Morgunblaðið - 14.08.1974, Síða 24

Morgunblaðið - 14.08.1974, Síða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 14. ÁGUST 1974 För Þórs til Utgarða-Loka Snorra Edda, Gylfaginning Þór snýr fram á leið og þeir félagar og gengu fram til miðs dags. Þá sáu þeir borg standa á völlum nokkrum og settu hnakkann á bak sér aftur, áður þeir fengu séð upp yfir. Ganga þeir til borgarinnar, og var grind fyrir borghliðinu og lukt aftur. Þór gekk á grindina og fékk eigi upp lokið. En er þeir IMú lítum við þessa japönsku dúkku og vöndum okkur vel og notum marga fallega liti. Þessi dúkka er í japönskum þjóðbún- ingi, en hann heitir á japönsku kimono. þreyttu að komast í borgina, þá smugu þeir milli spalanna og komust svo inn. Sáu þá höll mikla og gengu þangað. Var hurðin opin. Þá gengu þeir inn og sáu þar marga menn á tvo bekki og flesta ærið stóra. Því næst koma þeir fyrir konunginn Útgarða-Loka og kvöddu hann, en hann leit seínt til þeirra og glotti við tönn og mælti: „Seint er um langan veg að spyrja tíðinda, eða er annan veg en ég hygg, er þessi sveinstauli orðinn Öku-Þór? En meiri muntu vera en mér líst þú; eða hvað íþrótta er það, er þér félagar þykist vera við búnir? Enginn skal hér vera með oss, sá er eigi kunni einhvers konar list eða kunnandi umfram flesta menn.“ Þá segir sá, er síðast gekk, er Loki heitir: „Kann ég þá íþrótt, er ég er albúinn að reyna, að enginn er hér inni, er skjótara skal eta mat sinn en ég.“ Þá svarar Útgarða-Loki: „Iþrótt er það, ef þú efnir, og freista skal þá þessarar íþróttar." Kallaði hann þá utar á bekkinn, að sá, er Logi heitir, skuli ganga á gólf fram og freista sín í móti Loka. Þá var tekið trog eitt og borið inn á hallargólfið og fyllt af slátri. Settist Loki að öðrum enda, en Logi að öðrum, og át hvortveggja sem tíðast og mættust í miðju troginu. Hafði þá Loki etið slátur allt af beinum, en Logi hafði og étið slátur allt og beinin með og svo trogið; og sýndist nú öllum, sem Loki hefði látið leikinn. Þá spyr Útgarða-Loki, hvað sá hinn ungi maður kunni leika, en Þjálfi segir, að hann muni freista að renna skeið nokkur við einhvern þann, er Útgarða-Loki fái til. Þá segir Útgarða-Loki, aö þetta sé góð íþrótt og kallar þess meiri von, að hann sé vel að sér búinn að skjótleika, ef hann skuli þessa íþrótt inna, en þó lætur hann skjótt skulu þessa freista. Stendur þá upp Útgarða-Loki og gengur út, og var þar gott skeið að renna eftir sléttum velli. Þá kallar Útgarða-Loki til sín svein- staula nokkurn, er nefndur er Hugi, og bað hann renna í köpp við Þjálfa. Þá taka þeir hið fyrsta skeið, og er Hugi því framar, að hann snýst aftur í móti honum að skeiðsenda. Þá mælti Útgarða-Loki: „Þurfa muntu, Þjálfi, að leggja þig meir fram, ef þú skalt vinna leikinn, en þó er það satt, að ekki hafa hér komið þeir menn, er mér þykja fóthvatari en ANNA FRÁ STÓRUBORG — saga fra sextándu öld eftir Jón Trausta Ar liðu án þess nokkuð bæri til tíðinda. Hjalti var var um sig, en þó að jafnaði heima á Stóruborg. En nálægt því, sem Anna ól fjórða barnið, varð Páll bróð- ir hennar lögmaður sunnan- og austanlands. Þá vissi hún, að ofsóknimar mundu byrja fyrir alvöru. 2. VIÐBÚNAÐUR Einn dag um sumar reið Anna að heiman með einn vinnu- mann til fylgdar. Engum sagði hún heima, hvert ferðinni væri heitið eða hvert erindið væri. Hún reið beint sem leið liggur út að Hvammi. Sá bær er undir Útfjöllunum, sem kallað er. Þar er núpur geysihár yfir bænum ■ Eru klettar hið efra, en brattar hlíðar og grös- ugar ofan að bæniun. Hvammurinn er opinn gegn suðri, og er bæjarstæði þar hið fegursta. Við túngarðixm hitti Anna húsbóndann sjálfan. Hann var þar með vinnumönnum sínum og hlóð upp kvíavegginn. Hann hét Sigvaldi, og nágrannamir kölluðu hann í góð- látu skopi Sigvalda blíðalogn. Kyrrðin og rósemin, sem ætíð var yfir hontun, hafði orðið orsök til þessa auknefnis. Hann heyrði þetta nafn oft, en gerði ekki annað en brosa að því. Sigvaldi var mikill maður vexti og ramur að afli. Ljós var hann á hár og skegg og bjartur yfirlitum, þykkleitur og all- svipmikill, þrátt fyrir allt „blíðalognið“. Fáskiptinn var hann með afbrigðum og lítið við héraðsmál riðinn. Aldrei hafði hann í deilum staðið, og engan átti hann sér óvin. Hann var efnaður maður, sjálfbjarga og sjálfstæður, upp á engan kom- inn, og líf hans rann áfram í eins konar blessuðu friðsemis- blíðalogni, mitt í ólgu og ókyrrð aldarinnar. Þennan mann taldi Anna vera þann eina mann í sveit- inni, sem hún gæti treyst að fullu. Hún reið til Sigvalda, þar sem haxm var að verki sínu, og heilsaði honum kunnuglega. Sigvaldi tók varla undir kveðju hennar, en leit við henni brosandi, hálfeinfaldlega. Anna fór að spyrja sjálfa sig, hvort hún hefði nú gert rétt, að fara til þessa manns, og hvort hún ætti að halda erindinu áfram. Henni sýndist hann svo sauðarlegur, — miklu sauðar- legri en hún hafði séð hann nokkum tíma áður. Hún sat kyrr á hestinum og hugsaði um þetta, þar til Sig- valdi gekk til hennar og spurði, hvert ferð hennar væri heitið. „Hingað,“ mælti hún glaðlega. — Nokkrir vinir mínir ætla að heimsækja mig í kvöld pabbi, — get- urðu ekki farið í krumpaða skyrtu og þvældar gallabux- ur??? — Ég laumaðist út áður en kom að upp- vaskinu . . . — Jæja, nú geta allir farið út í garð og fengið sér grillaðar kótelettur . . .

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.