Morgunblaðið - 01.10.1974, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÚBER 1974
17
Franski tugþrautarmaðurinn Yves Le Roy — náði stðrkostlegum árangri f lands-
keppni við Breta og Islendinga.
Tugþrautarlandskeppnin:
Frakkar sigruðu örugglega
en íslendingar og Bretar
börðust lengi jafnri baráttu
Svo sem búizt var við fyrirfram sigruðu Frakkar
f tugþrautarlandskeppninni við Breta og Is-
lendinga með töluverðum yfirburðum, en keppni
þessi för fram f Parfs á laugardag og sunnudag.
Hlutu Frakkarnir samtals 30.712 stig, Bretar hlutu
27.692 stig og lslendingar 26.280 stig. Var lengi um
nokkuð jafna keppni milli islendinga og Breta að
ræða, og má búast við þvf, að mjög mjótt hefði
orðið á mununum, ef tslendingar hefðu getað teflt
fram sfnu bezta liði, en sem kunnugt er gat Stefán
Hallgrfmsson, Islandsmethafi f þessari grein, ekki
keppt með vegna meiðsla.
Formanni Knattspyrnusam-
bands íslands, Ellert B. Schram,
tókst um helgina að ná samkomu-
lagi við liðin tvö, Akureyri og
Vfking, um að leika til úrslita um
sætið f 1. deild, en bæði þessi lið
höfðu áður lýst þvf yfir, að þau
myndu ekki koma til leiksins.
Hafði stjórn KSl tilkynnt, að hún
liti þannig á, að ef liðin héldu fast
Ellert B. Schram — tókst að fá
liðintil aðleika.
við þessa ákvörðun sfna, hefðu
þau hætt þátttöku f 1. deildar
keppninni, og lá þá fyrir, að þau
hefðu bæði þurft að leika f 2. eða
3. deild á ári.
Leikurinn átti að fara fram f
Keflavik á laugardaginn, en var
fyrst frestað til sunnudags, og
eftir að samkomulagið við liðin
tókst, var leiknum svo endanlega
frestað til laugardagsins 5. októ-
ber. Að sögn Helga Daníelssonar,
formanns mótanefndar, er ekki
vitað, hvar leikurinn fer þá fram,
en leitað mun eftir því að fá völl-
inn í Keflavík.
Ellert B. Schram, formaður
KSl, sagði í viðtali við Morgun-
blaðið í gær, að hann hefði setið
fundi með Víkingum á fimmtu-
dags- og föstudagskvöldið og á
laugardaginn hefði hann svo farið
til Akureyrar. — Það var rætt um
málið í fullri hreinskilni af
beggja hálfu og niðurstaðan var
svo sú, að liðin féllust á að koma
til leiksins. Ég er mjög ánægður
með þessi málalok. Að mfnu mati
hefði það verið mikil ógæfa fyrir
íþróttina, ef þannig hefði farið, að
bæði þessi lið hefðu verið dæmd
frá 1. deildar keppninni og klögu-
málum sfðan haldið áfram. Það,
að liðin ætla að mæta, er þeim
báðum til sóma.
Ellert var að þvf spurður, hvort
KSÍ hefði heitið liðunum þvf að
beita sér fyrir fjölgun í 1. deild-
inni. Hann sagði, að ekki hefði
verið samið um neitt slíkt, en hins
vegar hefði þessi mál borið á
Framhald á bls. 23.
Það var Frakkinn Yves Le Roy,
silfurmaðurinn frá Evrópumeist-
aramótinu í Róm, sem sigraði
örugglega í einstaklingskeppn-
inni og náði stórglæsilegum
árangri, Hlaut hann 8.229 stig, og
er það nýtt franskt met og jafn-
framt annar bezti tugþrautar-
árangurinn, sem náðst hefur f
heiminum í ár. Aðeins Banda-
ríkjamaðurinn Bruce Jenner
hefur náð betri árangri, 8.304
stig. Le Roy er aðeins 23 ára að
aldri, og er því óhætt að spá
honum glæstum frama í þessari
íþróttagrein, en sjálfur segist
hann keppa að því einu að sigra á
olympíuleikunum í Montreal
1976. Afrek Le Roy I einstökum
greinum var sem hér segir: 100
metra hlaup: 10,8 sek., langstökk
7,44 metrar, kúluvarp 14,59
metrar, hástökk 1,96 metrar, 400
metra hlaup: 48,4 sek., 110 metra
grindahlaup 14,7 sek., kringlu-
kast 46,50 metrar, stangastökk:
4,70 metrar, spjótkast 64,66 metr-
ar og 1500 metra hlaup 4:41,9
mín.
I öðru sæti í keppninni varð
Philippe Bobin frá Frakklandi,
sem hlaut 7.595 stig. Bobin þessi
er aðeins nítján ára og hefur lftið
keppt f tugþraut til þessa. I þriðja
sæti varð Schoebel frá Frakk-
landi með 7.451 stig og fjórði varð
Lerouge frá Frakklandi með
7.396 stig. Eru það örugglega fáar
þjóðir, sem geta státað af eins
sterku tugþrautarliði og Frakk-
arnirgeta.
