Morgunblaðið - 03.10.1974, Síða 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTOBER 1974
Bæjarfulltriíar Kópavogs til viðtals
BÆJARSTJÓRN Kópavogs hefur samþykkt að taka upp fasta viðtals-
tfma aðalfulltrúa f bæjarstjórn og gefa bæjarbúum þannig kost á að
koma erindum sínum á framfæri beint við kjörna fulltrúa. Viðtalstfm-
ar þessir verða fyrst um sinn fyrsta og þriðja fimmtudag hvers
mánaðar kl. 20—21 á skrifstofu bæjarins í Félagsheimilinu á 4. hæð.
Tveir bæjarfulftrúar verða fyrir svörum í hvert sinn og verður fyrsti |
viðtalstíminn í kvöld, en þá munu Axel Jónsson og Björn Ólafsson
verða til viðtals.
8. skákin
fór í bið
FRANSKA vörnin gafst
Kortsnoj vel f 4. skák einvfgis-
ins og f þeirri áttundu valdi
hann hana aftur. Fyrstu 11.
leikina tefldist skákin á sama
hátt sem sú 4., en þá breytti
Karpov út af. Hann fékk þó
betri stöðu út úr byrjuninni,
en f miðtafli náði Kortsnoj að
rétta við og ná sfzt lakara tafli.
Klukkan reyndist Kortsnoj
hins vegar erfið og skömmu
fyrir bið varð hann að láta af
hendi peð. Fremur ólfklegt er
þó að peðið verði Karpov til
framdráttar og má þvf reikna
með enn einu jafnteflinu er
tekið verður til við skákina að
nýju ídag.
8. skákin:
Hvítt: Karpov
Svart: Kortsnoj
Frönsk vörn
1. e4 — e6, 2. d4 — d5, 3. Rd2
— c5, 4. exd5 — exd5, 5. Rf3 —
Rc6, 6. Bb5 — Bd6, 7. dxc5 —
Bxc5, 8. 0—0 — Rge7, 9. Rb3
— Bd6. 10. c3 — Bg4, 11. Rbd4
— 0—0, 12. Da4 — Bh5, 13.
Hel — Dc7, 14. h3 — Bg6, 15.
Bg5 — a6, 16. Bfl — h6, 17.
Bxe7 — Rxe7 18. Hadl — Rc6,
19. Bd3 — Bh5, 20. g4 — Bg6,
21. Dc2 — Bxd3, 22. Dxd3 —
Had8, 23. He2 — Hfe8, 24. Rf5
— Hxe2, 25. Dxe2 — Bf4, 26.
Hel — g6, 27. Re7 — Rxe7, 28.
Dxe7 — Db6, 29. Kg2 — Kg7,
30. Hdl — Bd6, 31. De2 — Bc7,
32. Hd3 — De6, 33. Ddl - Bb6
34. Hd2 — De4, 35. b3 — Hd6,
36. c4 — h5, 37. Hxd5 — Hxd5,
38. Dxd5 — Dxd5, 39. cxd5 —
hxg4, 40. hxg4 — Kf6, 41. Kfl
og f þessari stöðu lék Kortsnoj
biðleik. Lok skákarinnar
munu birtast f blaðinu á morg-
un.
Kínverjar
stóryrtir
Sameinuðu þjóðunum
2. október — Reuter.
CHIAO Kuan-hua, vara-utanríkis-
ráðherra Kfna vfsaði f dag á bug
svonefndri „detente“-stefnu
Bandarfkjanna og Sovétrfkjanna
um slökun á spennu f alþjóðlegri
sambúð og kallaði hana „skottu-
lyf Sovétleiðtoganna". I ræðu
sinni á allsherjarþinginu sagði
hann átök og valdabaráttu þess-
ara tveggja stórvelda vera æ
harðnandi og ekkert samkomulag
gæti falið það. Chiao sagði, að
enginn gæti gleymt þvf, að það
hefði verið eftir vfðtækt sam-
komulag f viðræðum Sovétmanna
og Bandarfkjamanna, að strfðið f
Miðausturlöndum hefði brotizt
út. Sömuleiðis hefði Kýpurstrfðið
hafizt eftir að enn frekara sam-
komulag hafði verið gert. „Hvar
er þá „detente“?“ spurði ráð-
herrann.
