Morgunblaðið - 18.10.1974, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 18.10.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1974 7 Jón E. Guðmundsson með nokkrar af styttum sínum á heimili sínu. Myndirnar á veggjum hefur hann einnig málað. Ljósmyndir Mbl. Ól. K. M. Leikbrúður, tréstytt ur og málverk Sérstæð yfirlits- sýning í Norræna húsinu „Mér finnst eðlilegast, að mynd- listarmenn séu frjálsir eins og fuglar loftsins og að þeir vinni eins og þá langar til. Allar þessar stefnur, sem menn eru að nota sem snaga til þess að hengja sig á, eru kynleg fyrir- bæri. Ég tef, að menn eigi ekki að binda sig neinum ákveðnum stefn- um, ganga heldur til leiks við frels- ið " Við erum í heimsókn hjá Jón E. Guðmundssyni listamanni, Kapla- skjólsvegi 61, og það er hann, sem lét þessi orð falla í upphafi spjalls okkar. Jón opnar á morgun yfirlits- sýningu á verkum sfnum f sýningar- sal Norræna hússins. Þar sýnir hann tréskurðarstyttur úr fslenzku birki, 75 leikbrúður, olíumálverk, vatns- litamyndir.tréristurog brúðuleikurinn Norður kaldan Kjöl eftir Ragnar Jó- hannesson verður tvisvar á dag, kl 5 og 9 alla sýningardagana, frá 19.—27. okt. að báðum dögum meðtöldum. Yfirlitssýningin er hald- in ! tilefni 60 ára afmælis Jóns 5. Jón með eina strengbrúðuna, sem leikur f Norður kaldan Kjöl, en það ævintýri er eftir Ragnar Jóhannesson cand. mag. fyrrum kennara og skólastjóra fjallar um biskup i Skálholti, sem þarf að koma bréfi heim að Hólum f Hjaltadal. Sendir hann mann, sem lendir t ýmsum ævintýrum á leið- inni, en leikritið, sem var samið fyrir 7 árum, er sniðið fyrir unglinga og fullorðna. Leikbrúður úr ýmsum leikritum og hlutverkum á verkstæðinu hjá Jóni jan. n.k. f áratugi hefur Jón fengizt við leikbrúðugerð og er hann braut- ryðjandi á því sviði leikmenningar á íslandi. Hann hefur 1 1 sinnum ferð- azt í kringum landið og alls hefur hann sýnt yfir 1000 sinnum ýmis- konar dagskrá með leikbrúðum. M.a. hefur hann sýnt Eldfærin 140 sinnum, Kardimommubæinn 100 sinnum o.fl. o.fl Brúðuleikhús er rótgróinn þáttur i menningu flestra Evrópulanda og á vaxandi fylgi að fagna á íslandi, en þess mis- skilnings hefur gætt hér á landi, að brúðuleikhús sé eingöngu fyrir börn. Vegna starfs Jóns hefur ís- lands nú verið getið í bók um brúðu- leikhús Norðurlanda. „Ég kynntist fyrst brúðuleikhúsi í Kaupmannahöfn," sagði Jón, „og það vildi skemmtilega til. Ég nam í teikniskóla og við vorum að teikna lifandi módel Félagi minn segir þá allt í einu: „Mikið væri nú gaman ef maður gæti fengið líf í þetta á papp- írnum." Já, svaraði ég, það væri gaman. Þessi félagi minn bauð mér þá að koma heim til sfn næsta sunnudag og þá komst ég að því, að hann átti handbrúðuleikhús, sem ég hreinlega féll fyrir, og síðan hef ég verið f þessu f nærri 30 ár. Ég hef farið 1 1 ferðir f kringum landið og sýnt svo til hvar sem mögulegt var að sýna Þetta hefur verið afar skemmtilegt og nú er ég farinn að sjá árangur. S I. vetur hafði ég 3ja mán. námskeið og 14 manns sóttu námskeiðið. Þær Hallveig, Helga, Bryndís og Erna, sem eru með Leik- brúðuland, stjórna sýningunni hjá mér f Norræna húsinu og þær gera þetta mjög vel Þær munu síðan halda áfram sýningum á Frikirkju- vegi 1 1 þegar sýningunni er lokið í Norræna húsinu. Þær hafa æft verk- ið í tvo mánuði og eru feiknalega listasprang Eftír Árna Johnsen duglegar