Morgunblaðið - 18.10.1974, Page 32
FÖSTUDAGUR 18. OKTÓBER 1974
nucivsinGHR
«£^-»22480
nucivsincnn
^v-*2248D
Fiskur í soðið
hækkar um 25'
VERÐLAGSYFIRVÖLD hafa nú
heimilað hækkun á seldri vinnu
vegna ákvæða bráðabirgðalaga
rikisstjðrnarinnar um láglauna-
uppbætur. Þessi hækkun kemur
þar af ieiðandi aðeins á lægstu
taxta útseldrar vinnu og mun t.d.
í málmiðnaðinum nema frá
1—5% en f byggingariðnaðinum
er hækkunin á bilinu 5 og allt
upp f 10% á allra lægstu taxta
verkamanna. Allir hærri taxtarn-
ir eru eftir sem áður óbreyttir.
Þá var tekin ákvörðun um að
heimila hækkun á fiskverði í fisk-
búðum vegna nýrrar verðákvörð-
unar á fiski og vegna kostnaðar-
hækkana við dreifingu. miðað við
verð það, sem auglýst var í janúar
sl., mun verð á hausaðri ýsu
hækka um 25% en um 27% á
ýsuflökum. Þorskur er nú færður
upp f sama verðflokk og ýsan og
hækkar hann þar af leiðandi
meira eða um sem næst 37%
Framhald á bls. 18
Viðgerð Viðeyjarstofu
miðar allvel áfram
AERAM hefur verið unnið að við-
gerð Viðeyjarstofu f sumar og er
starfi við þennan sumaráfanga nú
í þann mund að Ijúka, að þvf er
Þðr Magnússon þjóðminjavörður
tjáði Morgunblaðinu f gær en við-
gerðin fer fram á vegum Þjóð-
minjasafnsins. A fjárlögum voru
veittar um tvær milljónir króna
til verksins f sumar en Þór taldi,
að eitthvað hefði verið farið fram
úr þeirri f járveitingu.
I sumar hefur verið lagt kapp á
að ljúka viðgerð á þaki stofunnar,
lokið hefur verið við að gera súð-
Tollgæzlan
fann kirkju-
muni í
kössunum
NOKKUR töf hefur orðið á
uppsetningu á steindum
gluggum, sem eiga að koma f
Siglufjarðarkirkju, og Mbl.
hefur áður skýrt frá. Astæðan
er sú, að þegar Tollgæzlan f
Reykjavfk athugaði kassa þá,
sem gluggarnir voru í þegar
þeir komu til landsins, fund-
ust f kössunum kirkjumunir,
sem ekki áttu að vera þar sam-
kvæmt skrám.
Gluggarnir eru unnir hjá
hinum þekktu Oitmansbræðr-
um f Þýzkalandi, og eru menn
frá þeim væntanlegir til lands-
ins til að setja gluggana upp.
Verður þá leitað skýringa á
tilvist hinna kirkjulegu muna
í kössunum, að þvf er Björn
Hermannsson tollstjóri tjáði
Mbl.
ina og þriðja og síðasta kvistinn á
framhliðinni, svo og hefur þakið
verið pappalagt og það klætt með
svartri glerhúðaðri skífu, sem
keypt var frá Hollandi.
Þór sagði, að áherzla hefði verið
lögð á, að stofan liti vel út eins og
hún sæist frá Reykjavík, en
eflaust þætti einhverjum skrítið
að svartur litur hefði nú komið á
þakið í stað rauðs áður. Benti
hann hins vegar á, að upphaflega
hefði verið svarttjargað timbur-
þak á stofunni, svo að svarti litur-
inn væri þannig upprunalegri.
Nú er eftir að ganga endanlega
frá þakinu og síðan verður tekið
til við innréttingar i stofunni. Bú-
ið er að ganga frá risinu uppi, sem
er einn geymur, en niðri á eftir að
gera skilrúm og lækka öll gólf,
sem einhvern tíma hafa verið
hækkuð frá því sem upphaflega
Framhald á bls. 18
Haustdagur í Reykjavík.
Ljósm. Mbl. Ól. K. M.