Hann sagði enn fremur, að á
meðan heimsvaldastefna og
sósíal-heimsvaldastefna (orð Kín-
verja yfir utanríkisstefnu Sovét-
ríkjanna) væru til, þá væri
styrjaldarhætta fyrir hendi. Á
meðan á ræðu Chiaos stóð, sást
Jakob Malik, vara-utanrfkisráð-
herra Sovétríkjanna geispa.
Kínverjar og 32 önnur lönd,
flest Afríku- og Arabalönd, lögðu
í dag fram tillögu á allsherjar-
þinginu um að S.Þ. viðurkenndi
útlagastjórn Sihanouks prins
rétta stjórn Kambódíu, en vfsuðu
fulltrúum Lon Nols-stjórnarinnar
úr samtökunum. Heimildir
herma, að tillagan verði mjög
sennilega samþykkt að þessu
sinni.
Óttast út-
færsluna
AKVÖRÐUN Norðmanna um út-
færslu fiskveiðilögsögunnar und-
an norðurströndinni f 50 mflur
getur þýtt, að fiskafli Breta drag-
ist saman um einn sjötta eða jafn-
vel fjórðung, að því er segir f
frétt í brezka blaðinu The
Observer. Austen Laing, fram-
kvæmdastjóri Sambands brezkra
togaraeigenda segir, að útfærsla
Norðmanna kunni að hafa
„hroðalegar“ afleiðingar. Hins
vegar telur hann litlar Ifkur á, að
útfærslan verði gerð einhliða og
án samkomulags, og þvf ótrúlegt
að til þorskastrfðs komi.
Laing bætir við, að mikil hætta
sé á því, að veiðitakmarkanir á
norskum miðum geti leitt til of-
veiði f Norðursjónum. Þá yrðu
Efnahagsbandalagslöndin að gera
einhliða ráðstafanir til að útiloka
norska sjómenn og norskar fisk-
afurðir f rá umdæmissvæði sfnu.
EKIÐÁBÍL
MIÐVIKUDAGINN 2. október
var ekið á hvítan Taunus fólks-
bíl, G-9440, þar sem hann stóð á
Eiríksgötu gegnt Domus
Medica. Bíllinn er dældaður á
hægra framhorni. Sá sem tjón-
inu olli lét sig hverfa, og er
hann beðinn að gefa sig fram
við rannsóknarlögregluna, svo
og vitni.
Axarfjörður:
Sá loks
til sólar
Skinnastað Axarfirði 1. okt.
1 GÆR stytti upp og sá til sólar
eftir langan illviðrakafla. Hér
hefur verið þrálát norðanátt í
tvær---þrjár vikur með dimm-
viðri og rigningu, en slyddu og
snjókomu síðast. Var oft hið
versta veður. Frost um nætur hef-
ur iðulega verið 2—3 stig. Fjöll
eru alhvít sem um vetur og lág-
lendi grátt. Ekki hefur frétzt um
hrakninga í göngum, en illa viðr-
aði suma réttardaga.
Flutningar á sláturfé standa yf-
ir og eru vegir orðnir holóttir og
vondir. Fjallvegir eru erfiðir yfir-
ferðar eða ófærir.
Slátrun í Sláturhúsi KNÞ á
Kópaskeri hófst 16. sept. og stend-
ur nú sem hæst. Er áætlað að
slátra um 28 þús. fjár auk stór-
gripa. Bændur telja dilka öllu
léttari en á s.l. hausti, en þó væna.
Nú um helgina fóru nokkrir
vaskir menn úr Vatnsdalsfirði á
vélsleðum upp til heiða að huga
að fé og fundu að minnsta kosti á
annað hundrað fjár. Ekki hefur
frétzt um fjárskaða hér í illviðr-
unum.'
Vona menn, að þessi veðurfars-
bati standi einhvern tíma.
Sigurvin.
—Ekki samið
Framhald af bls. 2
þjónustu Bandaríkjanna á Is-
landi segir, að Bandaríkja-
stjórn muni leggja í 16 milljón
dala kostnað við aðskilnað her-
flugs og farþegaflugs, og það
muni kosta 22,5 milljónir dala
að byggja fbúðarhúsnæði yfir
þá vamarliðsmenn, sem nú
eru búsettir utan vallarins.