í öllu er að þessu lýtur. M a. eru þær orðnar mjög klókar við að skera út úr tré, en það er snar þáttur í leikbrúðugerðinni. í Norræna húsinu verða sæti fyrir 200 manns á sýningum Norður kaldan Kjöl, 1 4 styttur verð ég með úr islenzku birki, en þar sker ég út eitt og annað úr tilþrifum fólks í mannlífinu. Á leið í verið, Von og ótti, Hjálp, Hvað er svo glatt o.s.frv. heita stytturnar mfnar. Annars eru strengjabrúðurnar, éða marionett- urnar eins og þær heita á alþjóða- máli, gerðar úr tré En það þarf margra ára þjálfun til að búa þær til og fá þær til að tjá sig I skólanum hef ég kennt brúðugerð, en afar einfalda og fyrir Iftil hlutverk, reynd- ar aðeins frumatriðin, en næsta sumar vonast ég til að geta haldið námskeið i brúðuleikhúsgerð fyrir fólk úti á landsbyggðinni Fyrsta brúðusýningin hér á landi var reynd- ar á Eyrarbakka árið 1914, en þá sýndi danskur maður þar leikritið Jeppa á Fjalli. Ekki hef ég þó komizt að því hvað hann hét." „Hvernig hefur fólk tekið brúðu- leikhúsi þínu?" „Ég hef ekki þurft að kvarta yfir aðsókn og ég hef rekið þetta án þess að fá nokkra styrki. Ég tel mikils virði að fólk reyni að spjara sig án styrkja, en þetta hefur kostað mikla vinnu, því maður verður að gera öll leiktjöld og leiksvið einnig sjálfur í Framhald á bls. 29. Stulka vön afgreiðslustörfum óskast i matvöruverzlun. Tilboð sendist Mbl. fyrir 21. þ.m. merkt: „Áreiðanleg 9600" Til sölu Volvo Grand Luxe '72. Góður bill. Lán kemur til greina. Upplýsingar i síma 16992 frá kl. 13.00 — 19.00. Tökum að okkur smiði á eldhúsinnréttingum, klæðaskápum o.fl. Frésmíðaverkstæði Þorvaldar Björnssonar, Súðarvogi 7, simi 86940, kvöldslmi 71118. Hafnarfjörður Stór 3ja herb. ibúð tií leigu i Hafnarfirði. Upplýsingar i sima 51164. Óskum eftir landi fyrir sumarhús. Til greina kæmi með húsi. Uppl. i sima 40421. Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt í hálfum skrokk- um tilbúið í frystikistuna. 397 kr. kg Kjötmiðstöðin, sími 35020. Snjóbill Til sölu er snjóbill af Weasel gerð. Uppl. i sima 95-5522 og 95- 5523. Hestar. Til sölu folöld og 2ja vetra foli af góðu kyni. Sími 99-3219. Miðstöðvarketill 3 ferm, til sölu, ásamt brennara, rafklukku o.fl. Uppplýsingar í síma 1 5503. Smyrnateppin vinsælu komin aftur. Ekta Ryagarh, ready cut. ílöng og rúnn, ótrúlegt úrval. Hof, Þingholtsstræti 1. Sandgerði Til sölu góð 3ja herb. ibúð, neðri hæð, í steinhúsi við Suðurgötu. Fasteignasala Vilhjálms og Guð- finns Vatnsnesvegi 20, Keflavík, simar 1 263 og 2890. Óska eftir trillubát með dieselvél stærð 2—5 tonn. Upplýsingar i sima 92- 7097. Nagladekk 4 litið notuð nagladekk til sölu. Stærð F-78-14". Seljast ódýrt. Simi 42934. Gerum tilboð í jarðvegsvinnu svo sem grunna, skurðgröft, lóðir, bílastæði og akstur með efni. Reynið viðskiptin. Upplýsingar i sima 41526 á kvöldin. Loftblásari til sölu. Ódýrt. Simi 42934. Hálfir grisaskrokkar Nýslátraðir grísaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, simi 35020. Sparifjáreigendur Tek að mér að ávaxta sparifé á góðan og öruggan hátt. Lysthafendur leggi tilboð inn á afgr. Mbl. merkt: „Hagkvæmt — 7427". Frúarleikfimi Ný námskeið eru hafin Morguntímar, dagtímar og kvöldtímar. Innritun stendur yfir. Upplýsingar í síma 83295, frá kl. 1 3 alla daga, nema sunnudaga. Júdódeild Armanns, Ármúla 32.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.