Morgunblaðið - 18.10.1974, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÖBER 1974
Skák
eftir
JÓN Þ. ÞÓR
Langþráður draumur
margra íslenzkra skákunn-
enda rættist norður á Akur-
eyri síðast liðinn sunnudag,
er þar hófst deildakeppni í
skák. Fyrirkomulag keppn-
innar er með þeim hætti, að
teflt er i tveimur deildum,
fyrstu og annarri, og tefla
sveitirnar tvöfalda umferð
innbyrðis. I hverri sveit í 1.
deild eru tíu menn. I 1. deild
keppa sveitir frá eftirtöld-
um taflfélögum, talið eftir
töfluröð: 1. Taflfélag Kópa-
vogs, 2. Skáksamband
Suðurlands, 3. Taflfélag
Reykjavíkur, 4. Skákfélag
Akureyrar, 5. Skákfélag
Hafnarfjarðar, 6. Taflfélag
Hreyfils.
Stefnt er að því að keppni
f 1. deild verði lokið fyrir 30.
nóvember, en keppni í 2.
deild hefst ekki fyrr en eftir
áramót. Fyrirkomulag
keppninnar er með þeim
hætti, að hver keppenda hef-
ur eina og hálfa klukku-
stund til þess að Ijúka skák-
inni.
Keppnin á Akureyri hófst
með því, að Albert Sigurðs-
son formaður Skákfélags
Akureyrar flutti stutt ávarp,
en síðan setti Gunnar
Gunnarsson forseti Skák-
sambands íslands mótið. Þá
lék Freyr Ófeigsson forseti
bæjarstjórnar Akureyrar
fyrsta leiknum í skák þeirra
Friðriks Ólafssonar og Hall-
dórs Jónssonar á 1. borði.
Þar með var keppnin hafin
og er óþarfi að fjölyrða um
hana, en úrslit i keppni T. R.
og S. A. urðu þau, að T. R.
sigraði með 16 v. gegn 4.
Þegar þetta er ritað mun
enn ekki lokið öðrum viður-
eignum úr 1. umferð, en úr-
slita þeirra mun getið hér í
þættinum jafnskjótt sem
þau berast.
Við skulum nú lfta á eina
skák frá deildakeppninni,
hún var tefld á 1. borði f
fyrri umferðinni á Akureyri
og má því kallast upphafs-
skák keppninnar.
Hvítt: Friðrik Olafsson
Svart: Halldór Jónsson
Spænskur leikur.
1. e4 — e5, 2. Rf3 — Rc6, 3.
Bb5 — a6, 4. Ba4 — Rf6, 5.
o-o — Be7, 6. Hel — b5, 7.
Bb3 — d6, 8. c3 — o-o, 9.
h3 — Rd7, 10. d4 — Bf6, 11.
Be3 — He8, 12. Rbd2 — Ra5,
13. Bc2 — Bb7, 14. b4 —
Rc6, 15. d5 — Re7, 16. Rb3
— Rb6, 17. Ra5 — Bc8, 18.
a4 — Rxa4, 19. Bxa4 — bxa4,
20. Hxa4 — Bd7, 21. Ha3 —
Rg6, 22. c4 — Dc8, 23. Kh2
— Rf4, 24. Bxf4 — exf4, 25.
Dd2 — g5, 26. c5 — He7, 27.
Rc4 — dxc5, 28. bxc5 —
Bb5, 29. Dc2 — De8, 30. e5
— Bxc4, 31. exf6 — Hxel,
32. Rxg5 og svartur gaf.
The
Great
Gatsbv
V)
□
Við höfum
3 ný snið af herrafötum
Þau heita:
★
★
★
SUPPER LINE"
GATSBY"
GATSBY PEAK'
Öll fötin eru með vesti
Við höfum 2 ný snið
af stökum herrajökkum
Þau heita:
★
★ //
HUNTER"
GATSBY SPORT"
□
Við höfum 2 ný snið
af stökum buxum.
Þau heita:
★ //
★
EASY FIT"
HIGH RISE'
L
og 10 liti í Terelyne & ull, 6 liti í flaueli,
3 liti í bustuöu denim og mjög
fallegan bláan Indigo lit.
Einnig fóðraöar Tweed buxur í hinum
vinsæla „BILLY RUSSEL" sniöi.
Einnig viljum við vekja athygli á:
Kuldajökkum herra og dömu, Gatsby leðurjökkum. Ódýrum Shetlands
ullarpeysum á dömur og herra. Mjög fallegu úrvali af dömu- og
herapeysum. Síðum pilsum. Midi pilsum. Kjólum. Mjóum beltum,
stökum dömu flauelsjökkum.
Nýrri stórri plötusendingu.
Mjög fallegum herra- og dömu skóm og snyrtivörum við allra hæfi.
áfSm. ti2í^ÚVERZLUN unga fólksins
Éið KARNABÆR
AUSTURSTRÆTI 22 LAUGAVEG 66 LAUGAVEG 20 A