Morgunblaðið - 26.10.1974, Qupperneq 1
36 SIÐUR
210. tbl. 61. árg.
LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Staðfestu rétt
Palestínu-
skæruliðanna
Kann að leiða til
úrsagnar Jórdaníu
Rabat, 25. október — Reuter.
UTANRÍKISRÁÐHERR-
AR Arabalandanna, sem
undanfarna daga hafa unn-
ið að undirbúningi leið-
togafundar Araba í Rabat á
morgun, samþykktu í dag
eftir deilur og harða mót-
spyrnu fulltrúa Jórdaníu
að styðja kröfu Frelsis-
hreyfingar Palestínu um
að hún yrði málsvari
Palestínu í friðarumleitun-
um í Miðausturlöndum í
framtíðinni sem eini rétti
fulltrúi palestínsku þjóðar-
USA réttir
úr kútnum
Washington 25. okt.
Reuter-AP
BANDARtKJASTJÖRN
skýrði frá þvf f dag að halli á
viðskiptajofnuði landsins
hefði verið 233,3 milljónir
dollara f september, —
minnsti halli sem verið hefur
á jöfnuðinum f fimm mánuði.
Sagði viðskiptaráðuneytið
helztu ástæðuna vera minni
olfuinnflutning, vegna þess að
allar olfubirgðageymslur f
Bandarfkjunum eins og vfðast
hvar annars staðar væru orðn-
ar fullar.
innar. Mæla utanríkisráð-
herrarnir með því við leið-
togafundinn á morgun að
'staðfesta þessa kröfu
Frelsishreyfingarinnar, —
svo og styðja þeir kröfu
hreyfingarinnar um yfir-
Framhald á bls. 20
Skjölum
Wilsons
stolið?
London 25. okt. —
Reuter
EINKASKJÖL sem tilheyra Har-
old Wilson, forsætisráðherra
Bretlands, þ. á m. gömul skatta-
framtöl, hafa horfið frá heimili
hans I miðborg Lundúna, að þvf
er talsmaður forsætisráðherrans
skýrði frá I dag. Lögreglan vinnur
nú að rannsókn hvarfsins, sem
mun hafa átt sér stað fyrir all-
mörgum mánuðum, þegar Wilson
var enn leiðtogi stjórnarandstöðu
Verkamannaflokksins, og fékk
lögreglan málið fljótlega til með-
ferðar.
Meðan á kosningabaráttunni
stóð í þessum mánuði komu fram
nokkrar ásakanir af hálfu Verka-
mannaflokksins um njósnastarf-
semi og bellibrögð andstæðing-
anna gegn Wilson, en ekkert kom
fram sem réttlætti þessar ásakan-
ir fyrr en nú.
Nýja frystihús ísbjarnarins h.f. í smíðum
samtal við Ingvar Vilhjálmsson 75 ára í dag.
í örfirisey. Sjá greinar í blaðinu og
Toppfundur hugs-
anlega ákveðinn
— fyrir brottför Kissingers á sunnudaginn
Moskvu, 25. október AP—-Reuter.
HENRY Kissinger, utanrfkisráð-
herra Bandarfkjanna, lagði f dag
fram nákvæmar tillögur um tak-
mörkun kjarnorkuvopna á tveim-
ur viðræðufundum við Leonid
Brezhnev, aðalritara sovézka
kommúnistaflokksins. Báðir
aðilar sögðu að afloknum sfðari
fundinum f kvöld, að sú „gaum-
gæfilega athugun" sem fram fór á
tillögunum hafi verið „nytsam-
leg“. Ekkert hefur verið látið
uppi um efni þessara tillagna.
Eftir fundinn sögðu aðilarnir að
viðræður þessar gætu leitt til
frekari takmörkunar á vfgbúnaði
og nýs afvopnunarsamkomulags
(SALT), sem hugsanlega yrði
gengið endanlega frá á toppfundi
Brezhnevs og Fords Bandarfkja-
forseta sfðar f haust.
Er talið að dagsetning og stað-
setning þess fundar kunni að
verða tilkynnt áður en Kissinger
heldur frá Moskvu til Indlands á
sunnudag, en líklega yrði hann
haldinn einhvers staðar i Asíu i
sfðustu viku nóvembermánaðar.
Kissinger er sagður leggja allt
kapp á að leggja drög að slíku
samkomulagi, sem kæmi í stað
hins 10 ára gamla SALT-sam-
komulags. Ef samkomulag tækist
yrði SALT-ráðstefnunni í Genf
falið að draga upp samning um
takmörkun eldflauga, sprengju-
varpna, fjöloddaflauga og
sprengjuflugvéla. Núverandi
samkomulag rennur út árið 1977.
Nýjar kosningar eft-
ir uppgjöf Fanfanis ?
Róm, 25. október.
AP—Reuter.
