Morgunblaðið - 18.10.1974, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1974
Lionsklúbburinn Ægir mun hinn 25. október hleypa af stað f
annað sinn sjðnvarpsbingói og er vinningur bifreið að eigin vali
fyrir hálfa milljón króna. Bingóspjöld kosta 300 krónur og eru
seld hjá meðlimum Ægis og nokkrum Lionsklúbbum utan
Reykjavíkur. Utdregin númer hjá borgarfógeta munu birtast f
auglýsingatfma sjónvarpsins á hverju kvöldi, unz einhver gefur
sig fram með bingo. A meðfylgjandi mynd er verið að afhenda
vinningshöfum f sfðasta bingói Ægis hálfa milljón króna, Guð-
rúnu Guðmundsdóttur og Guðmundi Karlssyni. Lengst til hægri
er Ebenesar Ásgeirsson fulltrúi Ægis. Agóði bingósins rennur
til Ifknarmála.
Leiguflugsbeiðni Air Viking til USA:
Halldóra 101 árs
Halldóra Bjarnadóttir á
Blönduósi er nýlega orðin 101
árs gömul. Hún dvelur á
Héraðshælinu á Blönduósi og
er tiltölulega hress. Enn fylgist
hún af áhuga með því sem er að
gerast.
Það sannar m.a. fallegt bréf,
sem hún sendi Kvennaskólan-
um f Reykjavfk á 100 ára af-
mælinu um daginn. Halldóra
handskrifaði heilaóskir sfnar
til skólans á tvær þéttskrifaðar
arkir og sagði skólastjórinn,
Guðrún P. Ilelgadóttir, að
þetta hefði verið einhver dýr-
mætasta kveðjan, sem skólinn
fékk, bréfið bæði hlýlegt og
fallegt og vel skrifað. Með
fylgdi peningagjöf frá Hall-
dóru, sem hún sagði að ráðstafa
mætti að vild. Og f samráði við
hana verður keypt sérstakt al-
búm, sem geyma á allar myndir
og annað markvert frá afmæli
skólans.
sjálfsögðu hefur þetta ekki haft
nein hin minnstu áhrif á
Framhald á bls. 18
Þorvarður Alfonsson aðstoð-
armaður iðnaðarráðherra
ÞORVARÐUR Alfonsson hefur
verið ráðinn aðstoðarmaður
Gunnars Thoroddsens iðnaðarráð-
herra og hefur hann hafið störf f
stjórnarráðinu.
Þorvarður Alfonsson fæddist í
Hnífsdal árið 1931, sonur hjón-
anna Alfons Gíslasonar, sím-
stöðvarstjóra, og Helgu Sigurðar-
dóttur. Hann varð stúdent frá
Verzlunarskóla Islands árið 1953
en stundaði sfðan nám við Kielar-
háskólann i þjóðhagfræði og lauk
þaðan prófi. Að námi loknu
starfaði hann um hríð hjá hag-
fræðideild Seðlabankans en árið
1962 réðst hann sem skrifstofu-
stjóri Félags ísl. iðnrekenda og
varð framkvæmdastjóri þess litlu
siðar. Síðustu árin hefur hann
veitt forstöðu Iðnþróunarsjóði ís-
lands.
Skiptimiðar og nýtt
leiðakerfi í Kópavogi
Skyndihappdrætti Sjálfstæðisflokksins:
Sent og sótt
A NÆSTUNNI verður leiðakerfi
Strætisvagna Kópavogs breytt og
um leið verður hægt að notfæra
Isiorðmenn frum-
sýna Kristnihald
Osló, 17. október.
Frá fréttaritara Mbl.
Ágústi I. Jónssyni.
VERK Halldórs Laxness,
Kristnihald undir jökli, verður í
fyrsta skipti sýnt í Noregi í kvöld.
Það er Tröndelag Teater í Þránd-
heimi sem sýnir verkið undir leik-
stjórn Sveins Einarssonar Þjóð-
leikshússtjórp. Ivar Eskeland,
fyrrum forstjóri Norræna húss-
ins, þýddi verkið yfir á norsku og
nefnist það Kristenrökt under
jökulen. Með aðalhlutverkin fara
Arne Reitan og Stig Egede.
sér skiptimiða, sem nú eru not-
aðir hjá SVR. Hér er um að ræða
mikla hagræðingu fyrir þá, sem
ferðast milii Kópavogs og Reykja-
vfkur, auk þess sem þessi tilhög-
un hefur f för með sér verulegan
sparnað fyrir farþega.
