Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÖBER 1974
7
Varla er til það vandamál í
Noregi í dag, sem ekki er
ætlazt til að olían leysi, og
varla neinir þeir erfiðleikar,
sem ekki er unnt að rekja til
auðlindanna nýju út af
Norðursjávarströnd landsins.
Jafnvel áður en opnað hefur
verið fyrir leiðsluna frá fyrstu
borholunni svo olían geti
flætt til móttökustöðvarinnar
við Reesside I Englandi er
olían orðinn stór liður í dag-
legu lífi svo til hvers einasta
Norðmanns. Sannleikurinn
er þó sá, að fæstir þeirra hafa
mikla þekkingu á málinu.
Þeim hefur verið tjáð, að
fundizt hafi mikið olíumagn,
og að olían eigi eftir að færa
þeim meiri auðæfi en þá geti
órað fyrir. Og þeim hefur
einnig verið sagt, að fleiri
lindir eigi eftir að finnast.
Það er þvi eðlilegt, að ein-
staklingar spyrji hvers vegna
þeir, samtök þeirra, stéttar-
félög eða heimasveitir geti
ekki vænzt hluta þessa mikla
auðs til að ráða fram úr ríkj-
andi vandamálum. Alvarlega
hugsandi stjórnmálamenn
hafa þó varað við þvi, að
þessi nýi auður geti skapað
ný vandamál.
forum
world features
Eftir Gunnar
J. Borrevik
Auðlegð
Noregs
Mikil oliustöð er nú í smíðum í Mongstad og verður hún tilbúin á næsta ári.
Ef milljörðum norskra
króna af þessum nýju rikis-
tekjum verður veitt inn í
efnahagslifið, leiðir það til
þess, að verðlag, sem nú
þegar er mjög hátt, hækkar
verulega. Þessi peninga-
flaumur leiddi til aukinna
framkvæmda, sem vinnu-
markaðurinn réði ekki við,
enda ríkir þar oftast mann-
ekla.
Þegar er farið að bera á
þessu vandamáli. Boranirn-
ar á landgrunni Noregs og
tengdar aðgerðir í landi —
aðallega á suðvesturströnd-
inni — hafa dregið til sín
vinnuafl frá iðjuverum í öðr-
um héruðum landsins. Menn
yfirgefa verksmiðjurnar og
búgarðana til að leita betri
launa við smíði á bor- og
vinnslupöllum, eða við sjálfa
borunina. Og engir fást til að
hlaupa í skörðin.
Á sumum sviðum er aðeins
verið að flýta þróun, sem
hvort eð er var óumflýjanleg.
Það háa kaupgjald og verð-
lag, sem komið er á í Noregi
jafnvel án áhrifa olíunnar,
eru að gera vefnaðariðnaðinn
ósamkeppnishæfan, sérstak-
lega ef þjóðin ætlar að
standa við fyrirheit sín um
frjáls viðskipti við þróunar-
löndin. Ljóst er, að hið opin-
bera verður að hafa strangt
eftirlit með þróun mála, ef
hún á ekki að leggja í eyði
víðáttumikil landsvæði, þar
sem veðrátta og landslag
gera lífið erfiðara og lífskjörin
harðari. Það verður að finna
leiðir til að veita framkvæmd-
um, er byggjast á olíuauðin-
um, til þeirra svæða, sem eru
mest þurfandi.
Þetta verður auðveldara í
framkvæmd þegar olían er
farin að renna úr lindunum
og ríkiskassinn að fyllast.
Enn sem komið er gerir olían
ekkert annað en gleypa í sig
alla sjóði. Að undanförnu
hefur verið halli á greiðslu-
jöfnuði Noregs við útlönd. Sá
halli hefur að mestu stafað af
erlendum lánum til skipa-
kaupa, en þessi skip hafa á
hinn bóginn verið helzta
gjaldeyristekjulind landsins.
Hallinn hefur því ekki valdið
neinum áhyggjum.
Á fyrra helming ársins
1974 varð greiðsluhallinn
þrír milljarðar norskra króna
— eða tvöfalt meiri en talið
hefu verið „hættulaust" fyrir
heilt ár til þessa. Við nánari
athugun kemur í Ijós, að af
þessari upphæð stafa aðeins
um 400 milljónir af venjuleg-
um fjárfestingum en 2.600
milljónir hafa farið í Norður-
sjávarolíuna. Þar sem nú er
reiknað með því, að ollan
verði farin að streyma frá
lindunum í Norðursjó í lok
þessa árs eða byrjun þess
næsta, hefur þessi mikli halli
ekki heldur valdið neinum
áhyggjum að ráði.
