Morgunblaðið - 01.10.1974, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKT0BER 1974
15
Sjoppurnar viður-
styggð
— Jú, breytingin hefur orðið
mikil, og á flestum sviðum til
batnaðar. Annars er einn stórgalli
á þessari velmegun, sem nú er, og
það eru þessar „helvítis" sjoppur.
Krakkarnir hanga við þær öll
kvöld i stað þess að gera eitthvað
þarflegra. Þá hefur félagslíf allt
dottið niður, því enginn gefur sér
tíma til að sinna því. Ef maður
lítur hinsvegar á betri hliðina á
málinu, þá hafa allir ærinn starfa
nú, og unga fólkið er farið að
setjast hér að. Vonandi verður svo
áfram og allir hafa gott af vinnu
meðan heilsan endist.
Höndin farin
að stirðna
— Hvað vinnið þið margir hér í
veiðarfærahúsinu?
— Við erum hér þrír, sem vinn-
um allt árið, en yfir hávertlðina
erum við mun fleiri. Veiðarfæra-
notkun bátanna hefur aukizt gff-
urlega siðustu árin og hér I hús-
inu eru nú veiðarfæri upp á tugi
milljóna. Ég vinn að jafnaði 8—9
klukkustundir á dag við veiðar-
færin og stundum vinn ég 10—12
klukkustundir. Þegar ég er búinn
að standa við vinnuna svo lengi er
ég farinn að lýjast. Er þá orðinn
kaldur á höndum, það mikið að ég
finn vart fyrir hægri hendinni.
En maður verður að standa eins
og maður getur, þvi ef ég hætti
myndi ég stirðna allur og því má
það ekki gerast, að ég hætti vinn-
unni snögglega.
Hefði orðið bóndi
— Ef þú værir orðinn ungur á
ný, hvaða lífsstarf mundir þú þá
velja þér og hefðir þú þá setzt að á
Stokkseyri?
— Ég held, að ég hefði ekki
setzt að á Stokkseyri, þó svo að
hér líði mér mjög vel. Etf ég væri
ungur á ný myndi ég setjast að I
sveit. Ég er gefinn fyrir' skepnur
og þvl hygg ég, að bóndastarfið
hæfði mér bezt.
— Hafa aldrei hent þig einhver
óhöpp I lifinu?
— Ekki svo ég muni. Ég var
gæfusamur ungur, þegar ég gift-
ist Guðrúnu Þórðardóttur. Við
höfum eignazt 3 börn, tvær dætur
og einn son. Stúlkurnar búa báðar
i Reykjavík, en drengurinn býr
hér I Heiðarbæ á Stokkseyri.
Hinsvegar gleymi ég aldrei at-
burði, sem gerðist hér fyrir
nokkrum árum, þegar þrír ungir
og efnilegir skipstjórnarmenn
hurfu I hafið fyrir allra augum.
Hvað sjálfan mig snertir, þá hef-
ur þetta allt bjargazt, eins og mað-
ur segir, en stundum hefur það
verið erfitt, sagði Jón að lokum. ■
SJÓ- OG LENSI-
DÆLUR
STURLAUGUR
JÓNSSOIM
& CO.
Vesturgötu 16,
Sími 13280.
New Statesman
sakar strandríki
um „græðgi”
HAFRÉTTARRAÐSTEFNAN f
Caracas f sumar og nýlendukapp-
hlaup Evrópuþjóða f Afrfku á sfð-
ustu öld eru lögð að jöfnu f grein
eftir Ritchie Cakder f vikuriti
brezkra vinstrimanna, New Stat-
esman.
Græðgi í auðlindir hafsins ein-
kenndu ráðstefnuna að dómi
greinarhöfundar. Hann segir, að
fulltrúar allra landa á ráðstefn-
unni hafi gert sér vonir um, að
finna „Norðursjávarolíu“.
Hann heldur þvf fram innan
sviga, að það sem hafi raunveru-
lega búið á bak við innrás Tyrkja
í Kýpur og byltinguna gegn
Makariosi erkibiskupi hafi verið
græógi í olíu, sem megi finna á
botni hafsins milli Norður-Kýpur
og tyrklands.
Höfundur telur, að á hafsbotn-
inum leynist milljarðir lesta af
málmgrýti, sem úr megi vinna
mangan, járn, kisilgúr, I
magnesium, nikke^kobalt og zink.
Þetta sé svo mikið, að þegar hag-
nýting þessara auðlinda hefjist,
lendi námur heimsins f harðri
samkeppni, ekki sízt námur f van-
þróuðum löndum.
Hann segir, að margir vinstri-
sinnar hafi beitt sér fyrir alþjóða-
stjórn hafsins, sem bæði skuli
hafa yfirumsjón með hagnýtingu
auðlinda á hafsbotninum og
tryggja nauðsynlega umhverfis-
vernd. Vanþróuðu löndin séu yf-
irleitt fylgjandi þessari hugmynd,
en græðgi þeirra í auðlindir sé
svo mikil, að þau geri sér ekki
grein fyrir, að með stækkun auð-
lindalögsögu fórni þau mikil-
vægri tryggingu sem alþjóðleg
stjórn mundi veita þeim gegn arð-
ráni fjölþjóðafyrirtækja, sem bíði
þess óþreyjufull að hefjast handa.
Einnig telur hann vanþróuðu
löndin sýna skammsýni með til-
raunum til þess að takmarka haf-
fræðilegar og líffræðilegar rann-
sóknir, sem séu lffsnauðsynlegar,
ef komast eigi hjá óbætanlegum
glappaskotum . í „iðnvæðingu
hafsins".
Greinarhöfundur kveðst hafa
"komizt að þeirri niðurstöðu, eftir
að hafa fylgzt með störfum ráð-
stefnunnar, að bezt væri, að henni
yrði hætt. Allar niðurstöður, sem
komizt verði að i þvi andrúms-
lofti, sem þar hafi rikt, muni
stofna óbornum kynslóðum í
hættu. En hann bætir því við, að
allar tafir á réttum niðurstöðum
geri það einnig og enn sé tóm til
að finna þau.
Hvöt hefur
vetrarstarfið
sjAlfstæðiskvennafé-
LAGIÐ Hvöt er aó hefja vetrar-
starfið. Hefst það með Bingó-
kvöldi á Hótel Borg á miðviku-
dagskvöld kl. 20.30 og er I vinning
utanlandsferð o.f I.
Um miðjan október, eða þriðju-
dagskvöðdið 15. verður almennur
fundur félagsins i Átthagasal
Sögu, og verður Ragnhildur
Helgadóttir, alþingismaður, ræðu-
maður kvöldsins. Um miðjan
nóvember verður aðalfundur fé-
lagsins, og jólafundur er fyrir-
hugaður að venju skömmu fyrir
jól. En í byrjun nóvember efna
Hvöt og Samband sjálfstæðis-
kvenna til tveggja daga ráðstefnu
um nýjungar í skólamálum.