Ætlunin er, að þessar breyting-
ar verði gerðar um mánaðamót
nóvember- desember. Þegar leiða-
kerfið hefur verið tekið í notkun
fara allir Kópavogsvagnarnir
sömu leið, þannig að samgöngur
innan Kópavogs, t.d milli austur-
og vesturhluta bæjarnins, verða
nú mun greiðari en verið hefur
hingað til.
Fyrirhugað er, að Kópavogs-
vagnarnir fari nú ekki niður í
miðborg Reykjavlkur, nema um
níu-leytið á morgnana. Á öðrum
SKYNDIHAPPDRÆTTI Sjálf-
stæðisflokksins er nú í fullum
gangi en miðar hafa nú verið
sendir víða um land. Þeir, sem
tímum fara vagnarnir að Hlemmi,
þar sem farþegar geta skipt um
vagn og ferðazt innan Reykjavík-
ur.
Eftir breytinguna gilda skipti-
miðar jafnt f Strætisvögnum
Kópavogs og Strætisvögnum
Reykjavfkur.
Nánar verður skýrt frá tilhögun
þessari þegar breytingin gengur í
gildi.
hafa fengið heimsenda miða, eru
beðnir um að gera skil hið fyrsta,
en skrifstofa skyndihappdrættis-
ins er opin til kl. 18 daglega virka
daga og á laugardögum frá kl.
9—12. Skrifstofan sér um að
senda miða og sækja greiðslur ef
fólk óskar, en símanúmerið er
17100.
Vinningur i skyndihappdrætt-
inu er Toyota Carina 1600 árgerð
1975 að verðmæti 832 þús. kr. og
10 aðrir vinningar eru Lynx út-
varpstæki með innbyggðu segul-
bandstæki.
Takið þátt i skyndihappdrætti
Sjálfstæðisflokksins og styðjið
mikilvægt þjóðmálastarf um leið
og hver vinningur er möguleiki.
Dregið verður 16. nóv. n.k.
42 kr. meðalverð
SEX íslenzk síldveiðiskip seldu'
um 370 lestir af síld í Danmörku í
gær fyrir alls um 15,5 millj. kr.
Meðalverðið, sem þau fengu, var
kr. 42,50, sem telst mjög gott.
Skipin, sem seldu, voru þessi:
Höfrungur 3. AK fyrir 2,8 millj.
kr., Jón Finnsson GK fyrir 2.4
millj. kr., örn KE fyrir 2.6 millj.
kr., Keflvíkingur KE fyrir 1.9
millj. kr., Svanur RE fyrir 2.5
millj. kr. og Helga Guðmundsdótt-
ir BA fyrir 3.2 millj. kr.
Regína Þórðar-
dóttir látin
Regfna Þórðardóttir leikkona
Iézt f Reykjavfk f gærmorgun, 68
ára að aldri. Regfna fæddist f
Reykjavfk 26. apríl 1906, dóttir
hjónanna Þórðar Bjarnasonar og
Hansfnu Bjarnason.
Regfna stundaði nám við
Kvennaskólann 1922—23. Leik-
listarnám hóf hún við skóla Kon-
unglega leikhússins í Kaup-
mannahöfn 1933 og stundaði þar
nám í tvö ár. Hún hóf aftur nám
við skólann 1939 og lauk burt-
fararprófi 1940. Hún bjó um skeið
á Akureyri, en hóf leik með Leik-
félagi Reykjavíkur árið 1936 og
starfaði þar frarn til þess tíma, að
Þjóðleikhúsið tók til starfa, en
þar var hún fastráðin leikkona
allt til ársins 1960, að hún sagði
starfi sínu lausu. EÍtirlifandi
maður Regínu er Bjarni Bjarna-
son, læknir.