Hagstætt að beina olíu-
kaupum okkar til Noregs
Viðskiptaráðuneytinu sendar frumáætlanir þess efnis
Viðskiptaráðuneytið hefur nú
til meðferðar frumútreikninga og
gögn, sem benda til, að hagstætt
geti nú verið að beina olíukaup-
um Islendinga frá Sovétrfkjunum
til Noregs, að þvf Indriði Pálsson,
forstjóri Olfufélagsins Skeljungs,
tjáði Morgunblaðinu f gær, en
Indriði aflaði þessara frum-
áætlana og sendi ráðuneytinu. I
samtali við tfmaritið Frjálsa
verzlun lýsir Indriði þvf yfir, að
hann telji, að nú sé kominn
grundvöllur fyrir að leita eftir
samningum til langs tfma við
Norðmenn um jarðolfukaup og
fela olfuhreinsunarstöðvum f V-
Evrópu að vinna úr henni nokkr-
ar þeirra aðalolfutegunda, sem
landsmenn þarfnast og sjá til
þess að öðru leyti, að hlutfallsleg
magnskipting þessara vara sé f
Neitað um sýningaraðstöðu:
Afrýjar úrskurði Kjarvals-
staðanefndar til borgarráðs
MYNDLISTARMAÐUR hér f
borg hefur nú f fyrsta sinn
áfrýjað til borgarráðs þeirri
ákvörðun Kjarvalsstaðanefndar
að neita honum um sýningarað-
stöðu á Kjarvalsstöðum. Var á
fundi sjö-manna sýningarnefndar
Kjarvalsstaða fyrir um mánuði
greitt atkvæði um það hvort Jóni
M. Baldvinssyni skyldi heimilað
að sýna á Kjarvalsstöðum en það
var fellt með 3 atkvæðum gegn
tveimur, einn sat hjá og einn var
ekki viðstaddur.
Nefndin hefur einu sinni áður
neitað myndlistarmanni um sýn-
ingaraðstöðu á Kjarvalsstöðum en
sá áfrýjaði ekki til borgarráðs.
Gangur áfrýjunarinnar verður nú
með þeim hætti, að borgarráð til-
nefnir tvo menn til viðbótar í
Kjarvalsstaðanefnd og mun þá
þessi níu-manna nefnd taka um-
sóknina afturtil atkvæðagreiðslu.
Borgarráð hefur ekki tilnefnt
þessa tvo fulltrúa enn sem komið
er.
Jón M. Baldvinsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær, að
Framhald á bls. 18
samræmi við þarfir landsmanna.
„Aðstæður til þessa virðast nú
vera fyrir hendi,“ segir Indriði í
fyrrgreindu viðtali. „Ég hef aflað
frumútreikninga og áætlana um
slík olíukaup frá Noregi, sem
gætu reynzt hagstæð okkur, en
það er hlutverk islenzkra stjórn-
valda að ákveða hvort slik við-
skipti skuli gerð og að hvaða
marki.“
1 samtali við Morgunblaðið
sagði Indriði, að ástæðurnar fyrir
því, að hann ákvað að afla þessara
frumútreikninga, væru margar
en m.a. þær, að á síðasta Alþingi
hefðu þingmennirnir Geir Hall-
grímsson og Matthías Á.
Mathiesen flutt þingsályktunar-
tillögu um svipað efni. „Eins er
það, að olíufundirnir við Noreg
hafa orðið miklu meiri en búizt
var við í upphafi og svo í þriðja
Iagi hversu viðskiptajöfnuðurinn
milli okkar og Sovétríkjanna hef-
ur breytzt gífurlega okkur í
óhag.“
í samtali Indriða við Frjálsa
verzlun kemur fram, að geysileg-
ar hækkanir hafa orðið á olíu-
verðinu hjá Rússum eða mjög í
samræmi við þá þróun, sem hefir
orðið á heimsmarkaðsverðinu.
Árið 1972 hafi verið keyptar frá
Sovétríkjunum oliuvörur fyrir
einn milljarð króna cif. en á þessu
ári verði keypt fyrir 5.5—6
milljarða. Kaupverð á hverju
tonni í dollurum sé nú allt að
fjórfalt hærra en það, sem var
árið 1972. „Hins vegar hefur
fiskurinn, sem við seljum til
Sovétríkjanna, ekki hækkað á
þessu tímabili nema um 57%. Því
hlýtur nú að koma til mat stjórn-
valda á því, hvort nauðsyn sé
Framhald á bls. 18
75 félög
hafa sagt
upp
SAMKVÆMT upplýsingum
skrifstofu Alþýðusambands Is-
lands mun nú láta nærri, að
um 75 aðildarfélög sambands-
ins hafi sent inn uppsögn
kjarasamninga. Uppsagnir
hafa borizt frá flestum hinum
stærri félögum en nokkur
smærri félög eiga enn eftir að
senda inn uppsagnir samn-
inga. Innan Alþýðusambands-
ins eru einnig 25 sjómanna-
félög en bréf þeirra eru send
Sjómannasambandi Islands.