Morgunblaðið - 03.10.1974, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 03.10.1974, Qupperneq 1
36 SIÐUR 190. tbl. 61. árg. FIMMTUDAGUR 3. OKTÓBER 1974 Prentsmiðja Morgunhlaðsins. Atvinnuástand á Islandi bezt Stokkhólmi 2. október — NTB. TÖLULEGA séð er ástandið á vinnumarkaðinum á tslandi betra en annars staðar á Norður- löndum, að þvf er fram kom á fundi atvinnumálaráðherra Norðurlanda f Stokkhólmi f dag. Er atvinnuástandið mjög gott f Noregi og á tslandi, einnig allgott f Svfþjóð og f Finnlandi, en alvarlegt f Danmörku. Fulltrúi Is- lands skýrði frá því, að mikil eft- irspurn væri eftir vinnuafii þar f landi, og hefði atvinnuleysið f ágúst aðeins verið 0,2%. Væri reiknað með því, að þessi þróun héldi áfram með aukinni eftir- spurn. í Noregi var atvinnuleysið 0,7% á fyrra helmingi ársins. í Svíþjóð var atvinnuleysið 1,7% í júlímán- uði, sem er lægsta prósentutala sfðan 1970. í Danmörku er ástandið hins vegar allt annað. Fyrstu átta mán- uði-ársins var atvinnuleysið 3,6% samanborið við 2,5% árið áður. Er búizt við, að ástandið versni enn. Orsökina kvað danski at- vinnumálaráðherrann vera hækk- un verðs á olíuvörum og öðrum innfluttum vörum. 200 mílurnar svæfðar Washington 2. október. Frá fréttaritara Mbl. Geir H. Haarde: HORFUR eru nú á, að 200 mflna frumvarp Warren Magnussons hafi verið svæft þar sem eftir er þingtfmans fyrir tilverknað stjórnvalda, sem telja, að frum- varpið muni hafa neikvæð áhrif á hafréttarráðstefnuna, nái það fram að ganga. Fyrirhugað var, að frumvarpið kæmi til atkvæða í öldungadeild- inni í vikunni, en í þess stað var því vísað til enn einnar nefndar, i þetta sinn hermálanefndar deild- arinnar og henni falið að skila áliti um málið fyrir 14. nóvember. 1 reynd er þetta talið þýða, að málið sé endanlega svæft, þar til Klerídes ætlaði að segja af sér Nikósíu, New York 2. október Reuter — NTB. MAKARlOS erkibiskup, hinn út- lægi forseti Kýpur, lýsti í dag fullum stuðningi við Glafkos Klerídes, sem nú gegnir embætti forseta Kýpur. Fyrr í dag bárust fregnir um það frá Nikósíu, að Klerides hefði skýrt stjórn sinni frá því, að hann hygðist segja af sér, ef hann fengi ekki stuðningsyfirlýsingu frá Makaríosi á næstu dögum. Mun Klerídes hafa talið ógerlegt að leysa þau vandamál, sem við er að glíma á Kýpur, án stuðnings erki- biskupsins. þing kemur saman að nýju eftir nóvemberkosningarnar. Mögulegt er talið, að þingið komi saman stuttu eftir kosningar og sitji f nóvember og desember, en venju- lega hefjast fundir þess að lokn- um kosningum ekki fyrr en í janúar. Fari svo, verður að endur- flytja frumvarpið og mun fram- gangur þess þá enntefjast. Þessar tafir á afgreiðslu málsins hafa valdið stuðningsmönnum þess nokkrum vonbrigðum, en frum- varpið var talið hafa góða mögu- leika á, að hljóta samþykki f deild- inni, hefði það komið til atkvæða nú, eins og fyrirhugað var. Wilson — sætir þungum ásökun- um. Portúgal: Fransisco da Costa Gomes, hinn nýi forseti Portúgal t.h. með Vasco Goncalves, forsætisráðherra, eftir að hafa svarið embættiseið sinn f fyrrakvöld í Belemhöllinni f Lissabon. (AP-sfmamynd). Handtökum og hreins- unum er haldið áfram Lissabon 2. október. Reuter — AP. □ VALDHAFARNIR nýju f Portúgal styrktu stöðu sfna enn f dag og héldu fyrsta rfkisstjórnar- fundinn eftir afsögn Spinola for- seta. Hinn nýi forseti, Fransisco da Costa Gomes, var ekki við- staddur fundinn, sem haldinn var heima hjá Vasco dos Santos Goncalves, forsætisráðherra. Er talið, að stjórnin hafi m.a. rætt um, hverjir taki við embættum upplýsingamálaráðherra og varnarmálaráðherra, en þeir, sem Harka færist í kosning abaráttuna í Bretlandi: Wilson sakaður um falsanir London 2. október. Reuter —NTB 0 HAROLD Wilson, forsætis- ráðherra stjórnar Verkamanna- flokksins f Bretlandi, vfsaði ein- dregið á bug ásökunum thalds- flokksins um, að hún hefði gefið Efnahagsbandalagi Evrópu falsaðar tölur um verðbólguna f Bretlandi, og er nú harka að færast f kosningabaráttuna fyrir þingkosningarnar 10. október. William Whitelaw, for- maður Ihaldsflokksins hafði m.a. sagt, að Verkamannaflokkurinn væri að fela staðreyndir um slæmt efnahagsástand landsins. 