á haf- inu þarsem Gunnar vann megin- hluta af lífsstarfi sínu frá því að hann hóf sjómennsku þegar hann réðst 16 ára á fiskiskipið Nönnu norður í landi. Þar varð ferill hans langur og atburðamikill með skini og skúrum einsog gengur, björtum stundum og öðrum dimmum sem eflaust settu mark sitt á manninn, og oft rataði Gunnar í háska þótt hann flíkaði þvf lítt sem í móti blés um dagana. Gunnar komst jafnvel í hann svo krappan að hann bjargaðist eingöngu á þeirri karl- mennsku sem hann hafði um aðra menn fram þegar mest reyndi á, þegar Goðafossi var sökkt skamman veg frá öruggri höfn í Reykjavfk; en Gunnari tókst með harðfengi að komast uppúr skipinu við illan leik og kasta sér í sjóinn, komst á fleka og barst með honum langa Jeið og var talinn af þegar flekinn fannst um síðir. 1 upphafi sjómennsku sinnar horfði Gunnar eftir nánum vini sfnum og skipsfélaga á Nönnu sem féll útbyrðis og drukknaði. Öðrum sinnum munaði litlu svo sem þegar Hekla var skotin niður og félagar Gunnars fórust allir utan fjórir sem af komust; Gunn- ar var þá nýfarinn af skipinu. Sama sagan var um norskt skip þar sem Gunnar hafði verið skips- maður en nýhættur þegar skipið var skotið niður. Gunnar sigldi öll striðsárin að þvf ég bezt veit en flíkaði lítt því sem hann reyndi þá, þó vissi ég að Gunnar var viðkvæmur maður undir hjúp sem virtist hrjúfur þeim sem ekki þekktu hann. Það má leiða getum að líðan fslenzkra sjómanna á stríðsárunum í skipalestunum sem ösluðu yfir hafdjúpin þar sem kafbátar gerðu fyrirsát nótt eftir nótt og tíndu niður skipin allt um kring, og stundum urðu menn að sigla áfram framhjá drukknandi mönnum; enginn t Hjartkær móðir min, KRISTlN SIGFÚSDÓTTIR frá SySri-Völlum, lézt að Landakotsspítala 12. ágúst. vissi hvenær röðin kæmi að hon- um sjálfum; svo kom dagur stuttur eða langur eftir árstíman- um með nýja nótt framundan með sínum vítiseldi. Þeir menn sem komust f gegnum ógnir lífs við þessar aðstæður eru ýmsir ekki ýkja fúsir að tala margt um það enda fá varla aðrir skilið en reynt hafa. Sumir þessara manna sem orð fór af að ekki brygði á hverju sem gekk kunnu að virðast kald- lyndir, en í þvf efni má gilda hið fornkveðna að segir fátt af einum, og sá sem geymir viðkvæma lund verður oft að harðbrynja sig. 1 föðurætt var Gunnar af traust- um vestfirzkum stofni einsog fleiri ágætustu sjómenn okkar. Faðir hans Jóhann Hjaltason hóf ungur róðra i Bolungarvík en var kunnastur sem mótoristi á póst- bátnum á Isafirði, og var alla sína tíð vel látinn í starfi. I móðurætt blandaðist húnvetnskt blóð og austfirzkt. Móðir Gunnars býr f Reykjavík Guðný Sigurbjörg Guðjónsdóttir frá Vopnafirði Helgasonar sem ólst upp hjá séra Gunnlaugi Halldórssyni á Hofi, fluttist að Breiðabólsstað í Vesturhópi og kvæntist Kristínu Arnadóttur frá Hörgshóli. Árni Arnason frá Hörgshóli var annálaður búhöldur á sinni tfð og forystumaður í framfaramálum svo sem í pöntunarfélaginu á Hvammstanga, og hreppstjóri líka. Gömul kona sagði við Guðnýju: Já ég blessa hann afa