Morgunblaðið - 01.10.1974, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 01.10.1974, Qupperneq 40
24 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 1. OKTÓBER 1974 Hart barizt I leik Norðmanna og Dana f Norðurlandamótinu, en Ðanir unnu sigur f þeim leik, og þar með opnuðust möguleikar fslendinga á Norðurlandameistaiatitlinum að nýju. ISLAND sigraði f karlafiokki á Norðurlandamðti stúdenta f körfuknattlcik, sem fram fór um helgina. ÖIl löndin hlutu tvö stig f mótinu, en fslenzka Iiðið var með hagstæðustu stigatöluna og sigr- aði þvf. Noregur varð f öðru sæti, en Danir ráku lestina. — Dönsku stúlkurnar sigruðu hinsvegar með miklum yfirburðum f kvennaflokki, þar urðu fslenzku stúlkurnar f neðsta sæti eftir mikla keppni við þær norsku. — Allir leikirnir f karlaflokknum voru mjög jafnir og spennandi. Danir byrjuðu á þvf að sigra Norðmenn með einu stigi, 60:59. Noregur sigraði sfðan fsland með 68:66, og þvf þurfti fsland að sigra Danmörk með fjórum stig- um til þess að vinna mótið á stiga- tölu. Þann leik léku fslenzku pilt- arnir mjög vel, liðið var óþekkj- anlegt frá leiknum við Noreg, og lokatölur urðu 79:64. Mjög góður og sannfærandi sigur, sem jafn- framt tryggði 1. sætið, en sendi um leið danska liðið niður f það neðsta. DANMÖRK: NOREGUR 60:59 (27:27) Eins og tölurnar gefa til kynna var leíkurinn mjög jafn. Norð- menn höfðu þó yfirleitt forust- una, en hún varð aldrei stór eða mest sjö stig í fyrri hálfleik, 17:10. — í síðari hálfleik leit út fyrir, að Norðmenn ætluðu sér að gera út um leikinn, þeir náðu sfnum bezta leikkafla og komust yfir, 42:32. En Danir gáfu ekki frekari höggstað á sér og komust yfir rétt fyrir leikslok, 55:51. Norðmenn náðu þó að komast einu stigi yfir rétt fyrir lok leiks- ins, en Danir skoruðu úrslitakörf- una, þegar ein sek. var eftir. Það var Knudsen, sem skoraði með langskoti. Þessi úrslit komu nokk- uð á óvart, því að Noregur er hér með næstum því algjört landslið, eóa 8 af 10 leikmönnum en Danir hafa fjóra landsliðsmenn. ÍSLAND:NOREGUR 66:68 (37:42) Bæði liðin mættu til leiks með 8 landsliðsmenn, svo gera mátti ráð fyrir hörkuviðureign, enda hafa landsleikir þjóðanna á undan- förnum árum verið afar jafnir, þótt ávallt hafi Island sigrað. — Fyrri hálfleikurinn var líka allan tímann jafn, e* undan er skilinn kaflinn frá 12. u. 16. min., en þá skoruðu Norðmenn 10 stig í röð. Noregur var yfir f hálfleik með 42:37. Norðmenn byrjuðu síðari hálfleikinn vel, og maður hafði það á tilfinningunni, að íslenzku liðsmennirnir héldu, að þeir gætu ekki tapað þessum leik. Þeir virt- ust aldrei berjast af fullum krafti og það voru Norðmenn fljótir að notfæra sér. Þeir komust í 54:43 og höfðu sfðan yfir 67:54, þegar fjórar mín. voru til leiksloka. Þá fyrst örlaði á baráttuvilja hjá landanum, en það kom bara of seint. Island fór nú að „salla“ inn stigum, og þegar 42 sek. voru eftir til leiksloka og staðan var orðin 68:66 fyrir Noreg áttu þeir inn- kast við eigin körfu. Og nú komu hin stóru mistök dómaranna að mínu mati. Aðeins má halda bolt- anum I 30 sek. án þess að reyna körfuskot. En Norðmenn, sem reyndu nú aðeins það eitt að halda boltanum, voru með hann f 36 sek. án þess að gera tilraun til að skora, þvf þegar flautað var