Morgunblaðið - 18.10.1974, Blaðsíða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÖBER 1974
Heimsókn á skóladagheimilið
Skála við Kaplaskjólsveg
Hér fá börnin athvarf
og skjól og athafnaþörfín
— Þetta húsnæöi er ívið stærra
en á hinum skóladagheimilunum
tveimur og getum viö því með
góðu móti haft hér 28 börn, segir
Hallgrímur. — Við reynum að
hafa hér heimilislegan brag og
við aðstoðum þau og hjálpum
þeim eins og gert er á góðu heim-
ili. Krakkarnir koma til okkar f
öllum fríum, því að mæður þeirra
eiga ekki frí úr vinnu, þótt leyfi
sé f skólum og við verðum því að
vera viðbúin enn meira álagi, þvf
að þá eru allir hér frá morgni til
kvölds.
INNI f leikstofunni eru
sex ungir piltar, þeir eru
reyndar allir sex ára að
aldri. Þeir hafa gert sér
stóra og sterklega bíla úr
legókubbum og láta þá
bruna fram og aftur. Þeir
láta allir prýðilega af dvöl-
inni hér, þeir Logi, Ingvi
Már, Einar, Pétur, Trausti
og Nonni. 1 glugganum
tróna glaðleg legóandlit,
sem þarna hafa verið búin
til af mikilli kúnst. í for-
stofunni er stór stunda-
tafla, sem starfsfólk
heimilisins hefur sér til
glöggvunar á því hvenær
hver á að fara í skóla eða
aukatímana sfna og þar
eru einnig teikningar og
skreytingar upp um alla
veggi, sem börnin hafa
gert.
Hallgrímur Björnsson, for-
stöðumaður heimilisins, sýnir
mér húsakynnin. Auk stóru leik-
stofanna á neðri hæð eru tvö
minni herbergi. í öðru eru þrjár
litlar stúlkur, Gunnhildur, Hildur
og Jenný, í mömmuleik, búa þar
um rúm og gefa dúkkunum af
mikilli innlifun. Þær segjast oft
vera með strákunum, jafnöldrum
sfnum, „en nú þurfum við að tala
saman," segir Gunnhildur
íbyggin. Á neðri hæðinni er
einnig borðstofa. Þar er líf og fjör
á matmálstímum og börnin sitja
umhverfis kringlótt litskrúðug
borð. Utan matmálstima eru sett
þar upp þrjú bobbborð og margir
krakkanna hafa náð leikni f því,
að sögn Hallgríms.
Þarna er einnig allrúmgott eld-
hús og búr og búningsherbergi
barnanna, þar sem er geymsla
fyrir hlffðarföt, stfgvél og töskur,
og hefur hver sitt merkta pláss.
Á efri hæðinni er rúmgott
(Jr kennsluherberginu: Helena og Hallgrfmur aðstoða við heimanám.
— Venjulega mæti ég kl. 7,45
áhverjum morgni segir hann. —
Ýmsar mæðranna þurfa að vera
mættar kl. 8 í vinnu og börnin
fara að tfnast að um það leyti.
Ráðskonan kemur kl. 8 og stúlk-
urnar, sem hér vinna, á ákveðn-
um tímum eftir verkaskiptingu.
Börnin byrja á að fá sér morgun-
verð þegar þau koma hingað,
kornflögur eða eitthvað slfkt. Og
öll taka lýsi. Sum fara síðan beint
í skóiann. Um hádegið eru öll
börnin hér í mat og yngri börnin
fara flest í skólann kl eitt. Heimil
ið útbýr þau með nesti í skólana.
Sömuleiðis sjáum við um, að þau
sæki sfna aukatíma og í því skyni
hefur verið komið upp stórri
stundatöflu, þar sem tekið er
fram hvenær þau eiga að sækja
þessa tfma. Tíminn frá kl. 1—3 er
rólegastur því að þá eru fæst börn
heima við. Aftur fer að fjölga um
1 dúkkuleik.
Búizt til að ganga til borðs. Nokkur börn voru f skólanum, þegar myndin var tekin. Með þeim eru
Málfrfður Gfsladóttir, Álfheiður Jónsdóttir, Jónfna Stefánsdóttir og Helena Ingibergsdóttir og Hallgrfm-
ur Björnsson, forstöðumaður. Guðrfður Jónsdóttir og Una Hannesdóttir voru ekki við vinnu, heldur áttu
að koma sfðdegis. Ljósm. Mbl. ÚI. K. Mag.
Frá föndrinu, þar leiðbeina þær
Málfrfður og Jónfna
föndurherbergi og þar er jafnan
þröngt á þingi. Þar er saumað út
og prjónað og föndrað af hjartans
lyst, þar er einnig kennsluher-
bergi en öll börnin fá tilsögn við
heimanám og Htil skrifstofa fyrir
Hallgrím.
Hallgrímur var í áratugi yfir-
kennari í Keflavík og lét þar að
sér kveða í bæjarlífinu á ýmsan
hátt. 1 fyrra tók hann við skóla-
dagheimilinu Skála, en þá hófst
rekstur þess. Þar eru 28 börn dag
hvern og hann hefur sex konur
sér til aðstoðar. Álfheiður Jóns-
dóttir er ráðskona og sér um mats-
eldina, Helena Ingibergsdóttir og
Guðríður Jónsdóttir fara yfir
lexfurnar með börnunum, Jónína
Stefánsdóttir og Málfríður Gfsla-
dóttir leiðbeina f föndrinu og síð-
degis kemur Una Hannesdóttir til
hreingerningarstarfa.
fjögurleytið og þá er kaffið,
mjólk, brauðsneið, kex og köku-
sneið eða eitthvað þvíumlfkt.
— Ég hafði fengizt við kennslu
í áratugi eins og ég vék að, hélt
Hallgrímur áfram, — svo að mér
fannst ég hafa verulega reynslu,
þegar ég ákvað að sækja um þetta
starf. Forráðamenn Sumargjafar
sögðu við mig, að þetta yrði erfitt.
Og sannleikurinn er sá, að ýmsir
krakkanna voru baldnir, einkum
til að byrja með, og fyrirferðar-
miklir, svo að oft þurfti mikla
lipurð eða strangan aga til að
halda f taumana. En allt endaði
slfkt í vinskap, betri en áður.
Þetta eru yfirleitt ákaflega góð
börn og vel gefin. — En þess ber
að gæta, að öll börnin á heimilinu