Morgunblaðið - 03.10.1974, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 03.10.1974, Qupperneq 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 3. OKTÖBER 1974 eftir JÓN Þ. ÞÓR r Agætur sigur Guðmundar á Costa Brava Eins og komið hefur fram í frétt- um vann Guðmundur Sigurjónsson ágætan sigur á skákmótinu á Costa Brava fyrir skömmu. Þessi árangur Guðmundar er mjög góður og tvímælalaust hans bezti frá því á árunum 1969—'70. Guðmundur hefur nú verið atvinnumaður i skák i tæpt ár og er nú árangur stöðugra æfinga að koma i Ijós Má því vænta mikils af honum á næstu mótum, sem hann tekur þátt í. Úrslit skákmótsins á Costa Brava urðu annars sem hér segir: 1 — 2. Guðmundur Sigurjónsson og Kurajica (Júgósl.) 7,5 v , 3. Pomar (Spánn) 7 v., 4. Bellon (Spánn) 6,5 v., 5. — 6. Quinteros (Argentína) og Hamann (Danmörk) 6 v., 7. — 8. Andersson (Sviþjóð) og Tatai (ítalia) 5,5 v., 9. — 10, Medina (Spánn) og Rodriguez (Perú) 5 v., 11. Martin (Spánn) 3,5 v. og 12. Pajet (Spánn) 1 v Þegar litið er til úrslitanna kemur mest á óvart, hve slaklega sænski stórmeistarinn Ulf Andersson stóð sig, en þar mun skákleiði valda mestu; Andersson teflir I hverju mótinu á fætur öðru og frá Costa Brava hélt hann beinustu leið til Manila á Fillipseyjum, þar sem hann tekur þátt i mjög öflugu móti. Hér kemur nú ein af skákum Guðmundar í mótinu Hvitt: Guðmundur Sigurjónsson Svart: A. Medina (Spánn) Spænskur leikur 1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6. 3. Bb5 — a6, 4. Ba4 — d6, 5. 0—0 — Bd7, 6. d4 — Rge7, (Með þessum leik velur svartur mjög erfitt og vandteflt afbrigði. Algengast og bezt er að leika hér 6 — Rf6, en svartur gat einnig þvingað hvitan til peðsfórnar með 6. — b5, 7. Bb3 — Rxd4, 8 Rxd4 — exd4, 9. c3 — dxc3, 1 0. Dh5! og hvitur stendur betur. Hins vegar má hvitur ekki leika 9. Dxd4 í þessu afbirgði vegna 9 — c5, 1 0. Dd5 — Be6, 11. Dc6+ — Bd7, 12. Dd5 — c4 og svartur vinnur mann). 7. c4 — g6, (Nú kemur upp staða, sem minn- ir um margt á kóngsindverska vörn Meginmunurinn er sá, að hér getur hvítur þvingað fram uppskipti á hvitu reita biskupunum, sem eru honum hagstæð) 8. d5 — Rb8, 9 Rc3 — Bg7, 1 0. b4 — Bxa4, 11. Da4+ — Rd7, 12. Be3 — 0—0, 13. c5 — h6, 14. Rd2 — f5, 1 5. f3 — b6, 1 6. Db3! (Hér stendur drottningin betur en á a4 og þar sem svarti kóngurinn neyðist til að hörfa af skálinunni a2 — g8 vinnur hvitur i rauninni leik). 16. — Kh7, 17. cxd6<— cxd6, 18. Rc4 — Db8, 19. Hfcl — Bf6, 20. Hc2 — Bg5, 21. Bf2 — Hc8, 22. h4 — Bf6, 23. Hac1 — f4, 24. Rd 1! (Upphaf skemmtilegrar áætlunar, sem kemur þó aldrei fyllkomlega i Ijós, þar sem svartur styttir sér aldur). 24. — Kg7, 25. Rdb2 — Ha7, 26 Rd3 — Hac7, 27. a4 — Rg8? (Með þessum leik fer svartur úr öskunni i eldinn Staða hans var þó sennilega töpuð, t d : 27. — g5, 28. hxg5 — hxg5, 29 b5! — a5, 30 Da3 — Rc5. 31 Rxc5 — dxc5, 32. Rxa5 og vinnur). 28. h5! — g5? (Tapar peði, en eftir t.d 28 — Re7 hefði hvítur unnið á sama hátt sem greint var við næsta leik á undan). 29 Rxd6 — Hxc2, 30. Rf5+ — Kh7, 31. Hxc2 — Hxc2, 32. Dxc2 — Re7, 33. Rxe7 — Bxe7, 34. Dc6 — Dd6, 35. Rb2 — Rb8, 36. Db7 — Dxb4, 37. Rc4! og svartur gafst upp þar sem mannstap verður ekki varið. X-9 o Um le\& oo yfirvöldin sxkja SerenuFVost Sjórdemngjadroltninqu Oq hennar liS \)l Drek3.eyjar... fxr Ph/i fármeS sömu flufj- vel áleióts tll u.S.A.... • ,.,þkar sem harmletkurá scr Stað í ól'cxjlequ spHavíti! »■•! YE5,1 TöLP WRTEACMEf? YOU UEKEN'T FEEUN6 [ilELL UMÖCARE5 ASöUTM'f' TEACHER?! H'OU 60 BACKTOEREANPTéLL TH6 5CHOOL kJHEKE 1 ^TOPAVI , I FEEL LIK£ A FOOL 6TANO1N0 HEnE TALKIN6 (TO A BUíLOlNo mzr~-------- imi rrcrn ^-1 71 THI5 1$ NOT THE BI6SE5T THRlLLOFMV ^LIFE, ElTHEi?, KIO: :dxl 1.. — Sagðirðu skðlanum, að ég væri Já, ég sagði kennaranum þfnum, Mér finnst ég voðalega asnalegur Þetta er nú ekki merkasti at- veikur f dag, stóri bróðir? að þú værir lasin. — Hverjum er að standa hérog tala við hús... burðu ævi MINNAR heldur, ekki sama um kennarann minn? pjakkur! Farðu aftur og segðu skólanum hvar ég hafi verið í dag! ■•■•■•■•■•■•■•■•■•••■•■•■•"•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■•■« >■•■•*< FERDIIMAIMD ■ SlMMW ■!■■■■ II IÍImI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.