þinn sem passaði að ég hefði alltaf nóg að borða. Þar voru fullar hvaltunnur og nóg af söltuðum fiski. Bændafrömuður sagði: Undarlegt er á Hörgshóli, aldrei komizt úr rúminu og svo hætt vinnu fyrir klukkan átta og þó eru alltaf mest heyin þar. Bræður Guðnýjar hafa orðið kunnir menn, útgerðarmennirnir Friðrik og Ingvar, og Frímann bryti hjá Eimskip. Fimmtán ára gamall varð Gunnar gagnfræðingur. Nokkuð mun hann hafa þótt ódæll í æsku norður á Akureyri þar sem hann ólst upp frá 6 ára aldri en það mun ekki fátítt um kraftmikla drengi. Gunnar átti gott með að læra en hugur hans beindist annað. Sig- fús Halldórs frá Höfnum skóla- stjóri sagði að hann væri skapað- ur námsmaður, sjórinn heillaði enda var þá oft minnt á orðtakið að bókvitið verði ekki í askana látið. Gunnar mun hafa verið hæstur félaga sinna þegar hann lauk fiskimannaprófi úr Stýri- mannaskólanum en vegna sjón- galla varð ekki af frekara námi á þeim vettvangi. Tvígiftur var Gunnar og átti tvo syni, annar dó t Eiginmaður minn, FRIÐRIK SIGURÐSSON, Vallargötu 14, Sandgerði, lézt laugardaginn 1 0. ágúst. Fyrir mína hönd og annarra vandamanna, Jóhanna Guðmundsdóttir. t Eiginkona mín, JÓNÍNA INGIBJÖRG ELfASDÓTTIR, Laufásvegi 18, andaðist á Landakotsspítala að kvöldi 1 2. þ.m. Davíð Ásmundsson. t FRÚ INGER L. BLÖNDAHL, Suðu rgötu 18, andaðist í Landspítalanum 31. júlí sl Samkvæmt ósk hinnar látnu fór útförin fram í kyrrþey. Alúðar þakkir fyrir hjálp og umönnun í veikindum hennar. Einnig þökkum við auðsýnda samúð. Aðstandendur. t Systir okkar, VILBORG PÁLSDÓTTIR, Byggðarenda 1, lést i Landakotsspítala aðfaranótt 1 0. þ.m. Jarðarfórin fer fram frá Dómkirkjunni föstudaginn 16. ágúst kl. 1.30 e.h Guðmundía Pálsdóttir, Halldóra Pálsdóttir. Svavar Guðnason. t Jarðarför MARGRÉTAR PÉTURSDÓTTUR Öldugötu 19 ferfram í Fossvogskirkju 1 5. ágúst kl. 3. Kristjana Fenger Ida og Dick Gotfredsen, Borghifdur og Hilmar Fenger, Kristín og Garðar Fenger, Kristln og Geir Fenger, Ebba og Gunnar Hvannberg, Unnur og Ingólfur Viktorsson. t Utför móðursystur minnar, JÓHÖNNU HELGADÓTTUR frá Bergi — Eyrarbakka, sem andaðist 6. ágúst, fer fram frá Eyrarbakkakirkju fimmtudaginn 1 5. ágúst kl. 2. e.h Guðríður Vigfúsdóttir. ................... GISLABJARNASONAR skipstjóra, Grænukinn 6, Hafnarfirði, fer fram frá Fríkirkjunni, Hafnarfírði, fimmtudaginn 15 ágúst kl 13 30 Nanna Guðmundsdóttir, Nanna Sjöfn Pétursdóttir, Anna Gísladóttir, Flosi G. Valdimarsson, Bjarni Gíslason, Pórey Jónsdóttir, Guðrún Gisladóttir Bergmann, Andreas Bergmann og barnabörn. t Eiginkona min og móðir, SIGURRÓS JÓNSDÓTTIR, Hreimsstöðum, er andaðist 9. ágúst, verður jarðsungin laugardaginn 1 7. ágúst kl. 2 frá Hvammskirkju, Norðurárdal Blóm og kransar vinsamlega afbeðin. Þeir, sem vildu minnast hennar, láti liknarstofnanir njóta þess. Þorsteinn Klemenzson, Aðalheiður Þorsteinsdóttir. t Þökkum innilega hlýhug og vináttu við andlát og jarðarför föður okkar og tengdaföður VALDIMARS BJÖRNS VALDIMARSSONAR frá Hnifsdal Fyrir hönd systra og