Morgunblaðið - 18.10.1974, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 18. OKTÖBER 1974
25
fclk í
fréttum
Útvarp Reyhfavik
FÖSTUDAGUR
1& október
7.00 Morgunútvarp
Veðurfregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og forustugr.
dagbl.), 9.00 og 10.00.
Morgpnbæn kl. 7.55.
Morguifstund bamanna kl. 8.45: Rósa
B. Blöndals heldur áfram að lesa sög-
una „Flökkusveinninn“ eftir Hector
Malot (5). Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli liða. Spjallað við bændur kl.
10.05.
Morgunpopp kl. 10.25.
Spænsk tónlist kl. 11.00: Nicanor
Zabaleta og Sinfónfuhl jómsveit
Berlfnarútvarpsins leika Konsetser-
enötu fyrir hörpu og hljómsveit eftir
Jaquin Rodrigo / Augustin Leon Ara
og Jean Claude Vanden Eynden leika
Spænska sónötu fyrir fiðlu og pfanó
eftir Turina / Turina / Hljómsveit
Tónlistarháskólans f Parfs leikur
Boiero eftir llavel.
12.00 Dagskráin. Tónleikar. Til-
kynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir. Til-
kynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar
14.30 „Fólk og stjórnmál“, úr endur-
minningum Erhards Jacobsens
Auðunn Bragi Sveinsson les þýðingu
sfna (3).
15.00 Tékkneska trfóið leikur Trfó í Es-
dúr fyrir fiðlu, pfanó og knéfiðlu op.
lOOeftir Schiubert.
15.45 Lesin dagskrá næstu viku.
16.00 Fréttir. Tilkynningar. (16.15
Veðurfregnir).
16.25 Popphomið
17.10 Tónleikar.
17.30 Pflagrfmsför til lækningalindar-
innar í Lourdes. Ingibjörg Jóhannes-
dóttir lýkur lestri á frásögn Guðrúnar
Jacobsens (4).
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Tilkvnningar.
19.35 Spurt og svarað
Svala Valdimarsdóttir leitar svara við
spurningum hlustenda.
20.00 Tónleikar Sinfónfuhljómsveitar
tslands f Háskólabfó kvöldið áður.
Stjómandi: Samuel Jones frá Banda-
rfkjunum.
Einleikari á pfanó: Michael Roll frá
Bretlandi.
a. Harmforleikur op. 81 eftir Johannes
Brahms.
b. Adagio fyrir strengjasveit op. 11
cftirSamuel Barber.
c. Fjórar sjávarmyndir op. 33a eftir
Benjamin Britten.
d. Pfanókonsert nr. 5 f Es-dúr eftir
Ludwigvan Beethoven.
— Jón Múli Amason kynnir tónleik-
ana —
21.30 Útvarpssagan: „Gangvirkið“ eftir
ólaf Jóhann Sigurðsson Þorsteinn
Gunnarsson leikari les (4).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Búnaðarþáttur:
Mjólkuriðnaðurinn á Akureyri Gfsli
Kristjánsson ritstjóri ræðir við Vem-
hard Sveinsson forstöðumann Mjólkur-
samlags KEA og Gfsla Magnússon
múrarameistara.
22.35 Afangar tónlistarþáttur f umsjá
Ásmundar Jónssonar og Guðna Rúnars
Agnarssonar.
23.25 Fréttir f stuttu máli. Dagskrárlok.
f Þ
A sklanum
FÖSTUDAGUR
18. október 1974
20.00 Fréttir
20.25 Veður og auglýsingar
20.35 Tökum lagið
Breskur söngvaþáttur.
Hljómsveitin „The Settlers“ flytur létt
lög ásamt fleirum.
Þýðandi Jóhanna Jóhannsdóttir.
21.00 Kapp með forsjá
Breskur sakamálamyndafiokkur.
Þýðandi Kristmann Eiðsson.
21.50 Kastljós
Fréttaskýringaþáttur.
Umsjónarmaður Svala Thorlacius.
22.25 Dagskrárlok
fclk i
fjclmiélum
Kastljós
KL. 21.50 er fréttaskýringaþátturinn Kastljós á dagskrá.
Svala Thorlacius er umsjónarmaður þáttarans, en auk hennar
kemur fram helmingur þeirra utanhússmanna, sem aðstoða við
fréttaskýringar f þættinum.
Fyrst mun Baldur Guðlaugsson reyna að komast tii botns f þvf
hvort möguleiki sé á að hægt sé að beita lagakrókum Glistrups hins
danska við skattframtöl hér á landi, og ræðir hann við Atla
Hauksson endurskoðanda um það.
Þá ætlar Elías S. Jónsson að gera grein fyrir stöðunni f máium
loðnumjölsseljenda hér á landi, og athuga verð á þessari mikilvægu
útf lutningsvöru.
