Morgunblaðið - 08.09.1974, Page 35

Morgunblaðið - 08.09.1974, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1974 35 Mosambique fær sjálf- stæði Lusaka, Zambiu 7. september — AP SAMKOMULAG um sjálfstæði portúgölsku nýlendunnar Mosam- bique, var undirritað f Lusaka á laugardag. Fulltrúa Portúgals- stjórnar og skæruliðahreyfingar Frelimo undirrituðu samkomu- lagið. Mosambique verður formlega sjálfstætt rfki 25. júnf á næsta ári, en f næstu viku verður komið á bráðabirgðastjórn Frelimo. Frelimo hefur um árabil barizt gegn veldi Portúgala í nýlend- unni. Léðrétting INN í frásögn af málverkagjöf 50 ára stúdenta frá MR I blaðinu f gær slæddist sú meinlega villa, að frú Anna Thorlacius væri ein á lffi þeirra kvenna, sem útskrifuð- ust 1924. Það rétta er, að þær eru fimm á lffi, tvær búsettar hér- lendis og þrjár erlendis. A Búðum á Snæfellsnesi héldu Snæfellingar þjóðhátíð 21. júlí, og er talið, að hana hafi sótt um 4000 manns. Á Þingvöllum var haldin þjóð- hátíð allra landsmanna 28. júlí. Hún tókst með afbrigðum vel, enda veður einstaklega fagurt. Er talið að 50.000 Islendingar hafi verið samankomnir á Þingvöllum þennan dag. 1 Reykjavfk var haldin þriggja daga þjóðhátíð 3—5 ágúst. Erfitt er að meta hvað margir tóku þátt í hátíðinni, en atriði hennar voru yfirleitt mjög vel sótt. Talan 50.000 er raunhæfust, en talið er, að svo margir hafi verið saman- komnir í miðborg Reykjavíkur að kvöldi 5. ágúst. I Vestmannaeyjum var sfðasta þjóðhátíð sumarsins haldin 9.—11. ágúst og er talið, að 5—6000 manns hafi sótt hana. — Tillaga BSRB Framhald af bls. 2 andi til að leysa sjálfan vandann. Þessar ráðstafanir, sem ávallt hafa verið nær eingöngu á kostn- að launþega, hafa skapað óhæfi- legar sveiflur í efnahagsmálum og kjaramálum. Stjórn B.S.R.B. vill benda á þá leið, að allar peningalegar til- færslur, skuldir og innstæður, laun og vextir, verði tengdar réttri vísitölu, en gengið verði „fljótandi". Stjórn B.S.R.B. samþykkir sam- kvæmt ósk ríkisstjórnarinnar að tilnefna menn til viðræðna við hana. Jafnframt ákveður banda- lagsstjórnin, að þessi mál verði lögð fyrir formannafund samtak- anna, sem haldinn verður dagana 9.—11. október I haust.“ Fiskiskip til sölu 160 tonna stálfiskiskip nýkomið úr 12 ára klassa, ennfremur 52 tonna tréfiskiskip allt ný endurbyggt með nýrri Catarpillar vél. Fasteignasalan, Týsgötu 1, sími 25466. Kvöld- og helgarsími 32842. Stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins 14.—20. október n.k. Ákveðið hefur verið að stjórnmálaskóli Sjálfstæðisflokksins verði hald- inn frá 14.—20. október n.k. Meginþættir námsskrár verða sem hér segir: 1. Þjálfun ! ræðumennsku, fundarsköp o.fl. 2. Almenn félagsstörf og notkun hjálpartækja. 3. Framkoma í sjónvarpí (upptaka o.fl.). 4. Söfnun, flokkun og varðveizla heimilda. 5. Helztu atriði íslenzkrar stjórnskipunar. 6. (slenzk stjórnmálasaga. 7. Skipulag og starfshættir Sjálfstæðisflokksins. 8. Stjórnmálabaráttan og stefnumörkun. 9. Utanríkismál. 10. Markmið og rekstur sveitarfélaga. 1 1. Verkalýðsmál. 1 2. Efnahagsmál 1 3. Kynnisferðir Skólinn verður heilsdagsskóli meðan hann stendur yfir, frá kl. 9:00—18:00, með matar- og kaffihléum. Þeir sem áhuga hafa á þátttöku eru beðnir að láta Vilhjálm Þ. Vilhjálmsson, skólastjóra stjórnmálaskólans (sími 17100) vita sem fyrst. Þátttaka í skólahaldinu verður að takmarka við 30 manns. Þátttökugjald hefur verið ákveðið kr. 1.000.— — Spariskírteini Framhald af bls. 36 né vísitala af bréfunum, og verða þau þá innleyst. Mbl. fékk þær upplýsingar hjá Seðlabanka Is- lands, sem haft hefur umsjón með útgáfu skírteinanna fyrir hönd ríkissjóðs, að nafnverð útgáf- unnar 1964 hefði verið um 75 milljónir króna. Sáralítið mun hafa verið leyst út af bréfunum til þessa. Samkvæmt þessu koma til útborgunar I janúar 850—900 milljónir. Er því ljóst, að bréfin hafa verið eigendunum góð fjár- festing. — Mín þjóðhátíð Framhald af bls. 3. af underberger, og ég setti þau í þessa mynd, sjálfsmynd". „Finnst þér gaman að nota svona hluti“? „Það er ekki atriðið, hvert efnið er, ef vel