annarra ættingja Hulda Valdimarsdóttir Ritchie Samuel Stewart Ritchie i ................. tingur. Síðustu árin var Gunnar við störf 1 landi, og helzta yndi hans voru ungir sveinar tveir, synir Gunnars sonar hans. Okkar kynni hófust þegar ég var háseti á Reykjafossi elzta og vann undir stjórn Gunnars sem þá var bátsmaður. Nokkuð þótti mér Gunnar stuttur í spuna fyrst og óárennilegur en brátt tókust með okkur kynni sem aldrei rofnuðu síðan, og ætíð fann ég hlýjan vinarhug Gunnars og óbilandi tryggð í minn garð. öðru sinni vann ég undir stjórn hans sem háseti á Lagarfossi nokkrum árum síðar. Gunnar var kröfu- harður um vinnu enda frábær- lega vel verki farinn sjálfur, það sá ég þó aðrir beri betur skyn á að meta störf hans. Það hef ég heyrt eftir Eymundi Magnússyni merk- um skipstjóra sem Gunnar sigldi með á stríðsárunum og kannski oftar að Gunnar væri einn traustustu sjómanna okkar. Kristján Aðalsteinsson skipstjóri, sem þjóðin þekkir, sagði mér að ekki hefði hann haft með sér aðra Gunnari fremri í því að ná góðum afköstum þeirra sem unnu undir hans stjórn og með honum enda einstaklega velvirkur sjálfur. Með þessum fátæklegu orðum kveð ég gamlan vin og félaga. Thor Vilhjálmsson. Gunnar Jóhannsson var til moldar borinn þann 9. apríl sl. Gunnar var fæddur á Isafirði 17. marz árið 1916 og foreldrar hans voru Jóhann Hjaltason vélstjóri og Guðný Guðjónsdóttir, en hún er enn á lífi. Snemma hneigðist hugur Gunnars til að afla sér menntunar. Settist hann í Gagn- fræðaskólann á Akureyri og Iauk þaðan prófi árið 1934 og þótti hin bezti námsmaður. Að skólagöngu lokinni fór Gunnar á sjóinn, en honum var sjómennskan í blóð borin. Hugðist hann afla sér farmanns- réttinda, en meðfæddur sjóngalli kom í veg fyrir, að hann gæti látið þann draum verða að veruleika. Þráttfyrirþaðstundaði hann störf á hafinu í mörg ár, lengst af í millilandasiglingum hjá Eim- skipafélagi Islands. Naut hann mikillar virðingar hjá yfirmönn- um sínum fyrir trúmennsku í starfi. Gunnar var í siglingum öll stríðsárin og fór hann ekki var- hluta af þeim harmleik, sem gerðist á hafinu. Hann var skip- verji á Goðafossi, er honum var sökkt með tundurskeyti út af Garðskaga árið 1944, en komst naumlega lífs af. Fyrir rúmum áratug ákvað Gunnar að hætta sjómennsku og hóf störf hjá verzlunardeild flotans á Keflavíkurflugvelli, þar sem hann starfaði til dauðadags, en þar kynntumst við, sem þessar línur ritum, Gunnari við hin dag- legu störf. Gunnar var mjög ötull og samvizkusamur að eðlisfari og vandaður bæði til orðs og æðis. Ákveðinn í framkomu og vildi ávallt hafa það, sem sannara reyndist. Stóð fast á rétti sínum ef t Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför, LÁRUSAR B. HARALDSSONAR, Lönguhlið 1 7. Valborg Jónsdóttir, börn, tengdabörn og barna- börn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við andlát og jarðarför ANDRÉSAR GUÐMUNDSSONAR. Sigurlína Valgeirsdóttir, börn, tengdabörn og barna- börn.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.