0 Tölurnar, sem Efnahags- bandalagið birti f gær, sýna, að Bretland er með minnstu verð- bólgu ailra aðildarlanda EBE f júnf, júlf og ágúst og að stöðugt dregur úr henni. Ihaldsmenn halda þvf fram, að verðbólgan nemi 20% á ári og væru töiurnar svo lágar vegna tollalækkana. Frjálslyndi flokkurinn réðst einnig á stjórn Wilsons og hélt því fram, að hún hefði reynt að láta í veðri vaka, að EBE-tölurnar kæmu frá hlutlausum aðilum, en væru ekki byggðar á upplýsingum ríki sst j órna rinna r sj álf ra r. Annað atriði, sem er orðið að kosningamáli, eru tillögur Verka- mannaflokksins um 500 milljóna punda niðurskurð á framlögum til varnarmála. Talsmaður ihalds- flokksins i vamarmálum, Peter Walker, sagði í dag, að þessi niðurskurður mundi veikja varnarbandalag vestrænna þjóða og stöðu þeirra í afvopnunarvið- ræðum við Sovétmenn. Wilson hafnaði þessu einnig og kvað Framhald á bls. 20 Biðskák Moskvu 2. október — AP ATTUNDA skák Anatoly Karpovs og Viktors Korchnois fór f bið f kvöld eftir 41 leik. Staðan er talin fremur jöfn, en skákinni verður fram haldið á morgun. Karpov hefur þvf enn tvo vinninga, en Korchnoi engan. Framhald á bls. 20 héldu þessum embættum, voru sviptir þeim eftir afsögn Spinola. Talið er, að vinstrisinninn Ernesto Melo Antunes majór komi þar helzt til greina. □ Handtökum og hreinsunum er haldið áfram, og hafa nú 140 manns verið handteknir fyrir samsæri og and-byitingaráform. Sérlegar hersveitir stjórnarinnar réðust f dag inn f skrifstofur hægrifiokks eins, Framfara- flokksins, og kváðust hafa fundið þar miklar birgðir af vopnum Molotov-kokkteilum, hjálmum bareflum og áróðursplöggum Talsmaður stjórnarinnar sagði að þessi fundur sýndi, að flokkur inn hefði haft andbyltingar- áform á prjónunum, en vildi ekki skýra frá handtökum. Á undan- förnum fimm dögum hafa verið gerðar margar sifkar innrásir f skrifstofur fámennra hægri flokka. Þá gerðu hermenn upp- tæk fréttaskeyti hjá frönsku fréttastofnuninni AFP, og brezk- ur sjónvarpsfréttamaður varð fyrir ágangi pórtúgalskra sjón- varpsmanna, erhann sendi frétta- skeyti, sem Portúgalarnir töldu „and-portúgölsk“. Ástandið f Lissabon virtist þó vera friðsamlegt. Um 7000 fagnandi verkamenn fóru í göngu til leikvangs eins f borginni til að lýsa stuðningi sfnum við hina vin- strisinnuðu leiðtoga. Háttsettur embættismaður stjórnarinnar, sem ekki vildi láta nafns síns getið, skýrði frétta- mönnum frá þvf í gærkvöldi, að öfgasinnaðir hægrimenn hefðu ætlað að reyna að myrða Spinola forseta um helgina. Átti morðið að vera tilefni til byltingar gegn stjórninni. Spinola dvelst nú á heimili sínu í Lissabon og ergætt af hervörðum. Herforingi einn, sem settur var af eftir afsögn Spinola, sagði í dag, að hann byggist við, að ungu vinstrisinnuðu liðsforingjarnir, sem upphaflega stóðu að bylting- unni gegn stjórn Caetanos, muni innan fárra daga hafa allt landið á valdi sínu, og verði þá ríkis- stjórnin og herforingjahreyfingin eitt og hið sama. Kviðdómendur undir smásjá Washington 2. okt. Reuter — NTB. JÖHN Sirica, dómari í Watergate málinu, skýrði þeim 175 manna hópi, sem 12 manna kviðdómur verður valinn úr, frá þvf f dag, að þeir eigi á hættu fangelsisrefs- ingu, ef þeir segi ósatt f þeim yfirheyrslum, sem nú eru að hef j- ast og úrvalið byggist á. Mun Sirica dómari ætla að velja kvið- dómendurna mjög gaumgæfilega, og er þess ekki vænzt að þvf verði lokið fyrr en eftir a.m.k. viku. Fimm af fyrrum æðstu embættis- mönnum bandarfsku stjórnarinn- ar munu mæta sem sakborningar fyrir réttinum, og meðal þeirra um 140 vitna, sem Leon Jaworski, saksóknari, mun kveða til, kunna að verða Henry Kissinger, utan- rfkisráðherra og James Schles- inger, varnarmálaráðherra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.