Morgunblaðið - 01.10.1974, Side 13
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1974
13
Kvennaskólinn
heimsóttur
og rabbað við
heimafólk
Guðrún Þorsteinsdóttir
Ása Halldórsdóttir
Rúna Gisladóttir
hennar frú Sigrfður Briem Thor-
steinsson.
XXX
Við röbbuðum við dr. Guðrúnu
P. Helgadóttur skólastjóra og
spurðum hana um meginreglurn-
ar í skólastarfinu.
„Skólareglurnar," sagði hún,
„eru ákveðnar Og byggjast á gam-
alli hefð. Þær eru rifjaðar upp
með stúlkunum á hverju hausti,
en oft þarf að beita lipurð og
sveigjanleika í framkomu við
unglingana og skólareglur eru
eins og hver önnur mannanna
verk, ófullkomnar að vissu marki.
Þær reglur, sem við höfum, stönd-
um við kennararnir saman um að
framfylgja og við teljum, að þær
séu stúlkunum til góðs og að þeim
sé hollt að fara eftir þeim.
Þegar stúlkur koma inn í skól-
ann á haustin er stundum svolltill
skvettugangur á þeim, en eftir
2—3 vikur ber minna á slíku. Ég
held, að það stuðli mikið að að-
haldi innan skólans, að hver
kennari hefur umsjón með sínum
bekk og það starf er unnið af
mikilli samvizkusemi. Kennararn-
ir líta á nemendur sem skjólstæð-
inga sína, er hlýtt til þeirra og
láta sér annt um þá. Milli hvers
bekkjar og umsjónarkennara
skapast líka ávallt persónuleg
tengsl. Okkur þykir bezt ef stúlk-
urnar okkar eru frjálsar I fram-
komu en prúðar.
Ég tel, að bezt sé að trúa nem-
endum mínum, rengja þá ekki að
fyrra bragði og skapa með þeim
ábyrgðartilfinningu. Við reynum
að gera stúlkurnar færari til að
standa sjálfstætt á eigin fótum og
koma þeim til einhvers þroska."
„Hvaða áform eru um stærra
húsnæði?"
„Húsnæðið, sem við erum I, er
algjörlega ófullnægjandi. Við höf-
um nú fengið. leyfi til að byggja
einnar hæðar hús á baklóðinni til
þess að losa kennslustofur undir
risi og til þess að fá viðunandi
kennsluaðstöðu. Kennslustofurn-
ar eru allt of litlar og þröngar og
miklar breytingar þarf að gera til
þess að fá svipaða aðstöðu og er
annars staðar. Til dæmis þarf að
ganga inn í gegn um sumar
kennslustofur til' þess að komast
inn i aðrar. Lélegur húsakostur
gerir okkur aðstöðuna alla erfið-
ari, en við vonum að úr rætist.“
XXX
Einn af kennurum skólans, Að-
alsteinn Eirfksson hefur skrifað
sögu skólans í bók um Kvenna-
skólann, sem er væntanleg á
markað eftir nokkrar vikur.
„Þessi bók, sagði Aðalsteinn, „var
unnin að frumkvæði skólanefnd-
ar og skólastjóra. I bókinni er
m.a. saga skólans, og skrifað er
um skólastjórana, myndir eru af
allflestum árgöngum skólans og
má segja að furðulega vel hafi
tekizt að ná saman myndum.
Einnig eru svo til allir á myndun-
um nafngreindir. Þá er nemenda-
tal, sem Björg Einarsdóttir hefur
unnið, en alls hafa um 4500 stúlk-
ur stundað nám í skólanum. Allt
FYRIR VIÐRAÐANLEGT
Nýja Novis samstæðan er ætluð ungu fólki
ó öllum aldri. Novis er skemmtilega
einföld og hagkvæm lausn fyrir þó, sem
leita að litríkum hillu- og sköpasamstæðum,
sem byggja mö upp í einingum, eftir hendinni.
Novis er nýtt kerfi með nýtízkulegum blæ.
HÚSGAGNAVERZLUN
KRISTIÁNS SIGGEIRSSONAR HF.
Laugavegi 13 Reykjavik sími 23870
Framhald á bls. 30.