næst, sýndi klukkan aðeins 6 sek. íslendingar fengu ekki boltann og Norðmenn kræktu sér því f bæði stigin. — Eftir leikinn sögðu dóm- arar leiksins, að þeir eigi ekki að dæma leiktöf, það eigi að vera sérstakur tímavörður, sem það geri. En þeirri reglu var ekki framfylgt að hafa tímavörð, og þá kemur f hugann þessi spurning: — Ef tímavörður er ekki fyrir hendi og þessi staða í leiknum kemur upp, þ.e. að annað liðið reynir aðeins að halda boltanum og hefur hann f 36 sek., eiga þá dómarar leiksins ekki að grípa í taumana? Þama var greinilega verið að brjóta reglur og eru dóm- arar ekki til þess að sjá til þess, að slfkt sé ekki látið viðgangast? Um íslenzka liðið er það að segja, að í þessum leik voru þeir beztir Jón Sigurðsson og Bjarni Gunnar. Aðrir virtust eitthvað miður sín og baráttu vantaði al- gjörlega, ef undan er skilinn loka- kaflinn. Jón var stighæstur með 16 stig, Bjami 14. ISLAND.DANMÖRK 79:64 (37:36) Þegar þessi leikur hófst, var staðan í mótinu þannig, að Island þurfti að sigra f þessum leik með 4 stigum eða meira til að hljóta 1. sætið. 3 stiga sigur þýddi, að öll liðin væru jöfn, danskur sigur eða fslenzkur sigur með einu eða tveim stigum þýddi hinsvegar, að Danir væru sigurvegarar mótsins. Óvenjumargir áhorfend'ur komu á leikinn, og þeir urðu ekkr fyrir vonbrigðum með leik ís- lenzka liðsins. Allt annar bragur var á leiknum en daginn áður, nú var barizt um hvern bolta og aldrei gefið neitt eftir. Og það sem reið baggamuninn, Birgir Jakobsson var nú f sínu gamla toppformi. Birgir var sem klettur í vörninni og var á löngum köfl- um nær einráður í fráköstunum, auk þess sem hann var drjúgur í sókninni og hitti vel. Hefði Birgir leikið svona leik gegn Norðmönn- unum, hefði ekki þurft að spyrja að úrslitum í þeim leik. Danska liðið lék nú einnig betri leik en gegn Noregi, en það kom þeim ekki að gagni. Eftir jafnan fyrri hálfleik, sem endaði 37:36 fyrir Island, tóku þeir Birgir, Bjarni Gunnar. og Kolbeinn Kristinsson „lotu“ í byrjun sfðari hálfleiksins og komu forskoti íslands upp í 14 stig á fyrstu 8 mín. hálfleiksins 59:45. Þessu forskoti hélt liðið síðan það sem eftir var leiksins og sigurinn 79:64 var kærkominn, því að Islendingar hafa ekki meir ánægju af að sigra nokkra í körf u- knattleik eins og Dani, enda verið iðnir við það f ram til þessa. Leikaðferð íslenzka lMsins var hin sama og landsliðið notaði í keppnisferðinni til Bretlands á dögunum, hún gekk oft mjög skemmtilega upp, en var e.t.v. ekki reynd nægjanlega mikið. Birgir Jakobsson var maður dagsins og harka hans og hæfni dreif aðra leikmenn áfram. Jón Sigurðsson og Torfi Magnússon Einbeittir á svip sækja fslenzku körfuknattleiksmennirnir f leikn- um við Dani sem þeir unnu örugglega. áttu báðir mjög góðan leik, en lentu báðir f vandræðum vegna | villufjölda og sátu á varamanna- bekknum talsverðan hluta leiks- ins. Bjarni Gunnar kom einnig nokkuð sterkur út úr þessum leik, svo og Kolbeinnn Kristinsson. Birgir var stighæstur með 29 stig, Símon Ólafsson 10, og þeir Kolbeinn og Torfi með 9 hvor. LOKASTAÐAN: Island 2 11 Noregur 2 11 Danmörk 2 11 145:132 = +13. 127:126 = +1. 