Það er eðlilegt, að al-
menningur geti ekki gert sér
grein fyrir því hvað er að
gerast. Upphæðirnar eru svo
miklu hærri en menn eiga að
venjast. Undir lok þessa ára-
tugar er reiknað með, að
tekjur hins opinbera af olí-
unni nemi um helming upp-
hæðar núverandi fjárlaga.
Eftir að þessi áætlun var gerð
hafa nýjar olíulindir fundizt,
sem talið er að séu jafn mikl-
ar að vöxtum öllum þeim
lindum, sem fyrir voru.
Statoil — ríkisrekna olíu-
félagið — á meirihluta I allri
olíuvinnslunni, og hirðir því
hagnað af vinnslunni, auk
þess sem ríkið fær skatta og
vinnslugjöld frá öðrum aðil-
um. Og fyrir norðan 62.
breiddarbaug, þar sem bor-
anir hafa enn ekki hafizt,
bendir allt til, að sé enn meiri
olía en I Norðursjónum.
Það er þvi ekki að furða
þótt fram hafi komið í stefnu-
skrá ríkisstjórnarinnar nýlega
loforð um „verulegar skatta-
lækkanir" I sambandi við fjár-
lög næsta árs.
Húsbyggjendur Mosfellssveit ATHUGIÐ Tökum að okkur vatns- og hita- lagnir. Fast verð ef óskað er. Hringið i síma 71866 og 32259 á kvöldin. Vanir fagmenn. Húsnæði óskast Þerna á mitlilandaskipi óskar eftir 1 herbergi og eldhúsi strax. Upplýsingar i sima 32841.
Frimerkjaskipti Sendu mér 100 stk. mismunandi íslenzk frímerki, og þá sendi ég þér 1 00 mismunandi sænsk. S. Bengtsson, Box 91, 27059 Vitaby, SVERIGE. Til sölu Ford Cortina 1600 XL 1972. Góður bill. Upplýsingar i sima 71 666.
Til sölu Simca Ariane 1963, sundurtekinn bíll, sem byrjað var á að gera við. Nýir varahlutir fylgja, svo sem bæði frambretti, demparar fram- an, silsar, o.fl. Uppl. i sima 91-52049. Til sölu Ford Galaxi Sérlega vel með farin og falleg einkabifreið. Ekin 100 þús. km. Til sölu og sýnis að Túngötu 51, sími 19157.
Til sölu vörubifreið Ford D — 800 árg. '66 með 18 feta góðum palli og sturtum. Góð dekk. Uppl. í síma 33551. Keflavík Til sölu notað timbur, 1 X6 ", 1 X4", 2x4 ", Hagstætt verð. Sími 92-21 62.
Prjónakonur takið eftir Kaupum lopapeysur, hækkað verð. Einnig vettlinga og sjónvarpssokka. Móttaka kl. 1—3. Unex, Aðalstræti 9. Óska að ráða stúlku frá 1. nóvember. Veitingastofa Nonna, Stykkishólmi. Sími 93-8355.
Silkispælflauel 20 litir silkispælflauel. Hannyrðabúðin, Linnetsstíg 6, Hafnarfirði, simi 51314. Hálfir grísaskrokkar Nýslátraðir grísaskrokkar, skorið, hakkað og merkt eftir óskum kaup- anda. 488 kr. kg. Kjötmiðstöðin Laugalæk, sími 35020.
BRNO riffill til sölu — cal. 22 Long Rifle með Meo Opta 3xkiki, 3 magasinum strigapoka, burðaról, allt á kr. 20.000. Sími 35673. Hálfir nautaskrokkar úrvals nautakjöt í hálfum skrokk- um tilbúið í frystikistuna. 397 kr. kg. Kjötmiðstöðin, sími 35020.
Skinnasaum Stúlka óskast við skinnasaum. Vinnutimi eftir samkomulagi. L.H. Múller, fategerð. Ármúla 5. JWorgunliIntiifc ^« mnRGFRLDHR IHÖGULEIKR VÐRR
Aðalfund
heldur Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn í Keflavík
í Sjálfstæðishúsinu, þriðjudaginn 29. október
kl. 9 e.h. Fundarefni: Venjuleg aðalfundarstörf.
Kaffiveitingar. Spilað bingó.
Félagskonur fjölmennið.
St/órnin.
Bazar
Félag Austfiskra kvenna
heldur sinn árlega bazar að Hallveigarstöðum
sunnudaginn 27. október kl. 2.
Margt eigulegt ágætra muna og kökur.
Bazarnefndin.
Opið
laugardag
Herrahúsið Aðalstræti 4
er opið laugardag frá
kl. 10—12.