—ísafjörður
Framhald af bls. 2
endur 149, og er fjölgunin nú
möguleg vegna þess, að f haust
var tekin I notkun ný heima-
vistarálma. Eru nú 80 nemendur
á heimavist.
Eins og áður hefur Ml samstarf
við tvo skóla á staðnum, Tónlistar-
skólann og Tækniskólann. Geta
nemendur kosið að stunda nám í
þessum greinum og fengið námið
viðurkennt sem hluta af stúdents-
prófi. I Tækniskólanum hafa pilt-
ar tekið 1. stig vélstjóra- og stýri-
mannanáms og stúlkur tækni-
teiknun. I Tónlistarskólanum
hafa nemendur m.a. lært á hljóð-
færi og hefur verið keypt pfanó á
heimavistina, svo að komumenn
gætu æft sig þar á hljóðfæri.
— Undirskrifta-
söfnun
Framhald af bls. 2
varpstækja fyrir dyrum. I dag
geti sjónvarpið hafið útsendingar
í lit án nokkurs kostnaðar og sé
eðlilegt, að notendum sé gefinn
kostur á því. Þá segja þeir, að þar
sem ríkisfyrirtæki eigi hér í hlut,
sé nauðsynlegt að veita þvf aðhald
og skapa eðlilega samkeppni með
því að hefta ekki útsendingar,
Keflavfkursjónvarps.
Undir ávarpsskjalið rita nöfn
sfn: Arndfs Tómasdóttir, Ytri-
Njarðvfk, Ölfna Ragnarsdóttir,
Grindavík, Guðmundur B. Jóns-
son, Vatnsleysuströnd, Sigurður
Ölafsson, Akranesi, Hreggviður
Jónsson, Reykjavík, Margrét Páls-
dóttir, Sandgerði, Jón Borgarson,
Höfnum, Kristján Pétursson,
Keflavík, Birgir Viðar Halldórs-
son, Vestmannaeyjum og Hrafn-
kell B. Guðjónsson, Reykjavík.
Þeir Hrafnkell og Birgir Viðar
eru upphafsmenn þessarar undir-
skriftasöfnunar og sögðust þeir í
samtali við Mbl. hafa orðið varir
við svo megna óánægju í sjón-
varpsmálum Islendinga, að þeir
hefðu talið eðlilegt að hrinda
þessari söfnun af stað til að al-
menningur fengi að segja hug
sinn allan. Kváðust þeir þegar
hafa orðið varir við mjög góðar
undirtektir varðandi þessa undir-
skriftasöfnun.
— Wilson
Framhald af bls. 1
stefnu flokksins byggjast á sam-
vinnu innan NATO. Hann upp-
lýsti, að haldi Verkamanna-
flokkurinn stjórnartaumunum
eftir kosningar, þá hygðist hann
fara til Moskvu til viðræðna við
sovézka ráðamenn.
Edward Heath, leiðtogi thalds-
flokksins, var að þvf spurður á
blaðamannafundi í dag, hvort
hann mundi í þágu þjóðareining-
ar og samvinnu segja af sér sem
leiðtogi flokksins, ef þörf krefði
til að stjórnarsamstarf gæti náðst
við Frjálslynda flokkinn. Jeremy
Thorpe, leiðtogi frjálslyndra,
mun ekki ýkja hrifinn af sam-
starfi við Heath persónulega.
Heath varð hvumsa við, og sagði
stefnu sína hina einu, sem byði
upp á þjóðareiningu.
— Æfingamót
Framhald af bls. 36
mótinu s.l. ár, en tapaði einvígi
um brezka meistaratitilinn. Þrír
voru jafnir og næstir með 3 vinn-
inga hver, en það voru Bellin frá
Englandi, sem nú varð einn af
efstu mönnum I brezka meistara-
mótinu, þar sem eftir er að keppa
til úrslita, Cafferty frá Englandi
og McKay frá Skotlandi".
Meðal þátttakendanna f mót-
inu Var heimsmeistari unglinga f
skák, Miles frá Bretlandi, en hann
hlaut 2 vinninga. Friðrik kvað
mikið gefið út af skákbókum í
Bretlandi og skákmenn vel að sér
í þeim, þannig að erfitt væri að
koma þeim á óvart. Aðspurður
kvaðst Friðrik ætla að nota
tímann fram til 20. nóv. til þess að
æfa sig og búa sig undir mót 18
stórmeistara, sem hefst þá í
Madrid á Spáni.
