Morgunblaðið - 26.10.1974, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 26. OKTÓBER 1974
11
Detroit. Mesta bílaframleiðslu-
borg Bandaríkjanna. Forstjórar
hafa áhyggjur . . . Hvað kemur
almenningi það við? Jú. þeir eru
raunar vinnuveitendur þúsunda i
þvi landi og bifreiðaframleiðslan
hefur hreint ekki svo lítil áhrif
efnahagslega. Það voru hvorki
meira né minna en 9,9 milljónir
bila, sem framleiddar voru 1973.
Enginn bjóst við þviliku aftur
1974 enda hafði salan i mars i ár
hrapað um 32%. Þetta ástand
stafaði auðvitað fyrst og fremst af
hækkun oliunnar. Ford-verksmiðj-
urnar breyttu þremur samsetn-
ingarverksmiðjum i Bandarikj-
unum frá þvi að framleiða stóra
bfla og til að framleiða smærri
bila. General Motors breyttu fimm
af verksmiðjum sinum og Chrysler
tveimur.
Bensinhækkunin var hins vegar
ekki eina ástæðan fyrir minni sölu
stærstu bilanna heldur einnig
verðbólgan, sem er mikil víðar en
hérlendis. Samt hefur nokkuð
gengið á birgðirnar af stóru drek-
unum og Lincoln, Cadillac og
Imperial seldust furðu vel og þó er
það e.t.v. ekki svo merkilegt
þegar það er haft í huga, að ein-
ungis efnaðasta fólkið kaupir þá
og það munar kannski ekki svo
mikið um peningana hvort sem er.
Þess má geta, að hér er nú til sölu
Lincoln Continental á yfir 2 millj.
Chevrolet Vega hefur lítið breyst I útliti en undir boddýinu
eru geymdar 268 breytingar.
Nýjustu
amerísku
tryllitækin.
kr.
Þessum stutta texta fylgja svo
nokkrar myndir af nýjum banda-
rískum bflum, árgerð 1975.
br.h.
Það sést betur aftur úr
Chevrolet Camaro nú eftir
að afturglugginn hefur
verið stækkaður. Z-28
gerðin er semsagt enn á lifi
þó að það sé kannski ekki
nema nafnið.
Dodge Dart er nú framleiddur i sjö gerðum eftir að hafa
staðið undir helmingnum af sölu allra Dodge-bíla '74.
eða a.m.k.
nokkur þeirra
Pontiac ætlar að selja sína útgáfu af Vegunni með hallandi
afturljósum og örlitið öðruvísi grilli, og nafnið er Astre
Þú verður víst að strika 455 V-8 vélina út af vélalistanum
hjá Pontiac Firebird.
Chevrolet Chevy Nova
hefur á sér evrópskt yfir-
bragð, árgerð 1975.
Skák
eftir JÓN Þ. ÞÓR
Nú er hafið einvlgi þeirra
Ingvars Asmundssonar og Jóns
Kristinssonar um titilinn Skák-
meistari tslands 1974, en þeir
urðu sem kunnugt er efstir og
jafnir flandsliðskeppninniá síð-
astliðnu vori. Einvígið hefur
dregizt nokkuð úr hömlu og
veldur því fyrst og fremst, að
þeir Jón og Ingvar hafa verið
önnum kafnir við skákkeppnir I
sumar, tefldu t.d. báðir á
Ólympíuskákmótinu og Ingvar
í sex landa keppninni í Þýzka-
landi I september. Þegar þetta
er ritað er aðeins lokið einni af
fjórum einvígisskákum og lauk
henni með sigri Ingvars. Hér
kemur skákin.
Hvftt: Jón Kristinsson
Svart: Ingvar Asmundsson
Hollenzk vörn
1. d4 — f5, 2. Rf3 — Rf6, 3. g3
— e6,4. Bg2— Bb4 +
(Ingvar hefur mikið dálæti á
þessum leik, sem kann að virð-
ast leiktap við fyrstu sýn, en er
það þó ekki, þar sem hvftur
hlýtur fyrr eða síðar að leika
peðinu frá c3 til c4)
5. c3 — Be7, 6. 0—0 — 0—0, 7.
c4 — c6,
(Annar góður möguleiki var
hér 7. — d6 ásamt Rc6).