124:138 = + 14. KVENNAKEPPNIN: Lið sömu þjóða háðu einnig keppni í kvennaflokki, en þar var keppnin ekki eins skemmtileg vegna mikilla yfirburða danska liðsins. Um annað sætið varö hins- vegar hörkukeppni milli Islands og Noregs. DANMÖRK:NOREGUR Það tók norska liðið einar 8 mín. að komast á blað f leiknum, og þegar þær skoruðu sitt fyrsta stig úr víti, var staðan 18:1. Þrjár dönsku stúlknanna, þær Larsen no. 5, Nörby no. 9 og Velling no. 10, sem er vel yfir 1,90 á hæð, voru afgerandi beztar og eru án efa beztu körfuknattleikskonur, sem leikið hafa f Laugardalshöll. Lokatölur þessa leiks kattarins að músinni urðu 73:22. NOREGUR:ISLAND 48:46. Eins og í karlaflokknum tókst norsku stúlkunum að „stela“ sigr- inum á sfðustu stundu. Islenzka liðið kom talsvert á óvart, því að vart var við því búizt, að þær mundu veita norsku stúlkunum mikla keppni. En stelpurnar komu einbeittar til Ieiksins og tóku strax forystuna. Þær komust í 10:5 eftir 8 mín. og 17:9 stuttu síðar. I hálfleik var staðan 29:23 fyrir Island. Um miðjan sfðari hálfleikinn var íslenzka liðið með 13 stiga forskot 42:29, og allt virtist benda til sigurs íslendinga. En skyndi- lega hrundi leikur liðsins, norsku stúlkurnar byrjuðu að vinna upp forskotið, en íslenzka liðið virtist gjörsamlega sprungið. Og á síð- ustu sek. leiksins náði nroska lið- ið fprustunni f fyrsta skiptið í leiknum og sigruðu með 48:46. Asta Garðarsdóttir var bezt ísl. stúlknanna og skoraði alls 10 stig, Emilía Sigurðardóttir 9. Þær Olga Bjarnadóttir og Katrfn Axelsdótt- ir voru einnig góðar. ISLANÐ:DANMÖRK 35:99 Isl. liðið náði forustunni í byrj- un og var yfir 8:5 eftir 3 mín. Eftir 8 mín. voru dönsku stúlk- urnar búnar að jafna, staðan var 12:12. Aftur komst ísl. liðið yfir, en Danmörk jafnaði 16:16 á 11. mín. Og nú gerðist nákvæmlega það sama og f leik ísl. Iiðsins dag- inn áður, úthaldið var búið. Liðið gjörsamlega hrundi niður og eft- irleikurinn var hinum sterku dönsku stúlkum auðveldur. Þær voru búnar að ná 25 stiga forustu íhálfleik, 51:26. Yfirburðirnir voru mun meiri í sfðari hálfleiknum, sem endaði 48:9, og lokatölur urðu 99:35. — ísl. stúlkurnar sýndu góðan leik meðan úthald þeirra entist, það þarf greinilega að bæta þar tals- vert um. Ása Garðarsdóttir var aftur stighæst, nú með 7 stig, Katrín Axelsdóttir og Guðrún Óiafsdóttir 6 stig hvor, Emilía Sig- urðardóttir 5 stig. ísl. liðið hafnaði því í neðsta sæti. örlftið meira úthald í leikn- um gegn Noregi hefði sennilega fleytt liðinu í 2. sætið. LOKASTAÐAN: Danmörk 2 0 2 172:57 Noregur 2 11 70:119 Island 2 2 0 81:147 Fjölmargir áhorfendur horfðu á leiki mótsins, sem fór vel fram, og höfðu af þvf mikla skemmtun. Er greinilegt, að með betri leik ísl. körfuknattleiksmanna koma fleiri til að fylgjast með leikjum, og er það vel. gk- Austurríki sigraði Austurrfki sigraði Ungverja- land með einu marki gegn engu f vináttulandsleik f knattspyrnu, sem fram fór f Vfn á laugardaginn. Er þetta fyrsti sigur Austurrfkis f knattspyrnulandsleik við Ung- verjaland f tfu ár. 36.000 áhorf- endur voru að leiknum, og var mikill fögnuður f þeirra her- búðum er Hans Krenkl skoraði mark Austurrfkis þegar á 15. mfnútu. Það sem eftir var leiksins sóttu Austurrfkis- menn nær afláts, en tókst ekki að bæta fleiri mörkum við. ÍSLENDINGAR URÐU NORÐURLANDAMECTARAR

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.