Einar K. Haraldsson fer ásamt kvikmyndatökumönnum suður
með sjó og kannar hvort olfumengun sé f vatnsbólum Suðurnesja
manna en það mál hefur nokkuð verið á döfinni að undanförnu.
Þá ræða Svaia og Helgi V. Jónsson við forstjóra tveggja ferða-
skrifstofa, Sunnu og Utsýnar, um leiguflug og vetrarferðir Islend-
inga til útlanda.
Loks verður sýnd stutt mynd, þar sem Jón Örn Marfnósson ræðir
við Jóhannes heitinn Kjarval f vinnustofu hans við Austurstræti.
Þar sýnir Kjarval myndir þær, sem vakið hafa athygli að undan-
förnu og spjallar um þær. Viðtal þetta fannst nýlega, en það var
tekið þegar sjónvarpið var að taka fyrstu tennurnar, ef svo má að
orði komast.
Margt bitastætt virðist því verða f Kastljósi f kvöld, og virðist
þessi þáttur ekki ætla að gefa eftir Heimshorninu sæla, sem
sjónvarpað var vikulega f fyrravitur.
Rœtt um mjólkuriðnað
á Akureyri
I BUNAÐARÞÆTTI að loknum sfðari kvöldfréttum f útvarpinu
ræðir Gfsli Kristjánsson ritstjóri við tvo Akureyringa, þá Vernharð
Sveinsson forstöðumann Mjólkursamlags KEA og Gfsla Magnússon
múrarameistara, um mjólkuriðnað á Akureyri.
Það hefur löngum verið svo, að við Reykvfkingar höfum litið
Akureyringa hálfgerðum öfundaraugum vegna þjónustu mjólkur
samlags KEA, en hún hefur verið talin sú bezta á landinu.
Bæði hafa þeir þarna nyrðra verið snarir í snúningum þegar
nýjungar hafa verið annars vegar, og jafnvel hefur viljað bregða
við, að sunnanmenn hafa látið senda sér mjólkurvöru að norðan.
Það gæti þvf verið fróðlegt fyrir áhugafólk um neytendamál að
hlýða á spjallið f kvöld.
r\fr
ÞETTA er hún Barbara Hutchinson, er hún ræddi við fréttamenn f Santo Domingo, en þar var
henni haidið f gfslingu f 13 daga hjá ræðismanni Venesúela á staðnum.
Með henni á myndinni, er sendiherra Bandarfkjanna f Dóminikanska lýðveldinu, Hubert
Hurwitch.
Kynlegt
háttarlag...
ÞETTA er auglýsingamynd af
Fanny Fox þar sem hún auglýs-
ir næturklúbbinn „Silver Slipp-
er“. Annabell Batistella er hið
rétta nafn hennar, Fanny Foxer
sviðsnafn, en hún var einmitt
ein af farþegunum i bíl banda-
rfska þingmannsins Wilbur
Mills, er hann var stöðvaður
eftir að lögreglan hafði elt
hann á 70 mílna hraða um götur
W ashingtonborgar.
Meðan lögreglan yfirheyrði
ökumanninn, Albert G. Gapa-
cini, stökk Annabell út úr bíln-
um og f tjörnina sem er á milli
Jeffersons minnismerkisins og
Washington minnismerkis-
ins... kynlegt háttalag það...
Sama heimilisfang
HÉR sést Wilson ásamt konu
sinni veifa til fólksins af tröpp-
um Downing strætis númer 10,
eftir að ljóst var að flokkur
hans, Verkamannaflokkurinn
hefði meirihluta á þinginu.
Einhver hluti ánægjunnar er
vafalaust fólginn í þvf, að þurfa
ekki að flytja úr því merka
húsi, allir vita hvernig það er,
að þurfa að leita sér að nýju
húsnæði!
Rólegt kveðju-
lag til Yoko
NYJA platan hans John Lenn-
on fær allsstaðar mjög góða
dóma. I dómum um plötuna má
lesa, að mikil fjölbreytni sé
höfð f gerð hennar og sé þar
m.a. að heyra úlfavæl og fl. Eitt
lagið er sagt vera tileinkað
Yoko Ono, en þó kemur það
hvergi fram hjá Lennon að slíkt
muni vera... Með honum á
þessari plötu eru hljóðfæraleik-
arar svo sem: Jesse Ed Davis á
gítar,Bobby Keys á horn, Klaus
Voorman, Nicky Hopkins og
Jim Keltner. Harry Nilsson að-
stoðar Lennon í laginu, „Old
Dirt Road“. Sonur Lennons sem
aðeins er 11 ára gamall, spilar
svo með á trommur í laginu „Ya
Ya“.
Lennon virðist bara glaður,
þrátt fyrir að á móti blási vest-
an hafs...