8. b3 — a5, 9. Bb2 — d5, 10.
Rbd2 — Bd 7, 11. Re5 — Be8,
12. Rdf3 — Re4, 13. Rd3 —
Rd7, 14. e3?!
Hér kom ekki síður til greina
að leika 14. Rfe5 og sfðan f 3).
14. Bh5!, 15. Dc2 — Bxf 3!
(Góður leikur; hvíti riddar-
inn gat orðið mun öflugri mað-
uren svarti biskupinn).
16. Bxf3 — a4, 17. Bg2— a3, 18.
Bcl — Bf6, 19. b4(?)
(Hér var betra að leika 19. c5
og síðan b4).
19. — Rb6, 20. c5 — Rc4, 21.
Hbl — De8, 22. f3 — Rg5, 23. f4
(Taflmennska hvíts er hálf-
vandræðaleg. Hér koma sterk-
lega til greina að leika 23. Db3
og sfðan b5).
23. — Re4, 24. Rf2 — b5, 25.
cxb6 (frhj.hl.)?
(Þessi kaup eru svörtum í
hag og nú nær hann smám
saman yfirhöndinni. Hvíta peð-
ið á b4 er meiri veikleiki en
svarta peðið á a3 og auk þess
hefur hvítur litla möguleika: til
þess að sækja að peðinu á c6).
25. — Rxb6, 26. Hb3 — Ha4, 27.
Bxe4 — f xe4, 28. Bd2
(Hér var vafalítið betra að
drepa með hrók á a3).
28. — Da8, 29. Hcl — Hc8, 30.
Dc5 — Db7, 31. Dc3 — Be7, 32.
Hcbl
(Nú hefur svartur náð frum-
kvæðinu örugglega í sfnar
hendur og hvftur verður að ein-
beita sér að vörn peðsins á b4).
32. — Da6, 33. Bcl — De2, 34.
Dd2
(Ekki 33. Hxa3 — Hxa3, 34.
Dxa3 — Ha8, 35. Db3 — Hxa2
og svartur vinnur peð).
34. — Dxd2, 35. Bxd2 — Rc4,
36. Bel — Hb8, 37. Rdl — Kf7,
38. Kf2 — Ke8, 39. Ke2 — Kd7,
40. h3 — Ha7, 41. Rc3 — Rb2,
(Nú verður peðið á b4 ekki
varið lengur og þar með eru
úrslitin ráðin).
42. Bd2 — Rd3, 43. g4 — Hxb4,
44. Hxb4 — Bxb4, 45. Hb3 —
Bd6, 46. Rdl — Kc7, 47. Rc3 —
Hb7, 48. Hxb7 — Kxb7, 49. h4
— Ka6, 50. h5 — g6, 51. hxg6 —
hxg6, 52. g5 — Bb4, 53. Rbl —
Kb5, 54. Bxb4 — Kxb4, 55. Kd2
— Rb2, 56. Ke2 — Rc4, 57. Kf2
— c5, 58. dcx5 — Kxc5, 59. Rc3
— Rxe3, og hvítur gafst upp.
Dnidqe
Landsliðið f bridge fer til Tel
Aviv í Israel 30. október nk. á
Evrópumót landsliða. Þátttöku-
þjóðirnar verða alls um 20, en
það er eitthvað færra en undan-
farin ár, þ.e. að austantjalds-
þjóðirnar verða ekki með að
þessu sinni. Þeir sem fara í
þessa ferð eru: Hjalti Elfasson
og Ásmundur Pálsson,
Guðlaugur R. Jóhannsson og
örn Arnþórsson, Karl Sigur-
hjartarson og Guðmundur
Pétursson.