er farið með það. Maðurinn sjálfur skiptir meira máli, ekki verð litanna eða strigans, þótt sjálfsagt sé að nota ekki nema gott efni, en það þarf ekki að vera dýrt. Það er oft mikið um fordóma, en með aldrinum hættir maður því, maður sér hvað fordóm- arnir eru vitlausir. Ég vil til dæmis miklu heldur skrifa fróðleik um myndlist en mynd- listargagnrýni. En það er þetta með fordómana; sumir segja, að unga fólkið sé haldið for- dómum, eða eins og einhver sagði: Æskan er dásamleg, en það er synd að splæsa henni á unga fólkið". — a.j. — Þjóðhátíðir Framhald af bls. 36 fellingar þjóðhátíð I sambandi við brúarvfgslu og formlega opnun hringvegarins 14. júlí. Er talið, að um 6000 manns hafi verið á sand- inum þennan dag. I Kjarnaskógi við Akureyri héldu Akureyringar og Eyfirðing- ar tveggja daga þjóðhátíð, 20. og 21. júlí. Þá hátíð sóttu 9000 manns að mati viðstaddra. I Kópavogi var haldin þjóðhátlð 21. júlf og sóttu hana um 5000 manns. I Hafnarfirði var haldið þjóð- hátíð 21. júll og sóttu um 5000 manns þá hátíð. I Búðardal héldu Dalamenn þjóðhátlð 21. júlí, og sóttu hana 1500—2000 manns, eða mun fleiri en íbúar sýslunnar. Selfoss — Suðurland Til sölu m.a.: Á Selfossi, einbýlishús og íbúðir. Á Stokkseyri, einbýlishús. Væg útborgun. í Þorlákshöfn, einbýlishús i smíðum og hæð i tvibýlishúsi. Ennfremur leiguland undir sumarbústaði með heitu og köldu vatni. Sveinn og Sigurður, fasteignasala, Birkivöllum 13, Selfossi, sími 1429. Sigurður Sveinsson heimasími 1682. Málaskóli---2-69-081 0 Danska, enska, þýzka, franska, spænska, italska og íslenska fyrir útlendinga. 0 Innritun daglega. £ Kennsla hefst 23. september. 0 Skólinn er til húsa i Miðstræti 7. 0 Miðstræti er miðsvæðis. -2-69-08------------------Halldórs ^^SKÁLINN BRONCO ÁRG. '72 VERÐ 750 ÞÚS. BRONCO ÁRG. '68 560 ÞÚS. BRONCO ÁRG. '68 YFIRBYGGÐUR 580 ÞÚS. BRONCOÁRG. '66 350 ÞÚS.. BRONCO ÁRG. '66 310 ÞÚS. CORTINA ÁRG. '72 430 ÞÚS. CORTINA ÁRG. '71 310 ÞÚS. CORTINA ÁRG. '68 180 ÞÚS. CORTINA ÁRG. '68 165 ÞÚS. MUSTANG ÁRG. '65 280 ÞÚS. FORD FALCON ÁRG. '64 1 20 ÞÚS. PLYOMUTH ÁRG. '70 500 ÞÚS. CHEVROLET ÁRG. '66 310 ÞÚS. SCOUDÁRG. '67 300 ÞÚS. CITROEN DS ÁRG. '69 350 ÞÚS. CITROEN 2 CV4ÁRG.'71 180 ÞÚS. VOLKSWAGEN ÁRG. '71 210 ÞÚS. VOLKSWAGEN VARIANT ÁRG. '65 1 50 ÞÚS. VAUXHALL VIVAÁRG. '70 220 ÞÚS. AUSTIN GM ÁRG '69 1 60 ÞÚS. MOSCHVITH ÁRG. '70 160 ÞÚS. SKODAÁRG. '71 160 . ÞÚS. ÖMBOfllfl KH. KRISTJANSSDN H.f SUÐURIAND5BRAUT 2, VIÐ HALLARMÚLA SÍMAR 35300 (35301 - 35302). Hafnarfjörður Hafnarfjörður Landsmálafélagið „Fram" heldur fund 1 veitingahúsinu „Skiphól" n.k. mánudag 9. þ.m. kl. 8.30 siðdegis. Fundarefni: 1. Inntaka nýrra félaga. 2. Fjármálaráðherra Matthias Á. Mathiesen, ræðir stjórnarskiptin og næstu viðfangsefni. Allir eru velkomnir á fundinn og er fólk hvatt til að fjölmenna. Stjórnin. RÍKISSPÍTALARNIR lausar stöður Kleppsspítalinn: Aðstoðarlæknar óskast i tvær sex mánaða stöður frá 1. október n.k. (ekki 1. nóvember, eins og áður var auglýst). Umsóknarfrestur til 30. september. Nánari upplýsingar veitir yfirlæknir. Þvottahús ríkisspítalanna: Aðstoðarmaður óskast til starfa nú þegar. Fæði á staðnum. Upplýsingar veitir forstöðukona, simi 81714. Landspítalinn: Meinatæknir óskast til starfa á Lyflækninga deild spitalans frá 15. september n.k. eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir yfirlæknir deildarinn- ar, simi 241 60. Blóðbankinn: Meinatæknir óskast til starfa frá 1. október n.k. Upplýsingar veitir yfirlæknir. sími 21511. Rannsóknarstofa Háskólans: Læknaritari óskast til starfa frá 1. október n.k. eða eftir samkomulagi. Upplýsingar veitir starfsmanna- stjóri, simi 11 765. Starfsmaður óskast til starfa á rannsóknarstofunni. Iðnmenntun eða hliðstæð menntun æskileg. Upplýsingar veitir yfirlæknirinn, simi 19506. Umsóknum er greini aldur, menntun og fyrri störf, ber að senda skrifstofu rikisspitalanna. Umsóknareyðublöð fyrirliggjandi á sama stað. Reykjavik, 6. september, 1974 SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5,SÍMI 11765

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.