Sprenging
á Siglufirði:
Einn keyrði
út af, annar
tók í nefið
Siglufirði 2. október.
KYNLEGUR atburður átti sér
stað hér f bænum f gær. Verið
var að þvo legur upp úr ben-
sfni á verkstæði Rauðku, og að
þvf loknu var bensfninu hellt f
vask á verkstæðinu. Ekkert
vatn var þó til að skola bensfn-
inu niður. Maður einn hóf raf-
suðu við vaskinn í gær og fann
enga bensfnlykt, vegna þess að
hann tekur f nefið. Þegar hann
var búínn að kveikja á log-
suðutækjunum varð feikna
mikil sprenging f vaskinum og
eldblossi gaus upp. Hávaðinn
af sprengingunni var það
mikill, að bflstjóri fólksbíls,
sem var á ferð fyrir utan verk-
stæðið, keyrði út af f fátinu,
sem kom á hann. Það er af
logsuðumanninum að segja, að
hann hætti að sjóða og fékk
sér ærlega f nefið.
— Matthfas.
— Skæruliðar
Framhald af bls. 36
Eftir að flugvélin var lent í
Tel Aviv héldu skæruliðarnir
farþegunum föngnum um borð
f vélinni og kváðust sprengja
flugvélina í loft upp ef fsraelsk
stjórnvöld létu ekki lausa 104
pólitfska fanga. Moshe Dayan,
varnarmálaráðherra Israel,
stjórnaði sjálfur aðgerðum á
Tel Aviv flugvelli og tókst
honum að koma öryggisvörðum
um borð í vélina, dulbúnum
sem flugvirkjum. Kom þá til
átaka milli öryggisvarðanna og
skæruliðanna. Ung stúlka, sem
sat við hlið Korytowski í vélinni
reyndist vera í hópi skæru-
liðanna, og þegar hún dró Ur
pússi sínu handsprengju til að
varpa að öryggisvörðunum,
kastaði Korytowski sér á hana
og tókst að yfirbuga stúlkuna.
Hins vegar tókst ekki betur til
en svo, að öryggisverðirnir
hófu skothríð að þeim Kory-
towski og stúlkunni. Hún slapp
þó ómeidd, en sjö kúlur hittu
Korytowski, svo að hann er að
miklu leyti lamaður á eftir.
Um leið urðu allar vonir ís-
lenzku kvikmyndagerðarmann-
anna að engu, þvf sjálfir hafa
þeir ekki fjárhagslegt bolmagn
til að standa undir rekstri svo
dýrrar vélar. Ekki hafa þeir þó
viljað láta vélina af hendi
vegna þess á hversu góðum
kjörum hún fékkst og þeir lifa f
voninni að fyrr en sfðar skapist
grundvöllur fyrir notkun
hennar hér á landi. Við þessa
sögu má svo bæta, að Kory-
towski á nú í miklum málaferl-
um á þremur vigstöðvum til að
fá örkuml sín bætt — gegn
flugvallaryfirvöldum í Frank-
furt og Vín og gegn ísraelskum
stjórnvöldum. Flugvallaryfir-
völd f Frankfurt og Vín hafa
hins vegar til þessa svarið af
sér alla sök á því, að skærulið-
arnir hafi farið um borð í flug-
vélina í annarri hvorri flug-
höfninni og ísraelsk stjórnvöld
vfkja sér undan allri ábyrgð á
þessum atburðum.
— Afnám
Framhald af bls. 25
grein, bókmennta — eða skáld-
skaparfræðii verið aukið við
móðurmálskennsluna, án þess að
kennslustundum hafi verið fjölg-
að. Auðvitað er hér um að ræða
sjálfstæða fræðigrein, sem ætti að
vera kennd sem slík. Almenn bók-
menntasaga og bókmenntafræði
ættu vel heima í gagnfræðaskól-
um, en heyra þó móðurmáls-
kennslu ekki fremur til en t.d.
Islands saga. En hitt er augljóst
mál, að ekki veitir af að verja
þeim kennslustundum, sem
móðurmálskennslu eru ætlaðar,
til hennar eir.nar, Kennslustunda-
fjöldinn er nefnilega ekki meiri,
ef ekki minhi,; en var fyrir 30
árum. Ég er hræddur um, að nem-
endum nú veiti ekki af þeim
stundafjölda, þó svo að honum sé
ekki dreift á nýjar kennslugrein-
ar.