Val landsliðsins og undirbún-
ingúr undir keppnina er búinn
að standa mjög lengi yfir en
hann hófst með 16 para undan-
keppni. Sigurvegarar f þeirri
keppni urðu þeir félagar Ás-
mundur og, Hjalti sem höfðu
svo forgang um að velja sér par
í lokaeinvígið. Þeir völdu með
sér sveitarfélaga sína þá
Guðlaug og örn. A hinn
vænginn höfðu Karl og Guð-
mundur valið, en þeir völdu
með sér Stefán Guðjohnsen og
Sfmon Símonarson. Síðan var
háð 4ra lotu keppni sem lauk
með naumum sigri þeirra fyrr-
nefndu. Þannig fór val fjögurra
meðlima sveitarinnar fram. Um
val á þriðja parinu gilda þær
reglur að fyrirliði landsliðsins
velur það í samráði við fjór-
menningana.
Síðan hafa verið strangar
æfingar og t.d. um sfðustu helgi
voru spilaðar einar fjórar lotur.
í liði þvf sem ísland sendir
nú til keppninnar eru bæði
ungir og gamlir spilarar og hafa
þrfr þeirra ekki áður tekið þátt
í Evrópumótum. Það eru þeir
Guðlaugur R. Jóhannsson, örn
Arnþórsson og Guðmundur
Pétursson. Karl Sigurhjartar-
son hefur tvisvar áður tekið
þátt f Evrópumótum og síðast
en ekki sízt Hjalti og Ás-
mundur, en undirritaður hefur
grun um að Hjalti sé að fara í
sína 10. Evrópukeppni. Guð-
laugur og örn spila „Blue
Club“ kerfið eða Bláa laufið.
Ásmundur og Hjalti spila Neo-
politankerfið en þeir félagar
Karl og Guðmundur eru með
nýjasta kerfið á markaðinum
Precision. Fararstjóri verður
Alfreð G. Alfreðsson — en
hann hefur verið frarstjóri og
fyrirliði íslenzka bridgelands-
liðsins undanfarin ár og hafa
íslenzku keppendurnir jafnan
gefið honum beztu meðmæli og
talið hann ómissandi á Evrópu-
mótin. Einnig verður með í
ferðinni ungur piltur Vigfús
Karlsson.
Bridgeþátturinn óskar lands-
liðinu góðrar ferðar á Evrópu-
mótið, en Mbl. mun reyna eftír
beztu getu að fylgjast með þeim
og færa landanum fréttir af ár-
angri þeirra ytra.
XXX
Brdgeblaðið 3. tölublað 4. ár-
gangs er komið út, en það er
marzhefti blaðsins og því
nokkuð seint á feróinni.
Af efli blaðsins má nefna:
Uppgjör sfðasta keppnistíma-
bils, vörn gegn veikri grand-
opnun, dagbók frá síðasta
Evrópumóti sem haldið var í
Ostende f Belgíu og er þetta
fjórði hluti, brotasilfur úr
bredgeheiminum eftir Guð-
mund Pétursson, sagntækni,
kennsluspil, sagnkeppnin sem
að þessu sinni er milli Stein-
þórs Magnússonar og Sigurjóns
Jónassonar frá Egilsstöðum og
ungra pilta, sem unnu sér rétt í
unglingalandsliðið, Einars Guð-
johnsens og ísaks Ölafssonar.
------Þátturinn hafði
samband við ritstjóra blaðsins
Jón Ásbjörnsson og spurði um
ástæður fyrir þvi hve blaðið er
seint á ferðinni. Hann sagði að
þar væri fyrst og fremst
prentaraverkfallið í vor sem
hefði seinkað útgáfunni ásamt
ýmsum örðugleikum. Jón sagði
að kostnaðurinn við útgáfu
balðsins væri orðinn gífurlegur
og að líkindum yrði hann að
hætta við útgáfu blaðsins um
áramótin. Næsta blað mun
væntanlega koma út fyrir jólin
og verða nokkru stærra en
undanfarin blöð og verða það
síðasta eins og áður sagði. Jón
sagði ennfremur að til álita
kæmiaðgefabridgeblað út einu
sinni á ári, að haustinu, og hafa
það þá stórt og veglegt, en
ekkert væri þó ákveðið í því
efni- A.G.R.