STJÓRNMALASKYRENDUR
á ttalíu töldu f kvöld að
Giovanni Leone, forseti landsins
ætti ekki annan raunhæfari kost
en leysa upp þingið og boða til
kosninga fljótlega, og afhenda
minnihlutastjórn stjórnartaum-
ana til bráðabirgða, eftir að
Amintore Fanfani, leiðtogi
Kristilegra demókrata hafði gef-
izt upp við myndun rfkisstjórnar
með sósfalistum, sósfaldemókröt-
um og lýðveldissinnum. Leone
sagði eftir að Fanfani hafði tjáð
honum að honum hefði mistekizt
stjórnarmyndun, að hann myndi
hefja nýjar viðræður við stjórn-
málaleiðtoga á mánudag.
A Ellefu daga stjórnar-
myndunartilraun Fanfanis lauk
þannig með þvf að stjórnarkrepp-
an á Italfu kemst aftur f hámark,
þremur vikum eftir fall rfkis-
stjórnar Mariano Rumors. (Jtlitið
er talið verra en nokkru sinni.
Flokkarnir eru komnir f hár sam-
an, öngþveitið f atvinnu- og efna-
hagsmálum fer dagvaxandi. Verð-
bólgan er sú næstmesta f Evrópu,
eða meir en 20%, og stjórnvöld
hafa skýrt frá því, að framfærslu-
kostnaðurinn hafi snarhækkað í
september um 3,3%, sem jafn-
gildir 47,6% á ári og er mesta
mánaðarhækkun frá árinu 1947.
Þá hefur tala atvinnulausra
næstum tvöfaldast á þessu ári,
— úr 450.000 manns f vor upp f
800.000 nú. Skuldir Italiu við út-
Framhald á bls. 20
Tillaga d’Estaings fær
dræmar undirtektir
éaris, 25. okt. Reuter.
TILtAGA Valerys Giscards
d’Estaings, forseta Frakklands,
um ráðstefnu fulltrúa oliufram-
lciðsiuþjóða, olfuneyzluþjóða og
vanþróuðu rfkjanna til að reyna
Liður í útfærslu Norðmanna í 50 mílur:
TOGURUM BANNAÐAR VEIÐ-
AR Á 4 STÓRUM SVÆÐUM
Osló 25. október. Frá
fréttaritara Morgunblaðsins
Agústi I. Jónssyni.
NORSKA rfkisstjórnin lagði á
fimmtudaginn fram frumvarp f
Stórþinginu þess efnis að á fjór-
um svæðum undan ströndum
Finnmerkur verði togurum
óheimilar veiðar mikinn hluta
vetrarins. Tilgangur með friðun
þessara svæða er fyrst og fremst
sá að koma f veg fyrir árckstra
milli togskipa og þeirra sem
stunda Ifnu- og netaveiðar.
Friðunin hefur ekki stórvægilega
þýðingu fyrir verndun fiski-
stofna.
Þetta er um 20% af svæðinu
milli núverandi 12 mflna land-
helgi og fyrirhugaðrar 50 mflna
fiskveiðilögsögu á milli Skomvær
f Lofoten og Grense Jakobsens víð
landamæri Noregs og Sovét-
rfkjanna.
Talið er fullvíst að þetta frum-
varp ríkisstjórnarinnar verði
Isamþykkt án breytinga i Stór-
þinginu.
Jens Evensen hafréttarráð-
herra og Eivind Bolle sjávarút-
vegsráðherra kynntu frumvarpið
á blaðamannafundi í gær. Lét
Bolle þá svo ummælt að friðunin
væri skref í rétta átt, en hann
persónulega hefði verið fylgjandi
meiri hömlum á togveiðum.
Evensen var að því spurður
hvernig ríkisstjórnin hefði hugs-
að sér að verja svæðin ágengni
togara. Sagði Evensen að varð-
skipin yrðu vonandi einfær um
það. Ef ekki, þá mætti kalla á
herskip til hjálpar.
— Eftir þeim skilningi að dæma
Framhald á bls. 20
að leysa ollukreppuna f heimin-
um, hefur fengið heldur dræmar
undirtektir, bæði heima og er-
lendis.
Fyrstu fregnir frá London,
Washington og fleiri vestrænum
borgum, benda til þess, að opin-
berir aðilar þar Ifti tillöguna
grunsemdaraugum og telji hana
til þess ætlaða að grafa undan 12
rfkja ráðstefnu helztu olluneyzlu-
rfkjanna, sem komið var á fyrir
tilstuðlan Bandaríkjastjórnar, en
Frakkar hafa ekki sótt.
Meðal ljóna, sem blöó sjá á vegi
tillögu franska forsetans, er að
það gæti orðið að deiluefni, hvaða
þjóðir eigi að taka þátt í ráðstefn-
unni, sem hann hugsar sér, að
hefjist snemma á árinu 1975 og
hvaða þjóðir yrðu reiðubúnar til
þess að láta aðra semja fyrir sig á
slíkri ráðstefnu. Talsmaður
Elysee-hallar sagði í dag, að engar
ráðstafanir hefðu verið gerðar til
þess að hrinda hugmynd
forsetans í framkvæmd, en benti
á, að hann hefði í ræðu sinni lagt
til, að einn fulltrúi kæmi fram
fyrir öll EBE-ríkin níu. Tals-
maðurinn viðurkenndi að hug-
Framhald á bls. 20