Morgunblaðið - 03.10.1974, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1974
15
Utlitið hroðalegt hjá
f átækustu ríkjunum
Óvíst hvort ísland fær lengur lán hjá Alþ jóðabankanum
HÆKKANDI verðlag, sérstaklega
á hráefnum, olfu, tilbúnum
áburði kornvöru og iðnvarningi
ásamt fljótandi gjaldeyrisverði
og minnkandi hagvexti I iðnrfkj-
um mun standa efnahagslegum
og félagslegum framförum I þró-
unarlöndunum mjög fyrir þrif-
um. Utilokað er, að I ár verði
hægt að ná þeim 6% hagsvexti,
sem fyrir ári síðan var stefnt að í
vanþróuðum rfkjum og ekki er
útlit fyrir annað en að mjög fá
þróunarrfki ná þessu marki það
Odd Myhrer
sem eftir er þessa áratugar, nema
til komi mikil hjálp frá efnaðri
rfkjum. 1 fátækustu löndunum,
sem jafnframt eru þau fjöimenn-
ustu, munu tekjur á hvern ein-
stakling standa f stað eða hækka
mjög Iftið fram til 1980.
Þetta kom fram i viðtali, sem
Mbl. átti við blaðafulltrúa
Alþjóðabankans, Odd Myhrer, í
tilefni af útkomu ársskýrslu
bankans í siðustu viku.
Myhrer, sem er Norðmaður,
sagði, að hjá fátækustu þróunar-
ríkjunum, þar sem tekjur á hvern
einstakling eru minni en 200 doll-
Land búið undir appelsfnurækt-
un f Afghanistan. IDA veitti
bændum fjármagn fyrir stofn-
kostnaði.
arar á ári, væri útlitið hroðalegt.
Fram tii 1980 þurfa aðeins þessi
lönd 11 milijörðum dollara meira
en reiknað hafði verið með og
ekkert þeirra hefur ráð á að
þiggja lán nema á mjög hagstæð-
um kjörum. Samtals munu þróun-
arrfkin þurfa á 28 milljörðum
doliara I langtfmalán að halda tii
loka þessa áratugar, umfram það
sem áætlanir gera ráð fyrir. Sagði
Myhrer, að þetta væri langt um-
fram það, sem bankinn gæti veitt.
Myhrer benti á, að ekki bætti
út skák, að flest iðnrfki eiga nú
við örðugleika að etja f efna-
hagsmálum. „Við höfum orðið
varir við tilhneigingu þessara
landa til að hugsa aðeins um
að leysa sín eigin vandamál og
það hefur meðal annars kom-
ið fram í því, að erfitt hefur
verið að ná inn fé í hjálpar-
sjóð þróunarlanda, sem Samein-
uðu þjóðirnar samþykktu að
stofna vegna olfukreppunnar.
Fram til þessa hefur aðeins þriðj-
ungur þess fjármagns, sem sjóðn-
um var ætlað, náðst inn“, sagði
Myhrer.
Reikningsárið 1973/4 jukust
lán Alþjóðabankans um 962
milljónir dollara og urðu því sam-
tals 4.517 milljónir. Af þessari
upphæð voru 1.095 milljónir doli-
ara lánaðir f gegnum Alþjóða þró-
unarsamtökin (IDA) sem er
stofnun tengd bankanum, og veit-
ir vaxtalaus lán.
Myhrer sagði, að eins og f fyrra
hefði mest verið lánað til vöru-
flutninga og samgöngumála eða
957 dollarar, en lán til landbúnað-
ar hefðu aukizt mikið og hefðu nú
orðið 955 dollarar.
„Það er erfiðara að fást við
landbúnaðarþróun en til dæmis
einstaka framkvæmdir eins og
raforkuver. Hún þarfnast mikill-
ar undirbúningsvinnu og mjög
erfitt er að meta árangur“, sagði
Myhrer.
Stærsta einstaka lán, sem bank-
inn veitti á sfðasta ári, var til
byggingar raforkuvers í Tyrk-
landi, og var það 144 milljónir
dollara. Islendingar fengu tvenn
lán á árinu. Annað til hafnarbóta
Framhald á bls. 33
SKiPAUTGCRB RIKiSINS
Frosthætta
Vörur sem liggja í vörugeymsluhúsum vorum,
eru ekki tryggðar gegn frosti og liggja þar á
ábyrgð vörueigenda.
Byggingarfélag verkamanna,
Reykjavík.
Til sölu:
3ja herbergja íbúð í 4. byggingarflokki við
Stórholt.
2ja herbergja íbúð í 15. byggingarflokki við
Kelduland.
Umsóknir félagsmanna sendist skrifstofu
félagsins að Stórholti 16 fyrir kl. 12 á hádegi
miðvikudaginn 9. október n.k.
Félagsstjórnin.
EIGENDUR l
PFAFF saumavélaí
Kennari okkar, frú Erna Helgadóttir, mun svara
fyrirspurnum og kenna á Pfaff saumavélar í verslun
okkarað Skólavörðustíg 1 milli kl. 1 —5 í DAG.
Notið tækifærið og fræðist um vélarnar.
húsmæðra
Kryddhúsið í verzl. okkar I Aðalstræti 9.
Dröfn Farestveit leiðbeinir um notkun hinna
ýmsu kryddtegunda kl. 2 — 6 í dag.
Verið velkomin.
Matarc/ei/c/in
Aða/stræti 9.
Bátar til sölu
3 —4 — 6 — 8 — 10 — 11 — 12 — 15 — 18 —
20 — 25 — 26 — 28 — 30 — 37 — 39 — 42 —
45 — 47 — 50 — 52 — 54 — 56 — 60 — 63 —
65 — 66 — 67 — 71 — 73 — 75 — 76 — 82 —
85 — 86 — 90 — 92 — 94 — 100 — 101 — 104
— 127 — 129 — 142 — 147 — 150 — 197 —
227 247. /rasteignamiðStöðin Hafnarstræti 11
sími 14 120.
Verð
á
sementi
Iðnaðarráðuneytið hefir ákveðið nýtt verð á sementi frá 27 sept
1974.
Frá og með 1. okt. 1 974 er útsöluverð á sementi svo sem hér segir:
Portlandsement
Portlandsement
Hraðsement
Hraðsement
Án söluskatts
kr. 7.340. — pr. tonn
kr. 367. — pr. sk.
kr. 8.240. — pr. tonn
kr. 412. — pr. sk.
Með söluskatti
kr. 8.740. — pr. tonn
kr 437. •— pr. sk.
kr. 9.800. — pr. tonn
kr 490. — ’pr sk.
Sementsverksmiðja ríkisins.
Sölumannadeild V.R.
Kvöldverðarfundur
Nýtízku
tréklossar
Póst-
sendum
Mýkomnir aftur
Nýtízku litir, orange / svartir
Stærðir 36— 41
Leður
Verð kr. 2090.—
Skóverzlun
Péturs Andréssonar,
Laugavegi 1 7, Framnesvegi 2.
Fyrsti kvöldverðarfundur vetrarins
verður haldinn fimmtudaginn 3.
okt. n.k. kl. 19.15 í Kristalsal Loft-
leiða.
Gestur fundarins verður
Hr. Gylfi Þ. Gíslason forseti
Alþingis og mun hann ræða um
stöðu verzlunarinnar i dag.
Sölumenn og annað verzlunarfólk
mætið vel og stundvíslega.
Stjórn Sölumannadeildar V.R.