Lokaorð
Þau rök heyrast m.a. fyrir af-
námi z, að það taki allt of langan
tíma að kenna hana, allt of mikið
sé lagt á nemendurna með því að
kenna þeim z. Þetta er auðvitað í
samræmi við þann áróður, sem nú
ber hæst, að allir eigi að ná þessu
og hinu prófinu án nokkurrar
fyrirhafnar eða vinnu. Og það er
ekki nóg með það, að afnema eigi
z. Nú liggur fyrir Alþingi frum-
varp, þar sem gert er ráð fyrir að
fækka prófum og lengja skóla-
skyldu. Þá er allt við hæfi. Nem-
endur og kennarar hafa ekkert
aðhald lengur, geta bara lifað og
leikið sér. Og sjá, þeir dagar
koma, að ekki þarf að lfða
kennaraskorti.
Isafirði 17. marz
Skúli Ben.
Eins og dagsetning greinarinnar
ber með sér, var hún skrifuð fyrir
prentaraverkfallið. Hún varð inn-
lyksa f því en heldur samt sínu
gildi. — Ritstj.
— Minning
Framhald af bls. 27
glöðu húsfreyju. Arangurinn af
starfinu lýsir sér best í þvf að
börnunum var öllum komið til
mennta að meira eða minna leyti
og reynast öll dugandi fólk.
Guðmundur var starfsmaður
mikill og góður. Listaskrifari og
allt sem fór frá hans hendi svo
hreint og fágað að unun var á að
horfa. Störf hans voru oft æði
erilsöm, ekki sfst er hann starf-
aði sem fulltrúi í Innflutnings- og
gjaldeyrisnefnd. Þar þurfti oft að
sigla milli skers og báru, því erfitt
var að gera öllum til hæfis, erfitt
að vera beggja vin og báðum
trúr. — Þar sem annars staðar
hygg ég að samviskusemi hafi ráð-
ið athöfnum hans og gerðum.
Guðmundur sá heimili sínu far-
borða af hyggindum og hagsýni,
sem gæta þurfti meðan börnin
voru ung og lífskjörin erfið. Þar
voru þau hjónin einkar samhent,
eins og áður segir.
Heimili þeirra hjóna varfallegt
og aðlaðandi. Fjölskyldan sam-
hent og heimilisbragur frjáls-
legur. Guðmundur var bóka-
maður mikill. Unni skáldskap í
bundnu og óbundnu máli og fögr-
um bókum, sem hann átti margar
og góðar. Fór hann um þær mjúk-
um höndum og naut þess að
dvelja hjá þeim og með þeim,
handleika þær og þó umfram allt
að lesa þær. Hann var fróður vel
og hafði góða og skemmtilega frá-
sagnargáfu. Hann mátti teljast
heilsugóður fram eftir ævinr.ii;
þó hafði hann um árabil
verið bakveikur og þess vegna
oft orðið að leggjast I sjúkra-
hús til erfiðra skurðað-
gerða, sem þó báru aldrei til-
ætlaðan árangur. Gekk hann þó
ávallt til starfa af stakri skyldu-
rækni þar til hann lét af störfum
fyrir aldurssakir. Eftir að hann
hætti störfum hnignaði heilsu
hans stöðugt og seinasta árið var
honum erfitt. I september s.I. var
hann fluttur f Landakotsspftala,
þar sem hann gekk undir einn
uppskurðinn enn, þar andaðist
hann eftir stutta legu 21. sept. s.l.
Með Guðmundi er dugmikill og
góður drengur genginn. Heill
maður, ákveðinn í skoðunum, vin-
fastur og trygglyndur. Fyrir um
20 árum endurnýjuðust bernsku-
kynni okkar er sonur okkar hjóna
gekk að eiga dóttur þeirra Hólm-
frfði. Allt frá þeim tíma minn-
umst við með þakklæti ánægju-
legra stunda með honum og fjöl-
skyldu hans.
Þessum fátæklegu línum lfk ég
með samúðarkveðjum okkar
hjóna til Helgu, barna hennar og
allrar f jölskyldunnar.
Þorg. St. Eyjólfsson.