„Tel afgreiðslu flugráðs
byggða á misskilningi,”
segir Guðni Þórðarson forstjóri
„ÉG tcl, að þessi synjun ráðuneyt-
isins að fenginni umsögn flug-
ráðs, sé byggð á misskilningi og
mun þvf koma á framfæri við
samgönguráðuneytið leiðréttingu
og beiðni um að málið verði tekið
upp að nýju,“ sagði Guðni Þórðar-
son forstjóri þegar Morgunblaðið
hafði samband við hann f gær og
leitaði álits hans á synjun ráðu-
neytisins um að mæla með þvf, að
Air Viking taki að sér einstök
leiguflug til og frá Bandarfkjun-
um. Samgönguráðuneytið synjaði
Air Viking fyrir skömmu um
meðmæli og umsókn til leigu-
flugs til Bandarfkjanna, en flug-
ráð fjallaði um málið til ráðgjöf-
unar fyrir ráðuneytið. Mælti flug-
ráð ekki með umsókninni á þeirri
forsendu, að „álitið er“, eins og
segir f niðurstöðu flugráðs, að
slík umsókn geti skaðað gerða
samninga um flug fslenzkra aðila
til Bandarfkjanna.
„Flugráð," hélt Guðni
Þórðarson áfram, „virðist hafa
fjallað um þetta mál án þess að
hafa nokkurt samband við Air
Viking, en slíkt hefði getað komið
í veg fyrir, að ruglað yrði saman
tveimur óskyldum málum, sem
áætlunarflug og leiguflug eru á
þessum vettvangi. Hér er um að
ræða beiðni frá Air Viking um
heimild til skrásetningar hjá
Bandaríkjastjórn til leiguflugs,
en slík skrásetning er nauðsynleg
til þess að flugfélög geti tekið að
sér einstök leiguflug til og frá
Bandaríkjunum. Þessu má á eng-
an hátt blanda saman við
áætlunarflug, enda réttindin
alveg óskyld. Þannig hefur SAS
til dæmis réttindi til áætlunar-
flugs milli Bandaríkjanna og
Norðurlanda, en öll leiguflug-
félög á Norðurlöndunum, sem um
hafa beðið, hafa fengið meðmæli
sinna stjórnvalda og umbeðna
skrásetningu hjá Bandaríkja-
stjórn. Þannig hafa til dæmis öll
þrjú leiguflugfélögin, Conair,
Sterling og Mærskair, í Dan-
mörku fengið slík meðmæli hjá
Danastjórn til leiguflugs, þrátt
fyrir tilveru SAS og stóra eignar-
aðild danska ríkisins að SAS. Að
NTB vill 700
þús. kr. í viðbót
ENN MIÐAR ekkert í stappi því,
sem staðið hefur út af fréttasend-
ingum norsku fréttastofunnar
NTB til tslands og eru fjarritar
hennar á ritstjórnarskrifstofum
fjölmiðlanna hljóðir allir sem
einn, þrátt fyrir að fjármálaráðu-
neytið hafi greitt skuld að upp-
hæð 4,5 milljónir króna vegna
reksturskostnaðar við sendibfla-
stöð I Jelöy I Noregi fyrir tíma-
bilið 1. janúar 1972 til 31. maí i
ár.
Astæðan fyrir því, að enn stend-
ur i stappi, mun vera sú, að
norska fréttastofan hefur gert
viðbótarkröfur um greiðslu á um
700 þúsund krónum fyrir tíma-
bilið 1. júni til lokunardags
stöðvarinnar hinn 15. þessa
mánaðar, en ársfjórðungslegt
gjald vegna reksturs þessarar
stöðvar nemur 469 þúsund
krónum. Jafnframt krefst frétta-
stofan tryggingar fyrir því, að
framvegis verði staðið við þessar
greiðslur af hálfu islenzkra yfir-
valda.
Höskuldur Jónsson, ráðuneytis-
stjóri í fjármálaráðuneytinu,
skýrði Morgunblaðinu frá því í
gær, að póst- og símamálastjóri
hefði nýverið tilkynnt honum um
þessa viðbótarskilmála norsku
fréttastofunnar. Hann kvað ráðu-
neytið hins vegar ekkert annað
geta aðhafzt í þessu máli á þessu
stigi en senda það áfram til
stjórnmálamannanna til um-
fjöllunar, þar eð það væri ekki
embættisleg heldur pólitísk
ákvörðun hvort að þessum nýju
skilmálum yrði gengið. Hins
vegar kvaðst hann hafa falið póst-
og símamálastjóra að kanna hvort
ekki mætti fá fréttasendingar
hinnar norsku fréttastofu til
landsins með einhverjum ódýrari
hætti en nú er.