Fimmti í keppninni var Dray-
ton frá Bretlandi, sem hlaut 7.127
stig, sjötti varð Bretinn Mitchell
sem hlaut 7.088 stig, Pradet frá
Frakklandi varð sjöundi með
6.972 stig og f áttunda sæti kom sá
íslendingur, sem fremstur varð:
Elías Sveinsson, en hann hlaut
6.884 stig og var því langt frá sínu
bezta. Hlaut Elías t.d. rösklega
7.100 stig í tugþrautarkeppninni á
Laugardalsvellinum á dögunum.
I níunda sæti varð Millepied frá
Frakklandi með 6.852 stig. Cor-
den frá Bretlandi varð níundi
með 6.801 stig, Young frá Bret-
landi varð ellefti með 6.676 stig,
Karl West Fredriksen, tslandi
varð tólfti með 6.619 stig, Vil-
mundur Vilhjálmsson varð f
þrettánda sæti með 6.428 stig,
Hafsteinn Jóhannesson varð
fjórtándi með 6.349 stig. Phitts,
Bretlandi varð fimmtándi með
6.319 stig og Snow frá Bretlandi
varð í sextánda sæti með 5.881
stig.
Hár vinningur
ÞEGAR starfsfólk Gctrauna
fór yfir getraunaseðlana f 7.
Ieikviku fannst aðeins einn
seðill með 11 réttum lausnum
og fær handhafi hans, sem er
Hafnfirðingur, 351.000,00 f
vinning. Kom þessi vinningur
sér vel fyrir viðkomandi, sem
lenti f bflslysi fyrir nokkru og
verður óvinnufær f a.m.k. eitt
ár.
3 seðlar með 10 réttum
lausnum fundust og fá hand-
hafar þeirra 50.000 kr.
vinning, en fremur erfátftt, að
annar vinningur gefi svo
mikið.
Guðmundur varð 11.
en Gústaf féll úr
HEIMSMEISTARAMÓTINU f
lyftingum lauk f Manila á
sunnudaginn með þvf að Sovét-
maðurinn Vasili Alexev setti
nýtt heimsmet f lyftingum yfir-
þungavigtar og náði frábærum
árangri: 425 kg. Getur þvf þessi
sovézki björn áfram gert tilkail
til þess að vera kallaður sterk-
asti maður heims, en Alexev
hefur verið ósigrandi undan-
farin ár og sett hvert heimsmet-
ið af öðru. Alexev setti einnig
nýtt heimsmet f jafnhöttun, er
hann lyfti 241,5 kg f aukatil-
raun f keppninni.
Tveir Islendingar voru meðal
þátttakenda f heimsmeistara-
mótinu, þeir Guðmundur Sig-
urðsson og Gústaf Agnarsson.
Keppti Guðmundur á föstudag-
inn f milliþungavigtarflokkn-
um og stóð sig þar með miklum,
ágætum, lyfti samtals 320 kg og
varð í 11. sæti af 21 keppenda í
flokknum. Hiaut Guðmundur 2
stig f keppninni og kom tslandi
þar með á blað.
Gústaf Agnarsson keppti svo
I þungavigtarflokknum á laug-
ardaginn, en mistókst við byrj-
unarþyngd sfna f snörun og
hætti þar með keppninni.
Keppendur f þungavigtar-
flokknum voru 13, þannig að
Gústaf hefði átt að ná stigum f
keppninni, hefði ailt gengið að
óskum.'og einnig hefði hann átt
möguleika á verðlaunum f snör-
uninni, en þar nægðu 160 kg til
bronsverðlaunanna.
Sigurvegari f milliþungavigt-
arflokknum varð David Rigert
frá Sovétrfkjunum, sem lyfti
samtals 387,5 kg og setti þar
mcð nýtt heimsmet. Hann setti
einnig heimsmet f jafnhöttun
með þvf að lyfta 215 kg. Silfur-
verðlaun hlaut Polaratsky frá
Sovétrfkjunum, sem lyfti 367,5
kg, og bronsverðlaun hlaut Pet-
zold frá A-Þýzkalandi, sem iyfti
355 kg.
Sem fyrr greinir varð Guð-
mundur 11. f keppninni. Hann
snaraði 140 kg. og jafnhattaði
180 kg. Er það mjög nálægt þvf
bezta, sem hann hefur gert, en
Islandsmet hans f samanlögðu
er 322,5 kg.
Sigurvegari f þungavigtar-
flokknum varð Ustyuzhin frá
Sovétrfkjunum, sem snaraði
167,5 kg. og jafnhattaði 212,5
kg. Samanlagður árangur hans
var þvf 380 kg. Annar varð
Jurgen Ciezki frá Austur-Þýzka
landi með 377,5 kg og Yuri
Zaitsev, Sovétrfkjunum, varð
þriðji með 367,5 kg. Fjóri varð
Dieter Westphal, V-Þýzkalandi,
með 360 kg, en sömu þyngd
lyfti einnig Peter Kaks frá
Austur-Þýzkaiandi.
Yíkingur og
ÍBA gáfu sig
Leika á laugardaginn
Plorflnntilafrlft_____________
Þriðjudagur 1. okt. 1974 — 8 sfður